Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar 8. september 2026 20:01 Nú þegar september sólin skín finnum við ilm af hausti í norðan golunni og stöku laufblöð feykjast um. Vitum að myrkrið færist nær en vissan um að á eftir vetri kemur vor gefur okkur kjark og þor. Það er erfitt að eldast og finna kraftinn minnka og kjarkinn dvína smátt og smátt. Þà er nú gott að geta skellt upp nýju heimskorti og breyta nöfnum á vötnum og vissum löndum. Sýna umheiminum að viðkomandi er ennþá við völd og planið sé bara að auka þau völd. Vitandi að sumir munu skelfast en aðrir skella í góm. Leiðtogum leyfist margt en ekki allt og þeir eldast eins og við hin. Við upplifum nú einstaka tíma með gjörbreytta heimsmynd þar sem hlýnun jarðar veldur flóðum, skriðum og skógareldum. Þar sem eldri örvæntingarfullir karlleiðtogar leita allra ráða til að sýna vald sitt þó öllum sé ljóst að þeirra tími er að líða undir lok. Þá reyna þeir samt að sýna vald sitt í skopmynd sem er ekkert grín. Það er dauðans alvara ef þjóðarleiðtogi sem þegar hefur tekið yfir landsvæði sjálfstæðra þjóða og hungrar í önnur tjáir sig á svo myndrænan hátt. Við Íslendingar verðum að gefa skýr skilaboð um að svona gerir maður ekki. Ekki einu sinni örvæntingafullir eldri menn með skrýtna sjálfsmynd. Ísland er vissulega vel staðsett á Atlandshafs hryggnum og hefur þannig hernaðarlegt mikilvægi. En það er ekki í boði og menn þurfa að læra að svona gerir maður ekki. Við vöðum ekki inn í garð okkar næsta nágranna og þykjumst eiga hann. Suma þarf að ala upp stöðugt og kenna þeim einföldustu reglur; Líkt og þú gefur ekki barni ís fyrir matinn þó að því langi mjög mikið í hann. Börn taka ekki dót sem þau eiga ekki. Ísland á nú um stundir öfluga kvenleiðtoga sem þora að segja það sem þarf. Þær hafa alið upp börn mis erfið örugglega og kennt þeim lífsins gildi og reglur. Hvað má og hvað má ekki. Nú þegar þessi orð eru skrifuð og síðustu sólar geislarnir í bili að minnsta kosti gleðja okkur. Þá erum við örugg því okkar einstöku öflugu kvenleiðtogar tala íslensku við alla, líka kynduga örvæntingarfulla karla sem haga sér líkt og óþekk börn. Slík börn geta vissulega geta verið sjálfum sér og öðrum hættuleg og þau þurfa skýr skilaboð; Ìsland er og verður sjálfstætt ríki um ókomin ár. Höfundur er læknir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Donald Trump Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar