Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar 12. september 2026 23:02 Fagleg umgjörð menntakerfisins er veik og umræða um menntamál hefur verið í ógöngum síðustu áratugi. Í hvert sinn sem niðurstöður PISA eru birtar og sýna stöðugt hnignandi frammistöðu hefst umræða um allt og ekkert, hve stór vandinn er, áskoranirnar margar og um allt sem þarf að gera. Allir eru af vilja gerðir, leggja margt gott til sem oftar en ekki fellur í tómið. Því miður leiða þessi viðbrögð til þess að lítið breytist þar sem viðeigandi farveg vantar, umræðan dofnar og rís upp við næsta PISA. En hvers vegna gengur svona illa að koma góðum hugmyndum áfram og bæta almennan námsárangur þrátt fyrir að flestar forsendur séu til staðar? Höfundar skýrslu um niðurstöður PISA 2025 setja fram ýmsar leiðir og benda m.a. á mikilvægi þess að styrkja grunnstoðir menntakerfisins í heild, tryggja fagmennsku, stöðugleika og samfellu, t.d. varðandi stefnumótun, faglegan stuðning við skólana, forystu og mat á gæðum skólastarfsins. Eins og staðan er nú er bæði pólitísk og fagleg forysta í menntakerfinu að stórum hluta í höndum ráðherra á hverjum tíma, sem eðli máls samkvæmt dvelja stutt í einu. Þetta hefur leitt til óstöðugleika í stefnumótun og skorti á langtímahugsun. Slíkur óstöðugleiki og sífellt nýjar áherslur grafa undan trausti fagfólks á aðgerðum stjórnvalda og vilja þeirra til að þróa starfshætti til samræmis við nýjar áherslur því eins víst er að þeim verði breytt á næsta kjörtímabili. Hver ráðherra leggur gjarnan til hliðar verkefni eða ákvarðanir frá síðasta kjörtímabili og við tekur tímabil þar sem nýr ráðherra setur sig inn í málin og undirbýr það sem viðkomandi vill gera á kjörtímabilinu. Ef vel gengur hefst einhvers konar innleiðingarferli og sérfræðingar ráðuneytisins hlaupa hratt og kennarar reyna eftir fremsta megni að koma til móts vilja ráðherra eða jafnvel bíða þetta tímabil af sér. Þegar líður að lokum kjörtímabilsins verður ráðherra upptekinn af kosningum og við að kynna allt það sem hann eða hún hefur áorkað. Eftir kosningar kemur nýr ráðherra og hringurinn byrjar upp á nýtt. Litlu miðar áfram, hvorki góðum né vondum málum. Leiðin út úr þessum vítahring er að styrkja stigið á milli ráðherra og skólanna og móta þar með farveg fyrir innleiðingu umbótaverkefna. Hér á landi gæti það falist í að styrkja hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem miðstöð þekkingar og faglegs forystuafls. Á síðasta kjörtímabili lá fyrir Alþingi frumvarp til laga um samræmda skólaþjónustu um allt land sem ekki tókst að afgreiða og oft hefur verið bent á brotalamir í skólaþjónustu sveitarfélaga. Ráðherra ber ábyrgð á kerfinu sem heild og fer með pólitíska forystu, í því felst m.a. að styrkja faglega umgjörð og sjá til þess að menntakerfið hafi faglega burði til stöðugs umbótastarfs. Höfundur er prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands á sviði menntaforystu og skólaþróunar og ritstjóri skýrslu um niðurstöður PISA 2025. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar