Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar 22. september 2026 19:32 Það er kominn tími til að spyrja spurninga sem mér finnst hafa týnst í umræðunni um SÁÁ: Hver ber faglega ábyrgð þegar starfsmannadeila leiðir til þess að læknar hverfa frá sjúkrahúsi og hætta skapast á að starfsemin raskist verulega? Hvernig gat ágreiningur um stjórnun og framtíð forstjóra þróast þannig að hætta skapaðist á að sjúkrahús þyrfti að stöðva starfsemi vegna skorts á tryggðri læknisfræðilegri ábyrgð? Aðalspurningin er þó þessi: Hvað með sjúklingana? Hvers vegna hefur kastljósið að svo miklu leyti beinst að stjórn SÁÁ en minna að þeirri faglegu og siðferðilegu ábyrgð sem fylgir því að yfirgefa starfsemi þar sem sjúklingar eru háðir samfellu í þjónustunni? Það er einnig eðlilegt að spyrja um viðbrögð heilbrigðisyfirvalda. Hvers vegna hefur ekki verið kallað eftir skýrum svörum frá framkvæmdastjóra lækninga um hvernig tryggja átti samfellu í þjónustu við sjúklinga við brotthvarf hennar? Viðbrögð landlæknis Landlæknir gaf SÁÁ tvo virka daga til að tryggja að sérfræðilæknir tæki faglega ábyrgð á starfseminni. Að öðrum kosti gat komið til stöðvunar á starfsemi sjúkrahússins. Til allrar hamingju tókst á síðustu stundu að tryggja slíka sérfræðilæknisábyrgð. Á sama tíma hafa aðrir læknar hjá SÁÁ meldað sig veika í mótmælaskyni. Slíkar fjarvistir hafa áhrif á mönnun og starfsemi Vogs og geta haft áhrif á þá þjónustu sem unnt er að veita sjúklingum. Hvernig gat ágreiningur um starfshætti forstjóra þróast svo langt að sjúkrahúsið Vogur stæði frammi fyrir mögulegri stöðvun starfsemi? Því meiri faglega ábyrgð sem einstaklingar bera, þeim mun ríkari er ástæða til að gera þá kröfu að þeir svari fyrir ákvarðanir sínar og afleiðingar þeirra. Þá hlýtur einnig að mega spyrja hvernig þeir sem tóku ákvarðanir um að hverfa frá störfum eða vera frá vinnu mátu ábyrgð sína gagnvart sjúklingum og samfellu þjónustunnar. SÁÁ stillt upp við vegg Fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga SÁÁ hefur opinberlega sagst vilja koma aftur til starfa gegn því að fyrrverandi forstjóri verði ráðinn aftur. Svo verður auðvitað ekki, enda hefur nýtt fólk verið ráðið í þessar stöður. Samt heldur atlagan gegn SÁÁ áfram og stjórn samtakanna kennt um að vilja ekki afhenda starfsmönnum stjórnun starfseminnar. Hugsum okkur nákvæmlega sömu atburðarás á Landspítalanum. Yfirlæknir hjartadeildar gerir kröfu um ákveðna niðurstöðu í stjórnunar- eða starfsmannamáli. Niðurstaðan verður önnur. Yfirlæknirinn segir upp og aðrir læknar mæta ekki til vinnu í mótmælaskyni. Nokkrum dögum síðar tilkynnir landlæknir að finna verði sérfræðilækni til að bera faglega ábyrgð á deildinni – annars geti þurft að stöðva starfsemina. Myndi almenningur sætta sig við að þetta væri fyrst og fremst útskýrt sem ágreiningur lækna við stjórnendur? Auðvitað ekki. Faglegt sjálfstæði getur ekki þýtt að fagfólk hafi síðasta orðið þegar það vill ráða – en ábyrgðin færist síðan alfarið yfir á stjórnina þegar afleiðingar ákvarðana þess ógna starfseminni. Vogur er sjúkrahús. Þar eru sjúklingar, ekki peð í stjórnunar- eða starfsmannadeilu. Þegar ágreiningur er kominn á það stig að landlæknir telur nauðsynlegt að tryggja faglega ábyrgð til að koma í veg fyrir stöðvun starfseminnar, er tímabært að hætta að spyrja eingöngu hver hafi rétt fyrir sér í deilunni. Framkvæmdastjórn SÁÁ þarf að svara fyrir sínar ákvarðanir og þá ábyrgð sem henni fylgir. En sama krafa hlýtur að eiga við um alla aðra sem komið hafa að málinu – þar með talið fagfólk og þau yfirvöld og embætti sem hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni. Eru allir þeir sem komið hafa að þessari deilu tilbúnir að horfast í augu við eigin ábyrgð, eigin ákvarðanir og þær afleiðingar sem þær kunna að hafa haft fyrir sjúklinga og starfsemi SÁÁ? Þetta snýst ekki um að finna einn sökudólg. Það snýst um að allir hlutaðeigandi séu tilbúnir að svara fyrir sitt hlutverk og læra af því sem gerðist. Spurningin sem heilbrigðisyfirvöld verða að svara er að lokum miklu einfaldari: Hver á að standa vörð um sjúklingana? Höfundur er fyrrverandi áfengis- og vímuefnaráðgjafi og stjórnarmaður í aðalstjórn SÁÁ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson Skoðun Skoðun Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar