Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar 24. september 2026 23:00 „Deilurnar innan SÁÁ hafa verið hatrammar og að mörgu leyti illskiljanlegar.“ Svo segir í frétt á vef RÚV um viðtal við heilbrigðisráðherra um þær áskoranir sem heilbrigðisþjónusta SÁÁ hefur staðið frammi fyrir undanfarnar vikur. Í viðtalinu ræðir ráðherra um mögulega stöðvun starfseminnar, að fenginni tillögu embættis landlæknis. SÁÁ hafi nokkrar vikur til að koma starfseminni í eðlilegt horf. „Við þurfum að skapa traust, það gerir stjórnin með því að uppfylla samninginn og koma þjónustunni í gang,“ segir ráðherra. Í viðtalinu sendir ráðherra skýr skilaboð til framkvæmdastjórnar SÁÁ um að koma þjónustunni í lag. En hvað er það sem kemur í veg fyrir að það takist? Það þarf lækna til starfa Komið hefur fram að helsta áskorunin sem verið hefur í starfseminni er að manna stöður lækna. Þetta hefur haft áhrif á getu SÁÁ til að taka við nýjum skjólstæðingum. Þarna liggur bráðavandinn. Án lækna er ekki hægt að halda þjónustunni gangandi. Hvorki kröfur ráðherra né vilji framkvæmdastjórnar breyta því. Ágreiningurinn sem leiddi til þessarar stöðu kann að virðast flókinn þeim sem hafa fylgst með honum úr fjarlægð. Fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga sagði upp störfum í kjölfar þess að framkvæmdastjórn varð ekki við kröfu hennar um að endurráða forstjóra sem hafði sjálfur sagt upp. Síðan hefur mönnun lækna verið í uppnámi. Afleiðingarnar bitna á skjólstæðingum SÁÁ. Það er hægt að deila um aðdragandann, ákvarðanir stjórnarinnar og afstöðu einstakra stjórnenda. En verkefnið sem blasir við núna er skýrt: Að tryggja mönnun lækna í heilbrigðisþjónustunni svo hægt sé að taka við fólki sem bíður eftir aðstoð. Hjálpa yfirlýsingar ráðherra? Í þessu ljósi eru áherslur heilbrigðisráðherra í viðtalinu við RÚV skrýtnar. Hvernig eiga yfirlýsingar um tímafresti og umræða um mögulega stöðvun starfseminnar að hjálpa stjórnendum SÁÁ að fá fagfólk til starfa? Hvaða leið sér ráðherra til þess að leysa mönnunarvandann? Getur hún beitt sér fyrir því að læknar fáist til starfa? Framkvæmdastjórn SÁÁ ber ábyrgð á rekstri samtakanna. Hún þarf að svara fyrir ákvarðanir sínar og vinna að því að endurheimta traust. En sú ábyrgð leysir heilbrigðisráðherra ekki undan því að beita sér fyrir lausn þegar mikilvæg heilbrigðisþjónusta er í uppnámi. Alma Möller getur hjálpað til Ráðherra hefur þegar gert skýrt hvers hún krefst af stjórn SÁÁ. Nú þarf hún að gera jafn skýrt hvað hún hyggst sjálf leggja af mörkum. Fólkið sem bíður meðferðar þarf að vita hvert það getur leitað og hvenær það fær hjálp. Aðstandendur þess þurfa að sjá að þeir sem hafa áhrif og aðstöðu til að greiða fyrir lausn séu að gera það. Þau svör eiga að vera í forgrunni þegar heilbrigðisráðherra tjáir sig um málið. Alma Möller hefur sýnt að hún getur tekið forystu á erfiðum tímum. Nú reynir á þann styrk aftur. Hún getur kallað aðila saman, beitt sér fyrir lausn á læknavandanum og stutt stjórnendur SÁÁ við að koma þjónustunni í eðlilegt horf. Ég skora á hana að gera það. Fólkið sem bíður meðferðar hefur ekki endalausan tíma. Höfundur er löggiltur áfengis- og vímuefnaráðgjafi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar