Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar 27. september 2026 08:02 Ég ákvað tólf ára gamall að ég ætlaði að gera bíó. Sextán ára ætlaði ég í MH en endaði í kvikmyndagerð í Borgó. Að því námi loknu stefndi ég utan í nám, en þá varð bankahrun og áformin breyttust aftur. Árið 2010 hóf ég nám við Kvikmyndaskólann. Þar kynntist ég mörgum af mínum bestu vinum og fólki sem ég hef starfað með margoft síðan. Hrafnkell Stefánsson, þáverandi fagstjóri framleiðslu, sendi mig í starfsnám hjá Zik Zak, þar sem ég starfaði næsta áratuginn, meðal annars sem aðstoðarmaður við framleiðslu, tökustaðastjóri, framleiðandi, fjármálastjóri og framkvæmdastjóri. Í vikunni var nýtt húsnæði Kvikmyndaskólans vígt. Glæsileg og vönduð aðstaða, 1.300 fermetrar með öllu sem kvikmyndanemi gæti beðið um. Nemendurnir sem ganga þar inn fá betri aðstöðu en nokkur kynslóð á undan þeim. Stóra spurningin er hvað bíður þeirra þegar þau ganga þaðan út. Sem framleiðandi ræð ég fólk til starfa, og útskrifaðir nemendur Kvikmyndaskólans eru fólk sem við leitum til aftur og aftur. Margir þeirra vinna að verkefnum á heimsmælikvarða. Námið nýtist líka víðar. Að standa saman á tökustað undir tímapressu, treysta hvert öðru og leysa ágreining er reynsla sem fólk tekur með sér hvert sem er. En skólinn stendur ekki einn. Leið mín lá úr skólastofunni inn á tökustað hjá Zik Zak, og þannig hefur það verið hjá flestum sem ég þekki. Sú framaleið er nú að lokast, því í íslenskri kvikmyndagerð ríkir meiri ládeyða en ég hef kynnst á mínum starfsferli. Kvikmyndamiðstöð Íslands (KMÍ) veitir styrki til þróunar og framleiðslu kvikmyndaverkefna. Þessir styrkir eru gæðastimpill sem gerir verkefnum kleift að sækja erlent fjármagn frá sjóðum og meðframleiðendum. Framlög til KMÍ hafa langt í frá haldið í við þarfir greinarinnar eða verðlag í landinu. Á sama tíma hefur ríkið ekki greitt framleiðendum lögbundnar endurgreiðslur á þegar útlögðum kostnaði, og bankar eru hættir að lána út á vilyrði ríkisins um endurgreiðslu, sem hefur lengi verið forsenda fjármögnunar íslenskra verkefna. Kvikmynd tekur oft fjögur til sjö ár frá hugmynd að frumsýningu og það er erfitt að skipuleggja slíkt verkefni þegar forsendurnar sveiflast til og frá. Verkefni frestast eða falla niður og reynt fagfólk leitar í önnur störf eða til annarra landa. Þetta bitnar beint á nemendunum. Þegar lítið er tekið upp fá þau ekki starfsnám, nýútskrifaðir fá ekki fyrstu tækifærin og reynslan flyst ekki á milli kynslóða. Það er lítið vit í að byggja upp glæsilega aðstöðu til að mennta kvikmyndagerðarfólk en láta greinina sem á að taka við því veikjast. Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðanda og önnur fagfélög í greininni hafa kallað eftir langtímasamkomulagi milli ríkisins og kvikmyndagreinarinnar, þvert á flokka og kjörtímabil, líkt og gert var árið 2016, en rann út 2019. Slíkt samkomulag þarf að tryggja fyrirsjáanleg framlög til KMÍ, endurgreiðslukerfi sem greiðir út á réttum tíma og að menntun í kvikmyndagerð sé hluti af heildarmyndinni. Mín áform breyttust vegna bankahruns sem ég hafði ekkert um að segja. Nemendurnir sem nú stunda nám í glæsilegu, nýju húsnæði Kvikmyndaskólans eiga ekki að þurfa að lenda í því sama. Stjórnvöld geta tryggt að þeirra bíði blómlegur kvikmyndageiri, öllum til heilla. Höfundur er formaður Samtaka íslenskra kvikmyndaframleiðanda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar