Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar 3. október 2026 17:01 Við í Framsókn styðjum markmiðið um hallalaus fjárlög, en það má ekki vera sama hvað það kostar. Fjárlögin þurfa að byggjast á raunhæfum forsendum og meta þarf hvað leiðin að hallalausum ríkisrekstri þýðir fyrir fjölskyldur í landinu. Fjármunir ríkisins eru takmarkaðir og þess vegna skiptir forgangsröðunin svo miklu máli. Við þurfum að vita hverjir bera byrðarnar, hversu þungar þær eru og hvaða áhrif ákvarðanir okkar hafa til lengri tíma. Það á bæði við þegar skattar og gjöld eru hækkuð og þegar dregið er úr þjónustu. Heimilin fá höggið Við í Framsókn höfum reiknað dæmi um samanlögð áhrif fyrirhugaðra breytinga í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar á heimilin. Áhrifin ráðast meðal annars af tekjum, fjölskyldustærð, skuldum og rétti til bóta. Dæmin sýna að viðbótarbyrðarnar geta orðið verulegar og lagst hlutfallslega þyngra á tekjulægri fjölskyldur. Ríkisstjórnin hefur lagt áherslu á að breiðu bökin beri byrðarnar. Dæmin okkar sýna hins vegar að tekjulægri fjölskyldur geta orðið fyrir hlutfallslega þyngra höggi. Það er óásættanlegt að fjölskyldur sem hafa minnst svigrúm verði fyrir svo þungu höggi þegar ríkisstjórnin hefur boðað að breiðu bökin eigi að bera byrðarnar. Af ríkisstjórn undir forystu jafnaðarmannaflokks mætti sérstaklega vænta þess að staða þeirra sem hafa minnst svigrúm væri varin. Þess vegna nægir ekki að skoða hverja breytingu fyrir sig. Það þarf að meta hvernig þær leggjast saman í daglegu lífi fólks. Í útreikningunum þarf jafnframt að greina á milli aukinna útgjalda, minni stuðnings og hækkunar skulda. Þótt áhrifin birtist með ólíkum hætti hafa þau öll þýðingu fyrir fjárhag fjölskyldunnar. Gjaldtaka og verðbólga tengjast Gjöld á almenning og það að ná tökum á verðbólgunni eru tvær hliðar á sama peningi þegar kemur að afkomu heimilanna. Hækkanir opinberra gjalda sem birtast í verði vöru og þjónustu geta aukið framfærslukostnað og mælda verðbólgu. Þess vegna þarf samræmd og fyrirsjáanleg gjaldastefna ríkis og sveitarfélaga að styðja við markmiðið um stöðugt verðlag. Jafnframt verður að gæta að heildarafkomu ríkissjóðs. Hóflegri gjaldahækkunum þarf að fylgja trúverðug forgangsröðun og sparnaður annars staðar, svo aðgerðirnar vinni ekki gegn baráttunni við verðbólguna. Verkefnið er að milda höggið á heimilin og tryggja um leið ábyrgð í ríkisfjármálum. Breytt hugsun í fjárlagagerð Áður en skattar eru hækkaðir eða þjónusta skert þarf að meta samanlögð áhrif á heimili, fyrirtæki og grunnþjónustu. Við eigum líka að horfa lengra en til eins fjárlagaárs eða kjörtímabils. Sparnaður í dag getur orðið að meiri kostnaði síðar ef nauðsynlegur stuðningur veikist eða viðhaldi er sífellt frestað. Ný nálgun þarf að byggjast á skýrri forgangsröðun, betri nýtingu fjármuna og öflugri verðmætasköpun sem stendur undir velferðinni til framtíðar. Fyrirsjáanleiki skiptir þar miklu máli, svo heimilin geti skipulagt fjármálin og fyrirtækin fjárfest, þróað nýjar lausnir og skapað störf. Heimilissáttin og næstu skref Þann 2. október kynntum við í Framsókn Heimilissáttina. Við leggjum meðal annars til að gjaldahækkunum verði stillt í hóf, fyrirhuguð hækkun bankaskatts verði helminguð, barnabætur fylgi verðlagi og vaxtabætur haldist. Við viljum verja grunnþjónustuna og hvetja til fjárfestinga og verðmætasköpunar, meðal annars með hraðari skattalegum fyrningum vegna fjárfestinga í nýrri og orkusparandi tækni og búnaði. Samhliða þarf að ná samkomulagi um fjármögnun, raunhæfan sparnað og hvaða verkefnum megi fresta. Í fjárlaganefnd mun ég fylgja þessum tillögum eftir og leggja áherslu á að forsendur frumvarpsins verði endurmetnar. Nú stefnir í mun meiri verðbólgu en frumvarpið gerir ráð fyrir. Það hefur áhrif á bæði tekjur og gjöld ríkissjóðs, meðal annars vaxtakostnað og kostnað við opinbera þjónustu, og getur því breytt afkomuhorfunum. Áður en fjárlögin verða afgreidd þurfa jafnframt samanlögð áhrif aðgerðanna á ólíka hópa og grunnþjónustuna að liggja skýrt fyrir. Markmiðið er að milda höggið á fjölskyldurnar og tryggja ábyrg ríkisfjármál til lengri tíma. Svarið við vanda ríkissjóðs getur ekki alltaf verið nýr reikningur til fólksins í landinu. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingibjörg Ólöf Isaksen Fjármál heimilisins Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framsóknarflokkurinn Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar