Innlent

„Hafðu kjarn­orku­vopnin til­búin“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Heimir Már vill að Macron sé klár með kjarnorkuvopnin.
Heimir Már vill að Macron sé klár með kjarnorkuvopnin. Vísir/Vilhelm/EPA

Framkvæmdastjóri Flokks fólksins skrifar í ummælum við færslu Emmanuel Macron Frakklandsforseta að hann skuli senda hermenn til Úkraínu og hafa kjarnorkuvopn tilbúin. 

Frakklandsforseti skrifaði færslu á samfélagsmiðilinn X í gær þar sem hann vottar Úkraínumönnum samúð vegna drónaárásar Rússa í Dnipro. Lenti dróninn á lestarpalli í borginni og létust þrettán og fjöldi til viðbótar særðist en fólkið var að bíða eftir að komast um borð í farþegalest sem stefnt var til Sapórisjía þegar árásin var gerð.

Í færslunni skrifar Macron að nauðsynlegt sé að stefna á meira en staðbundið vopnahlé líkt og það sem nýlega var samið um í Olechky. Jafnframt skrifar Macron að óásættanlegt sé að Rússar haldi áfram að stuðla að stigmögnun átakanna með því að ráðast á óbreytta borgara.

„Saman þurfum við að tvöfalda viðleitni okkar til að ná varanlegum friði og ná Rússum að samningaborðinu,“ skrifaði Macron.

Þessi orð virðast hafa farið fyrir brjóstið á Heimi Má Péturssyni, framkvæmdastjóra Flokks fólksins. Í ummælum við færslu Macron biður Heimir Frakklandsforseta vinsamlega að gera meira en að halda ræður.

„Hættu ræðuhöldunum og sendu hermenn til að berjast fyrir Úkraínu og Evrópu og vertu með kjarnorkuvopnin til að skjóta, í eitt skipti fyrir öll,“ skrifar Heimir Már.

Hvorki náðist í Heimi Má né Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, við vinnslu þessarar fréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×