Enski boltinn

Hópurinn vilji hafa Carrick á­fram

Valur Páll Eiríksson skrifar
Tielemans segir Carrick stóra ástæðu þess að hann samdi við Manchester United. Leikmannahópurinn styðji þjálfarann og vilji hafa hann áfram þrátt fyrir agalegt gengi.
Tielemans segir Carrick stóra ástæðu þess að hann samdi við Manchester United. Leikmannahópurinn styðji þjálfarann og vilji hafa hann áfram þrátt fyrir agalegt gengi. Getty

Belgíski miðjumaðurinn Youri Tielemans segir að leikmannahópur Manchester United styðji glaður að Michael Carrick haldi áfram sem knattspyrnustjóri, þrátt fyrir versta gengi félagsins síðan 2015.

Margir bjuggust við því að Carrick yrði fyrsti knattspyrnustjórinn í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu til að vera rekinn eftir 3-0 tap á heimavelli gegn Bournemouth, sem fylgdi í kjölfar 4-1 taps fyrir Como í Meistaradeildinni.

United hefur ekki unnið í síðustu átta leikjum. Síðasti sigur kom gegn Sabah frá Aserbaídsjan í Meistaradeildinni þann 10. september. Síðasti deildarsigur var gegn Ipswich Town þann 30. ágúst.

Stjórnendur United ákváðu að grípa ekki til róttækra aðgerða og gefa Carrick, sem lék með United frá 2006 til 2018, frekar tíma til að snúa genginu við.

Tielemans gekk til liðs við United frá Aston Villa í sumar, sem einn af þremur miðjumönnum sem félagið keypti, auk Andrey Santos og Carlos Baleba. 

Tielemans segir Carrick hafa verið eina helstu ástæðu þess að hann ákvað að fara á Old Trafford.

„Ég kom hingað að hluta til vegna hans, af því að hann vildi fá mig hingað, hann vill að ég hjálpi liðinu,“ sagði Tielemans við TNT Sports.

„Þannig að ég er mjög ánægður með að hann haldi áfram og allur hópurinn, við viljum ekki skyndilegar breytingar,“

„Við viljum ekki miklar breytingar sem raska hlutunum enn frekar en orðið er, við þurfum bara stöðugleika, við þurfum að halda áfram að leggja hart að okkur og þá snýst þetta við á einhverjum tímapunkti.“

Manchester United sækir Chelsea heim á Stamford Bridge í hádeginu á morgun í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn hefst klukkan 12:30 og er sýndur beint á Sýn Sport. Bein útsending hefst klukkan 12:10.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×