Hagnaður Kviku dróst saman Agnar Már Másson skrifar 4. nóvember 2026 16:34 Höfuðstöðvar Kviku eru í Borgartúni. Vísir/Lýður Valberg Hagnaður viðskiptabankans Kviku á þriðja ársfjórðungi dróst saman þegar miðað er við sama tímabil í fyrra. Aftur á móti hefur arðsemi á efnislegt eigið fé ekki verið hærri í tvö ár.
Frá þessu er greint í Kauphallartilkynningu. Fyrir skatta nam hagnaður af áframhaldandi starfsemi Kvikusamstæðunnar um 1,7 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026, og dróst saman um eða 10,9 prósent miðað við sama ársfjórðung í fyrra. Eftir skatta nemur breytingin um 8,8 prósenta lækkun. Hreinar vaxtatekjur námu þó 3.052 milljörðum sem nemur 3,4 prósenta hækkun. Vaxtamunur var sá sami, 4 prósent. Aðrar rekstrartekjur námu 366 m.kr, sem er um 8 prósenta hækkun frá fyrra ári. Hreinar þóknanatekjur námu 1,38 milljörðum á tímabilinu og lækkuðu um 12,2 prósent miðað við þriðja ársfjórðung 2025. Á sama tíma jókst rekstrarkostnaður um 2,4 prósent og nam 2.807 milljónum króna. Aftur á móti jókst arðsemi efnislegs eigin fjár (RoTE) fyrir skatta af áframhaldandi starfsemi og nemur hún 18,9 prósentum miðað við 17,8 prósent á sama tíma í fyrra. „[Arðsemin] var sú hæsta síðan á þriðja fjórðungi árið 2024 og kemur í kjölfar umfangsmikilla útgreiðslna til hluthafa í formi arðs og endurkaupa,“ er haft eftir bankastjóranum Ármanni Þorvaldssyni, sem hættir brátt störfum. Hagnaður á hlut af áframhaldandi starfsemi dróst þó saman og nemur 0,31 krónu á nýliðnum ársfjórðungi samanborið við 0,33 kr. á sama tímabili í fyrra. Innlán frá viðskiptavinum jukust og námu 200 milljörðum króna samanborið við 173 milljarða í lok árs 2025 og jukust um 16,0 prósent á tímabilinu. Útlán til viðskiptavina voru 235 ma.kr., samanborið við 208 ma.kr. í lok árs 2025 og jukust um prósent á tímabilinu. Heildareignir námu 370 ma.kr., samanborið við 343 ma.kr. í lok árs 2025. Eigið fé samstæðunnar dróst saman og nam 58 milljörðum króna, samanborið við 69 milljarða í lok árs 2025. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar (CAR) var 22,3 prósent, samanborið við 26,8 prósent í lok árs 2025. Hlutfallið tekur tillit til óendurskoðaðs hagnaðar tímabilsins en eiginfjárhlutfall samkvæmt reglum Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands var 21,8% í lok september 2026. Heildarlausafjárþekjuhlutfall (LCR) samstæðunnar var 174%, samanborið við 404% í lok árs 2025. Heildareignir í stýringu námu 442 ma.kr., samanborið við 469 ma.kr. í lok árs 2025. „Á fjórðungnum var tilkynnt um ráðningu nýs forstjóra, Jóns Birgis Jónssonar, sem mun hefja störf í byrjun desember. Ég óska Jóni velfarnaðar í starfi á sama tíma og ég kveð frábæran vinnustað með miklum söknuði,“ er haft eftir Ármanni, fráfarandi bankastjóra.
Kvika banki Kauphöllin Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Hagnaður Kviku dróst saman Reitir féllu frá samstarfi við Art-verk Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Sjá meira