Akureyri

Akureyri

Mannfjöldi: 20.050 (2025). Flatarmál: 136 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Akureyri, Hrísey, Grímsey.


Fréttamynd

Vilja stjórn­völd halda Gríms­ey í byggð?

Það fer ekki framhjá neinum sem heimsækir Grímsey að þarna er samfélag sem býr yfir ótrúlegum styrk og þrautseigju. Með þetta í farteskinu hafa Grímseyingar haldið áfram og sýnt okkur samheldni og úthald við aðstæður sem íbúar í þéttbýlinu mundu flestir telja ólíðandi. En síðustu aðgerðir eða kannski væri rétt að segja aðgerðarleysi stjórnvalda eru þannig að úthald Grímseyinga fer minnkandi. 

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Meiri­hluti odd­vita í glæ­nýju hlut­verki

Mikil endurnýjun er á oddvitum framboða á Akureyri og í Fjallabyggð fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar en af ellefu oddvitum í sveitarfélaganna eru sjö nýir. Þrír oddvitar eru enn fremur glænýir í sveitarstjórnarmálum í sveitarfélögunum, oddvitar Viðreisnar og L-listans á Akureyri og oddviti Jafnaðarfólks og óháðra í Fjallabyggð. Aðeins Framsókn, Vinstri græn og Miðflokkurinn eru með sömu oddvita og í síðustu sveitarstjórnarkosningum á Akureyri. H-listinn í Fjallabyggð heldur sig einnig við sama mann í forystusæti og síðast.

Innlent
Fréttamynd

Sterkari saman

Á laugardaginn, þegar sléttar fjórar vikur voru til kosninga, kynntum við í Samfylkingunni á Akureyri stefnuskrána okkar og kosningaáherslur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Áherslurnar eru afrakstur vinnu listans, sem samanstendur af 22 öflugum og ólíkum einstaklingum, samtali við íbúa, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök um hvernig við byggjum bæinn okkar til framtíðar.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun

Rannsókn á meintu kynferðisbroti og líkamsárás á Akureyri í byrjun mars hefur verið hætt. Talið var að ekki væri hægt að sýna fram á meint brot. Eitt brotanna, gegn kynferðislegri friðhelgi, hefur verið sent til héraðssaksóknara.

Innlent
Fréttamynd

„Dreginn inn í um­ræðu þar sem engar stað­reyndir eða neitt liggja fyrir“

Lögregla hefur fellt niður rannsókn á Sigurði Sindra Magnússyni athafnamanni í tengslum við meint kynferðisbrot á Akureyri. Hann segist ekki myndu óska neinum þess að vera ranglega bendlaður við kynferðisbrot en Sigurður hefur síðasta mánuðinn setið undir aðkasti á samfélagsmiðlum þar sem fullyrt er að hann sé nauðgari. Hann segist aðeins hafa leigt húsnæði þar sem meint brot átti sér síðan stað og því hafi hann verið boðaður í skýrslutöku við upphaf lögreglurannsóknar. Að öðru leyti komi hann ekki nálægt málinu.

Innlent
Fréttamynd

Sterkari Há­skóli, sterkari Akur­eyri!

Háskólinn á Akureyri er einn sterkasti hornsteinn samfélagsins okkar. Háskólinn hefur ekki aðeins byggt upp öflugt mennta- og rannsóknarumhverfi, heldur hefur hann einnig laðað að fólk til búsetu, styrkt atvinnulíf og aukið fjölbreytni í samfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

Fagnar fjölgun skráninga í Þjóð­kirkjuna

Presta- og djáknastefna fer þessa dagana fram á Akureyri. Um er að ræða árlegan viðburð þar sem biskup Íslands kallar vígða þjóna kirkjunnar til fundar við sig og samtals. Biskup fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna en segir mega gera betur.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta lið á Akur­eyri vildi ekki gefa mér gullið“

Vaxtarræktarheimurinn nötrar eftir að Íslandsmótið í fitness fór fram á Akureyri um helgina. Einkaþjálfarinn Guðmundur Emil Jóhannsson telur sig hafa verið rændan sigri eftir að hafa lent í öðru sæti á eftir Íslandsmeistaranum Sæmundi Frey Erlendssyni. Sæmundur segir Guðmund hafa látið keppnisskapið leiða sig í gönur og hann gert lítið úr mótherjum.

Lífið
Fréttamynd

Maður stunginn í heima­húsi á Akur­eyri

Maður leitaði á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri aðfaranótt föstudags með stunguáverka og þurfti að undirgangast skurðaðgerð. Ráðist var á hann í heimahúsi og tveir eru grunaðir um aðild að málinu.

Innlent
Fréttamynd

Þau skipa L-listann á Akur­eyri

Óðinn Svan Óðinsson, fyrrverandi fréttamaður Ríkisútvarpsins, er oddviti L-listans á Akureyri en listinn hefur verið samþykktur. Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og lífeindafræðingur, skipar annað sætið.

Innlent
Fréttamynd

Fólks­fjölgun fór langt fram úr spá á Ísa­firði

Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Fólk stillt að mestu á Akur­eyri

Varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri segir kvöldið hafa gengið rólega fyrir sig þrátt fyrir mikinn fjölda fólks í bænum yfir helgina. Lögregla sinnti minniháttar líkamsárás.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta hlýtur að verða metdagur“

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Sjúkra­húsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins

Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fara fram á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri skili páskaeggjum sem það fékk að gjöf frá Smáríkinu, sem opnaði í bænum í vikunni. Forstjóri sjúkrahússins segist hingað til hafa tekið við öllum gjöfum og ekki gert upp á milli gefenda. Verkferlar verði þó skoðaðir. 

Innlent
Fréttamynd

Færri strætó­ferðir um páskana

Strætó verður ekið samkvæmt sunnudagsáætlun alla rauða daga um páskana á höfuðborgarsvæðinu og á sunnudags- og laugardagsáætlun landsbyggðinni. Næturstrætó gengur eins og vanalega páskahelgina.

Innlent
Fréttamynd

Gerum hlutina al­menni­lega!

Aðstöðumál íþróttafélaga skipta sköpum fyrir öflugt íþróttastarf. Þau skipta líka miklu máli fyrir samfélagið í heild. Svo Akureyri sé aðlaðandi kostur fyrir fjölskyldufólk til að setjast að þarf aðstaða fyrir börn og ungmenni að vera í lagi. Þar gegna íþróttamannvirki lykilhlutverki.

Skoðun
Fréttamynd

Snekkjan fékk undan­þágu frá hafn­banni

Snekkja skattsvikarans og auðjöfursins rússneska Olegs Tinkov, La Datcha, liggur við bryggju á Akureyri þar sem hún tekur olíu og neyðarvistir. Hafnarbann á snekkjunni vegna þvingunaraðgerða gegn Rússum er enn í gildi en undanþága var veitt af öryggisástæðum.

Innlent