„Flestum þykir vænt um bóndann“, segir formaður Bændasamtakanna „Flest öllum þykir vænt um bóndann, bóndann sem er á bak við matvælin, bóndann sem er á bak við Bændasamtökin en rosalega mörgum er illa við kerfið”, segir formaður Bændasamtaka Íslands og vísar þar í að landsmenn þurfi að tengja við íslenska bændur þegar keypt eru íslensk matvæli í verslunum. Innlent 4.1.2026 13:06
„Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir, sem skila raunverulegum árangri í loftlagsmálum”, segir formaður Bændasamtakanna og bætir við að það hafi verið jákvæð skref í vetur þegar veittur var fjárfestingastuðningur til ylræktarbænda til að draga úr orkukostnaði. Innlent 27.12.2025 13:05
Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum hafa tilkynnt áfengissölu á jólamarkaði í Hrunamannahreppi til lögreglu. Framkvæmdastjóri brugghúss segir söluna hafa farið fram í góðri trú. Innlent 9.12.2025 07:17
Býður sig ekki fram til áframhaldandi formennsku Sigurður Ingi Jóhannsson mun ekki bjóða sig fram til áframhaldandi formennsku í Framsóknarflokknum á næsta flokksþingi. Þetta tilkynnti Sigurður á ræðu á miðstjórnarfundi flokksins í dag. Innlent 18. október 2025 13:19
430 sunnlenskir grunnskólakennarar funduðu á Flúðum „Gervigreind, netöryggi og skapandi verkefni“ í skólastarfi voru aðal málin á tveggja daga haustþingi kennara á Suðurlandi. Formaður Kennarafélags Suðurlands treystir sér ekki til að segja um hvort banna eigi símanotkun eða ekki í sunnlenskum skólum. Innlent 12. október 2025 20:03
Kyngreint nautasæði kemur vel út Kúabændur eru ánægðir með þann árangur sem náðst hefur með kyngreint sæði þegar þeir velja naut til að sæða kýr sínar með. Með sæðinu ræður bóndinn hvort hann fær kvígukálf eða nautkálf í heiminn. Sérstakur kyngreiningarbíll frá Danmörku kemur til landsins til að kyngreina sæðið. Innlent 7. október 2025 15:04
Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Prestur og prófastur á Suðurlandi ræður sér vart yfir spenningi að bíða eftir því að Hrútaskráin komi út enda segir hann að skráin sé eitt af helgiritum heimilisins áður en fengitíminn hefst. Sjálfur er klerkurinn með um 100 fjár. Innlent 4. október 2025 20:31
Sungið og sungið í Tungnaréttum Fjárréttir fara víða fram um helgina, meðal annars á Suðurlandi þar sem fjölmenni sótti Hrunaréttir og Tungnaréttir í gær og Reykjaréttir og Tungnaréttir í dag í blíðskaparveðri. Mikið var sungið í Tungnaréttum eins og alltaf. Innlent 13. september 2025 20:05
3,7 stiga skjálfti í Árnesi Snarpur skjálfti átti sér stað við Ketilsstaðaholt í Holtum í Rangárvallasýslu klukkan 08:39 í morgun. Hann var 3,7 stig að stærð. Innlent 11. september 2025 08:47
Nýupptekið grænmeti á Flúðum í dag og opnar garðyrkjustöðvar Það verður mikið um að vera á Flúðum og nágrenni í dag því þá fer fram uppskeruhátíð Hrunamannahrepps. Hægt verður að versla ný upptekið grænmeti frá garðyrkjubændum og svo verður opið hús á nokkrum stöðum og Flúðasveppir ætla að leyfa gestum og gangandi að skoða inn í sveppa klefa hjá sér. Lífið 6. september 2025 12:13
Kjölur ekki á dagskrá Vegabætur á Kili eru ekki á áætlun þrátt fyrir að teikningar hafi verið til í nokkur ár. Vegagerðin segir málið snúast um forgangsröðun. Allt að fimm hundruð bílum er ekið daglega yfir Kjöl þegar mest er. Innlent 5. september 2025 22:00
Vegurinn yfir Kjöl gerir ferðalöngum lífið leitt Ástand Kjalvegar hefur verið mjög slæmt á köflum í sumar. Ferðaþjónustufólk vill sjá úrbætur á veginum og að sem flestum verði gert kleift að njóta hálendisins. Innlent 4. september 2025 23:02
Framsóknarprins fékk formannsnafn Sigurður Ingi Jóhannsson fékk alnafna þegar áttunda barnabarn hans var skírt um helgina. Drengurinn er grænn í báðar ættir því móðir hans, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, er fyrrverandi þingmaður Framsóknar meðan faðirinn, Jóhann H. Sigurðsson, var skrifstofustjóri flokksins. Lífið 2. september 2025 11:25
Tveir fluttir með þyrlunni og fjórir með sjúkrabíl Sex manns voru í bílunum tveimur sem skullu harkalega saman á Skeiða- og Hrunamannavegi á sjöunda tímanum í kvöld. Innlent 6. ágúst 2025 21:14
Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út rétt í þessu vegna umferðarslyss á Skeiða- og Hrunamannavegi skammt frá Flúðum. Tveir bílar skullu saman. Innlent 6. ágúst 2025 19:15
Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Þeir voru ekkert að slaka á eða gefast upp ökumenn átta dráttarvéla, sem tóku þátt í traktorstorfæru á Flúðum um helgina í risa drullupolli. Margir þeirra fóru á bólakaf við aksturinn á meðan það drapst á vélunum hjá öðrum. Innlent 3. ágúst 2025 20:03
Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Það mun allt iða af líf og fjöri á ánni Litlu Laxá á Flúðum í dag því þar fer fram furðubátakeppni þar sem allskonar heimasmíðaðir bátar af svæðinu munu sigla niður ána. Innlent 3. ágúst 2025 13:04
Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kölluð út rétt fyrir klukkan 15 í dag vegna hjólreiðamanns sem slasaðist í grennd við Kerlingarfjöll. Innlent 28. júlí 2025 15:44
„Takk Hreyfill frá Vorsabæ“ Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, fagnar því að ástarfundur þeirra Gleði og Hreyfils hafi borið árangur og bíður spenntur eftir afkvæminu sem verður kastað í vor, hvort sem það verður hryssa eða foli. Lífið 1. júlí 2025 11:41
Gáfu fjölskyldu Víglundar draumavél feðganna Söfnun handa fjölskyldu Víglundar Þorsteinssonar, tíu ára drengs sem lést af slysförum í lok maí á bænum Haukholtum í Hrunamannahrepp, hefur gengið vel. Forsvarsmenn Kvenfélags Hrunamannahrepps sögðu frá því í gær að ný dráttarvél hefði verið keypt handa fjölskyldunni. Innlent 12. júní 2025 14:39
Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Víglundar Aðstandendur Víglundar Þorsteinssonar, tíu ára drengs sem lést í slysi á bænum Haukholtum í Hrunamannahreppi, hafa sett af stað söfnun til stuðnings fjölskyldu hans. Kvenfélag Hrunamannahrepps heldur utan um söfnunina. Innlent 31. maí 2025 00:47
„Yndisleg kvöldstund í þessum þunga harmi okkar“ Fjölmenn bænastund var haldin í Hrunakirkju í gærkvöldi vegna tíu ára drengs sem lést í slysi við Hvítá í fyrradag. Sóknarpresturinn segir stundina hafa verið áhrifaríka en margir finni nú til. Innlent 30. maí 2025 11:54
Barn fórst í Hvítá í gær Banaslys varð í Hvítá í Hrunamannahreppi í gær þegar dráttarvél rann fram af háum bakka og hafnaði ofan í ánni. Ökumaðurinn var tíu ára gamall drengur og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi. Innlent 29. maí 2025 15:32
Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá Enn stendur yfir vinna á vettvangi við að ná upp dráttarvélinni sem hafnaði í Hvítá í gærkvöldi. Um alvarlegt slys var að ræða en einn var fluttur til Reykjavíkur með þyrlu vegna slyssins. Innlent 29. maí 2025 12:09