Stöðvuðu stút með naglamottu Lögregluþjónar frá Lögreglunni á Suðurlandi, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og úr sérsveit ríkislögreglustjóra veittu um helgina ökmanni sem neitaði að stöðva bíl sínn eftirför. Beita þurfti naglamottu til að stöðva hann á endanum. Innlent 16.3.2026 16:54
Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Birgitta Ragnarsdóttir tollmiðlari leiðir lista Samfylkingarinnar og óflokksbundinna í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum. Innlent 14.3.2026 18:16
Þau skipa D-listann í Hveragerði Ingimar Guðmundsson, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, leiðir lista D-listans í Hveragerði. Töluverð endurnýjun er á listanum. Innlent 4.3.2026 13:37
Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Það verður mikið um að vera í Hveragerði á nýju ári því bæjarfélagið fagnar 80 ára afmæli sínu með fjölbreyttum afmælisviðburðum. Einn af hápunktum afmælisins verður heimsókn forseta Íslands í lok apríl. Innlent 18. janúar 2026 13:05
Þjónustukjarni eldri borgara – lykill að gæðasamfélaginu í Hveragerði Gæði samfélags mælast í því hvernig við þjónustum íbúana. Íbúasamsetning í Hveragerði er fjölbreytt og býr í bænum m.a. fjölmennur og virkur hópur eldra fólks. Það er eitt af megin áherslumálum Framsóknar að bjóða upp á fjölbreyttan búsetuvalkost fyrir alla hópa samfélagsins. Það er því mikilvægt að hlusta eftir því hvað hentar hverjum. Skoðun 18. janúar 2026 12:00
Eftirmaður Guðbrands í sjokki en klár í slaginn Sandra Sigurðardóttir varaþingmaður Viðreisnar sem nú tekur við þingsæti Guðbrands Einarssonar í Suðurkjördæmi segist vera í sjokki vegna málsins. Ákvörðunin hjá Guðbrandi um að segja af sér vegna tilraunar til vændiskaupa sé hinsvegar hárrétt og segist Sandra vera klár í slaginn á Alþingi. Innlent 16. janúar 2026 11:41
Orðin innantóm um rekstur Hveragerðisbæjar Um miðjan desember var fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 samþykkt. Í kjölfarið fór meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis mikinn og talaði um einstaka fjárhagsáætlun sem sýndi ábyrgan rekstur og lækkun skulda. Skoðun 15. janúar 2026 14:30
6 fríar klukkustundir og tæmdir biðlistar á leikskólum í Hveragerði Í upphafi kjörtímabilsins lagði meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar upp þá stefnu að bjóða upp á 6 klukkustundir gjaldfrjálst á leikskólum bæjarins. Skoðun 15. janúar 2026 13:00
Frír leikskóli í sex klukkutíma á dag í Hveragerði Frítt verður fyrir börn í sex tíma á dag í leikskólum Hveragerðisbæjar frá 1. febrúar næstkomandi en frítt hefur verið fyrstu fimm klukkustundirnar frá 1. janúar síðastliðnum. Þetta var samþykkt samhljóða í bæjarstjórn í gær, 8. janúar. Innlent 9. janúar 2026 20:05
Ungmennahús í Hveragerði Fulltrúar Okkar Hveragerðis í bæjarstjórn og nefndum Hveragerðisbæjar hafa unnið statt og stöðugt að því að tryggja íbúum framúrskarandi þjónustu og lífsgæði í bæjarfélaginu. Skoðun 5. janúar 2026 20:01
Veki furðu að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum Teitur Þorkelsson leiðsögumaður kom að bílveltu í gær, nýársmorgun, við Kambana á Hellisheiði og furðar sig á því að bílaleigubílar séu ekki á nagladekkjum. Í bílnum voru ferðamenn sem voru fluttir til Hveragerðis til aðhlynningar og voru ekki alvarlega slasaðir að sögn Teits. Hann segir þau þó hafa verið í miklu áfalli. Innlent 2. janúar 2026 08:25
Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli Kona var flutt á slysadeild á Selfossi eftir að ekið var á hana í Hveragerði um klukkan tíu í gærmorgun. Konan var á rafhlaupahjóli þegar bíl var ekið á hana við gatnamót Breiðumerkur og Sunnumerkur. Innlent 14. desember 2025 13:31
Króuðu stolinn bíl af í Kömbunum eftir eftirför þvert yfir Hellisheiði Lögregla veitti ökumanni eftirför frá höfuðborgarsvæðinu og þvert yfir Hellisheiðina. Ökumaðurinn var á stolnum bíl og sinnti ekki merkjum lögreglu um að nema staðar fyrr en liðsauki barst í Kömbunum. Maðurinn sá sér loks enga leið færa en að gefa sig upp og var handtekinn. Innlent 7. desember 2025 23:38
Skólp og klór frá Hveragerði gerir Ölfusingum lífið leitt Íbúar í Ölfusi eru langþreyttir á mengun í Varmá sem kemur frá nágrönnum þeirra í Hveragerði. Skólplykt leggur yfir íbúðahverfi í Ölfusi og fiskar hafa drepist í ánni vegna klórs frá sundlauginni í Laugaskarði. Bæjaryfirvöld tilkynntu ekki um klórslys sem varð í vor fyrr en daginn eftir að það átti sér stað. Innlent 6. desember 2025 07:02
Fleiri en Seyðfirðingar óánægðir með samgönguáætlun Bæjarráð Hveragerðisbæjar bókaði í morgun yfirlýsingu um gríðarleg vonbrigði yfir nýkynntri samgönguáætlun, þar sem færslu þjóðvegarins, fyrir neðan Hveragerði frá Kömbum að Varmá, hafi verið frestað enn á ný. Innlent 4. desember 2025 13:22
Selfyssingar unnu Skjálftann með verki um hinsegin bakslag Skjálftinn, hæfileikakeppni sunnlenskra ungmenna, fór fram í fimmta sinn um helgina þar sem ungmenni úr unglingadeildum grunnskóla á Suðurlandi sýndu fjölbreytt sviðsverk. Vallaskóli á Selfossi vann með verki um bakslag í réttindabaráttu hinsegin fólks. Lífið 2. desember 2025 12:59
Ráðin bæjarritari í Hveragerði Steinunn Erla Kolbeinsdóttir hefur verið ráðin bæjarritari Hveragerðisbæjar. Innlent 21. nóvember 2025 10:06
Jóhanna ætlar ekki aftur fram Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar og oddviti Framsóknar ætlar ekki að bjóða sig fram að nýju í sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Hún greinir frá þessu í aðsendri grein á Vísi. Innlent 5. nóvember 2025 22:37
Þakklæti og árangur, uppbygging og samstarf Eftir vel ígrundaða ákvörðun hef ég ákveðið að gefa ekki kost á mér sem oddviti Framsóknar í Hveragerði fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Skoðun 5. nóvember 2025 22:30
Eldur í bíl á Hellisheiði Lögreglunni á Suðurlandi var fyrir stuttu tilkynnt um eld í bíl á Hellisheiði. Samkvæmt upplýsingum frá Einar Sigurjónssyni aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi gat ökumaður sjálfur slökkt eldinn og svo ekið bílnum af vettvangi. Innlent 3. nóvember 2025 14:02
Hjóluðu 1300 kílómetra meðfram Dóná með börnum sínum Fjölskyldu í Hveragerði finnst fátt skemmtilegra en að fara saman út að hjóla og ekki síst í útlöndum. Fjölskyldan er nýkomin heim úr hjólaferð meðfram Dóná, næst lengstu á í Evrópu en í ferðinni voru hjólaðir um þrettán hundruð kílómetrar og fjölskyldan gisti átján nætur í tjaldi. Innlent 2. nóvember 2025 20:05
Ný viðbygging og hafragrautur í Hveragerði Mikil ánægja er á meðal starfsmanna og nemenda Grunnskóla Hveragerðis með nýja viðbyggingu við skólann þar sem nýr og glæsilegur matsalur er hluti af byggingunni. Viðbyggingin kostaði um einn milljarða króna. Ókeypis hafragrautur er í boði fyrir nemendur alla morgna í skólanum. Innlent 24. október 2025 20:05
Fjögur hundruð milljónir króna í skjalatösku í Hveragerði Það gengur mikið á í Hveragerði þessa dagana því þar snýst allt um fjögur hundruð milljónir króna í skjalatösku og allskonar misskilning í kringum töskuna og peninga í henni. Lífið 18. október 2025 20:04
„Gervigreind er líka fyrir heimilið“ „Gervigreindin er framtíðin og nútíðin og skemmtilegt verkfæri sem er virkilega gaman að nota og á erindi við alla,“ segir tölvukennari sem fer víða þessar vikurnar með fyrirlestra um gervigreind. Innlent 27. september 2025 14:03