Peningaskápurinn ... Íslendingar hafa tekið virkan þátt í þróunaraðstoð í Malaví, einu fátækasta ríki Afríku. Hagkerfið er þriðjungi minna en það íslenska þrátt fyrir að íbúar landsins séu fjörutíu og fjórum sinnum fleiri en Íslendingar. Viðskipti innlent 7. júní 2007 00:01
Borga fyrir sig Námsfúsir rússneskuunnendur geta glaðst yfir því að nám á því sviði við Háskóla Íslands verður byggt upp frá grunni með næsta hausti. Þetta gerir veglegur styrkur frá þeim feðgum Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni Háskólanum mögulegt. Viðskipti innlent 6. júní 2007 00:01
Peningaskápurinn... Gengi bréfa í bandarísku fjölmiðlaútgáfunni Dow Jones & Co., sem stendur á bak við samnefnda fréttaveitu og útgáfu dagblaðsins Wall Street Journal, hækkaði um 15 prósent á markaði í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Viðskipti erlent 2. júní 2007 00:01
Peningaskápurinn... Samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum kannar nú hvort kaup bandaríska netfyrirtækisins Google á netauglýsingafyrirtækinu DoubleClick brjóti í bága við samkeppnislög. Viðskipti erlent 1. júní 2007 00:01
Stungið upp í ráðherrann Henry Paulson, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Wu Yi, aðstoðarforsætisráðherra Kína, í Washington í síðustu viku. Efni fundarins var lágt gengi kínverska júansins, sem Bandaríkjastjórn segir að haldið sé lágu með handafli, og aukinn innflutningur frá Kína til Bandaríkjanna. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Fleiri dýralæknar Nýr bankastjóri Straums-Burðaráss er hokinn af reynslu í bankaheiminum og veit sínu viti í þeimi heimi. Fjármálaráðherra Íslands hefur stundum mátt sæta því að um bakgrunn hans sé talað með niðrandi hætti, en hann er dýralæknir að mennt. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Ungskáldin auka söluna Hún er þekkt sagan af Einari Má Guðmundssyni og fleiri skáldum sem þræddu kaffihús og bari borgarinnar á árum áður og gerðu tilraunir til að pranga nýjustu afurð sinni inn á misdrukkið fólk. Margir sluppu við bókakaup yfir bjórglasi á þeim forsendum að þá skorti lausafé. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Spákaupmaðurinn: Grænpóstur á Bjögga Ég hef eins og fleiri verið með nokkuð stórar stöður í Actavis í gegnum tíðina. Þar hafa orðið til miklir peningar. Ég var því þokkalega sáttur þegar yfirtökutilboðið kom, enda búinn að vera að bæta við mig undanfarna mánuði. Viðskipti innlent 30. maí 2007 00:01
Peningaskápurinn Evrópuþingið hefur samþykkt tillögur um reglur sem koma til með að lækka verð á alþjóðlegu reiki innan Evrópu. Reikigjöld eru gjöld sem símafyrirtæki innheimta fyrir tengingar milli landa, en kostnaður við símtöl í farsíma milli landa hefur hingað til verið hár og oft erfitt fyrir neytendur að fylgjast með verðlagningu. Viðskipti innlent 25. maí 2007 00:01
Peningaskápurinn ... Greinilegt er að vinnan við alþjóðavæðingu SÍF, Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, í gegnum árin með yfirtökum á fyrirtækjum á meginlandi Evrópu hefur tekist vel. Punkturinn var settur yfir i-ið þegar nafni SÍF var kastað fyrir róða og Alfesca tekið upp í febrúar í fyrra. Viðskipti innlent 24. maí 2007 00:01
Fyrirhyggjan í fyrirrúmi Sumir glottu við þegar fréttist af því að danski milljarðamæringurinn og skipakóngurinn Mærsk McKinney-Möller hefði pantað sér skútu í fyrra. Smíðin átti að taka tvö til þrjú ár og þótti einhverjum Mærsk fullbjartsýnn. Hann er jú fæddur árið 1913, fagnar 94 ára afmæli í júlí og yrði ansi nálægt tíræðisaldrinum þegar skútan yrði afhent. Viðskipti innlent 23. maí 2007 06:00
Gagnsæjar nafngiftir Ágætisskemmtan getur verið að lesa Lögbirtingarblaðið, sér í lagi þegar kemur að nafngiftum hlutafélaga. Landinn er enda duglegur við að hrinda viðskiptahugmyndum í framkvæmd og eitthvað þurfa börnin að heita. Einhver kynni þó að ætla að betur hefði verið heima setið en af stað farið þegar í blaðinu voru auglýst skiptalok á fyrirtækinu Óráði ehf. Viðskipti innlent 23. maí 2007 05:00
Allir búnir að kaupa Þá eru öll stóru fjármálafyrirtækin búin að taka upp seðlaveskið á árinu. Það kom mér ekki á óvart að heyra að Straumur-Burðarás væri að fjárfesta í Finnlandi, enda höfðu þeir verið að leita bæði þar og í Svíþjóð. Mér skilst að Kalli Werners hafi hrifsað til sín Invik fyrir framan nefið á Kaupþingi og Straumi. Viðskipti innlent 23. maí 2007 04:00
Dýrt að vera nýrík Viðskipta- og hagfræðingum gengur illa að spara peningana sem þeir þéna, sérstaklega þeim sem yngri eru. Ný könnun Félags viðskipta- og hagfræðinga, sem sagt er frá í Markaðnum í dag, gefur til kynna að stór hluti þessa hóps treysti sér alls ekki til að leggja meira en tíu þúsund krónur fyrir á mánuði. Viðskipti innlent 23. maí 2007 03:00
Peningaskápurinn... Ráðherrar Framsóknar sinna enn störfum sínum samviskusamlega þrátt fyrir að vera sárir út í Sjálfstæðisflokkinn fyrir að stíga í vænginn við Samfylkinguna. Viðskipti innlent 19. maí 2007 00:01
Komumst ekki hjá því að taka upp evru Íslendingar komast ekki hjá því að taka upp evru, segir Þórólfur Matthíasson, prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild Íslands, í löngu og ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Samiðnar. Viðskipti innlent 17. maí 2007 06:00
Ekkert frí Spennandi þingkosningar eru að baki, en skömmu fyrir kosningar heyrðust þær raddir að einhverjir íslenskir fjárfestar hefðu í hyggju að taka sér frí til fjögurra ára næði vinstristjórn völdum með hugsanlegum skattahækkunum á fyrirtæki, hagnaði af sölu hlutabréfa og ýmsu öðru sem valdið hefði pirringi þeirra. Viðskipti innlent 16. maí 2007 00:01
Veislan í Gramercy Sir Philip Green, eigandi Arcadia, blés til mikillar veislu í New York í Bandaríkjunum á þriðjudag í síðustu viku. Tilefnið var upphaf sölu á splunkunýrri fatalínu stjörnufyrirsætunnar Kate Moss, sem hún hannaði fyrir Topshop. Viðskipti innlent 16. maí 2007 00:01
Í góðum félagsskap Og áfram af gleðinni hjá Green því Sunday Times segir viðskiptajöfurinn hafa verið svo ánægðan með dvöl sína í New York að hann geti vel hugsað sér að flytja þangað og fylgjast með uppbyggingu Topshop-búðanna. Viðskipti innlent 16. maí 2007 00:01
Spákaupmaðurinn: Krónuprinsinn Björgólfur Thor Jæja, sennilega getur maður farið í sumarfrí rólegur yfir krónunni. Þökk sé Björgólfi Thor. Yfirtaka á Actavis mun halda krónunni uppi fram á haustið, auk þess sem markaðurinn hér heima mun fá stuðning við þetta. Viðskipti innlent 16. maí 2007 00:01
Hvar vinnur Jón Karl? Eins og kemur fram á síðunni hefur Icelandair Group undirritað viljayfirlýsingu um kaup á tékkeska flugfélaginu Travel Servie. Á blaðamannafundi Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa varð Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, það á í messunni að nefa Icelandic Group þegar hann ætlaði að segja Icelandair Group. Viðskipti innlent 12. maí 2007 05:00
Peningaskápurinn ... Ársskýrsla Bakkavarar Group, sem barst til hluthafa í vikunni, er fróðleg lesning fyrir alla þá sem hafa áhuga á íslenskum fyrirtækjum og ekki síst landvinningum Bakkavarar erlendis. Vöxtur félagsins hefur verið ótrúlegur þótt ekki sé fastar að orði kveðið. Viðskipti innlent 11. maí 2007 00:01
Varhugaverð Búlgaríublöð Þeir eru orðnir fáir hér á landi sem þora að lesa búlgörsku dagblöðin án þess að setja upp fyrirvaralesgleraugun. Ástæðan eru þær misvísandi og oft á tíðum beinlínis röngu fregnir sem blöðin fluttu af sölu Novators, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, á 65 prósenta hlut í búlgarska símafyrirtækinu (BTC), sem gekk í gegn í síðustu viku. Viðskipti innlent 9. maí 2007 03:45
Skrifað um glaumgosann Nýfallinn dómur yfir forsvarsmönnum Baugs hefur vakið heldur minni athygli í erlendum fjölmiðlum en einhver kynni að hafa vænt. Þannig er töluvert meira fjallað um yfirtökutilboð Baugs í hlutabréf Mosaic Fashions og mögulega afskráningu af markaði. Viðskipti innlent 9. maí 2007 03:30
Gúrú að koma Hinn heimskunni fræðimaður Geert Hofstede er væntanlegur til landsins. Áralangar rannsóknir hans sýna að stjórnunarstíll er afar misjafn eftir uppruna stjórnenda. Viðskipta- og hagfræðideild HÍ stendur fyrir ráðstefnu á fimmtudaginn þar sem Hofstede verður heiðursgestur. Viðskipti innlent 9. maí 2007 03:15
Slúður og fréttir Þótt sumarið nálgist óðfluga býst ég ekki við neinni lognmollu á markaðnum á næstunni. Ég ráðlegg reyndar engum að fara út í hanaslag um mitt sumar þegar fjölmiðlar upplifa tóma gúrkutíð. Hver gleymir látunum í Straumi-Burðarási í fyrrasumar og SPRON-málinu fyrir nokkrum árum? Viðskipti innlent 9. maí 2007 00:01
Raunveruleg stórðiðja Fjárfestar tóku afkomutölum frá Landsbankanum fagnandi í gær og hækkuðu bréfin um 1,58 prósent. Hagnaður bankans fyrir skatta var um 15,5 milljarður króna fyrir fyrsta ársfjórðung. Þegar þetta er sett í samhengi við aðrar stærðir má taka eftirfarandi dæmi: Hagnaður á þremur mánuðum var sambærilegur og heildarvelta Norðuráls og Ölgerðar Egils Skallagrímssonar allt árið 2006. Viðskipti innlent 4. maí 2007 05:45
Breskir millar aldrei fleiri Forsætisráðherratíð Tonys Blair í Bretlandi hefur verið sannkölluð blómatíð fyrir moldríka þar í landi. Skoska dagblaðið Scotsman greinir frá könnun sem sýnir að í Bretlandi hafi fjöldi milljarðamæringa (í pundum talið) þrefaldast á síðustu fjórum árum. Viðskipti innlent 2. maí 2007 00:01
Karatekempa í sigurliðið Eins og allir vita eru langhlaup talin til mestu dyggða hjá starfsmönnum Glitnis og bankinn verið meðal styrktaraðila Reykjavíkurmaraþons auk maraþonhlaupa í stórborgunum Osló í Noregi og Lundúnum í Bretlandi. Viðskipti innlent 2. maí 2007 00:01
Spá 4,3% verðbólgu Hagstofa Íslands birtir verðbólgutölur í fyrramálið. Greiningardeildir bankanna eru nokkuð samstíga um þróun mála og gera ráð fyrir því að vísitala neysluverðs hækki allt frá 0,5 til 0,6 prósentustig á milli mánaða. Gangi það eftir lækkar tólf mánaða verðbólgan úr 5,3 prósentum nú í 4,3 til 4,4 prósent. Viðskipti innlent 2. maí 2007 00:01