Ásdís og Snorri nýir forstöðumenn hjá Icelandair Icelandair hefur ráðið þau Ásdísi Sveinsdóttur og Snorra Tómasson í störf forstöðumanna á Tekju-, þjónustu- og markaðssviði félagsins. Viðskipti innlent 17. janúar 2024 10:40
Play flýgur til Króatíu Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til strandborgarinnar Split í Króatíu. Fyrsta flug Play til Split verður 28. maí en til stendur að fljúga þangað einu sinni í viku á þriðjudögum yfir sumarmánuðina. Viðskipti innlent 17. janúar 2024 10:06
Hulda til Klappa Hulda Þórhallsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður þjónustuupplifunar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Klöppum grænum lausnum. Viðskipti innlent 17. janúar 2024 09:01
Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild. Innherji 17. janúar 2024 06:01
Linda hættir og staðan lögð niður Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Marel. Staðan verður í kjölfarið lögð niður og verkefni færast á aðra stjórnendur í fyrirtækinu. Viðskipti innlent 16. janúar 2024 16:55
Hlutabréfasjóðir með mikið undir í Alvotech í aðdraganda ákvörðunar FDA Mikill meirihluti hlutabréfasjóða landsins, sem eru að stórum hluta fjármagnaðir af almenningi, er með hlutabréfaeign í Alvotech sem annaðhvort sína stærstu eða næstu stærstu eign núna þegar örfáar vikur eru í að niðurstaða fæst um hvort félagið fái samþykkt markaðsleyfi fyrir sitt helsta lyf í Bandaríkjunum. Hlutabréfaverð líftæknilyfjafyrirtækisins hefur rokið upp á síðustu vikum, meðal annars byggt á væntingum um að Alvotech muni loksins fá grænt ljóst frá Lyfjaeftirliti Bandaríkjanna. Innherji 16. janúar 2024 15:22
Telur óvíst með samruna við JBT og mælir ekki lengur með kaupum í Marel Bandaríski stórbankinn Citi ráðleggur fjárfestum ekki lengur að bæta við sig í Marel samkvæmt nýju verðmati, heldur að halda í bréfin, og telur sennilegt að íslenskir lífeyrissjóðir verði tregir til að samþykkja mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel. Stjórnendur JBT hafa nú aðeins þrjá daga til stefnu til að lýsa því yfir hvort félagið hyggist gera formlegt yfirtökutilboð í Marel. Innherji 16. janúar 2024 11:21
Augljóst að frumvarpið hafi ekki verið samið af fagfólki Forstjóri útgerðarfélagsins Brims segir ljóst að frumvarp matvælaráðherra til laga um sjávarútveg hafi ekki verið samið af fagfólki eða aðilum með mikla reynslu og yfirsýn á sviði fiskveiðistjórnunar. Hann vill að frumvarpið verði unnið betur, í samvinnu við þá sem best þekki til, áður en lengra verður haldið. Viðskipti innlent 16. janúar 2024 10:51
Hefur ekki áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar Eldgosið norðan Grindavíkur, sem hófst skömmu fyrir klukkan átta í morgun, hefur ekki haft áhrif á starfsemi Keflavíkurflugvallar eða áætlun innanlandsflugs. Innlent 14. janúar 2024 09:45
Lyfjarisar keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki Stærstu lyfjafyrirtæki í heimi keppast um að kaupa líftæknifyrirtæki til að efla framleiðslu sína. Stjórnendur lyfjaframleiðenda vilja hafa hraða hendur því einkaréttur á allt að 170 lyfjum mun falla úr gildi við upphaf næsta áratugar sem standa undir næstum 400 milljarða Bandaríkjadala í tekjum fyrir stærstu fyrirtækin. Innherji 12. janúar 2024 16:10
Hækkar vexti verðtryggðra lána Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum inn-og útlána. Breytingarnar taka gildi þriðjudaginn 16. janúar. Viðskipti innlent 12. janúar 2024 15:49
Gæti vantað „einhverjar vörur í hillur“ Haga vegna afstöðu gegn verðhækkunum Forstjóri Haga sagði að í verslunum samstæðunnar verði tekin afgerandi afstaða gegn verðhækkunum sem teljist umfram það sem innistæða væri fyrir eða ógni samningsmarkmiðum komandi kjarasamninga. „Það er mögulegt að það muni vanta einhverjar vörur í hillur sem fólk er vant að geta gengið að; það væri einfaldlega vegna þess að okkar mati hafa þær hækkað of mikið.“ Innherji 12. janúar 2024 13:53
Ölgerðin hættir með Red Bull Vörumerkið Red Bull verður ekki hluti vörumerkja Ölgerðarinnar lengur en fyrirtækið sagði samningi sínum við Ölgerðina upp með sex mánaða fyrirvara. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 19:18
Spá því að ársverðbólga verði 5,9 prósent í apríl Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 11:16
Kauphöllin kallar eftir nýrri umgjörð utan um erlent eignarhald í sjávarútvegi Forsvarsmenn íslensku Kauphallarinnar mæla fyrir breytingum á umgjörð utan um erlenda fjárfestingu í sjávarútvegsfyrirtækjum, sem núna dregur úr gagnsæi og girðir í reynd nánast fyrir aðkomu slíkra fjárfesta, og vilja að regluverkið um erlent eignarhald verði svipað og gildir um flugrekstur hér á landi. Núverandi fyrirkomulag hefur meðal annars valdið því að íslensku sjávarútvegsfélögin eru ekki gjaldgeng í alþjóðlegar hlutabréfavísitölur ólíkt öðrum stórum skráðum félögum. Innherji 11. janúar 2024 10:55
Ólöf tekur við kynningarmálum hjá Hampiðjunni Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf. Viðskipti innlent 11. janúar 2024 09:35
Spá töluverðum rekstrarbata hjá VÍS Greiningafyrirtækið Jakobsson Capital reiknar með töluverðum rekstrarbata hjá VÍS á árinu 2024. „Það er gert ráð fyrir lægra kostnaðarhlutfalli en töluverður kostnaður var í ár vegna sameiningar og annarra einskiptisliða. Sömuleiðis ætti toppi hagsveiflunnar að verða náð. Allt útlit er fyrir að það hægist á verðbólgunni sem mun hjálpa til við að lækka tjónahlutfallið. Iðgjöld dagsins í dag eru til að tryggja tjón framtíðar,“ segir í verðmati. Innherji 10. janúar 2024 14:41
Velur Alvotech sem eina bestu fjárfestinguna í hlutabréfum á árinu 2024 Alvotech er í „einstakri“ stöðu til að verða leiðandi í þróun og framleiðslu á líftæknilyfjum, að sögn bandarísks hlutabréfagreinenda, sem hefur útnefnt íslenska félagið sem einn besta fjárfestingakostinn á hlutabréfamarkaði á þessu ári. Hlutabréfaverð Alvotech hefur verið mikilli siglingu, upp um meira en þriðjung á innan við mánuði, en í vikunni mæta fulltrúar bandaríska Lyfjaeftirlitsins til landsins til gera úttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins og mun niðurstaða hennar ráða miklu um framhaldið. Innherji 8. janúar 2024 15:31
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði. Innherji 8. janúar 2024 10:47
Vatns- og matarskortur í skjálausri ferð heim frá Kanarí Icelandair hefur borist nokkrar kvartanir frá farþegum sem voru um borð í flugi heim til Íslands frá Gran Canaria síðastliðinn mánudag. Veitingar um borð í vélinni voru nær uppurnar, ekkert vatn var á krönum og engin afþreying í boði í fluginu, sem endaði á því að vera sjö klukkustundir vegna seinkanna. Innlent 8. janúar 2024 07:01
Kyrrsetning Max-flugvéla nær ekki til Icelandair Gat sem myndaðist í Boeing 737 Max 9-flugvél Alaska Airlines tengist búnaði sem er ekki til staðar í Max-flugvélum Icelandair. Skoðanir bandarískra flugmálayfirvalda ná því ekki til flugvéla Icelandair. Innlent 6. janúar 2024 21:51
Icelandair í samskiptum við Boeing Icelandair á í samskiptum við bandaríska flugvélaframleiðandann Boeing vegna farþegaflugvélar Alaska Airlines sem gat myndaðist á skömmu eftir brottför. Innlent 6. janúar 2024 12:40
Tilboð JBT kom hlutabréfamarkaðnum á flug Hlutabréfamarkaðurinn, sem er góðri siglingu, þurfti afgerandi jákvæð skilaboð til að komast úr hjólförum sem hann var fastur í en umtalsverðar lækkanir höfðu einkennt gengisþróunina lengst af á árinu sem var að líða. Þau fékk hann með yfirtökutilboði frá JBT í Marel fyrir skemmstu og jákvæðum tóni í kjaraviðræðum. Frá þeim tíma hefur mikil stemning ríkt á markaðnum. Innherji 5. janúar 2024 17:49
Icelandair leigir eina Airbus til Icelandair og SMBC hafa undirritað samning um langtímaleigu á Airbus A321LR þotu til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi 2026. Þetta er fimmta Airbus-þotan sem Icelandair semur um langtímaleigu á við SMBC. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 16:30
JBT fær tveggja vikna frest Marel hefur verið upplýst um að fjármálaeftirlit Seðlabankans hafi veitt JBT tveggja vikna framlengingu á fresti til þess að birta lokaákvörðun um hvort það hyggist gera yfirtökutilboð í Marel. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 15:56
„Ekki viðskiptahættir sem okkur líkar við,“ segir næst stærsti eigandi Samkaupa Lífeyrissjóðurinn Birta, sem fer með tæplega fimmtungshlut í Samkaupum, gagnrýnir forsvarsmenn KEA fyrir óvandaða viðskiptahætti við sölu á hlut sínum í matvörukeðjunni til SKEL fjárfestingafélags með því að virða ekki ákvæði í hluthafasamkomulagi sem félagið hafði undirgengist. Framkvæmdastjóri Birtu segir að sjóðurinn muni núna endurskoða afstöðu sína til samkomulagsins vegna breytts eignarhalds en það hefur meðal annars snúið að skipan í stjórn Samkaupa. Innherji 5. janúar 2024 11:36
Herdís Dröfn nýr forstjóri Sýnar Herdís Dröfn Fjeldsted hefur verið ráðin forstjóri Sýnar að loknu ráðningarferli. Hún mun hefja störf þann 11. janúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallar. Páll Ásgrímsson sem gegnt hefur starfinu undanfarna mánuði eftir brotthvarf Yngva Halldórssonar hverfur aftur til starfa sem framkvæmdastjóri lögfræðisviðs félagsins. Viðskipti innlent 5. janúar 2024 09:20
Taka ekki lengur við dönskum seðlum Frá og með áramótum hætti Íslandsbanki að taka á móti seðlum í dönskum krónum. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 10:14
Straumur frá Rapyd til Adyen Straumur, íslenskt fyrirtæki í greiðslumiðlun og dótturfélag Kviku banka, hefur skrifað undir samstarfssamning við fjártæknifyrirtækið Adyen um færsluhirðingu og vöruþróun á sviði fjártækni. Viðskipti innlent 4. janúar 2024 08:28
Útleiguhlutfall Eikar nokkuð lágt en verðmat er 45 prósent yfir markaðvirði Útleiguhlutfall Eikar er nokkuð lágt, að mati greinanda sem metur gengi fasteignafélagsins 45 prósent yfir markaðsvirði. Þriðji ársfjórðungur var „örlítið erfiðari í útleigu“ heldur en fyrstu tveir fjórðungar ársins. Innherji 3. janúar 2024 16:16