Guardiola aflýsti æfingu liðsins Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, greip til sérstakra aðgerða fyrir úrslitaleik liðsins í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 16.3.2026 18:02
Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Hinn sextán ára gamli Leonard Prescott gæti tekið stórt skref í vikunni, upp úr unglingaliði Bayern Munchen og beint inn í byrjunarliðið í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atalanta. Fótbolti 16.3.2026 15:02
Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester Kylian Mbappé og Jude Bellingham fara báðir með liði Real Madrid til Manchester þar sem síðari leikur liðsins við Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fer fram annað kvöld. Fótbolti 16.3.2026 14:18
Þakklátur eftir drauminn sem breyttist í martröð Antonin Kinsky, hinn 22 ára markvörður Tottenham, er þakklátur þeim sem hafa reynt að hughreysta hann eftir mistökin skelfilegu sem hann gerði í 5-2 tapinu gegn Atlético Madrid á þriðjudaginn. Enski boltinn 12. mars 2026 11:30
„Það er kannski einn sem má svindla“ Real Madrid saknaði ekki mikið stórstjörnunnar Kylian Mbappé í 3-0 sigri sínum á Manchester City í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Þessi frammistaða liðsins án Mbappé kallaði á kenningar hjá sérfræðingi í Meistaradeildarmörkunum. Fótbolti 12. mars 2026 11:01
Missti af Barcelona-leiknum af því að hann mætti ekki á réttan St James Park Spænskur fótboltaaðdáandi sem var kominn til Englands að horfa á Barcelona spila í Meistaradeild Evrópu varð vandræðalegur eftir að hafa uppgötvað að hann var á leikvangi Exeter City, sem spilar í ensku C-deildinni. Fótbolti 12. mars 2026 10:31
Sjáðu þrennu þess vanmetna, Bodö-gleði, horn í síðu Arsenal og markaveislu í París Sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í fótbolta eru hálfnuð eftir að fjórir leikir fóru fram í gær. Real Madrid, Paris Saint Germain og Bodö/Glimt eru í góðum málum eftir fyrri leikinn en Arsenal náði ekki að fagna sigri í fyrsta sinn í keppninni á þessu tímabili. Nú má sjá mörkin úr leikjunum hér inni á Vísi. Fótbolti 12. mars 2026 08:15
Sagði 35 sinnum fyrirgefðu við boltastrákinn Chelsea tapaði með þriggja marka mun í fyrri leik sínum á móti Paris Saint Germain í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar í fótbolta í gærkvöldi og pirringurinn fór vel yfir mörkin þegar Chelsea-maðurinn Pedro Neto hrinti boltastrák. Enski boltinn 12. mars 2026 08:02
„Vanmetnasti knattspyrnumaður heimsins“ Federico Valverde var maður gærkvöldsins í Meistaradeildinni eftir stórbrotna frammistöðu í 3-0 sigri Real Madrid á Manchester City. Fótbolti 12. mars 2026 07:32
Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Hjörvar Hafliðason, helsti knattspyrnusérfræðingur þjóðarinnar segir það vel líklegt að Tottenham fallir úr ensku úrvalsdeildinni. Of mörgum leikmönnum liðsins standi á sama. Hjörvar er með stjóra í huga sem gæti bjargað liðinu frá falli. Enski boltinn 11. mars 2026 23:02
Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Það er allt útlit fyrir að Bodö/Glimt frá Noregi verði með í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta, gegn Arsenal eða Leverkusen, eftir frábæran 3-0 sigur norska liðsins á Sporting Lissabon í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 22:10
Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Federico Valverde fór langt með að koma Real Madrid áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld, með þrennu í fyrri hálfleik gegn Manchester City. Fótbolti 11. mars 2026 21:50
Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Chelsea tókst tvívegis að jafna gegn PSG en varð að sætta sig við 5-2 tap í París í kvöld, í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Fótbolti 11. mars 2026 21:50
Sjáðu ótrúlega þrennu Valverde í fyrri hálfleik Úrúgvæska fótboltaséníið Federico Valverde þurfti bara rétt rúmar tuttugu mínútur til að skora stórkostlega þrennu gegn Manchester City, í fyrri hálfleik á Santiago Bernabeu í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 21:01
Madueke og Havertz sáu um að brjóta múrinn á síðustu stundu Það er allt jafnt í einvígi Leverkusen og Arsenal, 1-1, eftir fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í Þýskalandi í kvöld. Fótbolti 11. mars 2026 17:16
Peter Schmeichel: „Hann rústaði ferli hans“ Fjöldi markvarða, þar á meðal Peter Schmeichel og Joe Hart, hafa lýst yfir stuðningi við Antonín Kinsky, markvörð Tottenham Hotspur, eftir skelfilega frammistöðu hans í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Atlético Madrid. Enski boltinn 11. mars 2026 13:03
„Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Mohamed Salah var tekinn af velli eftir klukkutíma leik þegar Liverpool tapaði 1-0 á móti Galatasaray í gær í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Enski boltinn 11. mars 2026 12:32
Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Hjörvar Hafliðason, helsti sparkspekingur þjóðarinnar, er ósammála stórum prófílum í knattspyrnuheiminum sem hafa gagnrýnt Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham harðlega fyrir það hvernig hann tók á aðstæðum í gær þegar að markmaður Tottenham hafði gerst ítrekað sekur um slæm mistök. Hjörvar telur Tudor hins vegar ekki stætt lengur í starfi. Fótbolti 11. mars 2026 11:58
Sjáðu markið sem felldi Liverpool, drama í Newcastle og tvær markaveislur Fjórir fyrstu leikirnir í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar fóru fram í gær en nú má sjá mörkin úr þeim hér inni á Vísi. Fótbolti 11. mars 2026 08:53
„Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Antonin Kinsky, 22 ára markvörður Tottenham, upplifði algjöra martröð í Meistaradeildinni í gærkvöldi þegar hann var tekinn af velli á sautjándu mínútu eftir að hafa gefið tvö mörk og fengið á sig þrjú. Kinsky og skiptingin voru til umræðu í Meistaradeildarmörkunum eftir leikinn. Fótbolti 11. mars 2026 08:02
Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Tottenham er í afar erfiðri stöðu eftir stórt tap gegn Atletico Madrid á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dagar Igor Tudor í starfi knattspyrnustjóra liðsins gætu verið taldir. Lokatölur í kvöld 5-2 sigur Atletico Madrid. Fótbolti 10. mars 2026 21:59
Bæjarar gengu frá Atalanta Bayern Munchen gjörsamlega valtaði yfir ítalska liðið Atalanta á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Ítalska liðið þarf kraftaverk og meira til að tryggja sér sæti í átta liða úrslitunum í seinni leik liðanna eftir viku. Lokatölur 6-1 sigur Bayern Munchen. Fótbolti 10. mars 2026 21:57
Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Flautumark frá Lamine Yamal í uppbótartíma tryggði Barcelona dramatískt jafntefli gegn Newcastle United á útivelli í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur á St. James' Park, 1-1. Fótbolti 10. mars 2026 21:55
Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Tottenham er í martraðarlandi gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem nú stendur yfir. Rikki G, sem lýsir leik liðanna á Sýn Sport 2, gagnrýndi meðferð Igor Tudor, knattspyrnustjóra Tottenham, á einum leikmanni liðsins harðlega í beinni útsendingu. Fótbolti 10. mars 2026 21:12