Hundruð skráð sig vegna málsóknar gegn bönkunum Nokkur hundruð manns hafa ákveðið að taka þátt í málarekstri gegn bönkum vegna lána sem Neytendasamtökin telja ólögmæt. Samtök fjármálafyrirtækja telja óvíst hvort fólkið hafi orðið fyrir nokkru tjóni. Neytendur 19. maí 2021 18:45
Safna liði í málsókn gegn bönkunum: Stærsta hagsmunamál neytenda Neytendasamtökin segja breytilega vexti á lánum ólögmæta og hyggjast stefna bönkunum. Formaður samtakanna segir einhliða vaxtaákvarðanir byggja á matskenndum og huglægum mælikvörðum bankanna. Þetta sé stærsta hagsmunamál neytenda í dag. Neytendur 19. maí 2021 11:59
Lán með breytilegum vöxtum ólögleg - Taktu þátt og verðu rétt þinn Vextir húsnæðislána á Íslandi hafa líklega aldrei verið jafn lágir og undanfarið. Þó er óvinnandi vegur fyrir venjulegt fólk að skilja hvað ræður vaxtaákvörðunum lánastofnana. Þær virðast stundum ekki skilja það sjálfar. Skoðun 19. maí 2021 08:01
„Er lánið þitt ólán?“ spyrja Neytendasamtökin og hyggjast stefna bönkunum „Er lánið þitt ólöglegt? Aukum gagnsæi lána!“ segir á nýrri vefsíðu Neytendasamtakanna sem opnaði í morgun. Þar er greint frá því að samtökin hyggist stefna bönkunum og leiti að lántökum til að fara með mál sín fyrir dóm. Neytendur 19. maí 2021 06:47
Play góðar fréttir fyrir neytendur: Samkeppni þrýst niður verði hingað til Formaður Neytendasamtakanna telur innreið flugfélagsins Play líklega til þess að þrýsta niður fargjöldum. Forstjóri félagsins segir miðasölu hafa farið vel af stað og að Íslendingar séu greinilega sólþyrstir. Neytendur 18. maí 2021 19:01
IKEA innkallar HEROISK og TALRIKA diska, skálar og bolla IKEA hefur hvatt viðskiptavini sem eiga HEROISK og TALRIKA borðbúnað að taka hann úr notkun og skila í IKEA þar sem hann verður að fullu endurgreiddur. Neytendur 18. maí 2021 09:39
Meinað að nota lénið polsen.is eftir kvörtun frá Poulsen Neytendastofa hefur meinað Orku ehf að nota lénið polsen.is í tengslum við starfsemi félagsins og gert fyrirtækinu að afskrá lénið. Ákvörðunin er tekin í kjölfar kvörtunar frá samkeppnisaðilanum Poulsen sem á og rekur lénið poulsen.is. Neytendur 17. maí 2021 14:27
Banna fullyrðingar Landsbjargar um „umhverfisvæna flugelda“ Neytendastofa hefur lagt bann við fullyrðingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar í auglýsingum sínum um sölu þeirra á „umhverfisvænni flugeldum“. Eru fullyrðingarnar taldar ósannaðar, veita rangar upplýsingar um helstu einkenni vörunnar og til þess fallna að hafa áhrif á fjárhagslega hagsmuni neytenda. Neytendur 17. maí 2021 10:22
Bein útsending: Með allt í fanginu - hegðun viðskiptavina stórmarkaða Valdimar Sigurðsson, prófessor við viðskiptadeild, flytur þriðjudagsfyrirlestur HR og Vísis um kauphegðun. Fyrirlesturinn hefst klukkan 12. Neytendur 11. maí 2021 11:21
Fleiri velja vistvæn ökutæki Flest heimili munar um 110.000 kr. á ári. Það er ýmislegt hægt að gera fyrir þá upphæð. Það er um það bil sú upphæð sem sparast í eldsneytiskostnaði við að færa sig úr dísel- eða bensínbifreið yfir í rafmagnsbifreið. Skoðun 7. maí 2021 10:00
Vegan lasagna innkallað vegna skorts á hveitimerkingu Matvælastofnun varar neytendur með ofnæmi eða óþol fyrir hveiti við Vegan lasagna frá PreppUp sem Mealprep ehf. framleiðir. Neytendur 6. maí 2021 15:22
Þarf ég háskólapróf í hagfræði til að eiga fasteign? Fyrir tveimur árum gekk ég í gegnum hið undarlega ferli að kaupa íbúð. Bæði kaupin og það sem við tók einkennist af óvissu í hverju skrefi, gambli og ágiskunum – eins og áhættufjárfesting. Við kærastan mín lögðum samviskusamlega fyrir og náðum að safna fyrir útborgun. Við fundum frábæra litla eign og byrjuðum að skoða hvaða kostir stæðu til boða í íbúðalánum. Skoðun 6. maí 2021 07:00
Innkalla kjúklingabaunir vegna skordýra Matvælastofnun hefur varað við neyslu á einni framleiðslulotu af Sólgæti kjúklingabaunum með uppruna frá Tyrkland sem Heilsa flytur inn. Skordýr, eða bjöllur, hafa fundist í pokanum. Neytendur 29. apríl 2021 12:54
Allt að 159 prósenta munur á hæsta og lægsta verði Yfir 100% munur er á hæsta og lægsta verði á dekkjaskiptum, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 48 fyrirtækjum víðs vegar um landið. Þar sem hann er hlutfallega mestur munar um 159% á verði eða 9.510 krónum. Neytendur 23. apríl 2021 13:47
Ný mathöll opnar í Borgartúni á morgun „Upphaflega stóð til að opna fyrir páska en í ljósi aðstæðna ákváðum við að fresta opnuninni um stundarsakir. Í svona ástandi er enginn tími fullkominn en við ætlum að ríða á vaðið núna,“ segir Björn Bragi Arnarsson í viðtali við Vísi. Viðskipti innlent 19. apríl 2021 17:16
ESB: Við bönnuðum ykkur ekki að borða Cocoa Puffs og Lucky Charms Mörgum brá í brún um síðustu mánaðamót þegar þær fréttir bárust að morgunkornið Cocoa Puffs og Lucky Charms yrði brátt ófáanlegt á Íslandi. Fregnirnar vöktu mikla athygli og sátu margir aðdáendur hins vinsæla morgunkorns eftir með sárt ennið eða byrjuðu að hamstra vörurnar í stórum stíl. Neytendur 19. apríl 2021 15:44
„Tilboðsfranskar“ heyra sögunni til Þykkvabæjar hefur breytt nafninu á Tilboðsfrönskum fyrirtækisins sem hafa heitið því nafni svo áratugum skiptir. „Þykkvabæjarfranskar“ heita þær núna, en útlitið pakkninganna er þó áfram hið sama – svartir stafir á gulum grunni. Neytendur 19. apríl 2021 13:10
Vara við neyslu á vörum frá Husk eftir þrjú dauðsföll í Danmörku Matvælastofnun varar við neyslu á Husk Psyllium Froskaller og Husk Psyllium Mavbalance trefjahylkjum og dufti frá fyrirtækinu Orkla Care. Innköllun stendur yfir á öllum lotum varanna hér á landi. Neytendur 16. apríl 2021 12:07
Barnalán - móðurást í breytilegu vaxtaumhverfi Það er ekki svo langt síðan ég fattaði að barnalán þýðir í raun ekkert annað en barna-lán. Ég er að greiða af húsnæðisláni, námsláni og svo greiði ég líka af barnaláni, nánar tiltekið fjórum barnalánum. Skoðun 16. apríl 2021 10:00
Fyrirspurnum rignir vegna krafna nýs innheimtufyrirtækis Neytendasamtökin segja að fyrirspurnum hafi rignt inn til samtakanna síðan í gær vegna innheimtufyrirtækisins BPO innheimta ehf. Fyrirtækið hafi sent fólki reikninga í gær með eindaga upp á sama dag. Þá séu dæmi um að kröfur hafi tvöfaldast frá því í gærkvöldi. Neytendur 14. apríl 2021 13:33
Fjármálaráðherra segir ASÍ stoppa það af að launafólk fái val um að ráðstafa 3,5% iðgjaldi í frjálsan viðbótarsparnað! Ég hlustaði vel og rækilega á umræður á Alþingi í gær þar sem breytingar á lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóði voru til umræðu. Það kom margt afar forvitnilegt fram í máli fjármálaráðherra sem talaði fyrir frumvarpinu. Skoðun 14. apríl 2021 12:30
Seðlabankinn varar við vaxtahækkunum lækki verðbólgan ekki Seðlabankinn varar við að lágir vextir vari ekki að eilífu og því gæti greiðslubyrði óverðtrygðra lána með breytilegum vöxtum breyst töluvert. Ef verðbólga haldist lengi yfir markmiði bankans sé eitt af úrræðum hans að grípa til vaxtahækkana. Viðskipti innlent 14. apríl 2021 12:04
Fella niður vexti smálána í vanskilum BPO Innheimta hefur keypt allt kröfusafn Kredia, Hraðpeninga, Smálána, 1909 og Múla en öll fyrirtækin eru í eigu smálánafyrirtækisins eCommerce 2020. Neytendur 13. apríl 2021 19:27
Hóflegri tilboð í ár fyrir Íslendinga á faraldsfæti Annað árið í röð vona rekstraraðilar hótela að innlendir gestir komi til með að bjarga ferðamannasumrinu. Vísir tók stöðuna á þremur af stærstu hótelkeðjunum en forsvarsmenn þeirra sammælast um að þó bjartara sé yfir ríki áfram mikil óvissa um komu erlendra ferðamanna. Neytendur 11. apríl 2021 09:01
Matvöruverð lækkað síðustu mánuði Vörukarfa ASÍ hefur lækkað í sex verslunum af átta frá því í byrjun nóvember á síðasta ári. Mest lækkaði hún í Heimkaup um 11,2% en hækkaði mest í Nettó um 0,8%. Viðskipti innlent 8. apríl 2021 17:14
Páskaeggin við það að klárast Það fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaup og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld. Innlent 3. apríl 2021 15:20
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. Viðskipti innlent 31. mars 2021 13:58
Innkalla andlitsgrímur sem eru sagðar veita falskt öryggi Rekstrarvörur hafa hafið innköllun á KN95/FFP2 andlitsgrímum sem stóðust ekki prófanir. Um er að ræða CE merktar persónuhlífar af gerðinni FFP2 sem seldar voru í tíu stykkja pakkningum með vörunúmerinu 10KN95. Neytendur 26. mars 2021 17:31
Dásamleg tilfinning að losa sig við skömmina og upplifa frelsi ,,Ég var tiltölulega snemma kominn í tómt tjón í fjármálum, lifði langt um efni fram og skuldaði mikið og á mörgum stöðum. Ég man mjög gaumgæfilega eftir þessari endalausu tilfinningu, þessu ótrúlega nagandi samviskubit sem fylgdi því að eiga ekki fyrir reikningunum mínum.“ Viðskipti innlent 26. mars 2021 08:00
Af hverju viljum við minni verðbólgu? Verðbólgan hefur ekki alveg verið til friðs að undanförnu. Tólf mánaða taktur hennar hefur hægt og rólega þokast upp síðastliðna mánuði og er nú í gildum sem við höfum ekki séð í sjö ár. Skoðun 22. mars 2021 08:00