Glasner tekur sinn besta mann til Forest Nottingham Forest hefur fest kaup á kólumbíska bakverðinum Daniel Muñoz frá Crystal Palace. Hann fylgir því þjálfara sínum frá síðustu leiktíð yfir í Skírisskóg. Enski boltinn 31.8.2026 12:22
Sjáðu öll mörkin og vítadóminn sem ærði Alisson Alisson, markvörður Liverpool, sparkaði í spjald og braut það í bræði sinni eftir 2-2 jafnteflið við Nottingham Forest á Anfield í dag. Mörkin og helstu atvik úr öllum fjórum leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 29.8.2026 19:33
Liverpool - Nottingham Forest 2-2 | Sanngjarnt jafntefli á Anfield Liverpool og Nottingham Forest gerðu 2-2 jafntefli í annarri umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Liverpool lenti tvisvar undir en náði að jafna metin í bæði skiptin. Enski boltinn 29.8.2026 11:01
Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn 23.8.2026 08:00
Fimmti stjóri Forest á einu ári Nottingham Forest hefur staðfest ráðningu Olivers Glasner sem nýs knattspyrnustjóra liðsins. Hann er fimmti stjóri Forest á einu ári. Enski boltinn 6. júlí 2026 09:34
Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Vítor Pereira verður ekki áfram knattspyrnustjóri Nottingham Forest. Allt bendir til þess að Oliver Glasner taki við liðinu. Enski boltinn 1. júlí 2026 20:32
Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City Nottingham Forest hafnaði tilboði Manchester City í miðjumanninn Elliot Anderson. Manchester City ætlar ekki að gefast upp á að fá leikmanninn. Fótbolti 4. júní 2026 05:54
Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk í gær. Arsenal er Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár, nýliðar eru á leið í Evrópu og þekkt lið á leiðinni niður. Deildin kveður goðsagnir í lifanda lífi. Enski boltinn 25. maí 2026 10:31
Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport Líða fer að kveðjustund í enska boltanum þennan veturinn. Lokaumferð deildarinnar fer fram á sunnudag þar sem Arsenal mun lyfta langþráðum bikar og annað hvort Tottenham eða West Ham mun falla í B-deildina. Sýn Sport verður með puttann á púlsinum. Enski boltinn 22. maí 2026 11:00
Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Ensku dómarasamtökin, PGMOL, viðurkenna að mistök hafi verið gerð í öðru marki Manchester United gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í gær. Markið hefði aldrei átt að standa en Rauðu djöflarnir unnu 3-2 sigur í leiknum. Enski boltinn 18. maí 2026 17:29
Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Bruno Fernandes jafnaði stoðsendingamet, Manchester United festi sér 3. sætið og West Ham tók stórt skref í átt að næstefstu deild með tapi gegn Newcastle. Mörkin úr öllum leikjum gærdagsins í ensku úrvalsdeildinni má sjá á Vísi. Enski boltinn 18. maí 2026 09:31
Fernandes jafnaði stoðsendingametið í sigri United Manchester United vann 3-2 gegn Nottingham Forest í 37. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Bruno Fernandes tókst að jafna stoðsendingamet deildarinnar og Matheus Cunha skoraði mjög umdeilt mark. Enski boltinn 17. maí 2026 11:02
Skoraði tveimur dögum eftir jarðarför móður sinnar Miðjumaður Nott. Forest, Elliot Anderson, hefur gengið í gegnum mikið síðustu vikur. Enski boltinn 11. maí 2026 13:17
Mistókst að lyfta sér upp fyrir Liverpool Þremur leikjum er lokið í dag í ensku úrvalsdeildinni og öllum lauk þeim með jafnteflum. Falldraugurinn vofir enn yfir Nottingham Forest og Aston Villa mistókst að gera fjórða sætið að sínu. Enski boltinn 10. maí 2026 15:01
Aston Villa - Nott. Forest | Létt veganesti gestanna Aston Villa þarf að vinna upp 1-0 forskot Nottingham Forest í seinni leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. Fótbolti 7. maí 2026 18:32
Fékk svakalegan skurð gegn Chelsea og stjórinn vonast eftir kraftaverki Morgan Gibbs-White, fyrirliði Nottingham Forest, fékk stóran skurð á andlitið eftir samstuð við Robert Sánchez, markvörð Chelsea, í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í gær. Gibbs-White er í kapphlaupi við tímann að verða klár fyrir einn stærsta leik Forest í langan tíma. Enski boltinn 5. maí 2026 11:01
Sjáðu mörkin: Sex marka rússíbanareið sem gæti kostað City titilinn Tveir leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Örlögin eru úr höndum Manchester City eins og er hvað varðar baráttuna um Englandsmeistaratitilinn eftir sex marka jafntefli liðsins gegn Everton. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér neðar í fréttinni. Enski boltinn 5. maí 2026 07:02
Óhugnanlegt atvik á Brúnni Jesse Derry, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea er á batavegi eftir að hafa hlotið þungt höfuðhögg í leik gegn Nottingham Forest í dag og í kjölfarið fluttur á sjúkrahús. Enski boltinn 4. maí 2026 17:57
Forest skellti Chelsea Nottingham Forest fór langt með að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni með 1-3 útisigri á Chelsea í dag. Forest er sex stigum frá fallsæti þegar þremur umferðum er ólokið. Chelsea hefur tapað sex deildarleikjum í röð. Enski boltinn 4. maí 2026 16:20
Wood færði Forest nauma forystu gegn Villa Nottingham Forest vann Aston Villa í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta í kvöld. Crystal Palace fagnaði sigri á útivelli í Sambandsdeildinni. Fótbolti 30. apríl 2026 20:26
Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Nottingham Forest steig stórt skref í átt að áframhaldandi veru í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð með öruggum 5-0 sigri á Sunderland á Norður-Englandi í kvöld. Enski boltinn 24. apríl 2026 20:58
Gibbs-White með þrennu í mikilvægum sigri Morgan Gibbs-White skoraði þrennu í 4-1 sigri Nottingham Forest gegn Burnley í 32. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 19. apríl 2026 15:25
Vonar að Wood sé ekki alvarlega meiddur Chris Wood er nýsnúinn aftur en fór meiddur af velli eftir ljóta tæklingu í leik Nottingham Forest og Porto í Evrópudeildinni í gærkvöldi. Forest-menn og nýsjálenska landsliðið vona innilega að framherjinn verði ekki aftur lengi frá. Fótbolti 17. apríl 2026 08:01
Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Manchester City minnkaði forskot Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar niður í sex stig með öruggum sigri á Chelsea, 0-3, á Stamford Bridge í gær. Alls voru níu mörk skoruð í leikjunum fjórum í gær. Enski boltinn 13. apríl 2026 08:33
Villa vann með tveimur en Forest fer heim með jafna stöðu Aston Villa vann öruggan tveggja marka sigur á útivelli gegn Bologna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar en einvígið hjá Nottingham Forest og Porto er hnífjafnt. Fótbolti 9. apríl 2026 21:12