Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Árekstur varð á Breiðholtsbrautinni í grennd við Mjóddina nú síðdegis. Innlent 23. október 2026 16:44
Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Klukkuturninn sem áður stóð við strætóbiðstöðina á Hlemmi verður settur upp á ný. Við mathöllina verður aðstaða fyrir töskugeymslu og Norðurpólnum verður að hluta sökkt niður til að bæta aðgengi. Innlent 23. október 2026 16:12
Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Markmiðið með úttekt á rekstri Borgarbókasafnsins sé að efla söfnin og kanna hvort draga megi úr yfirbyggingu til að bæta þjónustuna, segir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri. Hún segir látið að því liggja að borgin hyggist loka bókasöfnum í hagræðingarskyni. Innlent 23. október 2026 15:44
„Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Tillaga borgarstjórnar Reykjavíkur um að kanna hvort megi veita sambærilega bókasafnsþjónustu með færri útibúum hefur vakið hörð viðbrögð. Fólk undrar sig á vangaveltum um niðurskurð á sama tíma og læsi barna hrakar. Ákvörðunin sé til marks um menningarlega uppgjöf og hnignun og ganga sumir svo langt að segja að borgarstjórn hatist við menningu. Menning 23. október 2026 14:21
Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Í menningarráði Reykjavíkur hefur verið lögð fram tillaga um að fara yfir rekstur Borgarbókasafnsins og kanna hvernig nýta megi fjármuni þess betur. Meðal þess sem tillöguflytjendur vilja skoða er hvort veita megi sambærilega eða betri þjónustu með færri útibúum og samnýtingu við skólabókasöfn. Innlent 23. október 2026 13:59
Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Umfangsmiklar framkvæmdir standa yfir í Álfabakkanum þar sem Nova breytir bíóhúsinu í höfuðstöðvar fjarskiptafyrirtækisins. Innlent 23. október 2026 13:30
Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Í 55 skráðum atvikum í grunnskólum Reykjavíkur frá því í febrúar hefur starfsmaður fengið einhvers konar áverka. Þrjú atvik hafa leitt til fjarveru frá vinnu. Borgin undirbýr breytingar á aðgangi að skólunum en tímasetning framkvæmda liggur ekki fyrir. Innlent 23. október 2026 09:02
Af frönskum ríkisskuldum, skammvinnri stjórnarsetu og gildi kaupauka Mikil mótmælaalda gengur nú yfir suðurhluta Evrópu. Mestar voru rósturnar í Frakklandi um helgina en af fréttum fjölmiðla að dæma eru mótmælendur að brjóta allt og bramla til þess að mótmæla, svo fátt eitt sé nefnt, aðgerðarleysi í loftslagsmálum, hækkandi mjólkurverði og lélegu viðhaldi við framhaldsskóla. Innherji 23. október 2026 08:45
Ríkisútvarpið og hlutverk þess Ragga Jóns skrifaði á facebook: "Hlemmur er ein af þessum heimildamyndum sem hefur lifað í mér öll þessi ár. Ég veit eiginlega ekki hversu oft ég hef séð hana, það hleypur á tugi skipta. Og hún hreyfir alltaf jafn mikið við manni. Skoðun 23. október 2026 08:33
Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur segir tilfærslu á ábyrgð heilbrigðiseftirlits frá sveitarfélögum til ríkis hafa haft mikil áhrif á starfsemina sem ekki sjái fyrir endann á. Allir heilbrigðisfulltrúar landsins eru á uppsagnarfresti. Innlent 23. október 2026 08:17
Leigubílstjóri lét hnefana tala Lögreglu barst tilkynning í gær eða í nótt um leigubílstjóra sem átti að hafa kýlt annan. Ræddu fulltrúar við meintan árásarmann og fórnarlamb. Málið er í rannsókn en myndefni af vettvangi gaf góða mynd af því hvað átti sér stað. Innlent 23. október 2026 06:24
Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Kannað verði hvort veita megi sambærilega eða betri bókasafnsþjónustu með færri útibúum Borgarbókasafns Reykjavíkur og samnýtingu við skólabókasöfn. Þetta er meðal þess sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Viðreisnar vilja láta skoða í úttekt á rekstri safnsins. Innlent 22. október 2026 22:03
Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum. Neytendur 22. október 2026 21:27
Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Framkvæmdir í Þverholti við Hlemm, sem áætlað var að stæðu fram á mitt sumar, eru enn í fullum gangi. Reykjavíkurborg stefnir nú að því að ljúka þeim fyrir áramót. Á sama tíma er nýr framkvæmdaráfangi að hefjast á norðursvæði Hlemms vegna uppbyggingar Borgarlínu. Honum á að ljúka í lok árs 2027. Innlent 22. október 2026 21:02
Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl. Innlent 22. október 2026 18:35
Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Skiptistöðin í Mjódd verður tekin í gegn í von um að tilfellum ofbeldis fækki. Sviðsstjóri þjónustu og sölu hjá almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins segir umhverfið ábótavant og viðhaldi hafa verið áfátt í langan tíma. Innlent 22. október 2026 17:18
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Farþegasalurinn í Mjódd verður tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna. Innlent 22. október 2026 11:57
Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Reykjavíkurborg ætlar að segja upp 34 bílastæðaáskriftum á efstu hæð Bergstaða og opna stæðin almenningi. Bílahúsið skilaði rúmlega tíu milljóna króna tapi í fyrra og mælingar sýna að flest stæði efstu hæðarinnar standa auð yfir daginn. Innlent 22. október 2026 11:16
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn þarf ekki að drabbast niður Alveg eins og við segjum túristanum að kíkja í sund eins og heimamaður ætti að vera hægt að sannfæra hann um að kíkja í garðinn sem heimamenn sækja líka. Það er að minnsta kosti tilefni til að kanna hvort þarna leynist vannýtt tækifæri. Umræðan 22. október 2026 11:09
Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Formaður Sameykis segir að Reykjavíkurborg sé stjórnað með ótta. Fólk upplifi sig mjög óöruggt þar sem uppsagnarhrinu sé ekki lokið enn og að margir hefðu þegar leitað annað ef atvinnuástandið á landinu væri betra. Innlent 22. október 2026 09:29
Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Rokkararnir í Spacestation gáfu nýverið út plötuna Who Killed Spacestation? og fóru í kjölfarið á túr um Evrópu. Þeir eru komnir aftur á klakann og halda á tónleika á föstudaginn þar sem þeir lofa hávaða og látum. Tónlist 21. október 2026 15:01
Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Af þeim tugum sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í hagræðingaraðgerðum hafa um það bil fimm verið ráðnir aftur. Þetta segir Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi Viðreisnar. Innlent 21. október 2026 11:27
Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Leikkonan Olga Sonja Thorarensen eignaðist fyrir nokkrum árum sitt fyrsta barn og missti um svipað leyti ömmu sína. Hún erfði eftir ömmuna safn af tvö hundruð púðluhundastyttum úr postúlíni og ákvað með systur sinni, dansaranum Salóme Sól Norðkvist, að vinna upp úr safninu leikritið Púðlusafnið. Þar takast þær á við fjölskylduarfinn og umbreytingarnar sem fylgja móðurhlutverkinu. Menning 21. október 2026 11:03
Reykjavík á ekki að gera allt ein Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er ein af perlum borgarinnar - það er óumdeilt. Reykvísk börn úr leik- og grunnskólum fara reglulega í heimsókn þangað, læra um húsdýrin og njóta þess að vera í návist þeirra inni í miðri borg og margar fjölskyldur eiga árskort í garðinum. Skoðun 21. október 2026 09:01
Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Lokað var fyrir umferð um Hvalfjarðargöng vegna bifreiðar sem bilaði í göngunum um klukkan átta í morgun. Klukkan 8.48 voru göngin opnuð að nýju. Innlent 21. október 2026 08:32
Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Tekjur tveggja stærstu kvikmyndahúsafyrirtækja landsins drógust saman milli ára. Eigið fé félagsins sem rekur kvikmyndahús Sambíóa er orðið neikvætt en stjórn Smárabíós leggur til að eigendur félagsins fái allan hagnað síðasta árs greiddan í arð. Eigendur Laugarásbíós virðast vera að ná að snúa rekstrinum við. Viðskipti innlent 21. október 2026 06:34
Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku Tveir voru fluttir á bráðamóttöku í gær eða í nótt eftir að hafa dottið af rafmagnshlaupahjóli. Einstaklingarnir voru saman á einu hjóli og óskuðu eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls. Innlent 21. október 2026 06:18
Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Reykjavíkurborg skoðar að hafa aðeins einn inngang opinn í grunnskólum á ákveðnum tímum skóladagsins og stýra betur hverjir komast inn. Borgarstjóri greindi frá þessu þegar hún svaraði fyrirspurn um öryggi í skólum og frásagnir af kennurum sem hefðu orðið fyrir ofbeldi. Innlent 20. október 2026 17:22
Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Hjónin Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir og Markús Bjarnason hafa síðustu vikur unnið að því að breyta 122 ára gömlu stigahúsi við Holtsgötu í gallerý sem verður formlega opnað á fimmtudaginn. Gallerýið er á tveimur hæðum en er óvenjulegt að því leyti að það telur einungis sjö fermetra. Menning 20. október 2026 10:35
Gott bú stendur undir sér Fyrrverandi meirihluti í borgarstjórn Reykjavíkur segist hafa skilað góðu búi. Rökin eru fyrst og fremst þau að rekstur borgarinnar sé ekki verri en víðast hvar annarsstaðar, og rekstrarerfiðleikar sem við öllum blasa, stafi fyrst og fremst af háum vöxtum. Við í Viðreisn erum ósammála því. Skoðun 20. október 2026 07:02