Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Kona sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir í dag er fundin heil á húfi. Innlent 30. september 2026 16:28
Það þarf heilt þorp Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti einróma í gær að endurvekja íslenska forvarnarmódelið í Reykjavík. Með ákvörðuninni er mikilvægt skref stigið í þá átt að nýta gögn úr Íslensku æskulýðsrannsókninni markvisst í grunnskólum borgarinnar, greina stöðuna í nærumhverfi barna og ungmenna og byggja upp sameiginlegar aðgerðir til lengri tíma. Skoðun 30. september 2026 09:02
Staðráðnar í að koma sterkari til baka „Þetta er ein af stærri áskorunum sem við höfum þurft að takast á við, ekki bara í þessum rekstri heldur líka bara almennt,“ segir Steinunn Hrólfsdóttir, annar eigenda tískuverslunarinnar Andrá Reykjavík. Eldur kom upp í kjallara í rými verslunarinnar í byrjun september og átti eftir að hafa gríðarleg áhrif. Tíska og hönnun 30. september 2026 07:02
Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var í gærkvöldi tilkynnt um „afbrigðilega hegðun“ manns í Breiðholti, klæddum indíánabúningi. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi verið að leita sveppa. Innlent 30. september 2026 06:08
Karl Th. Birgisson borinn til grafar Ritstjórinn Karl Th. Birgisson var borinn til grafar í dag, þriðjudaginn 29. september, en útförin var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Davíð Þór Jónsson sem söng yfir hinum látna. Lífið 29. september 2026 21:30
Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) harmar ákvörðun Reykjavíkurborgar að afnema stuðning við fimmtán menningarhópa í formi húsnæðis á sanngjörnu leiguverði. SÍM skorar á borgina að afturkalla þessar uppsagnir eða mæta þeim samstundis með nýrri aðgerðaáætlun. Innlent 29. september 2026 12:54
Þjóðarhöllin á að rísa í janúar 2030 Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi þess í morgun verksamning milli Þjóðarhallar ehf. og ÍAV hf. um hönnun og byggingu nýrrar Þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir sem á að rísa í Laugardal. Áætluð verlok eru 2030 en Ísland á að vera meðal þjóða sem halda HM í handbolta árið 2031. Sport 29. september 2026 12:06
Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Skipulagsmál hafa lengi verið eitt heitasta umræðuefnið á kaffistofum borgarbúa. Það er ekkert skrítið. Fáar ákvarðanir borgarinnar hafa jafn bein áhrif á daglegt líf okkar. Skipulagið ræður miklu um það hvort við komumst greiðlega til vinnu, finnum bílastæði við heimilið, njótum birtu í íbúðinni og hvort uppbygging íbúða haldi í við þarfir borgarbúa. Skoðun 29. september 2026 07:31
Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í gærkvöldi afskipti af ökumanni sem var að „drifta“ á hringtorgi. Í dagbók lögreglu kemur fram að hann hafi játað og að málið hafi verið afgreitt á vettvangi. Innlent 29. september 2026 06:05
Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang. Innlent 28. september 2026 22:53
Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur fellt niður rannsókn á E. coli-sýkingu á leikskólanum Mánagarði, án útgáfu ákæru. Einn var með réttarstöðu sakbornings svo mánuðum skipti vegna gruns um líkamsmeiðingar af gáleysi. Innlent 28. september 2026 17:03
Ný göngubrú vígð Ný göngu- og hjólabrú var formlega opnuð í Elliðaárdal í morgun. Brúin kemur í stað veitustokks sem var nýttur sem göngubrú. Krakkar úr Árbæjarskóla tóku þátt í athöfninni. Innlent 28. september 2026 16:43
Grateful Dead á Sæbrautinni Það var heiðskírt í Reykjavík á föstudagskvöldið, sem telst orðið nægilegt tilefni til að menn taki eftir veðrinu, og um tíuleytið hafði Sæbrautin breyst í útileikhús. Ferðamenn stóðu þar með þrífætur og síma á lofti, sumir í nýjum dúnúlpum sem líklega höfðu verið keyptar fyrr um daginn með þeirri hugarró sem fylgir því að sjá ekki kortareikninginn fyrr en heim er komið. Skoðun 28. september 2026 07:02
Tilkynnt um tvær líkamsárásir Einn var í nótt eða gærkvöldi handtekinn vegna líkamsárásar í hverfi 105. Greint er frá því í dagbók lögreglu í dag. Þar kemur fram að maðurinn hafi verið vistaður í fangaklefa. Einnig var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í hverfi 101. Í dagbók kemur fram að gerandi hafi flúið af vettvangi áður en lögregla kom. Innlent 28. september 2026 06:11
Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Lögreglu á stöð eitt barst tilkynning um líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur í morgun eða í dag. Þegar laganna verði bar að garði var gerandinn farinn af vettvangi en þó telur lögreglan sig vita um hvern ræðir og er málið í rannsókn. Ekki liggur fyrir um hversu alvarlega áverka var að ræða. Innlent 27. september 2026 17:29
Beitti úðavopni á vegfarendur Í nótt kom til átaka milli fólks eftir að einn beitti úðavopni á vegfarendur í miðborg Reykjavíkur. Sá var handtekinn vegna málsins og reyndist hann eftirlýstur af lögreglu. Innlent 27. september 2026 12:03
Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Skemmtistað í miðborg Reykjavíkur var lokað af lögreglu um tvöleytið í nótt vegna fjölda ungmenna sem höfðu safnast þar saman. Innlent 27. september 2026 12:00
Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Tilkynnt var um alvarlega líkamsárás í Mjóddinni í Breiðholti á ellefta tímanum í gærkvöldi. Hópur unglinga veittist að manni á sextugsaldri. Hann var fluttur á sjúkrahús með áverka á höfði. Innlent 27. september 2026 11:33
Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að afskipti voru höfð af talsverðum fjölda ungmenna undir aldri sem voru inni á staðnum, segir í dagbók lögreglu. Að auki voru tveir handteknir og vistaðir í fangaklefa, hvor vegna sinnar líkamsárásarinnar, annar í miðborg Reykjavíkur og hinn í hverfi 221 í Hafnarfirði. Innlent 27. september 2026 07:32
Þyrlan lenti við Hörpu Landhelgisgæslan hélt upp á aldarafmæli sitt í dag með pomp og prakt. Þyrla Gæslunnar lenti tvisvar við Hörpu í dag, klukkan eitt og klukkan fjögur síðdegis í tilefni dagsins. Innlent 26. september 2026 16:52
Daði spreytir sig í Gettu betur Fjármálaráðherra, rektor Háskóla Íslands og útvarpsstjóri etja kappi við sigurlið MH í Gettu betur í dag. Viðureignin er hluti af hátíðardagskrá í tilefni sextíu ára afmælis Menntaskólans við Hamrahlíð. Innlent 26. september 2026 15:03
Howie B og Hiraki Saka í Gamla bíó Breski tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Howie B heldur tónleika í Gamla Bíó föstudaginn 16. október ásamt japanska myndlistarmanninum Hiraki Sawa. Saman koma þeir fram undir nafninu 3 Sticks. Sérstakur gestur 3 Sticks á tónleikunum verður tónskáldið og bassaleikarinn Borgar Magnason. Tónlist 26. september 2026 14:03
Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Allt ætlaði um koll að keyra við Sóleyjargötu í miðborg Reykjavíkur þegar heimsfræga Twitch-stjarnan Kai Cenat var þar á ferð. Stór hópur, sem samanstóð að mestu af ungum strákum, vildi ekki sleppa takinu af Cenat. Innlent 26. september 2026 12:24
Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Óskað var eftir aðstoð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vegna umferðarslyss í gærkvöldi eða nótt. Einn var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar. Innlent 26. september 2026 07:26
Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Breiðholtsbraut verður lokuð að hluta til frá því snemma í fyrramálið og langt fram á kvöld vegna malbikunarframkvæmda. Innlent 25. september 2026 17:21
Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku SÁÁ stefnir á að taka inn nýja skjólstæðinga tvo daga í næstu viku en lokað hefur verið fyrir innlagnar þar ótímabundið vegna mönnunarvanda. Forstjóri stofnunarinnar segir unnið að því að leysa vandann í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld. Innlent 25. september 2026 11:50
Sorpa skoðar að fara í mál við grenndargámasóða Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu, segir það til skoðunar að fara í mál við fólk sem skilur sorp eftir við grenndargáma sem ekki á að fleygja þar. Það varði við lög að skilja rusl eftir á víðavangi og hæsta sekt geti numið einni milljón króna. Innlent 24. september 2026 21:00
Tjón á tveimur bílum þegar tré fauk Tré féll á veg í hvassviðrinu í dag í miðborginni. Það þveraði veginn og greinar af trénu höfnuðu á tveimur bílum og ollu skemmdum á þeim. Innlent 24. september 2026 17:44
Annað innbrotið á árinu: „Það var svo mikið blóð“ Brotist var inn í raftækjaverslunina Mi búðin við Ármúla snemma í morgun. Framkvæmdastjórinn segir að ítrekaðar tilraunir hafi verið gerðar til að brjótast inn í verslunina en þó með misjöfnum árangri. Innlent 24. september 2026 14:56
Barnið ekki í viðeigandi öryggisbúnaði Ökumaður var í gær kærður af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fyrir að gæta þess ekki að hafa barn sitt í viðeigandi öryggis- og verndarbúnaði. Atvikið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Breiðholti og Kópavogi. Innlent 24. september 2026 06:21