![Fréttamynd](https://www.visir.is/i/C86BA2A26D0BD2ECC19692289083ADB837C3DD2C66730B853761B8EBBE36873B_308x200.jpg)
Veiðidögum á grásleppu fjölgað
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að fjölga veiðidögum á grásleppuvertíð um 10 daga, úr 36 í 46.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að fjölga veiðidögum á grásleppuvertíð um 10 daga, úr 36 í 46.
Stefnt er að því að hefja 10.000 tonna fiskeldi í Ólafsfirði. Fulltrúar Arnarlax og sveitarstjórnarinnar munu undirrita viljayfirlýsingu þess efnis.
Mikilvægi hvala fyrir vistkerfi hafs og lands er vaxandi fræðasvið, en unnið er með vísbendingar um að sterkir stofnar hvala styðji við aðrar lífverur um allt vistkerfið.
Fulltrúar Akraness og HB Granda funduðu í gær um framtíð landvinnslu fyrirtækisins á Akranesi. Forstjóri HB Granda segir Akranes reyna sitt besta til að fá fyrirtækið til að hætta við áform um að loka landvinnslu.
Framkvæmdastjóri Landssambands fiskeldisstöðva segir að það sé ekki náttúruvernd heldur fjárhagslegir hagsmunir sem drífi fulltrúa laxveiða áfram í áróðursstríði gegn laxeldi.
Orri Vigfússon segir hundrað milljarða króna veiðihlunnindi í hættu vegna laxeldis í sjókvíum.
Há veiðigjöld ógna smærri byggðum, segir framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði, og spáir því að kvótinn haldi áfram að færast á færri hendur og til stærri útgerða, þótt stjórnvöld segist vilja annað.
Fáskrúðsfirðingar eiga eitt öflugasta útgerðarfélag landsins en með gjörólíku eignarhaldi en hjá flestum öðrum.
Kanadíska ríkissjónvarpsstöðin CBC sýndi í gær skemmtilega sjónvarpsfrétt um það hvernig það gerðist óvænt á dögunum að fiskbúð í borginni Edmonton við rætur Klettafjalla fór að selja ferskan nýveiddan íslenskan fisk.
Einstakur hagnaður af túnfiskeldi í Mexíkó fyrir fjórum árum, sem var eins og lukkupottur, er helsta uppspretta þeirra fjármuna sem Róbert Guðfinnsson notar nú til uppbyggingar á Siglufirði.
Þrjú ný fiskvinnslufyrirtæki hafa orðið til í Sandgerði á einu ári sem öll eiga það sammerkt að sérhæfa sig í fiski sem sendur er samdægurs með flugi til útlanda.
Litlu trillurnar sem áður héldu uppi atvinnu í þorpum hringinn í kringum landið hafa margar endað feril sinn á áramótabrennu.
Markaðssetningu íslenskra sjávarafurða hefur sett niður með uppbroti stórra sölusamtaka. Þekkt vörumerki töpuðust og þar með forskot sem Ísland hafði. Á fjórða tug fyrirtækja annast sölumál sjávarafurða í dag. Einstök fyrirtæki selja eigin fisk.
Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna og útgerðarmaður togarans Gullvers á Seyðisfirði, greindi frá því í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 að hann hefði þurft að taka sér tveggja mánaða veikindaleyfi frá störfum í haust vegna krabbameinsmeðferðar.
Slorið úr íslenskum fiskvinnslum er orðið að verðmætri útflutningsvöru til frægustu hátískufyrirækja heimsins. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 í kvöld, en þar var fyrirtækið Sjávarleður á Sauðárkróki heimsótt. Gestastofa sútarans er andlit fyrirtækisins og það hefur í raun farið furðu hljótt miðað við þann árangur sem það hefur náð á alþjóðavettvangi.
Íbúar Drangsness við Steingrímsfjörð ásamt sveitarfélaginu Kaldrananeshreppi standa saman að útgerð kvótamesta bátsins og stærsta fyrirtækisins, Fiskvinnslunnar Drangs. Þetta kom fram í þættinum "Um land allt," á Stöð 2 í gærkvöldi. "Ég held að það megi alveg örugglega segja að það sé hjartað í byggðinni á Drangsnesi því að hérna starfar stór hluti og þetta er eign samfélagsins algerlega," sagði Óskar Torfason, framkvæmdastjóri Drangs.
Verði kvótafrumvarpið samþykkt óbreytt á Alþingi, leiðir það til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum. Þetta segir í umsögn um bæjarráðs Vestmannaeyja sem telur að með frumvarpinu skerðist aflaheimildir í Eyjum um 15 prósent. Um 100 manns, sem starfi við veiðar og vinnslu, missi vinnuna og með afleiddum störfum megi gera ráð fyrir að um tvö hundruð störf tapist.
Verði frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarlögum, sem nú liggur fyrir Alþingi, samþykkt mun það leiða til mikillar fólksfækkunar í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í umsögn bæjarráðs Vestmannaeyjar um frumvarpið. Í umsögninni kemur fram að
Búist er við 45 prósenta heildaraukningu í fiskeldi milli ára. Búist er við meira en helmingsaukningu í laxeldi frá því í fyrra. Enn eru miklar væntingar til þorskeldis, sem þó er enn á þróunarstigi.