Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð vegna rútuslyss í Suðursveit í morgun. Allir sem voru um borð í rútunni verða fluttir á slysadeild til skoðunar og er fólkið með ýmiss konar áverka. Innlent 6.7.2026 11:58
Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Sex eru slasaðir af tíu sem voru í rútu sem lenti í slysi í Suðursveit í dag. Viðbragðsaðilar, þar á meðal þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Innlent 6.7.2026 10:49
Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni. Innlent 30.6.2026 20:20
Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu. Innlent 26. maí 2026 13:56
Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Framsókn og stuðningsmenn bætir við sig manni frá síðustu kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi Kex framboðs tapa manni hvor í sveitarfélaginu Hornafirði. Miðflokkurinn fær einn mann. Innlent 17. maí 2026 00:32
Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 12. maí 2026 21:01
Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Strax í gærmorgun var búið að flagga hinsegin fánum um allan bæ, að sögn Hornfirðingsins Guðrúnar Óskar Gunnarsdóttur. Hún brást við ummælum Snorra Mássonar um regnbogafána í færslu sem hefur farið víða um Facebook. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Miðflokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn. Innlent 18. apríl 2026 18:31
Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Forsvarsfólk Miðflokksins á Hornafirði taldi tilefni til að bregðast við umræðu um stefnu flokksins eftir að varaformaður hans gerði athugasemdir við fjölda regnbogafána og svipaðra tákna í skólum. Innlent 17. apríl 2026 17:49
Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða. Innlent 16. apríl 2026 22:20
Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Rannsókn á mögulegu þjófagengi sem er sagt hafa látið greipar sópa í versluninni Freysnesi í Öræfum þann 29. mars síðastliðinn stendur enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 14. apríl 2026 11:55
Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave „Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgisson, skipstjóri Ásgríms Halldórssonar, nýs uppsjávarskips, sem er í smíðum á Skagen í Danmörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jótland á páskadag. Innlent 7. apríl 2026 12:32
Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ferðamenn sem voru stöðvaðir á leið til Egilsstaða tengjast ekki þjófnaði sem framinn var í versluninni Freysnesi í Skaftafelli á sunnudaginn. Innlent 31. mars 2026 19:16
Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis. Innlent 31. mars 2026 16:36
Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Óprúttnir aðilar fóru ránshendi um verslunina Freysnes í gær. Eigandi verslunarinnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem eitthvað er tekið ófrjálsri hendi þar. Fólkið hafi verið þaulvant og breytt landslag blasi við á Íslandi. Innlent 30. mars 2026 21:41
Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Lögreglunni á Suðurlandi hefur ekki borist formleg tilkynning um þjófagengi, sem sagt er hafa látið greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í gærmorgun. Þó er til skoðunar að reyna að hafa uppi á hópnum. Innlent 30. mars 2026 11:09
Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í morgun. Um skipulagðan þjófnað var að ræða enda voru þeir allt að tíu talsins og gengu hringi um verslunina og stungu vörum í vasana. Innlent 29. mars 2026 20:42
Þyrlan kölluð út vegna manns í sjálfheldu Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns í sjálfheldu á Vestrahorni. Maðurinn var án meiðsla en honum var flogið til Hafnar í Hornafirði. Innlent 10. mars 2026 20:10
Kæru vegna gistihýsa við þjóðgarðinn í Skaftafelli vísað frá Hópur eigenda og ábúenda á jörðum nærri þjóðgarðinum í Skaftafelli var ekki talinn eiga hagsmuni sem gæfi honum aðild til þess að krefjast þess að framkvæmdir við tugi gistihýsa yrðu stöðvaðar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála vísaði kæru þeirra frá í síðustu viku. Innlent 3. mars 2026 08:57
Hringveginum lokað vegna veðurs Hluta Hringvegarins sem liggur um Skeiðársand hefur verið lokað vegna sandfoks og óveðurs. Gul veðurviðvörun er í gildi á svæðinu. Innlent 2. mars 2026 15:32
Alda sópaði manninum út í vatnið eftir að ís féll úr jöklinum Maðurinn sem féll í Jökulsárlón á sunnudag var við jökulsporðinn þegar ís brotnaði úr jöklinum, með þeirri afleiðingu að flóðbylgja náði manninum og tók með sér út í vatnið. Innlent 10. febrúar 2026 11:13
Féll í Jökulsárlón Maður féll í Jökulsárlón og er mikill viðbúnaður á svæðinu. Vísi barst ábending frá leiðsögumanni um að viðbragðsaðilar væru á vettvangi við Jökulsárlón vegna málsins. Innlent 8. febrúar 2026 13:31
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 21:42
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Svarar gagnrýni vegna umdeildra gistihýsa í Skaftafelli Uppbygging Arctic Adventures á þrettán gistihýsum í Skaftafelli er í fullu samræmi við lög og reglur auk þess sem húsin í núverandi mynd endurspegla ekki endanlega ásýnd þeirra þar sem þau eru enn á byggingarstigi. Þá ku verkefnið vera í fullu samræmi við gildandi skipulag sveitarfélagsins og þau leyfi sem fyrir liggja vegna verkefnisins. Þetta segir forstjóri Arctic Adventures sem svarar gagnrýni sem fram hefur komið vegna uppbyggingar húsanna, en lögð hefur verið fram stjórnsýslukæra vegna málsins. Innlent 26. janúar 2026 08:36