Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fóru 16. maí 2026.


Fréttamynd

„Hvað sagðiru, 42? Það er geð­veikt!“

Hilmar Gunnarsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var himinlifandi þegar fréttamaður Sýnar bar honum tíðindi af fylgisaukningu flokksins í beinni útsendingu. Flokkurinn er með 42,5 prósent fylgi og meirihlutinn fallinn miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Gífur­leg fagnaðar­læti yfir sigurræðu Almars

Almar Guðmundsson bæjarstjóri í Garðabæ og oddviti Sjálfstæðisflokksins var vel fagnað þegar hann hélt sigurræðu í kosningateiti flokksins. Hann segist telja að vinna flokksins hafi fyrst og fremst skilað árangri í kosningunum en flokkurinn bætir við sig manni miðað við fyrstu tölur.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn á Akur­eyri fallinn

Bæjarlistinn er örlítið stærri en Samfylkingin á Akureyri þegar um fjórðungur atkvæða hefur verið talinn. Samfylkingin bætir þó við sig manni og Bæjarlistinn tapar einum og því er meirihlutinn fallinn.

Innlent
Fréttamynd

Alma himin­lifandi með soninn sem lofar 45 prósenta fylgi næst

Jónasi Má Torfasyni oddvita Samfylkingar var fagnað innilega í kosningapartýi flokksins á Café Catalinu í Hamraborginni. Alma Möller heilbrigðisráðherra móðir Jónasar segist hreykin af syni sínum, það hafi verið hann sem dró hana út í stjórnmálin en ekki öfugt.

Lífið
Fréttamynd

Í á­falli yfir fyrstu tölum úr Kópa­vogi

Ásdís Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins segist vera himinlifandi með fyrstu tölur. Yrðu það lokatölur fengi Sjálfstæðisflokkurinn hreinan meirihluta í bænum. Annar frambjóðandi flokksins var í áfalli. Allir oddvitar í Kópavogi virðast sáttir við sitt. 

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­kjörin í Kjósarhreppi

Aðeins einn listi bauð fram til hreppsnefndar í Kjósarhreppi að þessu sinni og voru fulltrúar A-lista – Íbúa í Kjós því sjálfkjörnir samkvæmt kosningalögum. Efstu fjórir frambjóðendurnir hlutu endurkjör.

Innlent
Fréttamynd

Nágrannaslagur í Vestur­bænum

Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, búa með eitt hús á milli sín í Vesturbæ Reykjavíkur

Innlent