„Frábært að vera komnar á sigurbraut aftur“ „Mér líður frábærlega. Það er frábært að vera komnar á sigurbraut aftur eftir erfiðan síðasta leik, 3-2 tap, svo það er flott að ná í 2-1 sigur í dag.“, sagði Erin Flurey, leikmaður Þór/KA, eftir 2-1 sigur gegn ÍBV þar sem hún skoraði fyrsta mark leiksins og átti góðan leik. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 20:06
Sjáðu mörkin þegar Þór vann meistarana og Fram sótti sigur á Hlíðarenda Þór varð í gær fyrsta liðið til að vinna Víking, 2-1, í Bestu deild karla síðan 10. ágúst í fyrra. Þá vann Fram Val í Reykjavíkurslag, 2-3. Valsmenn hafa tapað þremur leikjum í röð. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 19:32
„Fannst mikilvægt að byrja þetta með krafti“ Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, var ánægður eftir 2-1 sigur gegn ÍBV á heimavelli í 13. umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 19:19
Uppgjörið: Þór/KA - ÍBV 2-1 | Þriðji sigurinn í síðustu fjórum leikjum Þór/KA lyfti sér upp úr botnsæti Bestu deildar kvenna og upp í það sjöunda með 2-1 sigri á ÍBV á VÍS vellinum á Akureyri í dag. ÍBV eftir leikinn í fjórða sæti deildarinnar. Íslenski boltinn 19. júlí 2026 19:15
Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Eftir að hafa unnið þrettán leiki í röð í Bestu deild karla töpuðu Íslandsmeistarar Víkings fyrir nýliðum Þórs, 2-1. Aron Einar Gunnarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Þór í efstu deild í dag. Íslenski boltinn 18. júlí 2026 19:55
„Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, mikið af tæknifeilum. Við vorum bara ekki líkir sjálfum okkur. Við vorum að taka góð hlaup bak við vörnina og þá var sendingin kannski of löng, þannig einfaldar sendingar voru að klikka.“ sagði Sölvi Geir Ottesen Jónsson þjálfari Víkings eftir fyrsta tapleik liðsins í Bestu deildinni í sumar gegn Þór á Akureyri í dag, 2-1. Íslenski boltinn 18. júlí 2026 19:13
„Eina leiðin er upp“ „Fagmannleg frammistaða hjá okkur, mér fannst við loka vel á styrkleika þeirra og unnum þetta saman sem lið í dag. Það hefur vantað smá geðveiki í þetta en við vorum fínir í því í dag og það skóp þennan sigur,“ sagði Aron Einar Gunnarsson eftir 2-1 sigur á Víking Reykjavík á Akureyri í dag. Íslenski boltinn 18. júlí 2026 18:52
Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Aron Einar Gunnarsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði, er mættur heim í Þorpið og mun spila með Þór út leiktíðina í Bestu deildinni í fótbolta. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson er sömuleiðis kominn til Þórs, að láni frá KR. Íslenski boltinn 17. júlí 2026 13:34
Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Félagaskiptaglugginn á Íslandi verður opnaður á ný í dag, 16. júlí. Þá gefst liðum tækifæri til að styrkja sig fyrir seinni hluta tímabilsins. En hvað eru liðin í Bestu deild karla búin að gera og hvað þurfa þau að gera í glugganum? Vísir leitaði til Baldurs Sigurðssonar, sérfræðings Stúkunnar, um hvað liðin tólf þyrftu að gera áður en glugganum verður lokað 12. ágúst. Íslenski boltinn 16. júlí 2026 09:02
Sjáðu Stjörnuna stimpla sig í titilslag og Hamlett koma Fram af botninum Framkonur halda áfram að koma á óvart og unnu annan frábæran sigur í Bestu deildinni í gærkvöld, og Stjarnan er á miklu flugi og nú aðeins tveimur stigum frá toppnum. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 15. júlí 2026 09:30
Uppgjörið: Stjarnan-Þór/KA 3-2 | Stjörnukonur aftur á sigurbraut Stjörnukonur komust aftur á sigurbraut og enduðu tveggja leikja sigurgöngu Þór/KA með 3-2 sigri í leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta í Garðabænum í kvöld. Íslenski boltinn 14. júlí 2026 19:55
Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Alls var 21 mark skorað í fjórum leikjum í Bestu deild karla í gær. KA og FH unnu kærkomna sigra á meðan Fram og KR röðuðu inn mörkum. Íslenski boltinn 13. júlí 2026 10:32
Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Fram sýndi styrk sinn á heimavelli þegar liðið vann öruggan 6-1 sigur á Þór í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 17:16
Uppgjörið: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks Þór/KA vann sinn annan sigur í röð í Bestu deild kvenna í fótbolta þegar liðið vann 1-0 sigur á nýliðum Grindavíkur/Njarðvíkur. Íslenski boltinn 9. júlí 2026 22:29
„Við erum að spila hérna á móti Paragvæ nánast“ „Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við spila mjög fínan leik í dag. Þannig ég er bara sáttur við stelpurnar,“ sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir 1-0 tap á móti Þór/KA á útivelli í kvöld. Sport 9. júlí 2026 22:06
Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sigurpáll Sören Ingólfsson fékk á sig þrjú mörk á fyrstu fjórtán mínútunum þegar KR sótti Þór heim í Bestu deild karla í síðustu viku. Kollegi hans í marki Akureyrarliðsins, Aron Birkir Stefánsson, skoraði meðal annars með skoti af gríðarlöngu færi. Bjarni Guðjónsson tók til varna fyrir Sigurpál í Stúkunni. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 16:45
Fyrsti markvörðurinn til að skora utan af velli í 48 ár Aron Birkir Stefánsson varð í gær aðeins fjórði markvörðurinn til að skora í efstu deild karla þegar hann skoraði fyrir Þórsara í 3-3 jafntefli á móti KR í Bestu deildinni í fótbolta. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 12:30
Sjáðu skrautlegu mörkin fyrir norðan og dramatíkina í Víkinni Akureyrarliðin tvö, KA og Þór, misstu bæði niður forystu í leikjum gærkvöldsins í Bestu deild karla. KR náði í stig eftir að Þór hafði komist 3-0 yfir í Þorpinu með ótrúlegum mörkum og Víkingur vann KA með dramatísku sigurmarki af vítapunktinum. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 12:01
Átti Amin að sjá rautt? Akureyringar kröfðust þess að Amin Cosic, leikmaður KR, sæi rautt spjald í leik við Þór norðan heiða í gær. Hann virtist traðka á Christian Greko Jakobsen, leikmanni Þórs. Íslenski boltinn 3. júlí 2026 09:19
Uppgjörið: Þór - KR 3-3 | Endurkoma hjá KR Þór og KR skyldu jöfn 3-3 í markaleik á Akureyri í dag þar sem að heimamenn komust í 3-0 eftir hreint ótrúlega byrjun á leiknum. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 20:04
„Mér leið svipað í 3-0 eins og í 0-0“ „Mér fannst við bara flottir, við gáfum allt í þetta. Við erum að spila á móti liði sem að hefðu geta lent 7-0 undir en hefðu samt alltaf komið aftur á okkur og haft trú á því að þeir væru að fara að vinna leikinn,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Þórs eftir 3-3 jafntefli á móti KR á Akureyri í dag. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 20:00
Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Ótrúlegt atvik gerðist í leik Þórs og KR í Bestu deild karla þar sem markmaður Þórs skoraði í mark KR-inga frá sínum eigin vallarhelmingi. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 17:37
KR-ingar mæta eina liðinu sem er búið að fá á sig fleiri mörk en þeir Botnlið Þórs fær KR í heimsókn í Bestu deild karla í fótbolta á Akureyri í kvöld og það ætti að vera von á mörkum í leiknum ef marka má sumarið til þessa. Íslenski boltinn 2. júlí 2026 12:00
Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Þórsarar fá KR-inga í heimsókn til Akureyrar í Bestu deild karla í fótbolta á morgun og þetta verður sérstakur styrktarleikur fyrir mikinn stuðningsmann Þórsara en hann á í erfiðri baráttu þessa dagana. Íslenski boltinn 1. júlí 2026 12:33
Glæsimark sem felldi KR, markaveisla á Akureyri og fyrsti sigur Jóns Þórs Fjórir leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær þar sem Keflavík, Valur og Stjarnan fögnuðu öll sigri en nú má sjá mörkin úr þeim öllum hér inni á Vísi. Íslenski boltinn 29. júní 2026 08:15
Spurður út í Adam Ægi: „Getur vel verið að við spjöllum við hann“ Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs, var afar svekktur eftir 4-2 tap gegn Val á heimavelli eftir að lið hans hafði jafnað leikinn í 2-2 í síðari hálfleik en fengið á sig mörk í lokin. Íslenski boltinn 28. júní 2026 21:09
„Mjög ánægður að skora tvö mörk“ Valur sótti 4-2 sigur norður yfir heiðar gegn Þór á VÍS-vellinum á Akureyri í 12. umferð bestu deildar karla. Íslenski boltinn 28. júní 2026 20:21
Uppgjörið: Þór Ak. - Valur 2-4 | Valsmenn hefndu sín Valsmenn byrjuðu leikinn mun betur og komust í nokkur fín færi á upphafsmínútum leiksins og var þar yfirleitt á ferðinni Tryggvi Haraldsson en Aron varði einu sinni vel frá honum og tvisvar fór boltinn rétt yfir. Íslenski boltinn 28. júní 2026 16:15
Aðalsteinn eftir fyrsta sigurinn: „Vinnusemi dugnaður og samvinna skilaði sigrinum“ „Ég er mjög ánægður með það að vinna fyrsta leikinn í dag en umfram allt er ég ánægður með frammistöðuna sem stelpurnar lögðu í leikinn. Vinnusemi, dugnaður samvinna og bara það skilaði sigrinum í dag og við erum virkilega ánægð með það að vinna loksins“, sagði Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þór/KA, eftir fyrsta sigur liðsins í Bestu deild kvenna sem kom gegn Þrótti nú í kvöld og var augljóslega létt. Fótbolti 22. júní 2026 22:18
„Þetta var mjög kærkomið“ Þór/KA sótti sinn fyrsta sigur í Bestu deild kvenna gegn Þrótti á heimavelli í kvöld í níundu umferð deildarinnar. Fótbolti 22. júní 2026 20:58