Markaskorari Vals óviss um framtíð sína Dagur Orri Garðarson, einn af markaskorurum Vals í dag í 4-1 sigri gegn Þór Akureyri í Bestu deildinni veit ekki hvort leikurinn hafi verið hans síðasti fyrir félagið. Dagur er orðaður við brottför til MSK Zilina í Slóvakíu. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:29
Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 4-1 | Valsmenn ekki í vandræðum með Þórsara VValsarar sigruðu Þór sannfærandi á N1-vellinum í dag í fyrstu umferð Bestu deildarinnar eftir að deildinni var skipt í efri- og neðri hluta. Staðan var jöfn í hálfleik 1-1 en kröftugur síðari hálfleikur hjá heimamönnum skóp sigurinn. Íslenski boltinn 13. september 2026 16:02
MSK Zilina að kaupa Dag Orra frá Val Slóvakíska félagið MSK Zilina er að ganga frá kaupum á Degi Orra Garðarssyni, leikmanni Vals. Íslenski boltinn 12. september 2026 14:56
Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram lagði Val í ótrúlegum leik, 47-40, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Fram deilir toppsætinu með KA sem lagði Víking. Handbolti 11. september 2026 21:06
Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Norska knattspyrnufélagið Molde hefur nú tryggt sér tvær af efnilegustu knattspyrnukonum landsins. Hin 17 ára Fanney Lísa Jóhannesdóttir kemur til félagsins frá Stjörnunni og hin 18 ára Sóley Edda Ingadóttir frá Val. Fótbolti 10. september 2026 17:00
Fer frá Hlíðarenda til Molde Unglingalandsliðskonan Sóley Edda Ingadóttir er á förum til norska úrvalsdeildarfélagsins Molde frá knattspyrnuliði Vals, eftir tveggja ára dvöl að Hlíðarenda. Fótbolti 7. september 2026 13:04
Sjáðu aukaspyrnu Lillýjar: Mörkin sem komu Val úr fallsæti og FH á toppinn Það er gífurleg spenna í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta, síðustu umferðinni fyrir skiptingu deildarinnar, sem lýkur í kvöld. Mörkin úr leikjum helgarinnar má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 7. september 2026 09:34
„Létum þetta eina mark ekkert á okkur fá“ „Mjög mikilvæg. Við erum í rosalegri baráttu og höfum trú á okkar verkefni,“ sagði Málfríður Anna Eiríksdóttir, fyrirliði Vals, um stigin þrjú sem liðið sótti með 4-1 útisigri gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í dag. Íslenski boltinn 6. september 2026 20:47
Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - Valur 1-4 | Valskonur af botninum Valur vann frábæran 4-1 útisigur á Grindavík/Njarðvík í 18. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. Sigurinn skýtur Val af botninum og raunar af fallsvæðinu. Íslenski boltinn 6. september 2026 18:20
,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Chris Brazell, þjálfari Vals, var ánægður eftir mikilvægan 2-1 sigur liðsins gegn Keflavík á HS Orku-vellinum í dag. Honum fannst sigurinn vera verðskulduð umbun fyrir vinnuna og frammistöðuna sem leikmenn Vals hafa sýnt undanfarnar vikur. Íslenski boltinn 5. september 2026 20:18
Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Valur vann gríðarlega mikilvægan 2-1 sigur á Keflavík á HS Orku-vellinum í Reykjanesbæ í 22. umferð Bestu deildar karla. Jónatan Ingi Jónsson og Dagur Orri Garðarsson skoruðu mörk Vals áður en varamaðurinn Marin Mudražija minnkaði muninn fyrir Keflvíkinga. Íslenski boltinn 5. september 2026 15:47
Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Íslandsmeistarar Vals hófu nýja leiktíð í Olís-deild karla í handbolta á fjögurra marka sigri gegn Selfyssingum á útivelli, 34-30. Handbolti 3. september 2026 21:18
„Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ „Leikurinn leggst bara vel í okkur og menn eru spenntir að byrja. Við erum búnir að æfa vel í sumar og það eru bara allir í góðu standi og tilbúnir í leikinn. Við erum auðvitað að mæta mjög ungu og spræku liði Selfoss sem er eiginlega mjög sterkt á heimavelli, þannig að við erum að fara austur fyrir fjall og undirbúa okkur bara fyrir mjög krefjandi verkefni,“ segir Ágúst Jóhannsson þjálfari Íslandsmeistara Vals í handbolta, í samtali við Vísi. Handbolti 3. september 2026 14:17
Tufegdzic bræður til Malmö Valur greinir frá því að bræðurnir Stefan og Novak Tufegdzic séu gengnir í raðir Malmö í Svíþjóð. Íslenski boltinn 3. september 2026 11:34
Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Ellefu mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Kristófer Konráðsson skoraði mark dagsins. Íslenski boltinn 31. ágúst 2026 11:01
„Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ Chris Brazell, þjálfari Vals, telur að lið sitt hafi átt meira en eitt stig skilið þegar liðið missti niður unninn leik í jafntefli gegn ÍA í Bestu-deild karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 22:42
Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Það var ótrúleg dramatík í lok leiks Vals og ÍA í Bestu deildinni í kvöld. Dæmd var leiktöf á Frederik Schram, markvörð Vals, og upp úr því kom jöfnunarmark ÍA á síðustu stundu. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 21:57
Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Valur og ÍA skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í 21. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á N1-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Baldvin Berndsen sá til þess að ÍA tók eitt stig með sér á Skagann með jöfnunarmarki sínu á lokaandartökum leiksins. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 21:11
„Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, var sáttur við frammistöðu liðs síns, karakterinn í liðinu og úrslitin þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við FH í Bestu-deild kvenna í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 15:29
Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Valur og FH skildu jöfn, 2-2, þegar liðin áttust við í í lokaleik 17. umferðar Bestu-deildar kvenna í fótbolta á N1-vellinum á Hlíðarenda í dag. Íslenski boltinn 30. ágúst 2026 14:52
Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Bjarni Mark Antonsson Duffield er fluttur aftur til Svíþjóðar í faðm fjölskyldunnar og kveðst spenntur fyrir því að spila sinn fyrsta leik fyrir lið Trelleborg um helgina. Hann hugsar hlýlega til Valsmanna en var orðinn þreyttur á umrótinu sem fylgdi því að spila fyrir félagið. Íslenski boltinn 29. ágúst 2026 09:00
Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Íslandsmeistarar Vals báru sigurorð af bikarmeisturum Hauka, 31-26, í Meistarakeppni karla í handbolta í kvöld. Leikið var á Hlíðarenda. Handbolti 28. ágúst 2026 21:57
Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Haukar báru sigurorð af Íslands- og bikarmeisturum Vals, 28-36, í Meistarakeppni kvenna í handbolta í kvöld. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir fór mikinn fyrir Hafnfirðinga í leiknum á Hlíðarenda. Handbolti 28. ágúst 2026 19:30
Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Eftir að hafa verið formaður körfuknattleiksdeildar Vals í fjölmörg ár ákvað Svali Björgvinsson að stíga til hliðar í vor. Unnið er að því að skipa arftaka hans. Körfubolti 27. ágúst 2026 12:00
Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Valsarinn uppaldi Stiven Valencia, landsliðsmaður í handbolta, ber sínu gamla félagi ekki vel söguna eftir samningaviðræður í sumar og kveðst „ótrúlega ósáttur“ með þróun þeirra. Handbolti 26. ágúst 2026 14:33
Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Fimm leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Eftirvænting var fyrir fyrsta leik Eiðs Smára Guðjohnsen sem þjálfari KA, fyrsti leikur í erfiðari kantinum gegn KR. Topplið Víkings Reykjavíkur tók þá á móti Val í Reykjavíkurslag. Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins hér í fréttinni. Íslenski boltinn 24. ágúst 2026 09:02
Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Víkingur vann öruggan 2-0 sigur á Val í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Sigurinn þýðir að Víkingur er með átta stiga forystu á toppi deildarinnar á meðan Valur gæti hreinlega sogast niður í fallbaráttuna. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 21:45
Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ Gunnar Vatnhamar lék sinn síðasta heimaleik fyrir Víking þegar liðið lagði Val, 2-0, í 20. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Færeyingurinn átti erfitt með að lýsa tilfinningum sínum í leikslok. Íslenski boltinn 23. ágúst 2026 21:40
Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans Þrír leikir fóru fram í Bestu deild kvenna í gær og óvænt úrslit komu upp úr þeim öllum. Mörkin úr leikjunum má sjá hér fyrir neðan. Íslenski boltinn 22. ágúst 2026 12:01
„Kærkomið að fá eitt svona mark“ Matthías Guðmundsson, þjálfari Vals, segir tilfinningarnar frábærar eftir að hafa sótt 1-0 sigur á Þór/KA fyrir norðan en eina mark leiksins kom á lokamínútu venjulegs leiktíma. Íslenski boltinn 21. ágúst 2026 22:02