Ólympíuleikar 2016 í Ríó

Svört skýrsla sýnir að rússnesk stjórnvöld stóðu á bak við lyfjasvindlið
Skýrsla sem kom út í dag um ólöglega lyfjanotkun í rússneskum íþróttum er mikið áfall fyrir allan íþróttaheiminn enda sannast þar að Rússar hafi með skipulögðum hætti aðstoðað íþróttamenn sína við að svindla á lyfjaprófum.

Skora á Ólympínefndina að banna alla Rússa í Ríó
Bandaríska- og kanadíska lyfjaeftirlitið sendu fyrir helgi áskorun með undirskriftum víðsvegar úr heiminum þar sem skorað var á Ólympíunefndina að banna alla rússneska íþróttamenn í Ríó.

Guðmundur búinn að velja Ólympíuhópinn | Aðeins tveir hornamenn
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska landsliðsins í handbolta, tilkynnti í dag 14-manna leikmannahóp sinn fyrir Ólympíuleikana í Ríó en hann tekur aðeins tvo hornarmenn með til Brasilíu.

Dagur búinn að velja þýsku Ólympíufarana
Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska handboltalandsliðsins, hefur valið 14 manna lokahóp fyrir Ólympíuleikana í Ríó í næsta mánuði.

Karius gæti hirt sætið af Mignolet eftir að Klopp fékk hann til að sleppa ÓL
Nýr markvörður Liverpool eltir ekki Ólympíudrauminn heldur einbeitir sér að ensku úrvalsdeildinni.

Eygló Ósk vonast til að geta bætt Íslandsmetin í Ríó | Myndband
Sundkonan Eygló Ósk Gústavsdóttir, Íþróttamaður ársins 2015, verður á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í Ríó sem hefjast eftir tæpan mánuð.

Guðmundur verður án eins síns sterkasta leikmanns í Ríó
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska handboltalandsliðsins, getur ekki nýtt krafta hornamannsins Anders Eggert á Ólympíuleikunum í Ríó í næsta mánuði.

Fór í aðgerð vegna krabbameins í mars en keppir á ÓL í ágúst
Hollenska sundkonan þurfti að fara í aðgerð vegna krabbameins í mars síðastliðnum og það bjuggust því fáir við að sjá hana keppa á Ólympíuleikunum í Ríó í næsta mánuði.

Frakkarnir sem ætla að vinna þriðja Ólympíugullið í röð
Claude Onesta, þjálfari franska handboltalandsliðsins, hefur valið þá 15 leikmenn sem fara til Ríó þar sem Frakkar reyna að vinna þriðja Ólympíugullið í röð.

„Óhreinn“ keppninautur Hrafnhildar má keppa á ÓL í Ríó
Alþjóðasundsambandið hefur fengið á sig talsverða gagnrýni í kjölfarið að forráðamenn sambandsins ákváðu að gefa Rússanum Juliu Efimovu grænt ljós á að keppa á Ólympíuleikunum í Ríó.

Sérhannaður fatnaður íslenska hópsins á ÓL í Ríó vegur 1,2 tonn
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands er á fullu að undirbúa för íslenska hópsins til Ríó þar sem Ólympíuleikarnir fara fram í næsta mánuði.

Guðni Valur setur stefnuna á úrslitin á ÓL í Ríó
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason bættist í gær í hóp Ólympíufara Íslands fyrir leikana í Ríó.

Auðveldasta ákvörðun ársins á Jamaíka: Völdu Bolt í ÓL-liðið sitt
Sexfaldi Ólympíumeistarinn Usain Bolt verður í Ólympíuliði Jamaíka í Ríó en Ólympíuleikarnir fara fram í brasilísku borginni í næsta mánuði.

Guðni Valur verður með á ÓL í Ríó | Átta komin í íslenska ÓL-hópinn
Kringlukastarinn Guðni Valur Guðnason verður þriðji íslenski frjálsíþróttamaðurinn sem keppir fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í Ríó sem hefjast í næsta mánuði.

Lykilleikmaður Golden State handtekinn | Ólympíusætið í hættu?
Draymond Green var handtekinn á veitingarstað í Michigan um helgina en hann var á dögunum valinn í bandaríska landsliðið í körfubolta fyrir Ólympíuleikana í Ríó.

41 árs hlaupari mun setja nýtt bandarískt met á ÓL í Ríó
Bernard Lagat sló í gegn um helgina á úrtökumóti Bandaríkjanna fyrir frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Ríó sem hefjast í næsta mánuði.

Tony Parker og félagar komust til Ríó
Serbía, Króatía og Frakkland urðu um helgina þrjú síðustu liðin til þess að tryggja sér sæti í keppni í körfubolta karla á Ólympíuleikunum í Ríó, sem fara fram í ágúst.

Ofboðslega sátt við þetta
Aníta Hinriksdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir enduðu báðar í 8. sæti í sínum greinum á EM í frjálsum íþróttum á laugardaginn. Ásdís kveðst ánægð með árangurinn sem gefur góð fyrirheit fyrir Ólympíuleikana í Ríó.

Fyrsti svona EM-dagur í 58 ár
Tvær íslenskar konur keppa til úrslita á EM í frjálsum í dag. Ísland hefur ekki átt tvo keppendur í sér úrslitum á sama degi á EM síðan í Stokkhólmi 1958. "Stór dagur fyrir frjálsar á Íslandi,“ segir Freyr, formaður FRÍ.

Velkomin til helvítis
Það er innan við mánuður í Ólympíuleikana í Ríó og áhyggjur af öryggismálum eru miklar.

Fimm íslenskir keppendur á Ólympíumóti fatlaðra
Íþróttasamband fatlaðra staðfesti í dag að fimm Íslendingar myndi keppa á Ólympíumóti fatlaðra í Ríó.

Rússar völdu 68 í Ólympíuhópinn
Þó svo rússneskir frjálsíþróttamenn séu í keppnisbanni og óvissa sé um að þeir fái að taka þátt á ÓL í Ríó þá heldur rússneska frjálsíþróttasambandið ótrautt áfram.

Fyrst Messi og nú Martino | Allt í rugli hjá argentínska landsliðinu
Gerardo „Tata“ Martino er hættur sem þjálfari argentínska landsliðsins í fótbolta eftir tveggja ára starf.

Þessir berjast um að komast í Ólympíuhóp Guðmundar
Guðmundur Guðmundsson, þjálfari danska handboltalandsliðsins, hefur valið 28 leikmenn í æfingahóp fyrir Ólympíuleikana í Ríó í ágúst.

Þeir sem syngja ekki þjóðsönginn eiga ekki að fá að keppa
Formaður skipulagsnefndar Ólympíuleikanna í Tókýó árið 2020 hefur hótað íþróttamönnum í Japan með eftirtektarverðum hætti.


Þessir menn þurfa að sanna sig fyrir Degi til að komast á ÓL
Dagur Sigurðsson, þjálfari Evrópumeistara Þýskalands, hefur valið 21 manna æfingahóp fyrir komandi Ólympíuleika í Ríó sem fara fram í ágúst.

Golden State á þrjá fulltrúa í Ólympíuliði Bandaríkjanna
Golden State Warriors, sem tapaði fyrir Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar, á þrjá fulltrúa í 12 manna hópi bandaríska körfuboltalandsliðsins sem tekur þátt á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst.

LeBron fer ekki til Ríó
Stjörnunum heldur áfram að fækka í bandaríska körfuboltalandsliðinu fyrir ÓL í Ríó.

Þrjár þjóðir líklega í banni í kraftlyftingakeppni ÓL
Líklegt er að Rússland, Kasakstan og Hvíta-Rússlandi fái ekki að senda keppendur til leiks í kraftlyftingakeppni Ólympíuleikanna í sumar.