EM 2020 í fótbolta

Jóhann gæti spilað síðasta leik fyrir Rúmeníuleikinn
Jóhann Berg Guðmundsson gæti mögulega spilað með Burnley um helgina og þar með er útlit fyrir að hann geti verið með Íslandi í EM-umspilinu gegn Rúmeníu næsta fimmtudag.

Aroni bannað að mæta Rúmenum?
Al Arabi hefur rétt á því að banna Aroni Einari Gunnarssyni að spila gegn Rúmeníu í EM-umspilsleiknum mikilvæga næsta fimmtudag.

Segir rétt að refsa Foden og Greenwood áfram fyrir hegðun þeirra á Íslandi
Phil Foden og Mason Greenwood er enn í skammakróknum hjá enska landsliðsþjálfaranum og réttileg svo að mati sérfræðings á BBC.

Áhorfendur leyfðir á landsleikjunum
Íslenska karlalandsliðið fær stuðning úr stúkunni í landsleikjunum þremur í þessum mánuði.

Mætti fresta Rúmeníuleiknum fram í júní
Leik Íslands og Rúmeníu hefur tvívegis verið frestað og ef að upp koma frekari kórónuveiruvandamál gæti leiknum verið frestað fram á næsta sumar.

KSÍ endurgreiðir miðahöfum
Útséð virðist með það að áhorfendur verði leyfðir á leik Íslands við Rúmeníu á Laugardalsvelli, í umspilinu um sæti á EM karla í fótbolta.

Kári verður klár í Rúmeníuleikinn
Erik Hamrén getur nýtt krafta Kára Árnasonar í leiknum mikilvæga gegn Rúmeníu 8. október.

Vilja hátt verð fyrir Mikael með EM í huga
Dönsku meistararnir í Midtjylland vilja fá andvirði 240 milljóna íslenskra króna fyrir landsliðsmanninn Mikael Anderson sem þeir telja geta hækkað duglega í verði komist hann með Íslandi á EM í fótbolta næsta sumar.

Útlitið gott varðandi Kára og Kolbein
Bjartsýnir ríkir um að Kolbeinn Sigþórsson og Kári Árnason verði klárir í slaginn með íslenska landsliðinu í fótbolta þegar það mætir Rúmeníu í EM-umspilinu eftir tíu daga.

Fimm skiptingar leyfðar gegn Rúmenum og Svíum
UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, hefur ákveðið að leyfa fimm skiptingar það sem eftir lifir leiktíðar í keppnum á vegum sambandsins.

Meiðsli Jóhanns ekki eins slæm og óttast var
Jóhann Berg Guðmundsson var borinn af velli eftir að hafa meiðst í hné í gær, þremur vikum fyrir leikinn mikilvæga við Rúmeníu í umspilinu um sæti á EM í fótbolta.

Ekki verið neðar á heimslistanum í sjö ár
Íslenska karlalandsliðið er í 41. sæti styrkleikalista FIFA sem var gefinn út í morgun.

Afar ólíklegt að Ísland fari í HM-umspil út frá Þjóðadeild | Lakari lið í betri stöðu
Ísland þyrfti að slá Belgíu, Englandi og Danmörku við og vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni í fótbolta til að keppnin gagnaðist liðinu við að komast í umspil um sæti á HM í Katar 2022.

Ánægður þegar ég lít á það sem ég hefði misst af með Íslandi
Lars Lagerbäck er orðinn 72 ára gamall en er hæstnánægður með að hafa dregið til baka ákvörðun sína um að hætta í þjálfun. Hann nýtur þess í botn að þjálfa gullkynslóð Noregs rétt eins og þá íslensku.

Íslensku liðin fá að fara í vinnusóttkví og landslið geta lent degi fyrir leik
Íslensk fótboltalið sem fara utan til að keppa Evrópuleiki geta æft saman þá daga sem þau eru í sóttkví eftir heimkomu til Íslands. Landslið og erlend félagslið sem hingað koma mega spila leiki án þess að hafa farið í fimm daga sóttkví.

Vongóður um að fótboltalið fari í vinnusóttkví og geti spilað
Unnið er að því hörðum höndum að fá botn í það hvort að landsleikir og Evrópuleikir í fótbolta geti farið fram hér á landi þrátt fyrir reglur um sóttkví. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn er bjartsýnn á að það gangi upp og segir málið skýrast á næstu dögum.

Grafa holur í Laugardalsvöllinn innan við mánuði fyrir Englandsleikinn
Laugardalsvöllurinn hefur gengið í gegnum ýmislegt á árinu 2020 og það er ekki búið enn. Nú standa yfir framkvæmdir á grasvellinum þótt stutt sé í fyrsta landsleik ársins.

Mitt stærsta afrek ef Ísland kæmist á EM - „Allir sögðu mér að þetta væri slæm hugmynd“
„Það sögðu allir að ég væri klikkaður,“ segir Erik Hamrén um það þegar hann ákvað að taka við íslenska karlalandsliðinu í fótbolta fyrir tæpum tveimur árum. Hann er í viðtali við heimasíðu FIFA í dag.

Fjögur ár frá því EM-ævintýrinu lauk gegn Frökkum
Ævintýri íslenska karlalandsliðsins í fótbolta á EM í Frakklandi lauk á þessum degi fyrir fjórum árum.

Fjögur ár frá kraftaverkinu í Nice | Myndbönd
Í dag eru fjögur ár frá því að Ísland gerði sér lítið fyrir og hafði betur gegn Englandi í 16-liða úrslitunum á Evrópumótinu í knattspyrnu 2016.

Fjögur ár síðan að Arnór Ingvi skoraði sigurmarkið á EM og Gummi Ben missti sig algjörlega
Gummi Ben varð heimsfrægur og Ísland vann sér inn leik á móti Englandi á EM á þessum degi fyrir fjórum árum.

Umspilið byrjar í október en klárast í nóvember
Ísland mun mæta Rúmeníu í umspilinu langþráða um sæti á Evrópumótinu, sem fer fram næsta sumar, í október en þetta var staðfest á fundi UEFA í dag.

Vonast til að Rúmenarnir komi í október
Vonir standa til að íslenska karlalandsliðið í fótbolta leiki gegn Rúmeníu í október í umspilinu um sæti á EM á næsta ári. Fjögur íslensk félagslið bíða í mikilli óvissu um forkeppni Meistaradeildar og Evrópudeildar. Þessi mál ættu að skýrast í vikunni.

KSÍ staðfestir að nýja merkið sýni landvættina fjóra ásamt fánakrossi
Klara Bjartmarz framkvæmdastjóri KSÍ, segir að Puma hafi komið KSÍ í opna skjöldu með því að birta nýja KSÍ merkið á vef sínum í dag.

Sara óttast að íþróttir kvenna fari verr út úr faraldrinum - Hefði viljað tvö EM á sama sumri
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, segist óttast að efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins muni hafa meiri og verri áhrif á íþróttir kvenna en karla.

Enn stefnt að því að Ísland mæti Englandi í haust
Enn stendur til að Ísland mæti Englandi, Belgíu og Danmörku í haust í Þjóðadeild UEFA í fótbolta karla þrátt fyrir að kórónuveirufaraldurinn hafi sett mótahald um alla Evrópu úr skorðum.

Superligan af stað og Kaupmannahöfn heldur EM
Danskir knattspyrnuunnendur fengu tvær góðar fréttir í kvöld. Danska úrvalsdeildin getur farið aftur að rúlla og þeir fjórir leikir sem áttu að fara á EM 2020 verða áfram þó að mótið hafi verið fært aftur um eitt ár.

Hörð barátta framundan um stöðu aðalmarkvarðar Englands fyrir EM 2021
Heldur Pickford sæti sínu sem aðalmarkvörður enska landsliðsins á Evrópumótinu sem fram fer sumarið 2021.

Danir enn í vafa varðandi EM-leikina
Danska knattspyrnusambandið hefur fengið átta daga frest til að svara UEFA varðandi það hvort að Kaupmannahöfn verði áfram einn af leikstöðum Evrópumóts karla í fótbolta eftir að mótinu var frestað um eitt ár.

Vill spjalda menn fyrir að hrækja á völlinn
Gulum spjöldum gæti mögulega fjölgað í fótboltanum þegar hann fer aftur af stað eftir kórónuveirufaraldurinn nú þegar FIFA vill taka harðar á því sumir fótboltamenn gera margoft í leik.