
Þýskaland

Aldrei fleiri greinst smitaðir á einum degi í Þýskalandi
Um 34 þúsund manns greindust smitaðir af kórónuveirunni í Þýskalandi í gær. Aldrei hafa svo margir greinst með kórónuveiruna á einum degi frá upphafi faraldursins.

Heimsleiðtogar uggandi yfir kjarnorkuáætlun Írana
Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands og Frakklands segjast hafa miklar og stígvaxandi áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írans. Leiðtogarnir ræddu málið á G20 fundinum í Róm í dag.

Talibanar vilja aðgang að frystum sjóðum: „Látið okkur fá okkar eigin peninga“
Ríkisstjórn Talibana í Afganistan vill fá aðgang að sjóðum ríkisins erlendis. Fyrrverandi ríkisstjórn landsins geymdi milljarða dala í seðlabönkum í Bandaríkjunum og Evrópu en þeir sjóðir hafa verið frystir eftir valdatöku Talibana.

Kjarnorkusamningaviðræður hefjist aftur fyrir nóvemberlok
Samningaviðræður um endurlífgun kjarnorkusamnings frá árinu 2015 milli Íran og sex annarra stórvelda munu hefjast aftur fyrir nóvemberlok. Þetta sagði helsti samningarmaður Íran í gær.

Fyrsta konan til að gegna embætti þingforseta Þýskalands í 23 ár
Þýska þingið samþykkti í dag að Jafnaðarmaðurinn Bärbel Bas taki við embætti þingforseta. Hin 53 ára Bas tekur við embættinu af kristilega demókratanum og fjármálaráðherranum fyrrverandi, hinum 79 ára Wolfgang Schäuble.

Lögregla rak vopnaða öfgamenn frá landamærum Þýskalands og Póllands
Lögregluyfirvöld í Þýskalandi segjast hafa stöðvað fleiri en 50 öfgahægrimenn sem hugðust taka lögin í eigin hendur við landamærin að Póllandi til að hindra för flóttamanna.

Græningjar samþykkja að ráðast í formlegar stjórnarmyndunarviðræður
Mikill meirihluti þýskra Græningja samþykkti í gær að hefja formlegar stjórnarmyndunarviðræður við Jafnaðarmenn (SPD) og Frjálslynda demókrata (FDP).

Taka næsta skref til stjórnarmyndunar í Þýskalandi
Sósíaldemókratar (SPD), Græningjar og Frjálslyndir Demókratar (FDP) tilkynntu fyrir stundu að samkomulag hafi tekist um málefnasamning fyrir formlegar viðræður um ríkisstjórnarsamstarf.

Skattamál og loftslagsmál helsti ásteytingarsteinninn
Líkur eru á að þýski Jafnaðarmannaflokkurinn (SPD), Græningjar og Frjálslyndir demókratar (FDP) muni ljúka könnunarviðræðum um myndun nýrrar ríkisstjórnar fyrir lok þessarar viku. Helst er deilt um skattamál og loftslagsmál í viðræðunum.

Þýska lögreglan rannsakar tilfelli Havana-heilkennisins í bandaríska sendiráðinu
Lögreglan í Berlín rannsakar nú dularfull tilfelli Havana-heilkennisins svokallaða meðal starfsmanna bandaríska sendiráðsins í borginni. Rannsóknin hófst í ágúst og miðar að því að kanna hvort örbylgjuárás hafi verið gerð á sendiráðsstarfsmenn.

Danir og Þjóðverjar sækja ellefu konur með tengsl við Ríki íslams og 37 börn
Yfirvöld í Þýskalandi og Danmörku hafa með aðstoð Bandaríkjahers sótt ellefu konur, sem áður höfðu gengið til liðs við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams, og 37 börn, frá norðurhluta Sýrlands. Konurnar og börnin komu til Þýskalands og Danmerkur í gærkvöldi og í nótt.

Fá Nóbelsverðlaun fyrir þróun ósamhverfra lífrænna efnahvata
Þjóðverjinn Benjamin List og Bandaríkjamaðurinn David W.C. MacMillan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir þróun á ósamhverfum lífrænum efnahvötum (e. assymetric organocatalysis).

Græningjar vilja mynda stjórn með SPD og FDP
Græningjar í Þýskalandi vilja taka upp könnunarviðræður við Jafnaðarmannaflokkinn (SDP) og Frjálsynda demókrata (FDP) um myndun nýrrar stjórnar.

Göbbels reyndist enn heiðursborgari
Starfsfólk ráðhússins í Potsdam í Þýskalandi ráku upp stór augu á dögunum þegar verið var að fara yfir lista yfir heiðursborgara. Þar ráku þau augu í nafn Joseph Göbbels, eins af nánustu samstarfsmönnum Adolfs Hitler.

Fá Nóbelinn í eðlisfræði fyrir loftslagsrannsóknir
Bandaríkjamaðurinn Syukuro Manabe, Þjóðverjinn Klaus Hasselmann og Ítalinn Giorgio Parisi hafa fengið Nóbelsverðlaun í eðlisfræði í ár fyrir smíði líkana og loftslagsrannsóknir sínar.

Siggi nýnasisti látinn
Greint er frá andláti þýsks nýnasista í þýskum miðlum í dag, að nafni Siegfried Borchardt. Hann var landsþekktur sem „SS-Siggi“ og hefur löngum verið eitt helsta andlit þýskra nýnasista.

Tíræð kona á flótta vegna ákæru um aðild að hroðaverkum nasista
Irmgard Furchner, 96 ára gömul þýsk kona, er nú á flótta en til stóð að hefja réttarhöld yfir henni í dag, þar sem hún hefur verið sökuð um aðild að fjöldamorðum í útrýmingarbúðum nasista í seinni heimstyrjöldinni.

Rússar heita hefndum gegn YouTube og þýskum fjölmiðlum
Utanríkisráðuneyti Rússlands ætlar að leita leiða til að koma höggi á bandaríska fyrirtækið YouTube og þýska fjölmiðla. Það er eftir að YouTube lokaði þýskum YouTube-rásum rússneska ríkismiðilsins RT.

Hver er þessi Olaf Scholz?
Þjóðverjar munu brátt sjá nýjan mann í embætti kanslara í stað Angelu Merkel sem stýrt hefur landinu frá árinu 2005. Eftir kosningar á sunnudag má telja líklegast að það verði Olaf Scholz fjármálaráðherra sem var kanslaraefni Jafnaðarmannaflokksins (SPD) í nýafstöðnum kosningum.

Líklegur kanslari farinn að herma eftir heimsfrægri líkamsstöðu Merkel
Á meðan því er spáð hér á landi að sama ríkisstjórn haldi velli, virðast Þjóðverjar vera á leið inn í nýja tíma með jafnaðarmann í kanslarastólnum. Stjórnmálafræðiprófessor segir líkindi með því hvernig stjórnmálin hafa þróast á Íslandi og í Þýskalandi - en telur að ekki sé að vænta vinstrisveiflu af Olaf Scholz, sem sé þegar farinn að leika Angelu Merkel.

Sósíaldemókratar merja sigur í kosningunum en margt veltur á stjórnarmyndunarviðræðum
Sósíaldemókratar hafa unnið nauman sigur í sambandsþingkosningunum í Þýskalandi, ef marka má fyrstu niðurstöður. Samkvæmt þeim hefur Sósíaldemókrataflokkurinn tryggt sér 25,7 prósent atkvæða en kristilegu íhaldsflokkarnir 24,1 prósent.

Sósíaldemókratar missa dampinn og óljóst hver taki við keflinu af Merkel
Óvíst er hver muni taka við keflinu af Angelu Merkel Þýskalandskanslara að loknum þingkosningum í Þýskalandi, sem fara fram á sunnudag. Nýjustu kosningaspár sýna að aðeins hársbreidd er á milli fylgis stærstu flokkanna.

Vinstri sveifla skýtur þýskum millum skelk í bringu
Þýskir auðkýfingar eru nú sagðir flytja eigur sínar til Sviss af ótta við að vinstri stjórn taki við eftir sambandsþingskosningar á sunnudag. Vinstriflokkarnir hafa boðað hækkun auðlegar- og erfðaskatts.

Dregur saman á milli stóru flokkanna rétt fyrir kosningarnar í Þýskalandi
Aðeins fjórum prósentustigum munar nú á fylgi jafnaðarmanna og Kristilega demókrataflokks Angelu Merkel, fráfarandi kanslara, þremur dögum fyrir sambandsþingkosningar í Þýskalandi. Dregið hefur saman með flokkunum á lokametrum kosningabaráttunnar.

Skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin um að bera grímu
Tvítugur starfsmaður bensínstöðvar í þýska bænum Idar-Oberstein var skotinn til bana eftir að hafa krafið viðskiptavin bensínstöðvarinnar um að bera grímu þar inni síðasta laugardagskvöld. Morðinginn hefur verið handtekinn og segist við lögreglu hafa verið ringlaður af álagi vegna takmarkana sökum heimsfaraldursins.

Fremur leiðinleg kosningabarátta og litlausir frambjóðendur
Innan við tvær vikur eru nú til kosninga til sambandsþings Þýskalands sem munu leiða í ljós hver verður arftaki Angelu Merkel sem mun senn láta af embætti kanslara eftir um sextán ár í starfi. Stjórnmálafræðiprófessor segir að mörgum þyki kosningabaráttan hafa verið fremur leiðinleg og marga helstu frambjóðendur vera litlausa.

Húsleit í þýskum ráðuneytum vegna rannsóknar á spillingardeild
Saksóknarar gerður húsleit í fjármála- og dómsmálaráðuneytum Þýskalands í dag. Leitin er sögð hluti af rannsókn á opinberri stofnun sem rannsakar peningaþvætti en hún kemur á versta tíma fyrir fjármálaráðherrann sem stendur í harðri kosningabaráttu.

Flugvél Þýskalands þurfti óvænt að lenda í Skotlandi | Ný vél á leiðinni
Þýska landsliðið þurfti óvænt að lenda í Edinborg í Skotlandi á leið sinni frá Íslandi eftir leik liðanna í undankeppni HM í fótbolta. Ekki kemur fram af hverju þurfti að lenda en yfirfara þurfti flugvélina áður en hún fær að halda aftur af stað til Þýskalands.

Corrina Schumacher: Sakna Michaels á hverjum degi
Eiginkona Michaels Schumacher, Corrina, segist sakna hans á hverjum degi. Ökuþórinn fyrrverandi hefur ekki sést opinberlega síðan hann lenti í alvarlegu skíðaslysi fyrir átta árum.

Allianz til rannsóknar í Þýskalandi og Bandaríkjunum
Yfirvöld í Þýskalandi hafa Allianz, eitt stærsta fjármálafyrirtæki landsins til rannsóknar. Rannsóknin snýr að fjárfestingarsjóðum fyrirtækisins í Bandaríkjunum sem margar lögsóknir þar í landi snúa að þessa dagana.