Evrópusambandið

Ítalir sætta sig ekki við útskúfun vegna Covid-19
Ekki má koma fram við Ítalíu eins og nýlendu fyrir holdsveika. Þetta segir Luigi Di Maio, utanríkisráðherra Ítalíu, og heitir hann því að Ítalir muni taka vel á móti ferðamönnum í sumar.

Yfirstjórn Lufthansa hafnar skilyrðum Evrópusambandsins
Yfirstjórn þýska flugfélagsins Lufthansa hafnaði í dag skilyrðum sem Evrópusambandið setti við björgunarpakka þýskra stjórnvalda til að forða félaginu frá gjaldþroti. Enn á ný er því alls óvíst um framtíð Lufthansa hvar 138 þúsund manns starfa.

Leggur til 750 milljarða evra björgunarpakka fyrir aðildarríki ESB
Björgunarpakkinn, verði hann samþykktur, mun samanstanda af styrkjum og lánum fyrir öll aðildarríki sambandsins.

Samdrátturinn 20 prósent í Frakklandi
Franska hagstofan gerir ráð fyrir að samdrátturinn í frönsku efnahagslífi muni nema heilum 20 prósentum á öðrum ársfjórðungi. Er það rakið til lokana og annarra aðgerða yfirvalda vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Varar við að ríkari aðildarríki ESB verði látin borga brúsann
Friedrich Merz, fyrrverandi leiðtogi þingflokss Kristilegra demókrata í Þýskalandi, segir Evrópusambandið þurfa að gæta sín að verða ekki „millifærslusamband“ þar sem ríkari aðildarríki eru látin borga brúsann fyrir fátækari aðildarríkin.

Merkel gefur eftir og samþykkir styrkveitingar
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, og Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynntu í kvöld að þau hefðu komist að samkomulagi um drög að 500 milljarða evra neyðarsjóð, sem nota á til að aðstoða þau ríki sem hafa orðið hvað verst úti vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.

Slóvenar segja faraldurinn yfirstaðinn í landinu
Slóvenía varð í morgun fyrsta Evrópulandið til að lýsa því yfir að kórónuveirufaraldurinn sé yfirstaðinn í landinu.

Slaka á takmörkunum þrátt fyrir að ná ekki eigin skilyrðum
Verið er að slaka á takmörkunum á viðskiptalífinu og ferðarfrelsi víða um Evrópu. Mörg Evrópuríki hafa þó ekki náð eigin skilyrðum fyrir tilslökunum en yfirvöld þeirra halda samt ótrauð áfram.

ESB segir neytendur eiga skýlausan rétt á endurgreiðslu fyrir ferðir sem falla niður
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undirstrikar í dag að flugfélög og seljendur pakkaferða verði að endurgreiða farþegum sínum falli ferðir þeirra niður.

Evrópa þá og nú
Í dag er Evrópudagurinn haldinn hátíðlegur um alla Evrópu, þó líklegast með breyttu sniði í ár sökum aðstæðna.

Vara við mesta samdrætti í sögu ESB
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar muni valda mesta efnahagssamdrætti sem hafi átt sér stað frá stofnun sambandsins.

Efast um skjótan efnahagsbata að faraldri loknum
Takmarkanir til að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins verða að líkindum við lýði í lengri tíma og því er ósennilegt að hagkerfi Evrópu taki hratt og vel við sér á næstunni. Seðlabankastjóri Þýskalands á þó von á því að stöðugur efnahagsbati náist þegar faraldurinn er um garð genginn að fullu.

Hafna óháðri rannsókn á uppruna kórónuveirunnar
Kínversk stjórnvöld hafa þvertekið fyrir að ráðist verði í óháða rannsókn á uppruna kórónuveirunnar sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19.

Dæla billjón evrum í neyðarsjóð vegna faraldursins
Forkólfar Evrópusambandsins komust í kvöld að samkomulagi um stærðarinnar neyðarsjóð vegna heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar. Markmiðið er að dæla styðja ríki sem hafi komið illa út vegna faraldursins.

Boða nýja Marshalláætlun fyrir Evrópu
Evrópusambandið undirbýr nú ný fjárlög með kórónuveirufaraldurinn að leiðarljósi. Forseti framkvæmdastjórnarinnar segir þörf á nýrri Marshall-áætlun.

Framlengir bann við komum útlendinga til landsins
Útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, verður óheimilt að koma til landsins fram til 15. maí

ESB kemur sér saman um 500 milljarða aðgerðapakka
Aðildarríki Evrópusambandsins hafa komið sér saman um fimm hundruð milljarða evra aðgerðapakka vegna kórónuveirunnar.

Conte myndi engu breyta og segir ESB þurfa að taka sig á
Forsætisráðherra Ítalíu stendur við aðgerðir ítalskra stjórnvalda í kórónuveirufaraldrinum.

Forseti rannsóknarráðs ESB hættir og gagnrýnir sambandið harðlega vegna viðbragða við kórónuveirunni
Á leið sinni út um dyrnar gagnrýndi hann Evrópusambandið harðlega fyrir viðbrögð þess vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar.

Framtíð ESB að veði í deilum um efnahagsleg viðbrögð
Spænskir ráðamenn vara við því að framtíð Evrópusambandsins sjálfs sé að veði ef aðildarríki þess ná ekki samkomulagi um efnahagslegar aðgerðir vegna kórónuveirufaraldursins.

ESB hefur áhyggjur af póstkosningu í Póllandi
Varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segist hafa áhyggjur af lögmæti og áreiðanleika forsetakosninga í Póllandi í næsta mánuði eftir að pólska þingið samþykkti að fresta ekki kosningunum vegna kórónuveirufaraldursins heldur halda póstkosningu.

Deila um neyðarlán og skuldir ESB-ríkja
Fjármálaráðherrar Evrópusambandsins funduðu í allan gærdag og í nótt um björgunarpakka fyrir verst stöddu ríki sambandsins.

Gjörólík viðbrögð þjóða hafi aukið hættuna
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, segir að mismunandi viðbrögð þjóða við kórónuveirufaraldrinum hafi stefnt fólki í hættu. Allt of mörg þjóðríki hafi einblínt á eigin vandamál og virt vandamál og viðvaranir annarra þjóða að vettugi.

Ísland hluti af samningi um sameiginleg innkaup Evrópuríkja á heilbrigðisaðföngum
Íslensk stjórnvöld undirrituðu í gær samning sem gerir þeim kleift að geta tekið þátt í sameiginlegum innkaupum Evrópuríkja á læknisfræðilegum viðbúnaðarvörum.

Vara við skorti á ferskvöru vegna faraldursins í Evrópu
Skortur á ferskum ávöxtum og grænmeti í Evrópu er viðbúinn vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins á vöruflutninga og starfsfólk sem týnir uppskeruna. Til skoðunar er að draga úr skorti með því að búa til sérstakar akreinar fyrir vöruflutninga með ferskvöru yfir landamæri innan Evrópu.

Ísland tekur þátt í ferðabanni ESB
Ísland mun taka þátt í ferðabanni ásamt öðrum Schengen ríkjum. Þetta segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.

Youtube dregur úr gæðum eins og Netflix
Forsvarsmenn Youtube tilkynntu í morgun að dregið yrði úr gæðum myndbanda í Evrópu.

Ísland undanþegið útflutningsbanni ESB á lækningavörum
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti að leiðrétta reglugerð um útflutningsbann á lækningavörum þannig að það nái ekki til EFTA-ríkjanna innan evrópska efnahagssvæðisins, þar á meðal Íslands.

Evrópusambandið skellir landamærunum í lás
Ríkisborgarar ríkja utan Evrópusambandsins fá ekki að ferðast til Evrópusambandsríkja næstu þrjátíu dagana. Bannið er talið ná til Íslands.

Tilmæli ESB byggi ekki á vísindalegum grunni
Guðlaugur Þór Þórðarson og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, utanríkisráðherra og dómsmálaráðherra, segja íslensk stjórnvöld hafa komið á framfæri mótmælum við sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi í gær.