Heilbrigðismál

Fréttamynd

Veistu á hvaða lyfjum þú ert?

Lyf eru ein stærsta framfarasaga nútíma læknisfræði. Þau hafa bjargað ótal mannslífum, bætt lífsgæði og gert okkur kleift að lifa lengur og betur. En eins og með margt annað í lífinu er jafnvægi lykilatriði. Það er ekki alltaf sjálfgefið að lyf sem voru nauðsynleg á einum tímapunkti séu það enn í dag.

Skoðun
Fréttamynd

Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljós­mæðra

5. maí er alþjóðadagur ljósmæðra. Í ár er yfirskriftin: Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra. Þú eða einhver sem þú þekkir hefur þurft eða mun þurfa á ljósmóður að halda. Eins og staðan er í dag hafa því miður ekki allir aðgang að ljósmæðraþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Tíma­bært að ræða ein­hverfu kvenna

„Sem klínískur sálfræðingur hef ég í vaxandi mæli orðið vör við hve margar konur hafa búið árum saman með ógreinda einhverfu og hve mikill munur verður á líðan þegar þær fá loksins skýringuna. Konur með langvinnan kvíða, þunglyndi eða átraskanir hafa oft reynt hefðbundnar meðferðir án þess að ná fullum bata.“

Innlent
Fréttamynd

Ekki á­hyggju­efni að skipið sé á leið til Ís­lands

Sóttvarnalæknir segir það ekki áhyggjuefni að farþegaskip þar sem þrír eru látnir úr svokallaðri Hantaveiru muni koma hingað til lands samkvæmt núverandi ferðaáætlun þess. Heilbrigðisyfirvöld fylgist vel með stöðunni um borð og ljóst að þegar sé verið að bregðast við.

Innlent
Fréttamynd

Al­þjóða­dagur hryggbólgusjúkdóma: Ekki bara bakverkir

2. maí er alþjóðlegur dagur hryggbólgusjúkdóma. Þeir sem ekki þekkja til þessa sjúkdóma gæti haldið að um sé að ræða sjaldgæfan vanda sem snertir fáa. Raunin er önnur. Þúsundir Íslendinga lifa með þessum langvinnu bólgusjúkdómum sem leggjast á hrygg og liði. Sjúkdómurinn er ólíkt mörgum öðrum gigtarsjúkdómum mun algengari hjá körlum en konum. Einkennin koma oftast fram hjá ungum mönnum á aldrinum 20-40 ára en því miður er oft löng bið eftir greiningu.

Skoðun
Fréttamynd

Takk hjúkrunar­fræðingar!

Hjúkrunarfræðingar eru öflug fagstétt sem sinnir fjölbreyttum og mikilvægum störfum í heilbrigðisþjónustu hér á landi. Störf hjúkrunarfræðinga eru einn grundvallarþátta velferðarsamfélagsins sem við erum svo lánsöm að búa í og hafa mikið samfélagslegt gildi.

Skoðun
Fréttamynd

Sakar fram­kvæmda­stjóra Land­spítala um ó­sannindi

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir sakar framkvæmdastjóra á Landspítala um ósannindi og ítrekar að uppsögn hans verði úrlausnarefni dómstóla. Hlutastarf Ragnars, sem er einnig þekktur sem Læknirinn í eldhúsinu, var lagt niður með vísan til rekstrarhagræðingar.

Innlent
Fréttamynd

Matar­æði og hjartaheilsa

Hjarta- og æðasjúkdómar er samnefni yfir þá sjúkdóma sem verða í hjarta og æðarkerfi svo sem: hjartaáföll, kransæðasjúkdómar, hjartabilun, heilablóðfall, æðakölkun, blóðtappar, háþrýstingur og hjartsláttartruflanir.

Skoðun
Fréttamynd

Heil­brigðis­þjónusta eftir póstnúmeri

Ég valdi að búa á landsbyggðinni en ég valdi ekki að þurfa að borga meira fyrir heilbrigðisþjónustu. Samt er það raunin fyrir marga sem þurfa að sækja sérfræðilækna utan heimabyggðar.

Skoðun
Fréttamynd

Engin á­kvörðun tekin eftir upp­sögn dagdvalarsamnings

Eftir að Seltjarnarnesbær sagði upp dagdvalarsamningi við Vigdísarholt, sem sér um dagdvalar- og hjúkrunarrýmisþjónustu á Seltjörn, bíða forsvarsmenn eftir svörum frá bænum um hver taki við í lok árs. Mikil samlegð sé á milli dagdvalarinnar og hjúkrunarheimilisins svo staða þess síðarnefnda verður metin. Bæjarstjóri Seltjarnarnesbæjar ítrekar að ekkert rof verði á þjónustunni.

Innlent
Fréttamynd

Vekur spurningar um hugsan­lega með­ferð við heilabilun

Bólgur í heila sem almennt hafa verið taldar skaðlegar heilsunni gætu í raun verið hluti af endurnýjunarferli heilans. Ný rannsókn hóps vísindamanna undir forystu íslensks prófessors vekur spurningar um hvort meðferðir við MS-sjúkdómnum gætu hægt á framvindu heilabilunar.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til laga­breytingar vegna smæðar þjóðarinnar

Alma Möller heilbrigðisráðherra hyggst ráðast í heildarendurskoðun á lögum um tæknifrjógvun og notkun kynfrumna og fósturvísa manna til stofnfrumurannsókna. Meðal áforma er að koma í veg fyrir of náinn skyldleika vegna smæðar þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Allir Bretar fæddir eftir 2008 í líf­stíðar­bann frá tóbaki

Bretar sem verða ekki orðnir átján ára fyrir árslok geta aldrei verslað tóbak löglega í Bretlandi. Frumvarp þess efnis hefur verið samþykkt í báðum deildum breska þingsins. Ráðherrar vona að með lögunum verði til reyklaus kynslóð og að álag á heilbrigðiskerfið minnki til muna. 

Erlent
Fréttamynd

Segir ráð­herra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum

Ný sóttvarnalög veita heilbrigðisráðherra heimild til að setja reglur um opinberar sóttvarnaráðstafanir, meðal annars um ónæmisörvanir á borð við bólusetningar, notkun hlífðarbúnaðar, afkvíun svæða, lokun skóla, stöðvun atvinnurekstrar og samkomubann. Brot gegn slíkum reglum getur varðað sektum eða allt að eins árs fangelsi. Sigurður Örn Hilmarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Alþingi með þessu hafa fært ráðherra of víðtækar heimildir.

Innlent
Fréttamynd

Alma Möller fagnar nýjum sótt­varna­lögum

Alþingi samþykkti í dag frumvarp Ölmu Möller heilbrigðisráðherra til nýrra sóttvarnalaga. Frumvarpið var fyrst lagt fram á vorþingi árið 2022 og hefur síðan verði lagt fjórum sinnum fyrir þingið. 

Innlent
Fréttamynd

„Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“

„Við sem þjóð með gífurlega þekkingu á genaupplýsingum ættum að vera í forystu í þessum málum á alþjóðavísu, ekki í biðstöðu,“ segir Lilja Kjalarsdóttir en hún greindist með BRCA2-stökkbreytinguna árið 2018, sama ár og móðir hennar greindist aftur með brjóstakrabbamein á fjórða stigi. Móðir hennar lést fjórum árum síðar. Lilja hefur nú lokið fyrirbyggjandi aðgerð og líkur hennar á brjóstakrabbameini eru komnar niður fyrir tvö prósent.

Lífið
Fréttamynd

Áttu aldrei von á að verða for­eldrar innan árs

Þegar Sigríður María Sigurðardóttir og Arnþór Ingi Hlynsson kynntust sumarið 2024 var barneignarspurningin í raun afgreidd áður en sambandið hófst fyrir alvöru. Sigríður hafði árum saman glímt við ófrjósemi og Arnþór vissi frá barnsaldri að meðferð við hvítblæði gæti hafa skert frjósemi hans verulega. Hvorugt þeirra gerði því ráð fyrir barni. Þeim brá því báðum þegar Sigríður fékk jákvætt þungunarpróf aðeins nokkrum vikum síðar. Svo, tæpu ári eftir fyrstu kynni, urðu þau foreldrar Gróu Lífar.

Lífið
Fréttamynd

Ó­sann­gjörn reglu­gerð ógnar barnalækningum á Ís­landi

Íslenskt heilbrigðiskerfi er sérstakt að mörgu leyti. Fámenni þjóðar og staðsetning í Norður-Atlantshafi hefur í gegnum tíðina haft meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir. Þetta birtist meðal annars í því að læknar þurfa að sækja sér sérfræðimenntun að verulegu leyti erlendis.

Skoðun
Fréttamynd

Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana

Formenn, stjórnar- og trúnaðarmenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu gegna ákveðnu hlutverki í íslensku samfélagi. Þeir eru kjörnir fulltrúar starfsfólks, raddir þeirra sem standa vaktina allan sólarhringinn og halda uppi einu mikilvægasta kerfi samfélagsins.

Skoðun
Fréttamynd

Ertu ekki hress?

Hér neðar í greininni má sjá myndir af konu sem er nefnilega ekkert sérlega hress, því hún er að fást við ósýnilegan sjúkdóm.

Skoðun
Fréttamynd

Fékk upp­sagnar­bréf og hótar mál­sókn

Ragnar Freyr Ingvarsson læknir hefur fengið formlegt uppsagnarbréf afhent af Rafni Benediktssyni, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans. Hann segir skýringar Rafns á uppsögninni ekki halda neinu vatni og að hann muni láta reyna á lögmæti uppsagnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ragnari Frey býðst hærra starfs­hlut­fall á Land­spítalanum

Framkvæmdastjóri á Landspítalanum segir að rík aðhaldskrafa stjórnvalda á spítalann hafi valdið því að fækka þurfi stöðugildum. Ákveðið hafi verið að segja frekar upp fólki sem er með minni stöðugildi og því hafi staða Ragnars Freys Ingvarssonar læknis verið lögð niður. Ragnari verði hins vegar boðið hærra starfshlutfall. Ragnar Freyr er undrandi á uppsögninni.

Innlent