
Danmörk

Katrín situr á fundi með forseta Bandaríkjanna og leiðtogum Norðurlanda
Joe Biden forseti Bandaríkjanna fundar þessa stundina með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Utanríkisráðherra segir niðurstöðu leiðtogafundarins í Vilnius í gær hafa verið sterka og endurspegla algera einingu og samstöðu með Úkraínu og framtíðar aðild landsins að NATO.

Rannsókn á dótturfélagi Eimskips lokið
Danska samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hætta rannsókn sinni í máli Atlantic Trucking, sem er danskt dótturfélag í eigu Eimskipafélags Íslands. Húsleit var gerð hjá félaginu í júní á síðasta ári.

Dönsk áfengisnetverslun lagði Systembolaget og má selja Svíum áfengi
Dönsku áfengisnetversluninni Winefinder er heimilt að markaðssetja vörur sínar og selja fólki í Svíþjóð.

Í ströngustu öryggisvist vegna skotárásarinnar í Kaupmannahöfn
Hinn 23 ára gamli karlmaður sem ákærður var fyrir skotárásina í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn í júlí á síðasta ári hefur verið dæmdur sekur fyrir þrjú manndráp og ellefu tilraunir til manndráps. Hann verður vistaður í öryggisvistun sem er ætluð sérstaklega hættulegum föngum, í ótakmarkaðan tíma.

Móðirin hafi myrt barnið sitt og stokkið frá borði
Harmleikurinn sem átti sér stað í Eystrasalti í síðustu viku var ekki slys samkvæmt danskri slysarannsóknarnefnd. Upphaflega var greint frá því að móðir hefði stokkið á eftir sjö ára syni sínum eftir að hann féll frá borði. Nú er hins vegar grunur um að hún hafi myrt barnið sitt.

Flugferð Play til Kaupmannahafnar aflýst með stuttum fyrirvara
Flugferð Play til Kaupmannahafnar klukkan 14.50 í dag var seinkað tvisvar og síðan aflýst með skömmum fyrirvara. Ástæðan var bilun sem kom upp í flugvélinni.

Dæmdur í ótímabundið fangelsi fyrir morðið á Miu
Hinn 38 ára gamli Thomas Thomsen sem fundinn var sekur í gær um morðið á Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári og fyrir tilraun til nauðgunar og ósæmilega meðferð á líki hennar var í dag dæmdur í ótímabundið fangelsi. Um er að ræða dóm sem kveðinn er upp yfir föngum sem taldir eru sérstaklega hættulegir.

Dæmdur sekur fyrir morðið á Miu
Thomas Thomsen, 38 ára gamall karlmaður, hefur verið dæmdur sekur vegna morðsins á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku á síðasta ári. Þá var hann fundinn sekur um tilraun til að nauðga henni og ósæmilega meðferð á líki hennar sem hann sagaði í sundur í 231 búta.

Margrét Þórhildur hætt að reykja
Margrét Þórhildur Danadrottning er hætt að reykja. Það mega heita nokkuð stór tíðindi en drottningin hefur löngum verið mikil reykingamanneskja, eða frá því hún var 17 ára gömul.

Segist ekki vera á leiðinni til NATO og vill Stoltenberg áfram
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist ekki vera við það að taka við embætti framkvæmdastjóra NATO. Hún segir það vera „góða lausn“ að Jens Stoltenberg verði beðinn um framlengja stjórnartíð sína um eitt ár.

Vopnaður maður skotinn á Kóngsins nýtorgi
Lögregluþjónar skutu og særðu mann á Kóngsins nýtorgi í Kaupmannahöfn í morgun. Maðurinn var vopnaður hnífi og er sagður hafa verið ógnandi.

Draumurinn úti hjá Domino's í Danmörku
Öllum 27 veitingastöðum alþjóðlegu pitsukeðjunnar Domino's í Danmörku hefur verið lokað.

„Þetta er ekki raunverulegt, þetta er ekki raunverulegt“
Þrettán ára drengur sem var staddur í Field's verslunarmiðstöðinni í Kaupmannahöfn þegar árásarmaður lét til skarar skríða síðasta sumar og skaut þrjá til bana, segir hann hafa verið reiðilegan á svip og litið út eins og hann væri andlega veikur.

Íslendingur ákærður fyrir líkamsárás og rán í Danmörku
33 ára Íslendingur var handtekinn vegna líkamsárásar og ráns í dönsku borginni Hróarskeldu þann 8. júní síðastliðinn.

Alþjóðlegur ráðgjafarisi kaupir verkfræðistofuna Mannvit
Alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið COWI hefur náð samkomulagi við Mannvit um kaup á fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Mannvit.

Fimmtán ára danskar stúlkur ráði sjálfar þungunarrofi
Danska ríkisstjórnin hyggst lækka lágmarksaldur stúlkna sem geta gengist undir þungunarrof án samþykkis foreldra. Núgildandi lög kveða á um að stúlkur yngri en átján ára þurfi samþykki foreldra, en breytingin fæli í sér að sá aldur yrði lækkaður í fimmtán.

Telja að maðurinn hafi kyrkt Emilie Meng
Saksóknarnar í Danmörku telja að 32 ára karlmaður, sem er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa rænt og nauðgað þrettán ára stúlku á Sjálandi í mars, hafi kyrkt hina sautján ára Emilie Meng árið 2016 og komið líki hennar fyrir í stöðuvatni.

Danir gáfu Diljá tólf stig
Danir gáfu framlagi Íslands fullt hús stiga, eða tólf stig, í atkvæðagreiðslunni á seinna undanúrslitakvöldinu í Eurovision síðastliðinn fimmtudag.

Munu fara fram á himinháar bætur frá Grænlendingum
Ástralska námuvinnslufyrirtækið Energy Transition Minerals, sem áður hét Greenland Minerals, ætla sér að stefna dönskum og grænlenskum stjórnvöldum og fara fram á himinháar skaðabætur, fái fyrirtækið ekki heimild til að halda fyrirhugaðri námuvinnslu áfram í Kuannersuit.

Snýr aftur úr veikindaleyfi í ágúst
Jakob Ellemann-Jensen, varnarmálaráðherra Danmerkur og formaður Venstre, mun snúa aftur úr veikindaleyfi í byrjun ágústmánaðar. Ráðherrann fór í veikindaleyfi fyrir þremur mánuðum síðan og vísaði þar til í álags.

„En okkur líkar við flugvélarnar ykkar“
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, stakk óvænt upp kollinum í Helsinki í Finnlandi í dag þar sem hann fundaði með leiðtogum Norðurlanda. Honum var heitið auknum stuðningi frá Norðurlöndum en enn sem áður þrýsta Úkraínumenn á að fá herþotur frá Vesturlöndum.

Ætla að kynna aukið framlag til Úkraínu fyrir leiðtogafundinn
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að aukning á framlagi Íslands til Úkraínu verði kynnt fyrir leiðtogafund Evrópuráðsins, sem fram fer hér á landi seinna í mánuðinum. Hún segir að það framlag sem þegar hafi verið kynnt á þessu ári, sé til jafns á við allt framlag Íslands á síðasta ári en bætt verði frekar í.

Norðurlöndin heita stuðningi við Úkraínu eins lengi og þurfi
Leiðtogar Úkraínu og Norðurlandanna fimm ítrekuðu fordæmingar sínar á innrás Rússa í Úkraínu. Norðurlönd munu halda áfram stuðningi við Úkraínu í stríðinu sitt í hvoru lagi og á alþjóðavettvangi eins lengi og til þarf. Norðurlöndin heita því að styðja við enn frekari refsiaðgerðir gegn Rússum.

Bein útsending: Blaðamannafundur Selenskí og norrænu ráðherranna
Volodomír Selenskí, forseti Úkraínu, heldur sameiginlegan blaðamannafund með leiðtogum Norðurlandanna í Helsinki. Samkvæmt áætlun á fundurinn að hefjast klukkan 15:00 að íslenskum tíma.

Sögð hafa káfað á ungum karlmönnum og segir af sér
Formaður Fagbevægelsens Hovedorganisation, alþýðusambandsins í Danmörku, hefur sagt af sér vegna ásakana um að hafa farið yfir mörk í samskiptum sínum við unga karlmenn. Síðustu daga hafa nokkrir meðlimir sambandsins kallað eftir því að hún segði af sér.

Íslenskar og grænar lausnir kynntar Japönum
Ísland mun ásamt Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð kynna grænar lausnir á heimssýningunni í Osaka í Japan árið 2025. Norðurlöndin sýna undir einum hatti á sýningunni. Búist er við að 28 milljónir manna muni heimsækja sýninguna.

Mynduðu rússneskt rannsóknarskip við Nord Stream
Nokkrum dögum áður en Nord Stream gasleiðslurnar sprungu á botni Eystrasalts, mynduðu danskir sjóliðar rússneskt rannsóknarskip á svæðinu. Skipið, sem kallast SS-750 ber lítinn kafbát og er smíðað til rannsóknarstarfa neðansjávar.

Maðurinn sem rændi þrettán ára stúlku ákærður fyrir morð á annarri stúlku
Maðurinn sem grunaður er um að hafa rænt þrettán ára stúlku nálægt bænum Kirkerup í Danmörku í síðasta mánuði er grunaður um að hafa myrt aðra stúlku árið 2016. Hann hefur verið ákærður af lögreglu fyrir það morð.

Brim klárar tólf milljarða kaup á danskri fiskvinnslu
Útgerðarfyrirtækið Brim hefur lokið við kaup á helmingshlut í félaginu Polar Seafood Denmark. Kaupverðið eru samanlagt 625 milljónir danskra króna, eða um tólf milljarðar íslenskra króna.

„Aðeins skrímsli gæti gert barni þetta“
Danskur karlmaður var í dag ákærður fyrir að nema 13 ára gamla stúlku á brott. Hann er grunaður um að hafa nauðgað stelpunni ítrekað meðan hann frelsissvipti hana í rúman sólarhring. Saksóknari útilokar ekki að hann hafi haft vitorðsmenn. Móðir Filippu segir ómögulegt að setja sig í spor hennar og að fjölskyldan geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að styðja hana.