Lífeyrissjóðir
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 20 ›
Evrópskir fjárfestar og lífeyrissjóðir koma að kaupum á 23 milljarða hlut í Alvotech Tveimur dögum eftir að Alvotech fékk formlegt samþykki um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sín stærstu lyf hefur íslenska líftæknilyfjafyrirtækið gengið frá sölu á bréfum í félaginu fyrir tæplega 23 milljarða, meðal annars til evrópskra fjárfesta. Fjármunirnir verða nýttir að hluta til að styrkja framleiðslugetuna en hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp í viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 26.2.2024 11:07
Stórir hluthafar mótfallnir eða hugsi yfir framboði Þórðar Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, stærsti hluthafinn í Festi sem er móðurfélag Krónunnar, N1 og Elko, leggst gegn því að Þórður Már Jóhannesson verði kjörinn í stjórn félagsins á ný. Fleiri lífeyrissjóðir eru sama sinnis. Viðskipti innlent 23.2.2024 12:16
Lífeyrissjóðamálið fer beint til Hæstaréttar Hæstiréttur hefur fallist á málskotsbeiðni Lífeyrissjóðs verslunarmanna í máli sjóðsfélaga á hendur sjóðnum. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, ólögmæta og málinu var skotið beint til Hæstaréttar. Innlent 21.2.2024 18:55
Fjárfestarnir sem veðjuðu á Alvotech – og eygja von um að hagnast ævintýralega Þegar ljóst varð fyrir mánuði að samþykki fyrir markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir stærstu lyf Alvotech væri nánast í höfn áttu íslenskir lífeyrissjóðir samanlagt vel undir þriggja prósenta hlut í þessu langsamlega verðmætasta fyrirtæki í Kauphöllinni – og höfðu þá engir nýir sjóðir bæst í hluthafahópinn frá því að FDA setti félaginu stólinn fyrir dyrnar tíu mánuðum áður. Risastór veðmál sumra sjóðastýringarfélaga á Alvotech, með því að halda stöðu sinni við krefjandi markaðsaðstæður og jafnvel bæta við hana, hefur skilað sjóðum þeirra nærri hundrað prósenta ávöxtun síðustu mánuði á meðan önnur mátu áhættuna of mikla og losuðu um hlut sinn, eins og greining Innherja á umfangi innlendra fagfjárfesta sem eiga bréf í Alvotech skráð hér heima leiðir í ljós. Innherji 21.2.2024 17:34
Fara tilnefningarnefndir með atkvæðisréttinn? Núverandi fyrirkomulag á starfi tilnefningarnefnda er til þess fallið að draga úr gagnsæi. Hluthafar fá ekki að vita hverjir bjóða sig fram og þess vegna er möguleiki hluthafa á að nýta atkvæðisréttinn og velja milli margra hæfra umsækjenda ekki lengur til staðar. Ég tel einsýnt að þetta fyrirkomulag þurfi að endurskoða. Umræðan 20.2.2024 13:00
Fjármálaráðuneytið hefur áfram rangt við niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndunum Það er ótrúlega lélegur málflutningur sem Fjármálaráðuneytið hefur við í þeirri vörn sem þeir reyna að setja upp til þess að réttlæta niðurfellingu persónuafsláttar öryrkja og ellilífeyrisþega sem eru búsettir á Norðurlöndum. Vegna þess að þessi niðurfelling hefur ekki áhrif á neinn annan hóp öryrkja. Þeir öryrkja og ellilífeyrisþegar sem eru búsettir innan Evrópusambandsins en utan Norðurlandanna borga ekki neinn skatt á Íslandi samkvæmt tvísköttunarsamningum þar um. Á móti borgar þetta fólk fullan skatt í því ríki sem það á heima og nýtur þar að leiðandi persónuafsláttar í því ríki eftir þeim lögum sem þar gilda. Skoðun 18.2.2024 07:30
Hafa náð samkomulagi við lífeyrissjóðina um lán Grindvíkinga Fjármála- og efnahagsráðherra hefur ritað undir samkomulag við 12 lífeyrissjóði um stuðning ríkissjóðs vegna húsnæðislána lífeyrissjóða til einstaklinga í Grindavík. Innlent 8.2.2024 11:07
Er ekki rétt að leysa húsnæðisvandann? Húsnæðisverð hér er hærra en vera þyrfti og framboð og verð sveiflast mjög mikið með alvarlegum afleiðingum fyrir fjölmarga. Mikilvægt er að greina vandann rétt og grípa til viðeigandi ráðstafana. Skoðun 3.2.2024 14:30
LIVE fórnar ekki ávöxtun í sjóði sem starfar eftir heimsmarkmiðum SÞ Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) fjárfesti í fyrsta skipti í áhrifafjárfestingasjóði (e. impact fund) sem vinnur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérfræðingur hjá lífeyrissjóðnum segir að sjóðurinn starfi eftir sömu markmiðum um ávöxtun og hefðbundnir framtakssjóðir. Það sé því ekki verið að gera minni kröfu um ávöxtun heldur hafi verið um áhugavert tækifæri að ræða. Sjóðurinn horfi til þess að fjárfesta vaxtarfyrirtækjum í meira mæli en hefðbundnir framtakssjóðir. Innherji 19.1.2024 13:53
Telur óvíst með samruna við JBT og mælir ekki lengur með kaupum í Marel Bandaríski stórbankinn Citi ráðleggur fjárfestum ekki lengur að bæta við sig í Marel samkvæmt nýju verðmati, heldur að halda í bréfin, og telur sennilegt að íslenskir lífeyrissjóðir verði tregir til að samþykkja mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel. Stjórnendur JBT hafa nú aðeins þrjá daga til stefnu til að lýsa því yfir hvort félagið hyggist gera formlegt yfirtökutilboð í Marel. Innherji 16.1.2024 11:21
Hvað með Grindvíkinga? Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands verða ekki sakaðir um að leiðast það að þræta og á sama tíma eru fjölmiðlar í fullri vinnu við að fjalla um sandkassaleik þeirra. Nú bíður hluti ráðherranna eftir því (og vonar) að stjórnarandstaðan leggi fram vantrauststillögu á matvælaráðherra. Svona rær ríkisstjórnin lífróður sinn. Skoðun 10.1.2024 07:02
Framkvæmdastjóri KEA vísar gagnrýni Birtu á bug: „Virtum alla samninga“ Gagnrýni lífeyrissjóðsins Birtu varðandi sölu KEA á fimm prósenta hlut í Samkaupum kemur framkvæmdastjóra KEA á óvart og segir hann að engar kvaðir hafi verið til staðar á ráðstöfun eignarhlutarins í hluthafasamkomulagi. „Við fengum mjög gott tilboð í eignarhlut sem okkur var frjálst að selja og við virtum alla samninga,“ segir Halldór Jóhannsson, framkvæmdastjóri KEA. Innherji 9.1.2024 14:30
Annað álit segir að lífeyrissjóðir megi fella niður vexti Í áliti Magna lögmanna, sem unnið er fyrir Verkalýðsfélag Grindavíkur, segir að lífeyrissjóðnum Gildi sé heimilt að fella niður vexti og verðbætur sem búsettir eru í Grindavík, í takmarkaðan tíma, vegna þess ástands sem skapast hefur í bænum af völdum náttúruhamfara. Innlent 9.1.2024 13:31
Lífeyrissjóðir í ruglinu Lífeyrissjóðirnir hafa fullyrt að þeim sé óheimilt að fella niður vexti og verðbætur, tímabundið í þrjá mánuði, á húsnæðislánum Grindvíkinga. Og fylgja þannig fordæmi bankanna. Skoðun 9.1.2024 13:30
Ætlar að stórauka vægi erlendra skuldabréfa sem eru „álitlegri kostur“ en áður Einn stærsti lífeyrissjóður landsins hyggst bæta verulega við sig í erlendum skuldabréfum á árinu 2024 og telur að sá eignaflokkur sé orðin „mun meira aðlaðandi“ eftir langt tímabil af lágu vaxtastigi. Á móti áformar Lífeyrissjóður verslunarmanna að minnka vægi sitt í erlendum og innlendum hlutabréfum, samkvæmt nýrri fjárfestingastefnu sjóðsins, en hins vegar er útlit fyrir að Birta lífeyrissjóður muni auka lítillega við hlutfall sitt í hlutabréfum hérlendis frá núverandi stöðu. Innherji 9.1.2024 11:53
Fyrrverandi félagar í samfloti? Við félagar í LEB - Landssambandi eldri borgara, stjórn þess og kjaranefnd í samráði við 55 félög eldra fólks um allt land, höfum gengið frá sameiginlegri stefnu í kjaramálum og kynnt hana á fjölmörgum fundum víða um land. Umfangsmesta kynningin var á málþingi í Reykjavík núna í haust með yfirskriftinni Við bíðum... ekki lengur! sem var mjög fjölsótt og streymt til þúsunda manna um allt land. Skoðun 8.1.2024 11:30
Lífeyrissjóðir stækka við hlut sinn í Ísfélaginu eftir skráningu á markað Tveir lífeyrissjóðir, sem voru meðal umsvifamestu þátttakenda í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins undir lok síðasta árs, hafa stækkað talsvert við stöðu sína í fyrirtækinu með kaupum á eftirmarkaði síðustu vikur fyrir samtals vel á annan milljarð króna. Hlutabréfaverð Ísfélagsins hefur haldist nánast óbreytt frá fyrsta degi viðskipta þegar félagið var skráð á markað fyrir einum mánuði. Innherji 8.1.2024 10:47
Segir „forkastanlegt“ að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum „Að mínu mati er þetta bara forkastanlegt; að Sigurður Ingi virðist koma af fjöllum,“ segir Grindvíkingurinn Hilmar Gunnarsson um viðbrögð innviðaráðherra við viðtali við Gunnar í Bítínu á Bylgjunni í síðustu viku, þar sem hann sagði hluta Grindvíkinga á leið í þrot. Innlent 8.1.2024 10:26
Ráðherra eigi að vita betur en að kalla ákvörðunina óskiljanlega Innviðaráðherra segir ákvörðun lífeyrissjóða um að fella ekki niður vexti og verðbætur Grindvíkinga óskiljanlega. Framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða segir að ráðherra eigi að vita betur. Innlent 5.1.2024 12:08
„Ekki viðskiptahættir sem okkur líkar við,“ segir næst stærsti eigandi Samkaupa Lífeyrissjóðurinn Birta, sem fer með tæplega fimmtungshlut í Samkaupum, gagnrýnir forsvarsmenn KEA fyrir óvandaða viðskiptahætti við sölu á hlut sínum í matvörukeðjunni til SKEL fjárfestingafélags með því að virða ekki ákvæði í hluthafasamkomulagi sem félagið hafði undirgengist. Framkvæmdastjóri Birtu segir að sjóðurinn muni núna endurskoða afstöðu sína til samkomulagsins vegna breytts eignarhalds en það hefur meðal annars snúið að skipan í stjórn Samkaupa. Innherji 5.1.2024 11:36
Óskiljanlegt að lífeyrissjóðir taki ekki utan um Grindvíkinga Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, segir stjórnvöld hafa staðið í þeirri trú að lífeyrissjóðir myndu fylgja fordæmi bankanna og standa með lántakendum sínum í Grindavík. Hann segir illskiljanlegt hvers vegna einstaka lífeyrissjóðir taki ekki utan um einstaka lántaka. Innlent 5.1.2024 08:55
Áforma að auka gjaldeyriseignir sínar um liðlega 150 milljarða á nýju ári Lífeyrissjóðir landsins setja stefnuna á að auka hlutfallslegt vægi erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum um meira en tvær prósentur á þessu ári, samkvæmt þeim fjárfestingastefnum sem stjórnir sjóðanna hafa samþykkt, en á sama tíma búast þeir við að minnka hlutfall ríkisbréfa og innlendra hlutabréfa. Neikvæð raunávöxtun annað árið í röð þýðir að sumir sjóðir þurfa að óbreyttu að bregðast við halla á tryggingafræðilegri stöðu. Innherji 4.1.2024 08:00
Segja Ingu og Flokk fólksins bara víst eiga heiðurinn Upp er risin sérkennileg deila sem varðar tiltölulega flókna lagasetningu sem miðar að því að ellilífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis njóti eftir sem áður persónuafsláttar. Málið snýst um hverjum ber að þakka, hver eigi heiðurinn. Innlent 29.12.2023 14:03
Inga segir gráa hernum að halda stillingu sinni Lífeyrisþegar sem búsettir eru erlendis – ellismellir og öryrkjar – eru í áfalli. Persónuafslætti verður hent út við greiðslur frá Tryggingastofnun 1. janúar. Innlent 29.12.2023 10:03
Sjómenn og vélstjórar vilja Gildi út Aðalfundur Sjómanna- og vélastjórafélags Grindavíkur krefst þess að lífeyrissjóðurinn Gildi segi sig úr Landssambandi lífeyrissjóða. Þannig hljóðaði önnur tveggja ályktana sem samþykktar voru á fámennum aðalfundi sem fram fór í húsi fagfélaganna að Stórhöfða 29 í Reykjavík í gær. Innlent 28.12.2023 14:57
Yfirtaka á Marel gæti „heft“ uppfærslu á markaðnum hjá vísitölufyrirtækjum Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024. Innherji 27.12.2023 12:29
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. Innherji 19.12.2023 12:16
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 815 milljörðum að sögn Gylfa Lífeyrissjóðirnir töpuðu talsvert miklu meiru en 200 milljörðum ef marka má Gylfa Magnússon prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann segir ljóst að þetta kalli á lækkun lífeyrisgreiðslna og réttinda. Viðskipti innlent 19.12.2023 11:09
Ríflega 2.200 milljarða hagnaður lífeyrissjóða síðustu fimm árin Nýlega var þeirri fullyrðingu slengt fram að lífeyrissjóðir landsins hafi tapað um 800 milljörðum króna á árinu 2022. Fullyrðingin virðist hafa eignast sjálfstætt líf og hefur síðustu daga ítrekað verið endurtekin í opinberri umræðu og á samfélagsmiðlum. Skoðun 19.12.2023 11:00
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. Innherji 18.12.2023 11:19