Lífeyrissjóðir
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 20 ›
Grætt á neyð Grindvíkinga Að undanförnu höfum við staðið fyrir ákalli til lífeyrissjóða um að hjálpa Grindvíkingum í neyð. Eins og allir vita stendur heilt bæjarfélag nú frammi fyrir því að þurfa að fara inn á sturlaðan leigumarkað til að búa sér til heimili til skamms tíma. Bankarnir brugðust við ákalli okkar Grindvíkinga um að fella niður vexti og verðbætur næstu þrjá mánuði, til að byrja með. Lífeyrissjóðirnir hafa hins vegar ekki svarað þessu kalli. Skoðun 15.12.2023 13:00
Skrifstofu og stjórnunarkostnaður 5,8 milljarðar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, vekur athygli á miklum kostnaði við rekstur lífeyrissjóða landsins. Innlent 14.12.2023 15:54
Lífeyrissjóðum ekki heimilt að fella niður vexti Grindvíkinga Niðurstaða álitsgerðar lögmannsstofunnar LEX, sem unnin var fyrir Gildi lífeyrissjóð vegna sjóðfélagalána í Grindavík, er afdráttarlaus sú að lífeyrissjóðum sé ekki heimilt að afskrifa vexti og verðbætur með almennum hætti hjá lántökum. Innlent 13.12.2023 11:08
„Finnst þau vera að reyna að æsa okkur upp“ Formaður Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur segir galið að stjórn Gildis hafi kallað til lögreglu og öryggisvarða þegar mótmælt hefur verið við skrifstofur lífeyrissjóðsins. Slíkt ýti undir æsing og auki líkur á að mótmælin fari úr böndunum. Mótmæli fara fram klukkan 15 í dag. Innlent 11.12.2023 14:17
Íslenska lífeyriskerfið – staða og þróun Lífeyriskerfið okkar er mjög stórt á alþjóðlegan mælikvarða og hefur komið vel út í alþjóðlegum samanburði. Öflugt lífeyriskerfi, eins og byggt hefur verið upp hér á landi, krefst þess að sífellt eigi sér stað samtal um stöðu þess og hver framtíðarþróun kerfisins skuli vera. Lífeyriskerfið er eign okkar allra og réttindi í lífeyrissjóðum skipta miklu máli fyrir framfærslu fólks á efri árum. Skoðun 11.12.2023 13:00
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. Innherji 8.12.2023 12:07
Erlend markaðsfjármögnun bankanna í „góðum farvegi“ og staða þeirra sterk Þrátt fyrir að fjármálaskilyrði hafi farið versnandi eftir því sem hægt hefur á efnahagsumsvifum þá er skuldahlutfall bæði fyrirtækja og heimila hóflegt sem gefur þeim svigrúm til að mæta hækkandi greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún brýnir sömuleiðis fyrir mikilvægi þess að koma á samskonar umgjörð og kröfum um starfsemi lífeyrissjóða eins og á við um aðra þátttakendur á fjármálamarkaði. Innherji 6.12.2023 09:10
Segja ásakanirnar rógburð, ósannindi og árás á mannorð Stjórnarmenn í Eflingu, sem voru viðstaddir mótmæli í höfuðstöðvum Gildis þann 30. nóvember síðastliðinn, fordæma það sem sagt er rógburður, ósannindi og árásir á mannorð Ragnars Þórs Ingólfssonar af hálfu yfirmanna skrifstofu Gildis lífeyrissjóðs. Innlent 5.12.2023 14:35
Stjórn VR þurfi að bregðast við ólíðandi framgöngu Framkvæmdastjóri Gildis lífeyrissjóðs segir óásættanlegt að formaður VR standi fyrir hávaðasömum mótmælum á vinnustað félagsmanna og væntir þess að stjórn félagsins geri honum grein fyrir því. Hann stendur við það sem fram kemur í bréfinu sem hann sendi. Innlent 5.12.2023 13:08
„Hefur löngum heitið Moggalygi“ Formenn Verkalýðsfélags Grindavíkur og sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur segjast vísa ávirðingum um að Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hafi gengið fram í offorsi í mótmælum á skrifstofu Gildis til föðurhúsanna. Um sé að ræða svokallaða „Moggalygi.“ Innlent 5.12.2023 10:53
Útilokar ekki að leita réttar síns: „Hafna því alfarið að hafa beitt eða hvatt til ofbeldis“ Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki átta sig á hvers vegna forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafi kvartað formlega undan framgöngu hans í mótmælum gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Hann útilokar ekki að leita réttar síns vegna málsins. Innlent 5.12.2023 09:55
Saka Ragnar um að hafa brotið gróflega gegn hagsmunum félagsfólks Forsvarsmenn Gildis lífeyrissjóðs hafa sent formlega kvörtun á stjórn VR vegna framgöngu og hegðunar Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, gagnvart stjórnendum og starfsmönnum lífeyrissjóðsins. Innlent 5.12.2023 06:32
Lífeyrissjóðir með augun á enn meiri fjárfestingum erlendis á komandi ári Margir af stærri lífeyrissjóðum landsins setja stefnuna á að auka áfram nokkuð við hlutfall erlendra fjárfestinga í eignasöfnum sínum á komandi ári samhliða því að nýjar breytingar taka þá gildi sem hækkar hámarksvægi gjaldeyriseigna hjá sjóðunum. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni flestir hverjir ekki auka vægi sitt í innlendum hlutabréfum á næstunni þrátt fyrir að sá eignaflokkur hafi lækkað mikið síðustu ár. Innherji 4.12.2023 13:52
Sex lífeyrissjóðir í óvissu eftir nýjan dóm Miklar líkur eru á að Lífeyrissjóður verzlunarmanna áfrýi dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem ógilti í gær breytingar á lífeyrisréttindum hjá sjóðnum eftir aldri. Þetta segir lögmaður sjóðsins. Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi fyrir nokkra lífeyrissjóði en nú er verið er að reikna kostnaðinn út yrði þetta endanlega niðurstaða. Innlent 1.12.2023 13:37
Verðandi stjórnarformaður Controlant fjárfesti í útboði félagsins Þrír íslenskir lífeyrissjóðir komu inn sem nýir beinir hluthafar í Controlant þegar þeir lögðu til félaginu meginþorra þess fjármagns sem það sótti sér í nýafstöðnu hlutafjárútboði. Daninn Søren Skou, verðandi stjórnarformaður Controlant og fyrrverandi forstjóri skipaflutningarisans AP Moller-Maersk, tók sömuleiðis þátt í útboðinu en í bréfi til fjárfesta boðar tæknifyrirtækið tíðari upplýsingagjöf til hluthafa. Innherji 1.12.2023 12:22
Réttindi sjóðfélaga óljós í bili Stjórn Lífeyrissjóð verslunarmanna segir viðbúið að dómi héraðsdóms um ólögmæti eignafærslu milli kynslóða, með mismikilli lækkun mánaðarlegra greiðslna eftir aldri, verði áfrýjað. Innlent 30.11.2023 23:08
Tugmilljarða tilfærsla lífeyrisréttinda milli kynslóða dæmd ólögleg Fordæmalausar breytingar um síðustu áramót á samþykktum lífeyrissjóða um tilfærslu lífeyrisréttinda milli kynslóða sjóðsfélaga, sem var staðfest af fjármálaráðuneytinu þrátt fyrir neikvæða umsögn fjármálaeftirlits Seðlabankans, hafa núna verið dæmdar ólöglegar samkvæmt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur. Fjármálaeftirlitið hafði varað við því að ekki væri lagaheimild fyrir skerðingu réttinda hjá sjóðum sem búa við góðan fjárhag og tryggingastærðfræðingur gagnrýndi ráðstöfunina harðlega og sagði þær brjóta „gróflega á eignarrétti yngri sjóðsfélaga.“ Innherji 30.11.2023 16:05
Lífeyrissjóðir þráist við Formaður verkalýðsfélags Grindvíkinga gefur lítið fyrir yfirlýsingu lífeyrissjóðanna um að unnið sé að farsælli lausn fyrir grindvíska lántakendur. Þrjú verkalýðsfélög hafa boðað til mótmæla við húsnæði samtakanna og lífeyrissjóðs Gildis í dag. Innlent 30.11.2023 13:00
Unnið að lausn hjá lífeyrissjóðum fyrir Grindvíkinga Landssamtök lífeyrissjóða segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn með aðkomu lífeyrissjóðanna sem sagt er að þurfi að rúmast innan ramma laga. Innlent 30.11.2023 08:52
Breyttar tekjuáætlanir tóku verðmiðann á Controlant niður um tíu milljarða Minni umsvif en áður hafði verið reiknað með vegna ört minnkandi eftirspurnar eftir bóluefnum gegn Covid-19 þýddi að gengið í milljarða króna hlutafjáraukningu Controlant, sem hefur staðið yfir síðustu mánuði, lækkaði talsvert eftir því sem leið á fjármögnunarferlið. Ásamt þátttöku tveggja af stærstu lífeyrissjóðum landsins eru meðal annars stofnandi og aðrir stórir hluthafar í Kerecis núna í hópi fjárfesta sem leggja Controlant til aukið hlutafé. Innherji 28.11.2023 12:36
Segja lífeyrissjóðina ekki mæta Grindvíkingum nægilega vel Forsvarsmenn verkalýðsfélaga í Grindavík segja lífeyrissjóði ekki mæta Grindvíkingum eins vel og bankar og íbúðalánasjóður. Þeir mótmæli við stærstu skrifstofur þar til það verði gert. Innlent 28.11.2023 10:16
Meira jafnvægi virðist að komast á fasteignamarkaðinn „Merki eru um að meira jafnvægi sé að komast á fasteignamarkaðinn,“ segir í samantekt um nýja mánaðarskýrslu hagdeildar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Viðskipti innlent 27.11.2023 06:30
Hvetja stjórnendur lífeyrissjóða til að hafna fjárfestingu í sjókvíaeldi Landssamband veiðifélaga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem það hvetur stjórnendur lífeyrissjóða til að hafna allri fjárfestingu í félögum sem stunda sjókvíaeldi. Viðskipti innlent 24.11.2023 08:44
Vægi íslenskra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða ekki verið lægra í þrjú ár Hlutfall innlendra hlutabréfa í eignasöfnum lífeyrissjóða hefur fallið stöðugt undanfarin misseri samhliða meðal annars því að verðlækkanir á mörkuðum hér heima hafa verið mun meiri en þekkist erlendis og er vægi þess eignaflokks núna nokkuð undir meðaltali síðasta áratugs. Með auknum umsvifum lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaði á nýjan leik er hlutfall sjóðsfélagalána í eignasöfnum sjóðanna á sama tíma búið að hækka skarpt. Innherji 16.11.2023 12:45
Eru lífeyrissjóðir fyrir alla? 19. maí árið 1969 sömdu Alþýðusambandið og Vinnuveitendasamband Íslands um það í kjarasamningum að stofna lífeyrissjóð fyrir verkafólk.Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Einu sinni voru til 97 lífeyrissjóðir og þótti sjálfsagt en í dag eru viðhorfin önnur og þætti flestum það galið að hafa slíkan fjölda lífeyrissjóða. Skoðun 13.11.2023 07:31
Leysti líka til sín bréf Þórðar og fer með nærri tíu prósenta hlut í Eyri Invest Arion fer með nálægt tíu prósenta eignarhlut í Eyri Invest eftir að bankinn leysti sömuleiðis til sín hluta af bréfum í fjárfestingafélaginu sem höfðu verið í eigu Þórðar Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns til meira en tveggja áratuga, í tengslum við veðkall sem var gert á Árna Odd, son Þórðar og þáverandi forstjóra Marels. Feðgarnir fara nú saman með nokkuð minna en þriðjungshlut í Eyri en hluthafar félagsins, einkum bankar og lífeyrissjóðir, skoða nú að koma að stórri hlutafjáraukningu til að létta á þungri skuldastöðu. Innherji 11.11.2023 16:28
Eyrir áformar að styrkja stöðuna með tólf milljarða innspýtingu frá hluthöfum Stjórnendur og ráðgjafar Eyris Invest eiga nú í samtölum við hluthafa fjárfestingafélagsins um að leggja því til umtalsvert nýtt hlutafé í því skyni að treysta fjárhagsstöðuna eftir mikið verðfall á stórri hlutabréfaeign þess í Marel. Landsbankinn gerði í lok síðasta mánaðar veðkall í rúmlega eins prósenta hlut Árna Odds Þórðarson, þáverandi forstjóri Marels, í Eyri Invest í gegnum samnefnt eignarhaldsfélag hans eftir að það uppfyllti ekki lengur skilmála í lánasamningi við bankann. Innherji 10.11.2023 11:57
Lífeyrissjóðir „heppilegir sökudólgar“ en eiga ekki að stöðva lækkanir á markaði Lífeyrissjóðir eru oft gagnrýndir fyrir framgöngu sína á hlutabréfamarkaði þegar illa árar. Stjórnendur þeirra segja að þeir séu „heppilegir sökudólgar“. Það séu hátt í 100 milljarðar í stýringu hjá verðbréfasjóðum sem ætti að „duga ágætlega“ til skoðanaskipta. Það sé ekki í verkahring lífeyrissjóða að stöðva lækkanir á markaði. Innherji 4.11.2023 11:00
Gagnrýnir lífeyrissjóði og segir að þeir hafi „frekar ýtt undir vandann“ á markaði Aðstæður á innlendum fjármálamörkuðum á árinu hafa verið „með því verra sem sést hefur“ frá fjármálahruninu 2008 þar sem meðal annars smæð markaðarins, lítill sem enginn seljanleiki og mikið útflæði fjármagns hefur valdið „ákveðnum markaðsbresti“ og ýkt sveiflur á gengi félaga í báðar áttir, að sögn vogunarsjóðstjóra. Hann gagnrýnir lífeyrissjóðina, sem eiga liðlega helming af öllum skráðum hlutabréfum, fyrir sinnuleysi gagnvart hlutabréfamarkaðinum með því að beita sér lítið við þessar krefjandi aðstæður og „frekar ýtt undir vandann.“ Innherji 1.11.2023 15:48
Þurfum að læra af vandræðum Breta sem kæfðu hlutabréfamarkaðinn Við þurfum að læra af vandræðum Breta sem gengur illa að fjármagn vöxt fyrirtækja þar í landi því það er búið að kæfa innlenda hlutabréfamarkaðinn. Í draumaheimi gætu íslenskir lífeyrissjóðir eflaust fjárfest meira og minna erlendis og á móti flæddi erlent fjármagn inn í íslenskt atvinnulíf. Því miður er það ekki þannig. Litla Ísland lendir yfirleitt neðarlega á forgangslista erlendra fjárfesta þótt það séu vissulega jákvæð teikn á lofti í þeim efnum, segir framkvæmdastjóri hjá Kauphöllinni. Innherji 18.10.2023 17:33