Lífeyrissjóðir
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 20 ›
Skuldabréfamarkaðurinn verið að dýpka og veltuhlutfallið ekki hærra um árabil Framkvæmdastjóri eins af stærstu lífeyrissjóðum landsins furðar sig á umræðu um grunnan skuldabréfamarkað hérlendis, sem veltutölur sýni að hafi í reynd verið að dýpka fremur en hitt að undanförnu, en stjórnendur Seðlabankans hafa sagt ekki hægt að draga of miklar ályktanir til skemmri tíma um verðbólguálagið byggt á viðskipum á þeim markaði. „Hvenær var það þá síðast hægt?“, spyr hann og segir mikilvægt að bæta upplýsingamiðlun þegar rætt sé um skilvirkni markaða. Innherji 17.10.2023 10:51
Vilja Pálmar Óla úr stjórn Birtu og bauna á Samtök atvinnulífsins Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands gerir verulegar athugasemdir við setu Pálmars Óla Magnússonar í stjórn Birtu lífeyrissjóðs, á meðan hann hefur réttarstöðu sakbornings og í ljósi birtingu ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins um brot Samskipa gegn banni við ólögmætu samráði. Viðskipti innlent 9.10.2023 11:49
Verum vel læs á fjármálaumhverfið Sá sem hvorki þekkir mun á biðskyldu og stöðvunarskyldu né á vinstri- og hægri rétti í umferðinni stenst ekki kröfur sem réttilega eru gerðar til þeirra sem öðlast ökuréttindi. Skoðun 3.10.2023 10:31
Ríkisstjórnin svínaði á eftirlaunafólki fimm ár í röð Í 62. gr. almannatryggingalaga stendur skýrum stöfum að greiðslur almannatrygginga skuli „taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs.“ Skoðun 27.9.2023 17:01
Landsbréf: Lífeyrissjóðir ættu að mega eiga stærri hlut í sjóðum Landsbréf, sjóðastýring Landsbankans, segir óþarfi að banna lífeyrssjóðum, eins og lög geri, að eiga meira en 25 prósent af hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og stærri hluta en 20 prósent í öðrum sjóðum eða félögum. Innherji 27.9.2023 14:01
Lífeyrissjóðir vilja bíða með aukið valfrelsi og starfshópur rýni málið Landssamtök lífeyrissjóða og Frjálsi lífeyrissjóðurinn leggja til að beðið verði með að leggja frumvarp um aukið valfrelsi til fjárfestinga í viðbótarsparnaði og að hópur sem vinnur að gerð grænbókar um lífeyriskerfið rýni í málið fyrst. Grænbókin er undanfari hvítbókar með tillögum um lagabreytingar. Innherji 27.9.2023 07:31
Bandaríski risinn Capital Group stækkar enn stöðu sína í Íslandsbanka Sjóðastýringarfélagið Capital Group, stærsti erlendi fjárfestirinn í hlutahafahópi Íslandsbanka, jók nokkuð við eignarhlut sinn fyrr í þessum mánuði eftir að hlutabréfaverð bankans hafði fallið skarpt síðustu vikur. Erlendir fjárfestar hafa ekki átt stærri samanlagðan hlut í bankanum frá skráningu hans sumarið 2021. Innherji 26.9.2023 10:42
Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð. Innherji 25.9.2023 18:16
Lífeyrissjóðir halda svipuðum takti í gjaldeyriskaupum og í fyrra Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi aukið nokkuð við fjárfestingar sínar í erlendum gjaldmiðlum yfir sumarmánuðina samhliða auknu innflæði gjaldeyris til landsins vegna mikils fjölda ferðamanna þá styrktist gengi krónunnar stöðugt á tímabilinu. Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna jukust um liðlega fimmtán prósent á fyrstu átta mánuðum ársins en flestir sjóðir eru hins vegar enn talsvert fjarri innri viðmiðum um hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum sínum. Innherji 23.9.2023 14:59
„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum. Innherji 21.9.2023 10:13
Fjögur ráðin til LSR LSR hefur ráðið til sín þau Elín Hrund Búadóttir, Helgi Freyr Ásgeirsson, Katrín Kristjana Hjartardóttir og María Björk Baldursdóttir. Viðskipti innlent 20.9.2023 10:55
Vilja fella niður margar takmarkanir á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða Seðlabankastjóri tekur undir með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að rétt sé að afnema margar af þeim magnbundnu takmörkunum sem gilda um íslensku lífeyrissjóðanna, eins og meðal annars hámark á eignarhald í einstökum félögum, samhliða auknu eftirliti með starfsemi þeirra og bættri áhættustýringu. Starfshópur sem vinnur að grænbók um lífeyrissjóðakerfið er nú með til skoðunar að leggja til slíkar breytingar. Innherji 11.9.2023 10:42
Segir ásakanir um þaulskipulagða glæpi mannorðsmorð Samskip eru sökuð um ólöglegt samráð í flutningaþjónustu á Norðurlandi í tíð stjórnarformanns lífeyrissjóðsina Gildis sem formaður VR sakar um „þaulskipulagða glæpi“. Lífeyrissjóðsstjórinn hætti störfum hjá Samskipum áður en alvarlegustu brotin sem Samkeppniseftirlitið sektaði fyrirtækið fyrir voru framin. Viðskipti innlent 8.9.2023 14:45
Sannleikurinn sagna bestur, Björgvin Það er afar einfalt að svara grein þinni Björgvin og alvarlegum ásökunum þínum í minn garð. Þú fullyrðir í grein þinni að hafa ekki undir nokkrum kringumstæðum átt þátt að þeim málum, né var þér kunnugt um þau. Skoðun 7.9.2023 11:32
Skiptir sannleikurinn Ragnar Þór einhverju máli? Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR fór mikinn á heimasíðu sinni þar sem hann ásakaði undirritaðan um sakhæft athæfi. Þar sagði hann undirritaðan hafa verið lykilstjórnanda hjá Samskipum á þeim tíma er meginþorri þeirra meintu brota sem Samkeppniseftirlitið hefur fjallað um í nýútkominni skýrslu sinni. Skoðun 7.9.2023 08:00
Þeir sem velji aukið frelsi í viðbótarlífeyrissparnaði beri aukinn kostnað Framkvæmdastjórar lífeyrissjóða og sjóðastýringar fagna því að fjármála- og efnahagsráðherra sé að skoða leiðir til að auka valfrelsi fólks í viðbótarlífeyrissparnaði. Breytingar geta aukið áhuga fólks á fjárfestingum og lífeyrissparnaði. Sjóðfélagar sem vilja meira frelsi við að stýra sínum viðbótarsparnaði þurfa væntanlega að bera af því meiri kostnað en sjóðfélagar í hefðbundnum ávöxtunarleiðum. Innherji 6.9.2023 07:00
Færðu rétt greiddan lífeyri frá Tryggingastofnun? Ef þú ert bæði að fá ellilífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun Ríkisins (TR) og líka greiðslur úr lífeyrissjóði þá ert þú mjög líklega að fá of litlar greiðslur frá TR. Af hverju? Skoðun 30.8.2023 10:00
Þráinn ráðinn til LV Þráinn Halldórsson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur á sviði ábyrgra fjárfestinga á eignastýringarsviði Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 24.8.2023 10:45
Vaxtaálag á lánum banka til heimila og fyrirtækja sjaldan verið lægra Vaxtaálagið á nýjum útlánum í bankakerfinu til atvinnulífsins og heimila hefur fallið skarpt á síðustu misserum, einkum þegar kemur að íbúðalánum en munurinn á markaðsvöxtum og þeim vaxtakjörum sem bankarnir bjóða á slíkum lánum er nú sögulega lítill. Aukin samkeppni á innlánamarkaði á síðustu árum hefur meðal annars valdið því að vextir á óbundnum sparireikningum hafa nú aldrei verið hærri sem hlutfall af stýrivöxtum Seðlabankans. Innherji 22.8.2023 16:12
Lífeyrissjóðir ekki lánað meira til heimila frá því fyrir faraldurinn Hröð umskipti eru að verða á íbúðalánamarkaði þar sem hlutdeild bankanna er orðin hverfandi á sama tíma og lífeyrissjóðirnir, sem bjóða hægstæðari lánakjör um þessar mundir, eru farnir að auka talsvert umsvif sín. Hrein ný útlán lífeyrissjóðanna til heimila í júní voru þau mestu í einum mánuði frá því fyrir faraldurinn í upphafi ársins 2020 en sjóðirnir hafa lánað um helmingi meira en bankarnir á fyrri árshelmingi 2023. Innherji 3.8.2023 14:18
Lífeyrissjóðir keyptu breytanleg bréf á Alvotech fyrir um þrjá milljarða Rúmlega fjörutíu fjárfestar, meðal annars að stórum hluta íslenskir lífeyrissjóðir, komu að kaupum á breytanlegum skuldabréfum útgefnum af Alvotech upp á samtals meira en níu milljarða króna í lokuðu útboði sem kláraðist um liðna helgi. Með þeirri fjármögnun, ásamt einnig fjárfestingu lyfjarisans Teva fyrir jafnvirði um fimm milljarða í skuldabréfum með breytirétti í hlutafé Alvotech, hefur íslenska líftæknilyfjafélagið tryggt rekstur og áframhaldandi fjárfestingar í þróun hliðstæðulyfja vel inn á næsta ár. Innherji 1.8.2023 11:51
Lífeyrissjóðir sækjast eftir að stækka við hlut sinn eftir útboð Hampiðjunnar Ríflega einum mánuði eftir að hlutafjárútboði Hampiðjunnar lauk hefur mikill meirihluti íslenskra lífeyrissjóða, einkum Festa og LSR, haldið áfram að stækka við eignarhlut sinn í félaginu. Kaup lífeyrissjóðanna hafa meðal annars átt sinn þátt í að drífa áfram mikla hækkun á gengi bréfa Hampiðjunnar á eftirmarkaði að undanförnu en hlutabréfaverð félagsins er upp um nærri 23 prósent frá því gengi sem almennum fjárfestum bauðst að kaupa í útboðinu. Innherji 23.7.2023 12:22
Einn stærsti hluthafinn seldi um fjórðung bréfa sinna í Controlant Fjárfestingafélagið Kaskur, sem hefur verið á meðal stærstu hluthafa Controlant frá árinu 2017 og er í eigu Inga Guðjónssonar, losaði um meira en fjórðung alls eignarhlutar síns í hinu ört vaxandi íslenska hátæknifyrirtæki á árinu 2022. Áætla má að söluandvirði bréfanna hafi verið samanlagt um liðlega einn milljarður króna. Innherji 17.7.2023 10:47
Hætta á skammsýni þegar öllu fjármagni framtakssjóða er stýrt frá Reykjavík Íslenskir lífeyrissjóðir, sem áttu minna en samanlagt tveggja prósenta hlut þegar yfir 170 milljarða yfirtökutilboð var gert í Kerecis fyrir um viku, hafa útvistað slíkum fjárfestingum að mestu til framtaks- og vísissjóða, segir framkvæmdastjóri Birtu. Í ítarlegu viðtali við Innherja ræðir hann meðal annars hvað skýri einkum fjarveru sjóðanna í hluthafahópi Kerecis og nefnir að þótt það hefði verið ánægjulegt að sjá Kerecis skráð á markaðinn hér heima þá þurfi líka að „fagna því“ að erlent fjármagn leiti til landsins í svo stórar beinar fjárfestingar. Innherji 14.7.2023 10:26
Krónan styrkist samhliða því að hægt hefur á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða Heldur hefur hægt á gjaldeyriskaupum lífeyrissjóða á fyrstu mánuðum ársins eftir verulegt umfang þeirra á seinni árshelmingi 2022. Miklar verðhækkanir á erlendum eignamörkuðum hefur vegið á móti gengisstyrkingu krónunnar og því hefur hlutfall erlendra eigna lífeyrissjóðanna aukist nokkuð frá áramótum. Innherji 12.7.2023 09:14
Lífsverk seldi í Kerecis rétt fyrir risasölu upp á 180 milljarða Lífeyrissjóður Verkfræðinga, sem forstjóri og stofnandi Kerecis gagnrýnir harðlega fyrir að hafa sett sig ítrekað upp á móti kaupréttaráætlun félagsins, losaði um hlut sinn skömmu áður en fyrirtækið var selt til alþjóðlegs heilbrigðisrisa í lok síðustu viku fyrir nærri 180 milljarða. Tveir aðrir lífeyrissjóðir, sem komu fyrst inn í hluthafahópinn í fyrra, tvöfölduðu fjárfestingu sína í Kerecis á innan við einu ári. Innherji 10.7.2023 12:10
Spá því að tekjur Controlant brjóti hundrað milljarða múrinn innan fárra ára Gangi áætlanir Controlant eftir, sem boðar mikinn vöxt í Bandaríkjunum, þá munu tekjur íslenska hátæknifyrirtækisins margfaldast og fara vel yfir 100 milljarða króna á allra næstu árum. Lífeyrissjóðurinn Gildi hyggst leggja félaginu til nærri þrjá milljarða í aukið hlutafé til að styðja við þann vöxt en verðmiðinn á Controlant um þessar mundir jafngildir rétt ríflega væntum árlegum rekstrarhagnaði samkvæmt spám stjórnenda. Innherji 22.6.2023 09:25
Fjármögnun bankakerfisins er að fara verða „snúnari“ en áður Breytinga er að vænta í áherslum íslensku bankanna við fjármögnun á markaði og ljóst að þeir munu þurfa að breikka kaupendahópinn að ótryggðum skuldabréfum samhliða því að þau verða í meira mæli gefin út á innanlandsmarkaði. Markaðsfjármögnun bankakerfisins, sem hefur orðið mun dýrari síðustu misseri vegna umróts og óvissu á alþjóðamörkuðum, er að fara verða „erfiðari“ en áður, að sögn seðlabankastjóra. Innherji 17.6.2023 11:38
Aðvörun til annarra lánþega Frjálsa lífeyrissjóðsins Fyrir 3 árum var vaxtaástandið nokkuð gott og þau kjör sem lánþegum buðust á þeim tíma afar hagfelld. En síðan hefur nokkuð vatn hefur runnið til sjávar og full ástæða fyrir lánþega að hafa varann á og kynna sér vel uppfærða vexti, sérstaklega hvað varðar Frjálsa lífeyrissjóðinn. Skoðun 8.6.2023 07:01
„Þetta er að okkar mati möguleg eignaupptaka“ Heildarsamtök launafólks skoða nú hvort tilefni sé til að höfða mál gegn ríkinu vegna skerðingar sem tekur gildi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins um næstu mánaðamót. Kolbrún Halldórsdóttir, sem er nýtekin við sem formaður BHM, sagði í viðtali um málið í Bítinu í morgun þetta mál hafi lengi verið til umræðu og að fólk hefði vitað að skerðingar á lífeyri væru yfirvofandi meðal annars vegna hækkandi lífaldurs íslensku þjóðarinnar. Innlent 6.6.2023 11:52