Reykjavík

Reykjavík

Mannfjöldi: 138.772 (2025). Flatarmál: 244 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Rósin á­fram í hnappagati Sam­fylkingarinnar

Stjórn Samfylkingarfélagsins Rósarinnar hefur lokið viðræðum sínum um mögulegt samstarf við stjórnmálasamtökin Vor til vinstri, sem bjóða fram í komandi borgarstjórnarkosningum í Reykjavík í sameiningu með Vinstri grænum undir nafni Vinstrisins. Niðurstaða viðræðnanna er sú að Rósin hyggst ekki fara í samstarf með Vinstrinu, heldur halda áfram starfi sínu innan Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Valsreiturinn... í Pyongyang“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið.

Lífið
Fréttamynd

Bæjar­stjóri Mosfelssbæjar á lista Sam­fylkingar í Reykja­vík

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ og fyrrverandi bæjarstjóri Akraness, mun skipa sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi Sveitarstjórnarkosningar. Dóra Björt Guðjónsdóttir borgarfulltrúi fékk ekki sæti á listanum. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri, munu skipa heiðurssæti á listanum. 

Innlent
Fréttamynd

Vilja finna ung­linga­skóla nýjan stað

Borgarráð samþykkti í morgun að falla frá fyrirætlunum um að byggður verði nýr unglingaskóli í Laugardal á svokölluðum þríhyrningi aftan við Skautahöllina. Huga á að annarri staðsetningu og fara í samráðsferli að nýju með helstu hagaðilum í Laugardal um staðsetningu skóla- og íþróttamannvirkja á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

„Ég var að fatta að þú ert edrú“

Gugga í gúmmíbát kíkti á djammið með áhrifavaldinum Patreki Jaime um daginn. Þau settu sig í óvæntar stellingar og fóru aftur fyrir barborðið þar sem þau blönduðu sterka drykki, grínuðust og Gugga stalst í vodkann.

Lífið
Fréttamynd

Vilja borgarlest í stað borgarlínu

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar og oddviti sjálfstæðismanna í Hafnarfirði vilja skoða að tengja frekar miðborg Reykjavíkur við Hafnarfjörð með lest en fyrirhugaðri borgarlínu. Slík borgarlest yrði mikilvægasta samgöngubót í sögu þjóðarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni Guð­jóns hættir hjá VÍS

Bjarni Guðjónsson hefur sagt upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS samkvæmt heimildum fréttastofu. Hann hefur verið orðaður við sæti á lista Sjálfstæðismanna í komandi borgarstjórnarkosningum sem fram fara í maí og er talið að hann muni þar skipa annað sætið.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Geti átt í sam­starfi við nær alla flokka

Prófkjör Pírata hefst á morgun en tveir frambjóðendur hafa boðið fram krafta sína í oddvitasætið, Alexandra Briem, núverandi oddviti, og Kristinn Jón Ólafsson, varaborgarfulltrúi. Þau segjast bæði tilbúin að leita að samstarfsflokkum í allar áttir en sá flokkur þurfi að samræmast þeirra grunngildum. Að mati Alexöndru geti það ekki allir.

Innlent
Fréttamynd

Tína rusl til að komast á Reyki

Krakkar í sjöunda bekk í Laugalækjarskóla fundu upp á nýrri leið til að safna fyrir ferðalagi þeirra í skólabúðirnar á Reykjum. Þau ætla að verja degi í að týna rusl í almenningsrýmum hverfisins og safna áheitum.

Innlent
Fréttamynd

Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“

Vetrarfærð er víða á vestanverðu landinu vegna snjókomu og gular viðvaranir voru gefnar út í dag vegna hríðarveðurs á höfuðborgarsvæðinu, og á Vestfjörðum og við Breiðafjörð sem taka gildi á morgun. Snjóinn tók að kyngja niður á höfuðborgarsvæðinu rétt um klukkan tvö í dag og var gul veðurviðvörun gefin út nær samstundis og veðrið skall á þar sem óljóst var framanaf hvar nákvæmlega úrkomubakkinn myndi ná landi.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs

Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó.

Veður
Fréttamynd

Einar fundar með borginni um mál­efni mið­borgar

Skrifstofa borgarstjóra ætlar að funda með Einari Bárðarsyni, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, um ýmis mál er varða veitingarekstur í miðborginni. Þau vilja ekki kalla það „friðarviðræður“ eins og Einar hefur kallað eftir en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, segir eiga að ræða ýmis mál er varða miðborgina á fundinum.

Innlent
Fréttamynd

Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skóla­kerfinu

Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis.

Innlent
Fréttamynd

Ellefu í fram­boði í próf­kjöri Pírata

Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. 

Innlent
Fréttamynd

Þrjár stúlkur réðust á eina

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar um líkamsárásir í gærkvöldi eða nótt en báðar áttu sér stað í Seljahverfi.

Innlent
Fréttamynd

Reim­leikar í húsinu eða röskun í heilanum?

Röskun er óhugnarlegur og myrkur sálfræðitryllir um unga konu sem flytur inn í kjallaraíbúð og upplifir undarlega atburði. Er hennar eigin röskun að verki eða eitthvað þaðan af verra? Myndin er ágætlega fléttuð og vel leikin en líður fyrir endurtekningarsemi og skort á persónusköpun.

Gagnrýni
Fréttamynd

Fallast ekki á svör borgarinnar og vilja „friðar­við­ræður“

Talsmaður rekstraraðila veitingahúsa segir svör borgarinnar vegna stöðumælasekta starfsfólks veitingahúsa við affermingar ekki standast fulla skoðun. Gert sé ráð fyrir undanþágum fyrir litlar sendingar í miðborgum nágrannalandanna. Talsmaðurinn kallar eftir samtali, auglýsir eftir stjórnmálamönnum og býður sig fram í „friðarviðræður“ vegna málsins.

Innlent