
Íþróttir

Venus vann í Memphis
Tenniskonan Venus Williams sýndi og sannaði að hún er ekki dauð úr öllum æðum með því að bera sigur úr býtum á opna Memphis-meistaramótinu í Bandaríkjunum í nótt. Williams vann auðveldan sigur á Shahar Peer frá Ísrael í úrslitum mótsins, 6-1 og 6-1. Þetta var fyrsta mótið sem Venus tekur þátt í frá því í október á síðasta ári.

Atletico og Real skildu jöfn
Real Madrid var stálheppið með að sleppa við jafntefli í viðureign sinni gegn nágrönnunum og erkifjendunum í Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Gonzalo Hugain skoraði jöfnunarmark Real í 1-1 jafntefli þegar um hálftími var eftir en Atletico var mun sterkari aðilinn í leiknum og fór illa með nokkur mjög góð marktækifæri.

Stenson og Ogilvy mætast í úrslitum
Það verða Svíinn Henrik Stenson og Ástralinn Geoff Ogilvy sem mætast úrslitum heimsmeistaramótsins í holukeppni sem fram fer í Arizona í Bandaríkjunum. Stenson vann sannfærandi sigur á Trevor Immelmann frá Suður-Afríku í undanúrslitum en Ogilvy, sem á titil að verja á mótinu, bar sigurorð af Bandaríkjamanninnum Chad Campbell.
Ellefti sigur Dallas í röð
Dirk Nowitzki var frábær fyrir Dallas í nótt þegar liðið bar sigurorð af Denver í NBA-deildinni, 115-95. Nowitzki skoraði 31 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar í þessum ellefta sigurleik Dallas í röð. Enn fremur var sigurinn sá 19. í röð á heimavelli.

Ronaldo vill 160 þúsund pund á viku
Cristiano Ronaldo vill fá 160 þúsund pund í vikulaun frá Man. Utd. ætli félagið sér að fá hann til að skrifa undir nýjan samning. Þetta fullyrðir spænska dagblaðið Marca í stórri umfjöllun um málið og bætir við að Real Madrid og Barcelona séu reiðubúin að mæta kröfum Ronaldo, auk þess að borga Man. Utd. 40 milljónir punda fyrir portúgalska landsliðsmanninn.

Everton upp í 7. sæti
Everton komst upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld með sannfærandi 3-0 útisigri á Watford. Manuel Fernandez, Andy Johnson og Leon Osman skoruðu Everton í leiknum. Watford er komið með annan fótinn niður í 1. deild en liðið er sem fyrr í neðsta sæti með 19 stig, einu minna en West Ham.
Dida fer líklega til Barcelona
Barcelona er komið langleiðina með að semja við brasilíska markvörðinn Dida, en margt bendir til þess að hann yfirgefi herbúðir AC Milan þegar samningur hans rennur út eftir núverandi leiktíð. Carlo Ancelotti, stjóri Milan, segir að samningaviðræður við markmanninn hafi ekki gengið sem skildi.

Tekur Eriksson við af Mancini
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Sven Göran Eriksson, fyrrum þjálfari enska landsliðsins, muni líklega taki við stjórastöðunni hjá Inter Milan eftir núverandi tímabil, af Roberto Mancini. Forseti Inter, Massimo Moratti, er ósáttur með að Mancini skuli ekki hafa skrifað undir nýjan samning við félagið.

Eiður byrjar hjá Barcelona á morgun
Spænskir fjölmiðlar fullyrða að Eiður Smári Guðjohnsen verði í byrjunarliði Barcelona þegar liðið fær Atletico Bilbao í heimsókn á Nou Camp í spænsku úrvalsdeildinni á morgun. Þjálfarinn Frank Rijkaard er sagður hafa verið ósáttur með frammistöðu Javier Saviola í leiknum gegn Liverpool. Samuel Eto´o og Santiago Ezquerro eru einnig í 18-manna hópi Barca fyrir leikinn.

Messi vill Ronaldo til Barcelona
Lionel Messi hjá Barcelona vill ólmur fá Cristiano Ronaldo til spænska liðsins frá Manchester United, en portúgalski leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við sölu frá Man. Utd. eftir þetta tímabil. Messi segir Ronaldo vera ótrúlegan leikmann og að það yrði mikill heiður að spila í sama liði og hann.

Eggert: Curbishley er öruggur í starfi sínu
Stjórn West Ham, með Eggert Magnússon í fararbroddi, hefur frá sér yfirlýsingu eftir tap liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem fram kemur að knattspyrnustjórinn Alan Curbishley þurfi ekki að óttast að vera rekinn frá félaginu. Hvorki gengur né rekur hjá West og er liðið nú komið í afar vonda stöðu við botn deildarinnar.

Ronaldo: Mjög ánægður með markið
Cristiano Ronaldo var kampakátur eftir sigur Man. Utd. á Fulham í dag en hinn sjóðheiti portúgalski vængmaður skoraði sigurmark sinna manna eftir stórkostlegt einstaklingsframtak á lokamínútum leiksins. Ronaldo viðurkenndi þó að heppnin hafi verið með Man. Utd. í leiknum.
Mikilvægur sigur Bayern Munchen
Bayern Munchen vann 2-1 sigur á Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni í dag og færðist nær toppliðum deildarinnar. Stuttgart náði aðeins markalausu jafntefli gegn Stuttgart á heimavelli en heldur þó öðru sæti deildarinnar. Efstu lið deildarinnar, Schalke og og Werder Bremen, spila ekki fyrr en á morgun.

Ótrúleg frammistaða Ciudad í síðari hálfleik
Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk, öll úr vítaköstum, þegar Ciudad Real bar sigurorð af Portland San Antonio, 26-21, í Meistaradeildinni í handbolta í dag. Það var stórkostleg spilamennska í síðari hálfleik sem tryggði Ciudad sigur í leiknum en liðið var fimm mörkum undir í hálfleik, 14-9. Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum keppninnar.
Bjarni skoraði fyrir Bornemouth
Bjarni Þór Viðarsson skoraði annað mark Bornemouth þegar liðið sigraði Oldham á útivelli, 2-1, í ensku 2.deildinni í dag. Bjarni, sem er í láni hjá liðinu frá Everton, skoraði markið á 30. mínútu en var síðan skipt af velli í hálfleik. Hinn fulltrúi Íslands í neðri deildunum í Englandi, Jóhannes Karl Guðjónsson, lék allan leikinn fyrir Burnley í 0-0 jafntelfi gegn Colchester.

Jafntefli hjá Val og Haukum í Laugardalshöllinni
Valur og Haukar skildu jöfn, 27-27, í leik liðanna í DHL-deild karla í handbolta í Laugardalshöllinni í dag. Valsmenn mega vera ánægðir með að hafa hlotið annað stigið í leiknum en Haukar höfðu lengst af 3-4 marka forystu í síðari hálfleik. Valur er með 21 stig á toppi deildarinnar en HK, sem er í öðru sæti með 19 stig, á leik til góða gegn Akureyri á morgun.

Mourinho: England er best í heimi
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki í vafa um að England sé helsta knattspyrnuland heims og þar langi honum þess vegna helst að vera sem allra lengst. Mourinho segir andrúmsloftið í kringum fótboltann á Englandi vera einstakt.

Ekkert gengur hjá West Ham
Íslendingaliðið West Ham beið afhroð í fallslagnum mikla gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni og mátti þola 4-0 tap á útivelli. Við tapið fellur West Ham niður fyrir Charlton í deildinni og er nú í 19. sæti í afar vondri stöðu. Liverpool burstaði Sheffield United með sömu markatölu þar sem Robbie Fowler skoraði tvö mörk.

John Terry spilar bikarúrslitaleikinn
John Terry, fyrirliði Chelsea, hefur náð undraverðum bata af ökklameiðslunum sem hann varð fyrir í leiknum gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni og hefur verið úrskurðaður leikfær fyrir úrslitin í deildabikarnum á morgun. Terry stóðst læknisskoðun í morgun og verður í byrjunarliði Chelsea gegn Arsenal.
Níu leikmenn á skýrslu hjá kvennaliði ÍBV
Toppliðin í DHL-deild kvenna í handbolta, Stjarnan og Valur, gerðu engin mistök í leikjum sínum í dag. Stjarnan vann yfirburða sigur á ÍBV, 40-19, og Valur vann tíu marka sigur á FH, 34-24. Aðeins níu leikmenn voru á leikskýrslu hjá ÍBV.
West Ham heillum horfið gegn Charlton
Það blæs ekki byrlega fyrir Íslendingaliðið West Ham í viðureign liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Þegar flautað hefur verið til hálfleiks er staðan 3-0, heimamönnum í Charlton í vil. Verði þetta úrslitin mun Charlton komast upp fyrir West Ham á stigatöflunni og skilja Eggert Magnússon og lærisveina hans eftir í 19. og næst síðasta sæti deildarinnar.

Lennox Lewis hyggur á endurkomu í hringinn
Hnefaleikakappinn Lennox Lewis, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, er sagður vera að hugsa um að snúa aftur í hringinn á þessu ári, 41 árs að aldri. Aðilar innan hnefaleikahreyfingarinnar í Bandaríkjunum segja Lennox vera byrjaðan að æfa af fullum krafti fyrir bardaga sem fara skal fram síðar á þessu ári – gegn Vitali Klitschko frá Úkraínu.
Hermann ekki með Charlton
Hermann Hreiðarsson getur ekki spilað með Charlton í leik liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag vegna meiðsla. Ívar Ingimarsson er eini Íslendingurinn sem er í byrjunarliði síns liðs í dag en hann er í vörn Reading sem sækir Middlesbrough heim. Brynjar Björn Gunnarsson byrjar á bekknum hjá Reading.

Verður Drogba í vörninni?
Fari svo að annaðhvort Richardo Carvalho eða Michael Essien forfallist fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum á morgun mun sóknarmaðurinn Didier Drogba vera færður í öftustu varnarlínu þeirra bláklæddu. Þetta segir Jose Mourinho, stjóri Chelsea, og bætir við að hann eigi ekki annara kosta völ.

Ronaldo tryggði Man. Utd. sigur
Cristiano Ronaldo tryggði Manchester United dýrmæt þrjú stig í baráttunni um enska meistaratitilinn í knattspyrnu með því að skora sigurmark liðsins gegn Fulham í dag, tveimur mínútum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 2-1, Man. Utd. í vil, eftir að Fulham hafði komist yfir í fyrri hálfleik. Man. Utd. hefur nú níu stiga forystu á Chelsea.

Venus komin í úrslit
Tenniskonan Venus Williams, sem eitt sinn bar höfuð og herðar yfir stöllur sínar í íþróttinni, tryggði sér í gær sæti í úrslitaviðureign hins árlega Memphis-meistaramóts sem fram fer í Bandaríkjunum. Þetta er fyrsta mótið sem Venus tekur þátt í síðan í október en hún hefur glímt við þrálát meiðsli síðustu árin.
Jafnt í hálfleik hjá Fulham og Man. Utd.
Staðan er jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Fulham og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag. Það var Brian McBride sem kom heimamönnum yfir á 17. mínútu en Ryan Giggs jafnaði metin fyrir toppliðið á 29. mínútu. Heiðar Helguson er á varamannabekk Fulham.

Barcelona og Real Madrid kljást um 11 ára gutta
Laureano Ludena er 11 ára argentínskur sóknarmaður sem þykir einn efnilegasti leikmaður sem upp hefur komið í heimalandi sínu. Barcelona og Real Madrid eru nýjustu félögin sem bætast í slaginn um undirskrift Ludena, en áður höfðu öll stærstu lið Argentínu fengið hann á reynslu til sín. Fjölskylda leikmannsins segir hins vegar líklegast að hún muni flytja til Evrópu.

Makelele óánægður með Abramovich
Hinn franski Claude Makelele, einn reyndasti leikmaðurinn í herbúðum Chelsea, hefur gagnrýnt æðstu yfirmenn félagsins, og þá sér í lagi aðaleigandann Roman Abramovich, harðlega fyrir að byggja upp það sem hann kallar “gríðarlega pressu” á leikmenn og þjálfara liðsins.
Flensburg burstaði Barcelona
Flensburg er í mjög góðri stöðu eftir að hafa burstað Barcelona í fyrri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta í gærkvöldi. Flensburg vann 10 marka sigur, 31-21, og er ljóst að spænska liðið þarf á algjörum toppleik að halda í síðari leiknum eftir viku ef það á ekki að falla úr keppni.