
Miss Universe Iceland

Upplifði martröð fegurðardrottningarinnar
Fegurðarsamkeppnin, Miss Universe er haldin í 72 sinn og fer keppnin fram í El Salvador. Lilja Sif Pétursdóttir keppnir fyrir Íslands hönd en á lokaæfingunni upplifði hún martröð allra fegurðardrottninga.

Ekkert aldurstakmark í Ungfrú Ísland
Stór tíðindi berast úr heimi fegurðarsamkeppninnar Miss Universe því aldurshámarki hefur nú verið aflétt.

Myndaveisla frá keppninni Ungfrú Ísland
Miss Universe Iceland, eða Ungfrú Ísland eins og keppnin heitir nú, var haldin í áttunda sinn í gærkvöldi. Nítján keppendur tókust á um titilinn eftirsótta en á endanum stóð Lilja Sif Pétursdóttir uppi sem sigurvegari.

Lilja Sif Pétursdóttir valin Ungfrú Ísland
Ungfrú Ísland var haldin í áttunda sinn í kvöld í Gamla bíó. Keppnin var ein sú glæsilegasta þar sem keppendur skinu sem glitrandi stjörnur á sviðinu.

Ungfrú Ísland í beinni útsendingu á Vísi
Ungfrú Ísland var haldin í áttunda sinn í gærkvöldi í Gamla bíó. Keppnin var í beinni útsendingu á Stöð 2 Vísi og Vísi.

Fyrsta ófríska konan keppir um titilinn Miss Universe Iceland
Fegurðarsamkeppnin Miss Universe Iceland fer fram á miðvikudagskvöld og keppendur væntanlega komnir með fiðring í magann. Þó önnur meira en hinar því í fyrsta skipti í sögu keppninnar er einn þátttakandinn barnshafandi.

Fyrsta mamman í fegurðarsamkeppni hér á landi
Strangar reglur hafa ríkt varðandi þátttöku kvenna í fegurðarsamkeppnum. Ein af þeim er að keppendur megi ekki hafa eignast börn. Nýskipaður eigandi keppninnar braut þó blað í sögunni nýverið. Fyrsti íslenski keppandinn, María Monica Luisa segist fagna breytingunni enda beri hún stolt þann titil að vera móðir samhliða því að keppast um titilinn Miss Universe Iceland.

Safnað fyrir hjartveik börn
Árlega standa keppendur Miss Universe Iceland fyrir góðgerðarviðburði til styrktar góðs málefnis - sem er breytilegt ár frá ári. Keppendur í ár hafa ákveðið að styrkja Neistann, styrktarfélag hjartveikra barna og munu halda góðgerðarbingó miðvikudaginn 2.ágúst næstkomandi.

Hrafnhildur heldur til Taílands: „Skemmtilegasta ævintýri sem ég hef upplifað“
Miss Universe Iceland drottningin Hrafnhildur Haraldsdóttir mun krýna nýjan arftaka síðar í sumar. Hennar síðasta verkefni sem handhafi titilsins er óvænt verkefni í Taílandi. Þetta er í fyrsta sinn sem fegurðardrottning hlýtur slíkan heiður segir Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstýra keppninnar.

Ísabella keppir í kvöld í handmáluðum þjóðbúning
Ísabella Þorvaldsdóttir keppir í kvöld í Miss Supranational en hún stóð uppi sem sigurvegari sem Miss Supranational Iceland á síðasta ári. Keppnin fer fram í Póllandi og segist Ísabella gríðarlega spennt fyrir kvöldinu.

Þetta eru keppendur Miss Universe Iceland í ár
Miss Universe Iceland keppnin verður haldin í áttunda sinn þann 16. ágúst í Gamla bíó. Keppendur í ár eru nítján talsins og eru á aldrinum átján til tuttugu og átta ára. Alþjóðleg dómnefnd sér um að velja þá stúlku sem stendur uppi sem sigurvegari.

Lét örið ekki stöðva sig að láta drauminn rætast
Ísabella Þorvaldsdóttir var einungis þriggja ára þegar hún gekk undir líffæraígræðslu. Ísabella sem fæddist með óvirk nýru þáði líffæragjöf frá föður sínum og er hún yngsti einstaklingurinn hér á landi til að gangast undir slíka aðgerð.

Ófrískar konur mega nú taka þátt í Ungfrú Ísland
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Ísland hefur snúið aftur en nú í breyttri mynd. Mæður, giftar og ófrískar konur mega nú taka þátt í keppninni í fyrsta sinn. Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdarstjóri keppninnar, fagnar þessum tímabæru breytingum.

Manúela fékk heilablóðfall um jólin
Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmdastjóri fegurðarsamkeppninnar Miss Universe á Íslandi lenti í því yfir hátíðirnar að fá heilablóðfall aðeins 39 ára gömul. Hún segist þakklát og heppin að ekki fór verr.

Hrafnhildur flogin út í lokakeppni Miss Universe
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Miss Universe Iceland, hélt síðastliðinn miðvikudag vestur um haf til að taka þátt í aðalkeppni Miss Universe.

Svona var Miss Universe Iceland árið 2022 valin
Hrafnhildur Haraldsdóttir var krýnd Miss Universe Iceland 2022. Sýnt var frá keppninni í beinni útsendingu hér á Vísi og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi.

„Ég bjóst alls ekki við þessu“
„Það var spennufall í gær, það er sama hversu oft ég geri þetta ég fer alltaf að grenja og það eru alltaf allar tilfinningarnar,“ segir Manuela Ósk Harðardótir framkvæmdastjóri keppninnar Miss Universe Iceland eftir keppnina í gær.

Hrafnhildur er Miss Universe Iceland 2022
Hrafnhildur Haraldsdóttir, Miss East Reykjavík, var rétt í þessu krýnd Miss Universe Iceland 2022. Keppnin var sýnd í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Bein útsending: Miss Universe Iceland
Hægt er að fylgjast með Miss Universe Iceland keppninni í beinni útsendingu hér og á Stöð 2 Vísi. Í kvöld kemur í ljós hvaða stúlka hlýtur titilinn í ár og mun keppa fyrir Íslands hönd í Miss Universe 2022.

MUI verður í beinni á Vísi: „Þetta er algjör tilfinningabomba“
Miss Universe Iceland keppnin hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýnd í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 Vísi. Manuela Ósk Harðardóttir, sem er framkvæmdarstjóri keppninnar, er afar spennt fyrir kvöldinu og segir undirbúninginn búinn að ganga eins og í sögu í samtali við Vísi.

„Einn daginn mun ég prófa þetta“
Elísabet Tinna Haraldsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Mosfellsbær. Hún hefur alla tíð haft áhuga á keppnum á borð við þessa og segist hafa lært heilmikið í þessu ferli. Elísabet Tinna elskar jóla skinku, hlustar á alla tónlist og stefnir á ferðalög og leiklist í framtíðinni.

Miss Universe Iceland: Nýbúin að læra að gera tattoo
Jóna Vigdís Guðmundsdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Southwestern Iceland. Jóna Vigdís starfar sem húðflúrslistakona á stofunni Lifandi list og stefnir á að útskrifast sem viðskiptafræðingur í framtíðinni. Hún segir keppnina gott tækifæri til að fara út fyrir þægindarammann og sigrast á feimninni.

Lætur ekkert stoppa sig
Elsa Rún Stefánsdóttir er meðal keppenda í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Central Reykjavík. Elsa er dugleg að ögra sjálfri sér og takast á við áskoranir og segir keppnina hafa aukið sjálfstraust hennar til muna. Hún hefur gengið í gegnum ýmsa erfiðleika á lífsleiðinni, fengið heilablæðingu tvisvar sem dæmi, en lætur ekkert stoppa sig og vill veita öðrum innblástur til að fylgja sínu.

Miss Universe Iceland: „Er svo mikill klaufi að það er erfitt að gera mig vandræðalega“
Sylwia Sienkiewicz tekur þátt í Miss Universe Iceland 2022 og ber titilinn Miss Diamond Beach. Sylwia elskar rækjupasta og hefði ekkert á móti því að flytja til Spánar í framtíðinni. Hún tók einnig þátt árið 2021 og segir að þar sem hún lærði heilmikið af fyrra skiptinu hafi hún ákveðið að skella sér aftur í keppnina.

Góðgerðarbingó til styrktar Gleym Mér Ei
Stúlkurnar sem keppa um titilinn í Miss Universe Iceland í ár standa fyrir góðgerðarbingói til styrktar Gleym Mér Ei annað kvöld á Dillon.

Miss Universe Iceland: Eltir drauma sína sama hvað öðrum finnst
Hrafnhildur Haraldsdóttir er meðal keppenda í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss East Reykjavík. Hrafnhildur elskar sushi og pizzu, lítur mikið upp til afa sinna og stefnir á læknisfræði í framtíðinni. Hún segir keppnina meðal annars hafa aukið sjálfstraustið og er stolt af því að elta drauma sína óháð áliti annarra.

Miss Universe Iceland: Gerði þau mistök að gefa dúfu franska kartöflu
Sunna Dögg Jónsdóttir er meðal keppenda í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Western Iceland. Sunna er enginn nýgræðingur í fegurðarsamkeppnunum og hefur keppt áður í slíkum bæði hérlendis og erlendis. Hún lifir fyrir líðandi stund en setur sér þó markmið og stefnir á að ljúka mastersgráðu í lögfræði í framtíðinni.

Miss Universe Iceland: „Æfingin skapar meistarann“
Maríanna Líf Swain tekur þátt í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Njarðvík. Hún er að taka þátt í annað sinn í keppninni og segir þátttökuna hafa gert mikið fyrir sig og sitt sjálfstraust. Maríanna elskar gott sushi, stefnir á afbrotafræði í framtíðinni og er stolt af sterkri réttlætiskennd sinni.

Miss Universe Iceland: Vill auka sjálfstraustið með því að keppa
Þorbjörg Kristinsdóttir er meðal keppenda í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Grafarholt. Með þátttöku sinni vill hún verða sterkari einstaklingur og hefur nú þegar kynnst mörgum frábærum stelpum að eigin sögn. Þorbjörg hefur verið að þjálfa fótbolta síðastliðið ár og stefnir á kennaranám í Háskóla Íslands í haust.

Miss Universe Iceland: Stefnir á pólitík í framtíðinni
Karen Ósk Kjartansdóttir tekur þátt í Miss Universe Iceland í ár og ber titilinn Miss Midnight Sun. Karen er alltaf tilbúin að takast á við nýjar áskoranir og lítur upp til foreldra sinna fyrir að gefast ekki upp á markmiðum sínum og draumum. Hún stefnir á pólítík í framtíðinni og segir innri manneskju fólks alltaf skipta mestu máli.