Byggðamál

Fyrstu drög að nýjum miðbæ á Höfn í Hornafirði
Sigurjón Andrésson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, greindi í dag frá fyrstu drögum að uppbyggingu nýs miðbæjar á Höfn í Hornafirði. Útgerðarfyrirtækið Skinney-Þinganes stendur að baki verkefninu í samstarfi við Batteríið arkitekta sem hönnuðu meðal annars nýja miðbæinn á Selfossi.

Veggjald í jarðgöngum, hvenær og hvenær ekki? Eða eru þau öll eins?
Segjum sem svo að yfirvöld myndu ákveða að setja vissa upphæð í jarðgangagerð á ári hverju. Gefum okkur að þessi upphæð nægði til að grafa 1 km af jarðgöngum ár hvert. Á sex ára tímabili væri því hægt að fjármagna 6 km göng og að þeim tíma liðnum væri hægt að snúa sér að næstu göngum.

Vilja ekki greiða fyrir notkun ganga sem uppfylla ekki öryggiskröfur
Líkt og greint hefur verið frá síðustu vikur stefnir innviðaráðuneytið á að hefja gjaldtöku í öllum göngum landsins til þess að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Formaður bæjarráðs Fjallabyggðar setur spurningamerki við aðferðafræðina.

Ísland framtíðar
Í annað sinn á skömmum tíma er hafið eldgos á Reykjanesskaga. Svo virðist sem staðsetning gossins sé heppileg að því leyti að mannvirkjum eða fólki stafar ekki bráð hætta af því. Í framhaldinu og reyndar allt frá fyrra Fagradalsfjallsgosi hafa verið uppi vangaveltur ýmissa aðila um öryggi vega að Reykjanesbæ, Keflavíkurflugvelli og öðrum byggðum ásamt öruggi innviða á svæðinu.

Landsmenn vilja ekki taka upp veskið í jarðgöngum
Meirihluti landsmanna er á móti fyrirhugaðri gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi samkvæmt nýrri könnun Maskínu.

Yfirklór SFS – Fiskvinnslufólk á ofurlaunum
Það þarf ekki að koma á óvart að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) grípi til varna þegar við horfum enn og aftur upp á frekari samþjöppun í sjávarútvegi nú þegar Síldarvinnslan hefur eignast sjávarútvegsfyrirtækið Vísi hf. í Grindavík

Efasemdir á Seyðisfirði um gagnsemi Fjarðarheiðarganga
„Í boði er annar valkostur sem er fjárhagslega hagkvæmur, leysir algerlega einangrun Seyðisfjarðar og opnar samtímis láglendisveg um allt Mið-Austurland, eykur allt öryggi og opnar nýja möguleika í samskiptum.“

Í erfiðleikum með að greiða upp strandveiðibát vegna ósanngjarns kerfis
Smábátasjómaður á Raufarhöfn segir strandveiðikerfið ógna byggðum á Norðaustur- og Austurlandi. Sonur hans keypti bát fyrir tímabilið í sumar en gat lítið sem ekkert veitt og á nú í miklum erfiðleikum með að greiða hann upp.

Loftbrú niðurgreitt flug fyrir sjö hundruð milljónir króna
Ríkissjóður hefur niðurgreitt fargjöld farþega í innanlandsflugi um tæpar sjö hundruð milljónir króna með Loftbrú. Yfir hundrað þúsund flug hafa verið niðurgreidd í heildina.

Af hverju Fjarðarheiðargöng?
Mann setti hljóðan þegar nýlega var fjallað um kostnað við gerð Fjarðarheiðagangna í fréttatíma Stöðvar 2, þar sem Kristján Már Unnarsson, fór fyrir svo einhliða og neikvæðri umfjöllun um göngin að menn spurðu sig jafnvel hverra erinda fréttamaðurinn væri að ganga?

Taka við búskap á síðasta bóndabænum í Reyðarfirði
Síðasti bóndinn í hinum forna Reyðarfjarðarhreppi, sem er að hætta eftir hálfrar aldar búskap, spáir því að sauðfjárrækt leggist af sem atvinnugrein á Íslandi á næstu tuttugu til þrjátíu árum. Dóttir hans og tengdasonur ætla þó að taka við.

Fjarðarheiði gleypir öll framlög og veggjöld til jarðganga í sautján ár
Svo fjárfrek verða Fjarðarheiðargöng að öll framlög á fimmtán ára jarðgangaáætlun ásamt gjaldtöku af öllum göngum duga ekki til að greiða kostnaðinn. Rými til að grafa næstu göng í landinu skapast vart fyrr en í kringum árið 2040.

Landsbyggðarskattar og leigubílafrumvarp
Júlímánuður hefur lengi verið kenndur við gúrkutíð í fjölmiðlum. Í því skjóli hafa ríkistjórnir löngum skákað og sloppið furðuvel frá málum sem á góðum degi á Alþingi, hefðu landað nokkrum munnlegum fyrirspurnum eða skarkala í störfum þingsins. Sá mánuður sem nú er enn ekki hálfnaður hefur verið býsna „gjöfull“ að þessu leyti.

Ráðherra boðar gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins
Gjaldtaka verður tekin upp í öllum jarðgöngum landsins á næsta eða þarnæsta ári. Innviðaráðherra boðar frumvarp um málið en tekjunum er ætlað að standa undir kostnaði við Fjarðarheiðargöng sem og önnur jarðgöng í framtíðinni.

Ný jarðgangagjöld áformuð til að greiða Fjarðarheiðargöng
Ríkið áformar að mæta ríflega helmingi 45 milljarða króna kostnaðar vegna Fjarðarheiðarganga með nýrri gjaldtöku af umferð um önnur jarðgöng í landinu. Samgöngufélagið segir að þetta gangi tæpast upp og að óforsvaranlegt sé að ráðast í útboð nema fyrir liggi með ótvíræðum hætti hvernig staðið verði að gjaldtökunni.

Lokun Olís á Skagaströnd: Fólk að missa spil úr stokknum
„Þetta er auðvitað sorglegt og hundleiðinlegt. Fólki hérna á Skagaströnd líður svolítið eins og það sé að missa spil úr stokknum.“

Strandveiðisjómenn með 300 þúsund krónur á dag fá meiri kvóta frá Svandísi
Svandís Svavarsdóttir, ráðherra sjávarútvegsmála, úthlutaði strandveiðisjómönnum 430 milljóna króna verðmætum í dag með því að auka þorskkvóta sumarsins um nærri ellefu hundruð tonn. Viðbótin dugar þó vart nema til að framlengja strandveiðarnar út þennan mánuð.

Suðurverk átti lægsta boð í næsta áfanga vegarins yfir Dynjandisheiði
Suðurverk hf. í Kópavogi átti lægsta tilboð í nýbyggingu Vestfjarðavegar á 12,6 kílómetra kafla á Dynjandisheiði. Tilboð Suðurverks hljóðar upp á 2.455 milljónir króna sem var 1,8 prósent, eða 42 milljónum króna, yfir áætluðum verktakakostnaði upp á 2.412 milljónir króna.

Hvalárvirkjun aftur á dagskrá og tvö ár gætu verið í framkvæmdir
Framkvæmdir við Hvalárvirkjun á Ströndum gætu hafist eftir tvö ár, að mati forstjóra HS Orku. Það er þó háð því að tilskilin leyfi verði fengin fyrir nauðsynlegum háspennulínum.

Hitaveita á köldum svæðum álitlegri með tækniframförum í jarðhitaleit
Ísafjörður, Patreksfjörður og Grundarfjörður eru í flokki álitlegustu þéttbýlisstaða á Íslandi til að fá hitaveitu, að mati jarðfræðings hjá ÍSOR, sem segir tækniframfarir í jarðhitaleit kalla á endurmat á svokölluðum köldum svæðum hérlendis.

Segja óboðlegt fyrir Norður- og Austurland ef strandveiðar stöðvast í næsta mánuði
Formenn þriggja samtaka smábátaeigenda á svæðum norðanlands og austan skora á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra að tryggja strandveiðar til ágústloka þannig að jafnræðis sé gætt milli landshluta. Núna sé ljóst að ætlaðar veiðiheimildir muni ekki duga til að tryggja strandveiðisjómönnum 48 veiðidaga í fulla fjóra mánuði, 12 daga í hverjum, eins og þeir segja að markmiðið hafi verið með síðustu breytingum á veiðikerfinu.

„Ég bara hika ekkert við að heimta meiri kvóta“
Strandveiðiflotinn mokveiðir nú sem aldrei fyrr og stefnir í að heildarpotturinn klárist fyrir lok næsta mánaðar. Formaður smábátaeigenda krefst þess að fá meiri kvóta til að koma í veg fyrir að veiðarnar stöðvist.

Drónar nýttir til að flytja lyf og sýni á Grænlandi
Grænlensk heilbrigðisyfirvöld í samstarfi við danska sjúkraflutningafyrirtækið Falck hyggjast á næstu mánuðum prófa notkun dróna við að flytja lyf og greiningarsýni milli byggða á Grænlandi. Tilgangur verkefnisins er að kanna hvernig drónar geta styrkt heilbrigðiskerfið á stöðum þar sem innviðir eru áskorun og langt er í næsta sjúkrahús en landið er án vegakerfis.

Patreksfjörður aflahæsta höfnin á strandveiðunum
Patreksfjörður er aflahæsta höfnin eftir fyrsta mánuð strandveiða sumarsins og jafnframt sú höfn þar sem flestir bátar hafa landað. Alls hafa 370 tonn borist þar á land frá 61 báti, samkvæmt yfirliti frá Landssambandi smábátaeigenda.

Réttlát skipting gjaldtöku í fiskeldi
Þingsályktunartillaga mín um endurskoðun á reglugerðarumhverfi sjókvíaeldis, með hliðsjón af gjaldtöku af fiskeldi liggur inni í háttvirtri atvinnuveganefnd þingsins. Þessi tillaga var einnig lögð fram í lok síðasta þings og rataði meginefni hennar inn í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar þar sem stendur að mótuð verði heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis.

Strandveiðisjómenn landa 275 þúsund króna aflaverðmæti að jafnaði úr róðri
Mánuði eftir að strandveiðar hófust er búið að veiða um 35 prósent kvótans. Aflinn nemur samtals 3.672 tonnum en strandveiðipottur sumarsins er tíu þúsund tonn af þorski. Auk þess hafa veiðst 353 tonn af ufsa, samkvæmt samantekt Fiskistofu í morgun.

Ertu í góðu sambandi?
Hvernig er sambandið þitt? Ertu í góðu og tryggu sambandi? Þá er ég ekki að tala um hjúskaparstöðu - heldur fjarskiptasamband.

Nauðsynlegt að ríki og sveitarfélög spýti í lófana: „Þetta er ekki eitthvað sem gerist á núll einni“
Byggja þarf 35 þúsund íbúðir á næstu tíu árum til að stuðla að stöðugleika á húsnæðismarkaði að mati starfshóps Þjóðhagsráðs. Formaður hópsins segir taka tíma að skipuleggja og byggja og því þurfi að spýta í lófana. Bjartari tímar eru þó fram undan.

Skrifstofan er barn síns tíma
Framkvæmdastjóri Airbnb er afdráttarlaus. Að hans mati er hin hefðbundna skrifstofa, þangað sem fólk sækir vinnu sína á hverjum morgni, dauð. Síðustu tvö ár hafi sýnt svo ekki verður um villst að ein, föst vinnuaðstaða sé „tímaskekkja“ sem eigi rætur að rekja til ótæknivæddra og netlausra starfshátta. Framtíðin eftir faraldurinn sé færanleg.

Höfuðstöðvar sameinaðs sýslumannsembættis verði á landsbyggðinni
Höfuðstöðvum sameinaðs sýslumannsembættis er ætlað að verða á landsbyggðinni samkvæmt nýju frumvarpi sem Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hyggst leggja fram í haust. Samkvæmt frumvarpinu verða öll níu sýslumannsembættin sameinuð í eitt.