Skipaflutningar
1 2 3 4 5 6 … 9 ›
Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Starfsmenn Strandgæslu Svíþjóðar (Kustbevakningen) gerðu í gær áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra „Skuggaflotanum“ svokallaða. Þetta er í annað sinn á viku sem Svíar stöðva skip úr þessum flota en Rússar nota hann til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Erlent 13.3.2026 10:27
Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Mojtaba Khamenei, sem tók nýverið við embætti æðstaklerks Íran af föður sínum, heitir því að halda Hormússundi lokuðu. Hann segir einnig að árásir á nágrannaríki Íran muni halda áfram og þá sérstaklega á bandarískar herstöðvar í þessum ríkjum. Erlent 12.3.2026 14:10
Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip Hulda Bjarnadóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Menningar og miðlunar hjá Eimskip. Um er að ræða nýja deild á Mannauðs- og samskiptasviði Eimskips. Viðskipti innlent 12.3.2026 12:37
Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Donald Trump, Bandaríkjaforseti, segir að stríðið gegn Íran gæti verið búið innan skamms. Vísaði hann til þess að þar væri „nánast ekkert eftir til að ráðast á“. Embættismenn í bæði Bandaríkjunum og Ísrael segjast þó vera að undirbúa sig fyrir áframhaldandi árásir í að minnsta kosti tvær vikur. Erlent 11.3.2026 14:48
Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur. Viðskipti erlent 11.3.2026 10:32
Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest. Erlent 11.3.2026 08:52
Vaxandi ótti við langvarandi átök Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð. Erlent 9.3.2026 19:23
Enginn sem hefur stjórn á því hvar olíuverð endar Hráolíuverð hefur ekki verið hærra í fjögur ár en við opnun markaða í morgun kostaði tunnan ríflega hundrað bandaríkjadali. Frekari hækkanir gætu orðið ef stríðið dregst á langinn. Innlent 9.3.2026 12:14
Mærsk stýrir hjá átakasvæðinu Eitt af stærstu skipaflutningafyrirtækjum heims, Mærsk, hefur um sinn stöðvað allar skipaferðir um Hormússund utan stranda Íran. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu danska skipafélagsins. Viðskipti erlent 1.3.2026 15:29
Íranar reyndu að stöðva danskt olíuflutningaskip Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi. Erlent 3.2.2026 16:58
Grinch siglt til hafnar í Marseille Franskir saksóknarar eru að rannsaka olíuflutningaskip sem stöðvað var á Miðjarðarhafinu í gær. Skipið, sem ber nafnið Grinch er talið tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ sem notaður er til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum. Áhlaupið í gær var í fyrsta sinn Evrópuþjóð stöðvar skip á siglingu með þessum hætti og tekur stjórn á því. Erlent 23.1.2026 16:23
Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Franskir hermenn gerðu í dag áhlaup um borð í olíuflutningaskip sem talið er tilheyra Skuggaflota Rússlands. Skipið var undan ströndum Spánar á Miðjarðarhafinu þegar hermennirnir fóru um borð en það var vegna gruns um að skipið væri ekki skráð löglega og mun sá grunur hafa reynst réttur. Erlent 22.1.2026 15:56
Ítalir lögðu hald á skip frá Rússlandi Yfirvöld á Ítalíu hafa stöðvað og lagt hald á flutningaskip sem notað var til að flytja 33 þúsund tonn af járnmálmum frá Rússlandi. Það er gegn refsiaðgerðum sem Evrópusambandið hefur beitt Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 17.1.2026 13:50
Tóku enn eitt skipið Bandarískir landgönguliðar og sjóliðar í Strandgæslu Bandaríkjanna gerðu í morgun áhlaup um borð í olíuflutningaskip. Þetta er í sjötta skipti sem vitað er til þess að Bandaríkjamenn taki yfir stjórn olíuflutningaskips sem bendlað hefur verið við Venesúela. Erlent 15.1.2026 14:05
Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Yfirvöld í Bretlandi eru sögð undirbúa það að senda sérsveitir um borð í olíuflutningaskip og önnur skip sem tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Ráðamenn munu hafa fundið lög sem hægt sé að nota til að leggja hald á skipin, sem ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum. Erlent 13.1.2026 13:31
Tóku fimmta olíuskipið: Svona virkar „skuggaflotinn“ Bandarískir hermenn tóku í morgun yfir stjórn olíuflutningaskipsins Olina á Karíbahafinu. Skipið er sagt bera olíu frá Venesúela og mun því hafa verið siglt undir fölsku flaggi. Þetta er fimmta skipið tengt Venesúela sem Bandaríkjamenn taka yfir á nokkrum vikum. Erlent 9.1.2026 14:16
Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Ólafur Orri Ólafsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri samstæðu Samskipa og tekur við keflinu af Kari-Pekka Laaksonen, sem gengt hefur starfinu frá árinu 2019. Ólafur Orri er sonur hjónanna Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, sem eru langstærstu eigendur Samskipa. Viðskipti innlent 8.1.2026 11:48
Gerðu áhlaup á rússneskt skuggaskip í efnahagslögsögu Íslands Olíuskipi sem elt var af yfirvöldum í Bandaríkjunum og Rússar hafa sent herskip til móts við, var í nótt siglt inn í efnahagslögsögu Íslands. Skipið var alltaf á alþjóðlegu hafsvæði, þó það hafi verið rétt innan efnahagslögsögunnar. Erlent 7.1.2026 10:27
Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Sænskir löggæslumenn fóru í nótt um borð í rússneska skipið Adler. Það var gert í kjölfar þess að áhöfn skipsins varpaði ankerum undan ströndum Hauganes á Skáni í gær, vegna vélarbilunar. Rússar eru taldir nota skipið til flytja vopn, í trássi við refsiaðgerðir gegn ríkinu. Erlent 21.12.2025 13:58
Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Ekki var notast við langdræga sjálfsprengidróna við árásina. Þess í stað var notast við skammdrægri dróna sem notaðir eru til að varpa sprengjum úr lofti. Bendir það til þess að drónunum hafi verið flogið frá öðru skipi eða landi sem verið var að sigla olíuskipinu framhjá. Erlent 19.12.2025 12:00
Selfoss stöðvaður í Bretlandi Flutningaskipið Selfoss var stöðvað af hafnarríkiseftirliti í Bretlandi á dögunum. Þar gerðu eftirlitsmenn athugasemdir við búnað um borð í skipinu. Innlent 18.12.2025 16:28
Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Alcoa Fjarðaál sf. hefur stefnt Eimskipafélagi Íslands að nýju vegna meints tjóns félagsins af völdum samráðs Eimskipa og Samskipa á árunum 2008 til 2013. Viðskipti innlent 17.12.2025 14:06
Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar Bandaríkjaher tilkynnti í gær að hann hefði myrt átta manns um borð í þremur bátum á alþjóðlegu hafsvæði á austanverðu Kyrrahafi. Hátt í hundrað manns hafa nú verið teknir af lífi utan dóms og laga með þessum hætti í árásum Bandaríkjamanna. Erlent 16.12.2025 08:52
Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Flutningaskipið Selfoss var dregið til hafnar á Hjaltlandseyjum á dögunum eftir að bilun kom upp í aðalvél þess. Bilunin varð á sunnudaginn þegar skipið var á leið frá Danmörku til Færeyja og var skipið í kjölfarið dregið til hafnar í Leirvík. Innlent 10.12.2025 15:50
Hútar hættir árásum á skip og Ísrael Leiðtogar Húta í Jemen hafa gefið til kynna að þeir séu hættir árásum á bæði Ísrael og fraktskip á Rauðahafi. Er það vegna óstöðugs vopnahlés á Gasaströndinni, samkvæmt bréfi sem Qassam stórfylkin, hernaðarvængur Hamas, birti nýverið. Erlent 11.11.2025 14:56
Bandarískir erindrekar hótuðu evrópskum kollegum sínum Samningamenn frá Evrópusambandinu eru sagðir slegnir eftir að bandarískir kollegar þeirra hótuðu að refsa þeim og fjölskyldum þeirra persónulega ef þeir greiddu ekki atkvæði gegn loftslagsaðgerðum í skipasiglingum. Þeir segjast aldrei hafa upplifað annað eins í alþjóðlegum samningaviðræðum. Erlent 3.11.2025 09:19
Sakaðir um blekkingar vegna skipaganganna Norski forsætisráðherrann Jonas Gahr Støre og aðrir ráðherrar minnihlutastjórnar Verkamannaflokksins eru sakaðir um blekkingar í umræðum um skipagöngin við Stað í aðdraganda þingkosninganna í Noregi þann 8. september síðastliðinn. Ásakanirnar koma meðal annars frá formanni nánasta samstarfsflokks Verkamannaflokksins á síðasta kjörtímabili. Erlent 25.10.2025 08:29
Gengi Eimskips lækkar vegna bilunarinnar Bilun hjá Norðuráli á Grundartanga, sem veldur því að framleiðsla dregst saman um tvo þriðju, mun hafa áhrif á rekstur Eimskips, enda er Norðurál einn stærsti viðskiptavinur skipafélagsins. Gengi hlutabréfa félagsins hefur lækkað hressilega frá opnun markaða í dag. Viðskipti innlent 22.10.2025 11:26
Stórþingið niðurlægir Støre og opnar aftur á skipagöng Norska Stórþingið sló á puttana á forsætisráðherranum Jonas Gahr Støre í fyrradag vegna ákvörðunar hans í síðustu viku um að hætta við gerð skipaganganna við Stað. Í stað þess að göngin umdeildu yrðu endanlega slegin út af borðinu, eins og ríkisstjórnin vildi, náðist meirihluti í þinginu fyrir tillögu sem heldur voninni um göngin á lífi. Erlent 16.10.2025 11:01
Norska ríkisstjórnin slær skipagöngin út af borðinu Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, tilkynnti í dag að hætt hefði verið við skipagöngin við Stað. Engin framlög yrðu í fjárlagafrumvarpi næsta árs til skipaganganna. Erlent 10.10.2025 14:21