
Lýtalækningar

Sílíkonbrjóst björguðu lífi konu sem varð fyrir byssuskoti
Kona sem lifði það af að vera skotin í brjóstkassann af návígi er talin hafa lifað skotið af vegna sílíkonbrjóstapúða sem hún var með.

Gerður festist í vítahring brjóstaaðgerða
Gerður Huld Arinbjarnardóttir er þrjátíu ára gömul og rekur fyrirtækið blush.is. Gerður hefur vakið mikla eftirtekt á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún talar opinskátt reynslu sína af fegrunaraðgerðum og fylgikvillum þeirra.

Árið hefur farið í bið eftir uppbyggingu á brjóstum
Konur sem greinast með brakkagenið þurfa oft að bíða mánuðum saman eftir viðtölum og aðgerðum. Varaformaður Brakkasamtakanna segir dæmi um að aðgerðum sé jafnvel frestað kvöldið áður. Konur utan af landi eru í sérstaklega erfiðri stöðu.

Heiðar Austmann pælir ekki í hvað öðrum finnst
"Ég fór í meðferð sem heitir á fræðimálinu Tear through en í stuttu máli er þessi meðferð til þess fallin að minnka djúpar andlitslínur og gera mann ferskari í útliti.“

Grunaði aldrei að einkennin mætti rekja til brjóstapúðanna
Dóra Björnsdóttir Stephensen ljósmóðir hafði síðustu ár upplifað ýmsa líkamlega kvilla sem erfitt var að finna ástæðu fyrir, orsökin reyndist vera brjóstapúðar.

Fékk sjálfsofnæmi vegna brjóstapúða: Tók mörg ár að finna rót vandans
Hún segist óska þess að geta sagt ungu sér að sú ákvörðun væri óþarfi enda átti hún eftir að draga töluverðan dilk á eftir sér.

Brynjar sér ekki eftir lýtaaðgerðinni og hefði aldrei reynt að fela það
Þeir Aron Kristinn Jónasson og Brynjar Barkarson mynda saman sveitina ClubDub en hún sló rækilega í gegn síðasta sumar.

Viktor hefur farið í ótal fegrunaraðgerðir: „Þessi neikvæða gagnrýni er verst frá öðrum hommum“
Viktor Andersen er 29 ára gamall, fæddur og uppalinn á Seyðisfirði en hefur undanfarin ár búið í Reykjavík. Viktor útskrifaðist með BA gráðu í miðlun og almannatengslum árið 2018 og starfar sem samskipta – og markaðsstjóri Lunga hátíðarinnar.

Myndin af mömmu
Magnea Guðný Stefánsdóttir fór í einfalda lýtaaðgerð stuttu fyrir sextugsafmælið sitt. Þegar hún vaknaði eftir aðgerðina hafði eitthvað brostið innra með henni. Fjórtán mánuðum síðar batt hún enda á líf sitt.

Stórt skref í París fyrir 204 íslenskar konur
Hæstiréttur Frakkland kvað klukkan 14 upp dóm í PIP-sílikonmálinu svokallaða. 204 íslenskar konur eru hluti af málsókn níu þúsund kvenna á hendur þýska eftirlitsfyrirtækinu TÜV Rheinland.

Íslenskar konur fá bætur vegna PIP-púðanna
Hátt í 200 íslenskar konur sem stefndu eftirlitsfyrirtækinu TUV Rheinland vegna PIP-brjóstapúðanna voru í dag greiddar um þrjú þúsund evrur í skaðabætur, tæplega 400 þúsund krónur

Margt óljóst varðandi rétt þeirra sem fara í fegrunaraðgerðir
Tvö hundruð og fjórar íslenskar konur bíða þess að mál þeirra gegn TÜV Rheinland, sem sá um eftirlit með framleiðslu á PIP brjóstapúðunum, verði tekið fyrir í Frakklandi.

140 íslenskar konur í mál vegna brjóstapúðanna
Konurnar taka þátt í hópmálsókn gegn þýska fyrirtækinu TÜV Reihnland sem bar ábyrgð á eftirliti með PIP brjóstapúðum. Málið var dómtekið í Frakklandi í dag. Þær eru meðal nokkur hundruð annarra kvenna víða úr heiminum sem eru einnig þátttakendur í málsókninni.

Íslenskar konur geta átt von á skaðabótum vegna PIP-brjóstapúða
Franskur lögfræðingur vill safna saman íslenskum konum í mál gegn eftirlitsaðila PIP púðanna.

Vissi ekki að PIP púðarnir væru svikin vara
Fjölskipaður héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að vísa bæri frá öllum kröfum konu sem stefndi Jens Kjartanssyni lýtalækni.

Konurnar hafa ekki allar efni á aðgerð
Ekki hafa allar þær konur sem eru með PIP-púða í brjóstum sínum efni á því að láta fjarlægja púðana á Landspítalanum. Þetta segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lögfræðingur kvennanna.

Segir umræðuna hafa snúist upp í ofsóknir gegn Jens
Ottó Guðjónsson, formaður Félags íslenskra lýtalækna, segir umræðuna um iðnaðarsílikon í brjóstum íslenskra kvenna hér á landi, hafa snúist upp í ofsóknir gegn Jens Kjartansson lýtalækni.

VIll að PIP fyllingarnar verði fjarlægðar úr öllum konum
Geir Gunnlaugsson landlæknir telur ráðlegt að PIP brjóstafyllingar verði fjarlægðar úr öllum konum sem þær bera.

Skipuleggur herferð gegn PIP eftir að púðinn rofnaði
Bresk leikkona skipuleggur nú herferð gegn framleiðendum PIP brjóstapúðana eftir að hennar eigin ígræðslur rifnuðu.

Sílikonbrjóstin farin að leka: "Maður er náttúrulega hræddur"
Kona með PIP-sílíkonfyllingar fékk í gær staðfest að sílíkonið væri farið að leka um líkamann. Frá því fregnir bárust af mögulegri skaðsemi fyllinganna hefur hún hvergi fengið að panta tíma í ómskoðun, en með hörku fékk hún loks að fara í skoðun.

550 sílíkonaðgerðir á ári
Árlega láta að minnsta kosti 550 konur hér á landi stækka á sér brjóstin eða endurnýja gamlar sílíkonfyllingar. Er þessi fjöldi miðaður við síðustu þrjú ár. Hlutfall endurnýjana getur verið allt að fjórðungur af heildartölunni, en oftast er mælst til þess að púðar séu endurnýjaðir á fimm til tíu ára fresti. Brjóstastækkun kostar á bilinu 400 til rúmlega 520 þúsund krónur.

Helmingur lýtalækna svaraði ekki
Helmingur þeirra lýtalækna sem landlæknisembættið krafði upplýsinga um brjóstastækkanir hefur ekki svarað formlega. Frestur til svara rann út 13. janúar síðastliðinn.

Lekir PIP púðar fjarlægðir - ríkið borgar
Konur sem fengu ígrædda PIP-brjóstapúða á árunum 2000 - 2010 og eru sjúkratryggðar hér á landi munu fá bréf á næstu dögum þar sem þeim verður boðið að koma sér að kostnaðarlausu í ómskoðun á brjóstum til að kanna ástand púðanna. Reynist púðar lekir tekur ríkið þátt í kostnaði við að fjarlægja þá samkvæmt almennum reglum um greiðsluþátttöku hins opinbera vegna aðgerða. Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kynnti aðgerðaáætlun heilbrigðisyfirvalda vegna þessa máls á fundi ríkisstjórnar í dag.

Grunar að sílikonbrjóstin séu farin að leka
Kolbrún Jónsdóttir hefur greitt hálfa aðra milljón fyrir sílíkonpúða og aðgerðir á brjóstum. Hún er núna með sílíkonpúða frá PIP. Undanfarið hálft ár hefur hún fundið fyrir miklum verkjum og grunar að sílíkonið sé farið að leka.

Konur með sílikon hvattar til þess að hafa samband við skurðlækni
Lyfjastofnun ráðleggur íslenskum konum, sem fengið hafa sílikonfyllta brjóstapúða, að hafa samráð við sinn skurðlækni, hafi þær áhyggjur eða finna fyrir eymslum í brjóstum.