Barnalán

Lína Móey nýtti tækifærið við skírn og bað Sigurðar
Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf., og Sigurður Karlsson framkvæmdastjóri Ilva eru trúlofuð. Hringur fór á fingur á sama tíma og mánaðargömul dóttir þeirra fékk nafn um miðjan mánuðinn.

Aron og Rita eiga von á barni
Aron Pálmarsson, handboltakappi og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins, Rita Stevens, kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni saman.

„Mér leið eins og ég gæti sigrað heiminn“
Athafnakonan Alexandra Helga Ívarsdóttir trúði ekki eigin augum þegar hún fékk jákvætt þungunarpróf eftir hún og eiginmaður hennar, Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður, höfðu reynt að eignast barn í sex ár. Loksins kom lítil stúlka.

Anníe Mist ólétt
CrossFit-kempan Anníe Mist Þórisdóttir er ólétt af öðru barni sínu. Hún greindi frá tíðindunum á Instagram.

Þórdís og Júlí eiga von á barni
Listaparið Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Júlí Heiðar Halldórsson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Fyrir eiga þau hvort sinn soninn frá fyrri samböndum.

Kolbrún Þöll og Ísak eignuðust stúlku
Fimleikadrottningin Kolbrún Þöll Þorradóttir og Ísak Óli Helgason eignuðust stúlku síðastliðinn þriðjudag, 17. október.

Fjölskylda Fjallsins stækkar loksins eftir þrjú ár af vonbrigðum
Kraftajötuninn Hafþór Júlíus Björnsson og eiginkona hans Kelsey Henson eiga von á sínu öðru barni saman. Aflraunamaðurinn greinir frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram. Hjónin hafa verið opinská með það á samfélagsmiðlum hve erfitt það hefur verið þeim að eignast börn.

Tilkynnti eiginmanninum óléttuna í Brekkunni í Eyjum
Hjónin og eigendur heilsustaðarins Maikai, Elísabet Metta Ásgeirsdóttir og Ágúst Freyr Hallsson, betur þekktur sem Áki, eiga von á sínu öðru barni í byrjun næsta árs. Fyrir eiga þau Viktor, fimm ára.

„Mér leið eins og ofurhetju“
Vinirnir og tónlistarmennirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson eignuðust tvö börn með tæplega tveggja ára millibili. Óðinn Örn tveggja ára og Stellu Katrínu sem fæddist fyrr í sumar.

„Það er í lagi að líkami þinn beri sögu um barnsburð“
Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og áhrifavaldur, hvetur konur sem eiga erfitt með að sætta sig við útlit líkamans eftir barnsburð til að bera sig ekki saman við kynsystur sínar heldur einblína á sjálfa sig.

Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni
Elísa og Elís eiga von á sínu fyrsta barni á næsta ári. Parið hefur verið trúlofað frá því um jólin 2021.

Óborganlegt upphaf steypiboðs Berglindar Bjargar
Berglind Björg Þorvaldsdóttir hrökk í kút með óborganlegum hætti þegar vinkonur hennar komu henni á óvart með steypiboði í dag. Uppákoman náðist sem betur fer á myndband fyrir þá sem hafa gaman af því að hlæja.

Magnaðar mæður
Birtingarmynd móðurhlutverksins er fjölbreytt og flókin. Þar má nefna nýbakaðar mæður margra barna mæður, stjúpmæður, einstæðar mæður og verðandi mæður, svo fátt eitt sé nefnt.

„Enginn svefn í 365 nætur“
Athafnakonan og tískudrottningin Elísabet Gunnarsdóttir fagnaði eins árs afmæli yngstu dóttur hennar og Gunnars Steins Jónssonar handboltakappa, Önnu Magdalenu, í gær. Hún segir árið hafa einkennst af miklu svefnleysi.

Stækka við sig og eiga von á barni
Lögmaðurinn og fyrrum fjölmiðlamaðurinn Þorbjörn Þórðarson og eiginkona hans Ása Dagmar Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Útlendingastofnun, hafa sett glæsilega íbúð sína við Hlíðarenda til sölu. Ásett verð fyrir eignina eru 79,9 milljónir.

Birkir Bjarna og Sophie Gordon eiga von á barni
Knattspyrnumaðurinn Birkir Bjarnason og franska fyrirsætan Sophie Gordon eiga von á barni saman. Parið tilkynnir þetta með pompi og prakt á samfélagsmiðlinum Instagram.

Andrés og Ása Laufey eignuðust stelpu
Ríkidæmi hjónanna Andrésar Jónssonar almannatengils hjá Góðum samskiptum og Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur prests meðal innflytjenda er orðið risastórt. Fjölgað hefur í fjölskyldunni.

Saga Garðars blómleg á uppistandi: „Það er nýtt barn á leiðinni“
Leikkonan og grínistinn Saga Garðarsdóttir og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason eiga von á sínu öðru barni í lok árs.

Tveggja barna faðir aðeins 25 ára
Jakob Birgisson skemmtikraftur og handritshöfundur og Sólveig Einarsdóttir, eignuðust stúlku 26. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur verið nefnd Sigríður.

„Bráðum verðum við fjögur“
Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Thelma Dögg Guðmundsen og Kristinn Logi Sigmarsson eiga von á sínu öðru barni.

Bjarki Már og Unnur Ósk orðin tveggja barna foreldrar
Handboltakppinn Bjarki Már Elísson og kærasta hans, Unnur Ósk Steinþórsdóttir eignuðust stúlku 14. september, sem hefur verið nefnd Milla.

Stjörnulífið: Þyrla og legkaka í kynjaveislum helgarinnar
Haustið er sannarlega komið og heiðraði landsmenn rigningu og hvassviðri síðastliðna daga. Stjörnur landsins létu veðrið ekki stoppa sig og tóku meðal annars þátt í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk á laugardag. Þá fór fram vel heppnað fjáröflunarkvöld og kyn barna voru afhjúpuð með frumlegum hætti.

Tilkynntu kyn barnsins með þyrlu
Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu kynjaveislu í kvöld þar sem þau greindu frá kyni ófædds barns síns með því að láta þyrlu dreifa bláum reyk úr lofti. Ef marka má bláan litinn á parið von á dreng.

Jafna út leikinn með öðru barni
Knattspyrnuparið Elísa Viðarsdóttir og Rasmus Christiansen eiga von á sínu öðru barni. Elísa greindi frá gleðitíðindunum á samfélagsmiðlum í gær.

Stebbi Hilmars orðinn afi
Birgir Steinn Stefánsson, tónlistarmaður og flugþjónn, og unnusta hans Rakel Sigurðardóttir eignuðust son 28. ágúst síðastliðinn. Um er að ræða fyrsta barn parsins.

Margrét Lára og Einar eignuðust stúlku: „Stjarnan okkar skærasta“
Margrét Lára Viðarsdóttir, sálfræðingur, knattspyrnusérfræðingur og fyrrverandi landsliðskona og Einar Örn Guðmundsson, sjúkraþjálfari og fyrrverandi handboltamaður eignuðust dóttur 26. ágúst síðastliðinn.

„Það er okkar einlægi vilji að gera betur“
Yfirlæknir Livio segir reynslusögur kvenna af slæmri þjónustu fyrirtækisins teknar alvarlega og að þær verði notaðar sem hvati til að gera betur. Meðferðirnar séu krefjandi og oftar en ekki þurfi að endurtaka þær.

Dóttir Hildar og Jóns komin með nafn
Yngsta dóttir Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jóns Skaftason, stjórnarformanns Sýnar, er komin með nafn. Stúlkan heitir Hólmfríður Áslaug.

Hlaupaparið á von á tvíburum
Fyrrverandi afrekshlauparinn Kári Steinn Karlsson og eiginkona hans Aldís Arnardóttir, yfirmaður verslunarsviðs 66° Norðurs, eiga von á eineggja tvíburum í byrjun næsta árs.

Annað barn Rihönnu og A$AP komið í heiminn
Annað barn söngkounnar Rihönnu og rapparans A$AP Rocky er komið í heiminn samkvæmt heimildum slúðurblaða vestanhafs.