Íslandsbanki
1 2 3 4 5 6 7 8 … 13 ›
Hundrað þúsund kall á haus Íslandsbanki kemur til með að gefa öllum starfsmönnum sínum 100 þúsund króna sumargjöf. Um 700 manns starfa hjá bankanum, og því er um 70 milljóna króna útgjöld fyrir bankann að ræða. Viðskipti innlent 26.3.2024 22:55
Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í mars 2024, hækkar um 0,80 prósent frá fyrri mánuði. Verðbólga er 6,8 prósent og hækkar um 0,1 prósentustig milli mánaða. Hagfræðingur kennir húsnæðisliðnum um. Viðskipti innlent 26.3.2024 12:15
Íslandsbanki gerði tilboð í TM með fyrirvara um hækkun hlutafjár Þegar Íslandsbanki gerði skuldbindandi tilboð í TM þá var það meðal annars gert með því skilyrði að hluthafar, þar sem ríkissjóður er langsamlega stærstur, myndu samþykkja í kjölfarið að hækka hlutafé bankans til að standa undir kaupverðinu. Viðskiptin hefðu verið stærri í hlutfalli við eigin fé bankans borið saman við Landsbankann sem var með enga fyrirvara um samþykki hluthafafundar þegar tilboðið hans var samþykkt. Innherji 22.3.2024 18:53
Tilboð Íslandsbanka í TM var með fyrirvara um samþykki hluthafafundar Tilboð Íslandsbanka, sem er að minnihluta í eigu ríkissjóðs, í allt hlutafé TM var meðal annars háð því skilyrði að kaupin yrðu í kjölfarið samþykkt af hluthöfum bankans. Því var hins vegar ekki fyrir að fara hjá Landsbankanum þegar fallist var á skuldbindandi tilboð hans upp á samtals nálægt 30 milljarða króna í tryggingafélagið. Innherji 20.3.2024 17:00
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. Innherji 19.3.2024 15:03
Frumvarp um sölu á restinni af Íslandsbanka komið fram Frumvarp fjármálaráðherra um sölu á því sem eftir er af eign ríkisins í Íslandsbanka var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun. Gert er ráð fyrir því af hlutirnir verði seldir almenningi í tveimur áföngum á þessu ári og næsta. Innlent 19.3.2024 13:56
Jákvætt að klára sölu á ISB enda þurfi ríkið á peningunum að halda núna Það er „jákvætt“ að stjórnvöld stefni að því að ljúka við sölu á eignarhlut sínum í Íslandsbanka, að mati seðlabankastjóra, sem telur erfitt fyrir ríkið að vera minnihlutaeigandi í einkabanka. Fjármálaráðherra áformar að selja eftirstandandi hlut ríkissjóðs, sem er núna yfir 90 milljarðar að markaðsvirði, með almennu markaðssettu útboði sem verður sennilega gert í tveimur skrefum. Innherji 15.3.2024 11:41
Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Íslandsbanki spáir því að ársverðbólga verði um 6,5 prósent í mars og lækki örlítið á milli mánaða. Landsbankinn spáir því að ársverðbólga verði óbreytt 6,6 prósent í mars. Greinendur beggja banka eiga von á því að verðbólgan hjaðni rólega næstu mánuði og verði um 5,4-5,3 prósent um mitt ár. Bankarnir birtu báðir spár sínar í dag. Viðskipti innlent 14.3.2024 16:54
Spá 25 punkta lækkun stýrivaxta Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,25 prósentustig þegar næsta vaxtaákvörðun verður kynnt á miðvikudaginn í næstu viku. Nokkrar líkur séu einnig á að vöxtum verði haldið óbreyttum fram í maí. Viðskipti innlent 12.3.2024 12:54
Sala á Íslandsbanka myndi auka líkur á uppfærslu hjá vísitölufyrirtækjum Verði af áformum stjórnvalda um að hefja að nýju söluferli á hlutum ríkisins í Íslandsbanka ætti það að hjálpa íslenska hlutabréfamarkaðinum við að færast hærra upp í gæðaflokkunarstiga hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn Kauphallarinnar. Stjórnendur hennar viðurkenna að almennt útboð við söluna, eins og lagt er til í þetta sinn, sé „flóknara í framkvæmd“ heldur en tilboðsfyrirkomulag en hafi á móti þann kost að auka frekar þátttöku almennings í hlutabréfaviðskiptum. Innherji 7.3.2024 12:18
Kass heyrir sögunni til Stjórnendur Íslandsbanka hafa ákveðið að loka appinu Kass eftir átta „ánægjuleg og lærdómsrík ár“. Það var fyrst tekið í notkun í byrjun árs 2016, en það er í eigu Íslandsbanka og þróað í samstarfi við Memento. Viðskipti innlent 7.3.2024 11:01
Árslaun stjórnarformanna bankanna hlupu á tugum milljóna Stjórnarformenn Íslandsbanka, Kviku banka, Arion banka og Landsbanka voru með á bilinu 1,1 til 2,2 milljónir króna í mánaðarlaun fyrir að gegna starfi stjórnarformanns. Öll sinna þau öðrum störfum samhliða formannssetunni Viðskipti innlent 7.3.2024 08:22
Bankar veita „skjól á tvísýnum tímum“ og verðmat Íslandsbanka hækkar Viðskiptabankar veita skjól á tvísýnum tímum, segir í hlutabréfagreiningu þar sem verðmat Íslandsbanka hækkar um 18 prósent frá síðasta mati. Verðmatið er 39 prósentum hærra en markaðsgengi. Innherji 5.3.2024 16:30
Hyggjast breyta banka í ráðhús Norðurþing hefur gert tilboð í gömlu húsakynni Íslandsbanka á Húsavík og ætlar að breyta því í ráðhús. Mygla fannst í stjórnsýsluhúsinu og hentugra þykir að flytja starfsemina. Innlent 29.2.2024 19:08
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. Innherji 26.2.2024 17:58
Vill heimild til að selja Íslandsbanka í útboði með áherslu á almenning Drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði og að sala til einstaklinga hafi forgang. Viðskipti innlent 22.2.2024 16:59
Hagnaður Íslandsbanka 24,6 milljarðar á síðasta ári Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 6,2 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi 2023. Hagnaður af rekstri bankans nam því 24,6 milljarðar króna á síðasta ári. Stjórn Íslandsbanka mun leggja til 12,3 milljarða króna arðgreiðslu við aðalfund bankans í mars. Viðskipti innlent 9.2.2024 07:57
Bjarni segir ekki hafa verið gerlegt að kanna hæfi hans gagnvart kaupendum Þingflokksformaður Pírata segir Bjarna Benediktsson fyrrverandi fjármálaráðherra reyna að kenna Alþingi um hans eingin mistök við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka fyrir tæpum tveimur árum. Bjarni segir að gengið hafi verið út frá því að hann þyrfti ekki að kanna hæfi sitt gagnvart hverjum og einum kaupanda í bankanum. Innlent 31.1.2024 19:20
Um hagnað bankanna Í hönd fer senn uppgjörstímabil skráðra félaga. Jafnan verður það tilefni til umræðu um afkomu banka líkt og annarra fyrirtækja. Skoðun 31.1.2024 15:01
Bjarni hafi verið með útúrsnúninga og stæla á nefndarfundi Bjarni Benediktsson segir hafa verið ómögulegt að gæta að almennum hæfisreglum við sölu á hlut í Íslandsbanka í mars í hitteðfyrra gagnvart hverjum og einum kaupanda. Þingflokksformaður Pírata segir ráðherrann hafa verið með útúrsnúninga og stæla á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í morgun. Innlent 31.1.2024 12:02
Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári Spáð er 1,9 prósent hagvexti á árinu 2024 í þjóðhagsspá Íslandsbanka. Markar þetta hagsveifluskil og er tiltölulega hægur vöxtur í sögulegu tilliti. Hægfara vaxtalækkunarferli gæti hafist á miðju ári. Viðskipti innlent 31.1.2024 09:14
Bein útsending: Bjarni til svara um Bankasýsluna og bankasöluna Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd heldur opinn fund klukkan 9:15 þar sem til umræðu verður upplýsingagjöf til ráðherra um stöðu Bankasýslu ríkisins sem sjálfstæðrar stofnunar og um framkvæmd hæfisreglna stjórnsýsluréttar við undirbúning að sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka 22. mars 2022. Innlent 31.1.2024 08:46
Snýr aftur eftir stutt stopp hjá Laufinu Íslandsbanki hefur ráðið Brynjólf Bjarnason í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Brynjólfur, sem hefur áratugareynslu af störfum í fjármálageiranum, kemur nú aftur til liðs við Íslandsbanka eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra hjá Laufinu frá því í fyrra. Viðskipti innlent 29.1.2024 17:42
Við sjáum fyrir endann á sveiflunum Í upphafi síðasta árs horfðum við björtum augum á verðbréfamarkaðina. Við vonuðum að vaxtahækkanir væri langt komnar og að eftir þungt ár á verðbréfamörkuðum biðu okkar betri tímar. Næstu mánuðir buðu aftur á móti upp á áframhaldandi þyngsli. Skoðun 24.1.2024 12:31
Dropp stal efsta sætinu af bensíninu hjá Costco Póstþjónustufyrirtækið Dropp er sigurvegari Íslensku ánægjuvogarinnar 2023. Fyrirtækið fékk hæstu einkunnina frá neytendum eða 83,9. Íslandsbanki hlaut lægstu einkunn ársins 53,9. Neytendur 19.1.2024 09:31
Framlengja úrræði vegna húsnæðislána Grindvíkinga Íslandsbanki mun framlengja það úrræði sem Grindvíkingum hefur staðið til boða um frystingu húsnæðislána og fella niður vextir og verðbætur af húsnæðislánum. Viðskipti innlent 18.1.2024 08:26
Vænta óbreyttrar arðsemi nú þegar vöxtur í vaxtatekjum banka gefur eftir Útlit er fyrir að litlar breytingar verði á arðsemi stóru bankanna á markaði þegar þeir birta uppgjör sín fyrir síðasta fjórðung ársins 2023 sem mun litast af því að ekki er lengur fyrir að fara miklum vexti í vaxtatekjum – þær gætu dregist saman hjá Íslandsbanka í fyrsta sinn í þrjú ár – og áframhaldandi niðurfærslur lánasafna hafa áhrif á afkomuna. Tekjur af kjarnarekstri Arion banka ættu samt að aukast lítillega milli ára á meðan viðsnúningur í fjármunatekjum ýtir Íslandsbanka upp fyrir arðsemismarkmið sitt, gangi spár hlutabréfagreinenda eftir. Innherji 17.1.2024 13:31
Hækkar vexti verðtryggðra lána Íslandsbanki hefur tilkynnt um breytingar á vöxtum inn-og útlána. Breytingarnar taka gildi þriðjudaginn 16. janúar. Viðskipti innlent 12.1.2024 15:49
Spá því að ársverðbólga verði 5,9 prósent í apríl Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að verðbólga haldi áfram að hjaðna og verði komin í sex prósent í apríl. En til að það gerist þarf íbúðamarkaður „að vera til friðs“ og krónan að haldast stöðug. Þetta kemur fram í nýjustu spá deildarinnar sem birt var í dag. Viðskipti innlent 11.1.2024 11:16
Taka ekki lengur við dönskum seðlum Frá og með áramótum hætti Íslandsbanki að taka á móti seðlum í dönskum krónum. Viðskipti innlent 4.1.2024 10:14