Íslandsbanki „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
„Stjórnin á bankanum er óásættanleg að mínu mati“ Stjórnendur Íslandsbanka brugðust trausti þjóðarinnar algjörlega við sölu bankans á hlutum í eigu ríkisins og stjórn bankans er óáættanleg að mati viðskiptaráðherra. Alvarleg og kerfislæg brot Íslandsbanka við sölu bankans eru dregin fram í skýrslu Fjármálaeftirlits Seðlabankans um sátt sem gerð var á dögunum vegna sölunnar en birt var í morgun. Innlent 26.6.2023 12:22
Samþykktu allar beiðnir starfsmanna um að taka þátt í útboðinu Regluvarsla Íslandsbanka samþykkti allar beiðnir starfsmanna um þátttöku í útboði á hlut ríkisins í bankanum í fyrra þrátt fyrir að aðeins fjórir starfsmenn og einn tengdur aðili væri flokkaður sem fagfjárfestar þegar útboðið hófst. Fjármálaeftirlitið telur þátttöku starfsmanna hafa skapað fjölmarga hagsmunaárekstra. Viðskipti innlent 26.6.2023 11:45
Reglur um hljóðupptökur viðvarandi vandamál hjá Íslandsbanka Í sátt um greiðslu sektar Íslandsbanka vegna sölunnar á hlut ríkisins í bankanum kemur fram að bankinn hafi brotið ákvæði laga um markaði fyrir fjármálagerninga, með því að skrá ekki og varðveita símtalsupptökur vegna 162 símtala sem starfsmenn hans áttu í tengslum við útboðið. Viðskipti innlent 26.6.2023 11:39
Háttsemi ISB haft „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika“ fjármálamarkaða Stjórn og bankastjóri Íslandsbanka sýndi af sér „athafnaleysi vegna viðvarandi annmarka“ á skráningu og varðveislu símtala þegar hann seldi hluti ríkisins í sjálfum sér auk þess sem stjórnarhættir bankans bera „vott um skort á áhættuvitund,“ að mati fjármálaeftirlits Seðlabankans. Eftirlitið telur brot Íslandsbanka benda til „veikleika í innra eftirlitskerfi“ hans og að háttsemin sé til þess fallin að hafa „skaðleg áhrif á traust og trúverðugleika fjármálamarkaða.“ Innherji 26.6.2023 09:59
Segir það ekki Íslandsbanka að birta sáttina Birting sáttar sem Íslandsbanki gerði við Fjármálaeftirlitið strandar ekki á undirskrift stjórnenda bankans samkvæmt svörum frá samskiptastjóra. Skrifað var undir sáttina í gær og verður hún væntanlega gerð opinber á morgun. Þá skýrist meðal annars hvort kaup eiginmanns samskiptastjóra í bankanum hafi verið lögleg. Innlent 25.6.2023 14:47
Skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sáttina í dag Menningar- og viðskiptaráðherra skorar á stjórnendur Íslandsbanka að birta sátt sem bankinn gerði við Fjármálaeftirlitið, ekki síðar en í dag. Hún segir framkomu stjórnenda bankans í garð almennings einkennast af virðingarleysi. Innlent 25.6.2023 12:03
Lærlingurinn í Íslandsbanka Fátt er göfugra en þegar fólk viðurkennir mistök sín og iðrast af hjartans einlægni. Nú hefur bankastjóri Íslandsbanka gengið þessa píslargöngu síðustu daga og viðurkennt að hafa gert mistök við sölu á eignarhlut ríkisins í bankanum og jafnvel brotið lög í því ferli. Skoðun 24.6.2023 19:01
„Menn geta ekki lagt á flótta þegar þeir þurfa að svara“ Formaður stjórnskipunar og eftirlitsnefndar segir svör bankastjóra Íslandsbanka varðandi sáttagreiðslu bankans við fjármálaeftirlitið í meira lagi loðin. Hún kallar eftir útskýringum fjármálaráðherra sem beri ábyrgð á málinu og segir ekki eðlilegt að menn leggi á flótta þegar svara er krafist. Bjarni Benediktsson hyggst ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Innlent 24.6.2023 11:42
„Það er enn fullt af spurningum ósvarað“ Kristrún Frostadóttir segir ljóst að ekki var vel staðið að sölu Íslandsbanka. Með niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins sé komin önnur rannsóknin sem sýni að pottur var verulega brotinn í ferlinu. Ríkisstjórnin þurfi að taka forystu í málinu og setja á fót rannsóknarnefnd. Innlent 23.6.2023 22:41
Bankasýslan hafði enga aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins Bankasýsla ríkisins segist ekki hafa haft neina aðkomu að sátt Íslandsbanka og Fjármálaeftirlitsins í tengslum við bankasöluna á síðasta ári. Bankasýslan segist ekki geta brugðist við fréttunum þar sem sáttin hefur ekki verið birt. Innlent 23.6.2023 17:40
Seðlabankinn hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, telur að sektarfjárhæðin, 1.160 milljónir króna, sem bankinn hefur fallist á að greiða vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér, endurspegli það að fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands hafi viljað gefa „ákveðin skilaboð“ út á markaðinn. Innherji 23.6.2023 15:39
Enn þarf að bíða eftir að vaxtahækkanir hemji útlánavöxt bankanna Áfram er mikill þróttur í útlánum banka þrátt fyrir brattar stýrivaxtahækkanir að undanförnu. Hagfræðingur bendir á að tíminn frá því að ákveðið sé að fara af stað í fjárfestingarverkefni og þar til banki láni til þeirra geti verið nokkuð langur. Þess vegna þurfi að bíða aðeins lengur til að sjá hver áhrifin verði af nýlegum vaxtahækkunum. Innherji 23.6.2023 14:01
Bankastjóri íhugar ekki að segja af sér Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, íhugar ekki að segja af sér þrátt fyrir að bankinn hafi gerst sekur um alvarlegt lögbrot og verið gert að greiða 1,16 milljarða króna sekt. Þingmaður segir útskýringar stjórnar bankans tilraun til að afvegaleiða umræðuna. Innlent 23.6.2023 12:27
Sektin „töluvert hærri“ en markaðurinn gerði ráð fyrir Sú sektarfjárhæð sem Íslandsbanki hefur fallist á að greiða upp á 1.160 milljónir vegna brota á lögum og innri reglum félagsins við sölu á hlutum í sjálfum sér er fordæmalaus ef litið er til þeirra sekta sem hafa verið lagðar á eftirlitsskylda aðila þegar málum hefur lokið með sátt við fjármálaeftirlitið. Innherji 23.6.2023 12:19
Íslandsbanki sektaður um rúman milljarð vegna útboðsins Íslandsbanki hefur þegið boð fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands um að ljúka málinu um útboð á hlutum bankans með sátt. Íslandsbanki mun greiða rúman milljarð í sekt vegna alvarlegra brota sem hann gengst við. Þrátt fyrir þetta hækka afkomuspár bankans. Viðskipti innlent 22.6.2023 22:25
Aldrei jafn margir með sparnaðarreikning eins og á síðustu og verstu Óverðtryggður sparnaðarreikningur Íslandsbanka er orðinn sá stærsti á einstaklingssviði bankans. Framkvæmdastjóri einstaklingssviðsins segir verðbólgutíð þar spila stærstan þátt. Aldrei hafi eins margir spáð í sparnað og nú. Neytendur 16.6.2023 07:01
Segir svör Bjarna yfirgengilega ósvífin og ófullnægjandi Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur nú sent frá sér svör við spurningum um hæfi til Umboðsmanns alþingis. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata segir ekki standa stein yfir steini í svörum Bjarna. Innlent 14.6.2023 15:21
Spá talsverðri hjöðnun verðbólgu í júní Íslandsbanki spáir því að verðbólga muni hjaðna hratt á næstu mánuðum og að ársverðbólga muni mælast 8,7 prósent í júnímánuði. Það yrði í fyrsta skipti í heilt ár þar sem ársverðbólgan fer undir níu prósent. Viðskipti innlent 14.6.2023 13:55
„Fýsilegasti kosturinn“ að Kvika selji TM til Íslandsbanka Jakobsson Capital telur líklegt að samrunaviðræður Íslandsbanka og Kviku ljúki þannig að tryggingafélagið TM og Kvika eignastýring, sem greiningarfyrirtækið verðmetur á samtals 57 milljarða króna, verði seld til Íslandsbanka. Á meðan markaðsvirði Kviku er svona lágt þykir greinandanum sala eigna fýsilegasti kosturinn í stöðunni en eftir stæði mjög arðsamt lánasafn. Innherji 9.6.2023 12:16
Verðlagning íslenskra banka leitar í sama horf og norrænna Snörp gengislækkun á undanförnum mánuðum veldur því að markaðsvirði íslenskra banka er nú orðið sambærilegt og bókfært virði eiginfjár. Lækkunin helst í hendur við meðaltalsþróun hjá fimm stærstu bönkum á hinum Norðurlöndunum, að sögn sjóðstjóra, en það má rekja til þess að horfur séu á minni arðsemi, hægari vöxt í vaxtartekjum, meiri kostnaði og aukinnar áhættu í rekstri. Innherji 9.6.2023 08:29
Verðmat Íslandsbanka hækkar þrátt fyrir dekkri horfur í efnahagslífinu Verðmat Íslandsbanka hækkar um átta prósent þrátt fyrir að horfur í efnahagslífinu séu dekkri en við gerð síðasta verðmats. Vaxtamunur bankans hefur aukist en vaxtatekjur eru styrkasta stoð bankarekstrar og helsti virðishvati hans. Vaxtahækkanir Seðlabanka hafa almennt jákvæð áhrif á vaxtamun auk þess sem starfsmenn bankans hafa verið iðnir við að sækja handa honum fé á fjármagnsmarkaði, segir í verðmati. Innherji 27.5.2023 12:01
Erlendir fjárfestar ekki átt stærri hlut í Íslandsbanka frá skráningu Á sama tíma og Capital Group lauk við sölu á eftirstandandi hlutum sínum í Marel fyrr í þessum mánuði hefur bandaríski sjóðastýringarrisinn haldið áfram að stækka við stöðu sína í Íslandsbanka en samanlagður eignarhlutur erlendra sjóða í bankanum er nú farinn að nálgast tíu prósent. Samkvæmt nýju verðmati er bankinn metinn á liðlega 19 prósent yfir núverandi markaðsgengi. Innherji 26.5.2023 15:37
Íslenskir neytendur geti ekki leitað til íslenskra dómstóla Formaður Neytendasamtakanna segir sýknun Íslandsbanka í máli sem karlmaður höfðaði með aðkomu samtakanna gegn Íslandsbanka vera gífurleg vonbrigði. Dómnum verði áfrýjað til Landsréttar en hann bindur annars vonir við að Evrópskir dómstólar taki upp hanskann fyrir neytendur. Neytendur 25.5.2023 21:55
Grunnrekstur Kviku verið á pari eða umfram spár síðustu fjórðunga Hagnaður af grunnrekstri Kviku banka, sem undanskilur fjárfestingastarfsemi TM, var um 40 prósentum yfir áætlunum á fyrsta fjórðungi þessa árs og nam tæplega 1.200 milljónum króna. Að sögn forstjóra félagsins hefur grunnreksturinn gengið vel, sem endurspeglast í sífellt meiri umsvifum, en nýjar upplýsingar sem bankinn hefur birt sýna að hann hefur verið í samræmi við eða umfram spár frá því í ársbyrjun 2022. Innherji 22.5.2023 17:51
Útgáfan endurspeglar varkárni í tvísýnu efnahagsástandi Íslandsbanki ákvað að gefa út almenn skuldabréf í vikunni, þrátt fyrir óhagfellda þróun á skuldabréfamarkaði, í því skyni að byggja upp trú erlendra fjárfesta á bréfum íslenskra banka og til að sýna varkárni á tímum sem litast af viðvarandi markaðssveiflum. Innherji 12.5.2023 09:47
Umbi vill skýrari svör frá Bjarna um Íslandsbankasöluna Skúli Magnússon, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað eftir frekari skýringum af hálfu Bjarna Benediktssonar á hæfi hans en þetta er vegna sölu á 22,5 prósenta hlut ríkisins í Íslandsbanka í mars í fyrra. Innlent 8.5.2023 11:24
Ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu við Kviku Hluti af stefnumótun Íslandsbanka sem samþykkt var í mars var að horfa til vaxtar. Skoða átti tækifæri á sviði trygginga og í eignastýringu. Bankastjóri Íslandsbanka sagði að Kvika ræki tryggingafélag og væri öflugt á sviði eignastýringar. „Það var því ekki erfið ákvörðun að hefja viðræður um sameiningu,“ en Íslandsbanki á ekki tryggingafélag. Innherji 5.5.2023 16:30
Meta stöðu sameinaðs félags og skoða sameiningu nánar í kjölfarið Viðræður um samruna Íslandsbanka og Kviku eru umfangsmiklar. Bæði félög hafa ráðið fjárhagslega ráðgjafa og er unnið að því að meta samlegð af samruna bankanna og í senn meta stöðu sameinaðs félags á markaði. Viðskipti innlent 3.5.2023 20:45
Kristín tekur við fræðslustjórn og Elfa nýr deildarstjóri vörumerkis Íslandsbanka Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Íslandsbanka. Greint var frá því í morgun að Björn Berg Gunnarsson, sem hefur starfað við bankann í sextán ár, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu, hafi látið af störfum. Viðskipti innlent 2.5.2023 14:45
Björn Berg hættir hjá Íslandsbanka Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka, er hættur störfum fyrir bankann. Hann hefur starfað fyrir bankann í sextán ár. Viðskipti innlent 2.5.2023 09:13