Fjármálamarkaðir
2 3 4 5 6 7 8 9 10 … 12 ›
Nær ómöglegt að hætta við kaupin Nær ómögulegt er fyrir Landsbankann að hætta við að kaupa TM að mati dósents við Háskóla Íslands. Hætti bankinn við séu allar líkur á að hann baki sér skaðabótaskyldu. Fjármálafyrirtæki hafi undanfarið keypt tryggingafyrirtæki og því ekkert óeðlilegt við kauptilboðið. Innlent 21.3.2024 21:00
Bauð talsvert betur en Íslandsbanki í baráttunni um að kaupa TM Fjórum mánuðum eftir að Kvika hafði hrundið af stað formlegu söluferli á TM var það ríkisfyrirtækið Landsbankinn, stærsti banki landsins á alla helstu mælikvarða, sem skilaði inn álitlegasta tilboðinu í allt hlutafé tryggingafélagsins – og ætlar sér núna að blása til sóknar þvert á vilja eigandans. Bankinn naut ráðgjafar fyrrverandi forstjóra annars tryggingafélags til margra ára við kaupin og er sagður hafa augljóslega langað mest allra tilboðsgjafa að komast yfir TM. Innherji 19.3.2024 15:03
Teya fjárfestir í framtíð verslunar á Íslandi Þrátt fyrir að hafa verið leiðandi á íslenskum markaði í áratugi hefur Teya haldið sig í skugganum síðustu misseri og lítið farið fyrir fyrirtækinu út á við. Samstarf 19.3.2024 13:41
Tvísýn ákvörðun en markaðurinn veðjar á óbreytta vexti enn um sinn Þrátt fyrir skaplega niðurstöðu í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði vegur þyngra að síðasta verðbólgumæling var slæm, talsvert yfir spám greinenda, og því er erfitt fyrir peningastefnunefnd Seðlabankans að réttlæta á þessari stundu að hefja vaxtalækkunarferlið, að mati meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Aðrir benda á hækkandi raunvaxtastig, skýr merki um kólnun í hagkerfinu og lækkandi verðbólguvæntingar og telja að bankinn muni því fara í varfærna vaxtalækkun í fyrsta sinn frá árslokum 2020. Innherji 18.3.2024 15:04
Verðhækkanir Oculis leiða til 1,4 milljarða hagnaðar hjá Brunni vaxtarsjóði Hagnaður Brunns vaxtarsjóðs, sem meðal annars hefur fjárfest í Oculis, DTE og EpiEndo Pharmaceuticals, jókst verulega á milli ára og nam 1,4 milljörðum króna á árinu 2023. Innherji 16.3.2024 11:01
Ríkið klárar sölu á grænu evrubréfi til tíu ára upp á um 110 milljarða Íslenska ríkið er að klára útgáfu á sínu fyrsta græna skuldabréfi í erlendri mynt til tíu ára upp á 750 milljónir evra, jafnvirði um 110 milljarða íslenskra króna. Margföld umframeftirspurn var á meðal erlendra skuldabréfafjárfesta í útboðinu en skuldabréfaútgáfan er sú fyrsta hjá ríkissjóði á alþjóðlegum mörkuðum frá því snemma árs 2021. Innherji 14.3.2024 14:37
Ríkið að ráðast í fyrstu grænu útgáfuna með evrubréfi til tíu ára Íslenska ríkið vinnur nú að því að ljúka við sölu á sjálfbærum skuldabréfum til alþjóðlegra fjárfesta en meira en þrjú ár eru liðin frá síðustu útgáfu ríkissjóðs á erlendum mörkuðum. Fulltrúar Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins funda nú með fjárfestum, ásamt erlendum ráðgjöfum stjórnvalda, en um verður að ræða fyrstu grænu útgáfuna hjá ríkissjóði. Innherji 13.3.2024 13:33
Háir raunvextir þrengja að rekstrarumhverfi fyrirtækja næstu misserin Fjárhagsstaða kerfislega mikilvægra banka hér á landi er sterk, sem birtist meðal annars í góðu aðgengi þeirra að fjármögnun, en hækkandi raunvextir eru farnir að fara draga úr eftirspurn heimila og fyrirtækja eftir lánsfjármagni, að sögn fjármálastöðugleikanefndar. Hún vekur athygli á því að þyngri greiðslubyrði lána ásamt minnkandi efnahagsumsvifum auki líkur á greiðsluerfiðleikum sem hafi neikvæð áhrif á fjármálastöðugleika. Innherji 13.3.2024 09:07
Fjármálaþjónusta og regluverk í 150 ár SFF eru fylgjandi því að hér á landi starfi fjármálafyrirtækin undir alþjóðlega viðurkenndu regluverki sem stuðlar að heilbrigðu fjármálaumhverfi og byggir um leið undir traust á starfseminni. En það eru engin efnisleg rök fyrir því að við í okkar litla hagkerfi búum við þrengri og stífari reglur sem auka flækjustig og þannig frekari áhættu og kostnað við að veita landsmönnum trausta fjármálaþjónustu. Umræðan 13.3.2024 08:00
Bið á vaxtalækkun meðan óvissa er um fjármögnun á kjarapakka stjórnvalda Nýgerðir samningar á almennum vinnumarkaði fela í sér launahækkanir við neðri mörk þess sem sést hefur í kjarasamningum síðustu fimmtán ár og lengd þeirra ætti að minnka verðbólguáhættu og auka fyrirsjáanleika, að mati viðmælenda Innherja á fjármálamarkaði, en ólíkar skoðanir eru um áhrifin á verðbólguhorfur. Miklu máli skiptir fyrir vaxtalækkunarferlið að stjórnvöld skýri hvernig þau hyggjast fjármagna tugmilljarða útgjaldaaðgerðir sínar sem eru „óhjákvæmilega“ sagðar vera eftirspurnarhvetjandi. Innherji 12.3.2024 11:48
Nálgast erlenda markaði af meiri varkárni en snörp leiðrétting ekki í kortunum Hlutabréfavísitölur beggja vegna Atlantsála eru í hæstum hæðum um þessar mundir og forsvarsmenn sumra íslenskra lífeyrissjóða segjast því nálgast erlenda hlutabréfamarkaði af meiri varkárni en áður. Aðrir eru hins vegar hóflega bjartsýnir um ávöxtunarhorfur til næstu ára og sjá að „óbreyttu ekki skýr teikn á lofti um snarpa leiðréttingu“ á mörkuðum, að mati eins sjóðstjóra. Innherji 11.3.2024 13:45
Horfur á að „stíflan bresti“ og fjárfestar fái fé frá framtakssjóðum eftir þurrkatíð Útgreiðslur til sjóðsfélaga bandarískra framtakssjóða eru nú í lægstu gildum síðan í fjármálakrísunni 2008 til 2009 og eru margir orðnir langeygir eftir að fá laust fé í hendur. Það eru „ágætar horfur á því að stíflan bresti á árinu“, og fjárfestar fái loksins laust fé í hendur eftir „þurrkatíðina“ síðustu tvö árin, segir aðalhagfræðingur Kviku. Innherji 7.3.2024 13:49
Útkoma kjarasamninga „langstærsti“ óvissuþátturinn fyrir vaxtalækkunarferlið Þrátt fyrir hátt aðhaldsstig peningastefnunnar þá þarf „allt að falla með okkur“ til þess að hægt verði að hefja vaxtalækkunarferlið í maí, meðal annars að niðurstaða kjarasamninga fái grænt ljós frá Seðlabankanum, að mati skuldabréfamiðlara. Hagfræðingar Arion banka segja hækkun matvöruverðs mestu vonbrigðin í nýjustu verðbólgumælingum en benda á að undirliggjandi verðbólga virðist enn vera að hjaðna. Innherji 29.2.2024 10:15
Fjárfestar virðast enn hafa „litla trú“ á viðsnúningi í rekstri Kviku Á síðustu fjórðungum hefur „fátt ef eitthvað“ fallið með rekstrinum hjá Kviku og miðað við markaðsvirði bankans, sem er með TM í söluferli, eru væntingar fjárfesta til framhaldsins „mjög hófstilltar,“ að sögn forstjóra Stoða sem telur að undirliggjandi hagnaður eigi að geta tvöfaldast. Fjárfestingafélagið, sem er ráðandi hluthafi í First Water, segir eldið hafa gengið „vonum framar“ í fyrsta fasa og útlit sé fyrir að heildarframleiðsla landeldisfyrirtækisins verði töluvert meiri en áður var talið. Innherji 28.2.2024 14:04
Ótímabær birting innherjaupplýsinga Pólitísk samstaða náðist nýlega á vettvangi Evrópusambandsins um aðgerðir sem ætlað er að skjóta styrkari stoðum undir evrópska verðbréfamarkaði sem hafa átt erfitt uppdráttar í samkeppni sinni við bandaríska markaði undanfarin ár. Umræðan 28.2.2024 09:03
Stór bankafjárfestir segir óhóflegar eiginfjárkröfur kosta samfélagið tugi milljarða Langsamlega stærsti einkafjárfestirinn í Kviku og Arion gagnrýnir stjórnvöld fyrir að vilja ekki „taka á rót vandans“ í íslensku bankakerfi sem hann segir vera „óhóflegar“ eiginfjárkröfur og kosti heimili og atvinnulífið árlega tugi milljarða vegna meiri vaxtamunar en ella. Forstjóri Stoða hefði viljað sjá vaxtalækkunarferlið hefjast strax á síðasta fundi og brýnir Seðlabankann sem hann telur að sé „oft sinn versti óvinur“ í að ná niður verðbólguvæntingum með svartsýnum spám sínum um verðbólguhorfur. Innherji 26.2.2024 17:58
Vill heimild til að selja Íslandsbanka í útboði með áherslu á almenning Drög að frumvarpi fjármála- og efnahagsráðherra um ráðstöfun eignarhlutar ríkisins í Íslandsbanka hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin fela í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með markaðssettu útboði og að sala til einstaklinga hafi forgang. Viðskipti innlent 22.2.2024 16:59
Á von á meiri erlendri fjárfestingu í ríkisbréf ef vaxtamunurinn „þrengist ekki“ Þrátt fyrir tugmilljarða innflæði fjármagns í íslensk ríkisskuldabréf síðustu mánuði þá hefði mátt reikna með að það yrði enn meira frá því að vaxtahækkunarferli Seðlabankans hófst, að sögn aðalhagfræðings Kviku banka, en fá dæmi eru um vestræn ríki þar sem skuldabréfafjárfestar geta komist í jafn háa vexti. Ef vaxtamunur Íslands við útlönd minnkar ekki að ráði er líklegt að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum hér á landi, sem er umtalsvert minni borið saman við önnur þróuð hagkerfi, muni halda áfram að aukast. Innherji 20.2.2024 16:13
Fer úr fjármálaeftirlitsnefnd eftir að AGS varaði við hættu á pólitískum þrýstingi Skrifstofustjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, sem hefur setið í fjármálaeftirlitsnefnd Seðlabankans allt frá því að hún tók fyrst til starfa fyrir meira en fjórum árum, hefur beðist lausnar en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn gerði á liðnu ári alvarlegar athugasemdir við að fulltrúi frá ráðuneytinu væri í hópi nefndarmanna. Ráðherra hefur núna skipað Ernu Hjaltested, yfirlögfræðing Isavia, í hennar stað í fjármálaeftirlitsnefndina. Innherji 19.2.2024 11:32
Vilja ekki að Kría fjárfesti í erlendum vísisjóðum Framvís, samtök engla og vísifjárfesta, gera alvarlegar athugasemdir við að samhliða sameiningu Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu, fái hinn nýji opinberi sjóður heimild til að fjárfesta í erlendum vísisjóðum. Framvís leggur til að hinn nýji sjóður, Nýsköpunarsjóðurinn Kría, fái ekki heimild til að fjárfesta í einstaka sprotafyrirtækjum í samkeppni við vísisjóði. Innherji 16.2.2024 14:28
Hlutverk sameinaðs nýsköpunarsjóðs of víðtækt og vilja ekki ríkisforstjóra Á meðal gagnrýni á frumvarp um sameiningu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og sjóðasjóðsins Kríu er að ráðherra skipar forstjóra til fimm ára. Betur færi ef stjórn ráði forstjóra því hún hefur eftirlit með störfum hans. Eins er sagt að hlutverk hins nýja sjóðs sé of víðtækt. „Sögulega séð hafa sjóðir sem eiga að gera allt fyrir alla ekki verið langlífir.“ Innherji 15.2.2024 13:34
Rannsóknin snúi að upplýsingagjöf en ekki viðskiptum Forstjóri Play segir að rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á mögulegum brotum félagsins á lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum snúi ekki neinum viðskiptum sem hafi verið gerð, heldur aðeins hvort félagið hefði átt að senda upplýsingar fyrr á markaðinn. Viðskipti innlent 13.2.2024 20:58
Innflæði í ríkisbréf knúði Seðlabankann í nærri tíu milljarða gjaldeyriskaup Á fyrstu vikum ársins hafa erlendir fjárfestar bætt við stöðu sína í löngum ríkisbréfum fyrir að lágmarki vel á annan tug milljarða króna. Seðlabankinn réðst í umfangsmikil gjaldeyriskaup síðastliðinn föstudag, þau fyrstu í meira en tuttugu mánuði, til að mæta miklu fjármagnsinnflæði þegar erlendur sjóður keypti stóran hluta alls útboðs ríkisins á óverðtryggðum bréfum. Innherji 11.2.2024 15:20
Bankinn mun vilja „bíða og sjá“ og heldur vöxtum óbreyttum þriðja fundinn í röð Margt hefur fallið með peningastefnunefnd Seðlabankans frá síðustu ákvörðun, sem endurspeglast í vísbendingum um hratt kólnandi hagkerfi og lækkandi verðbólgu- og verðbólguvæntingum, en vegna óvissu um lyktir kjarasamninga og áhrifin á ríkissjóð vegna jarðhræringana á Reykjanesi mun nefndin vilja „bíða og sjá“ og heldur því vöxtum óbreyttum í vikunni, að mati mikils meirihluta markaðsaðila og hagfræðinga í vaxtakönnun Innherja. Sumir telja hins vegar enga ástæðu til að bíða með að hefja vaxtalækkunarferlið enda sé raunvaxtastigið búið að hækka „verulega umfram“ það sem Seðlabankinn hafi reiknað með. Innherji 5.2.2024 11:59
Olíusjóðurinn stækkar stöðu sína í sértryggðum bréfum á íslensku bankanna Verðbréfaeign olíusjóðs Noregs, stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu á heimsvísu, í íslenskum fyrirtækjum og ríkisskuldabréfum jókst nokkuð á liðnu ári þegar hann bætti enn frekar við sig með kaupum á sértryggðum skuldabréfum á bankanna. Á sama tíma hélt eign sjóðsins áfram að minnka í íslenskum ríkisbréfum. Innherji 1.2.2024 11:21
Gætum þurft að bíða „töluvert lengur“ eftir fyrstu vaxtalækkun Seðlabankans Aukin óvissa um niðurstöðu kjarasamninga á almennum vinnumarkaði og hætta á þensluhvetjandi áhrifum vegna aðgerða stjórnvalda til að koma til móts við Grindvíkinga veldur því að talsverð bið gæti verið í að peningastefnunefnd Seðlabankans byrjar að lækka vexti, að mati skuldabréfamiðlara. Málefni Grindavíkur munu að líkindum vera í forgangi hjá ríkisstjórninni fremur en myndarleg aðkoma þeirra að kjarasamningum eins og verkalýðshreyfingin hefur gert kröfu um. Innherji 22.1.2024 09:54
LIVE fórnar ekki ávöxtun í sjóði sem starfar eftir heimsmarkmiðum SÞ Lífeyrissjóður verzlunarmanna (LIVE) fjárfesti í fyrsta skipti í áhrifafjárfestingasjóði (e. impact fund) sem vinnur að heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun. Sérfræðingur hjá lífeyrissjóðnum segir að sjóðurinn starfi eftir sömu markmiðum um ávöxtun og hefðbundnir framtakssjóðir. Það sé því ekki verið að gera minni kröfu um ávöxtun heldur hafi verið um áhugavert tækifæri að ræða. Sjóðurinn horfi til þess að fjárfesta vaxtarfyrirtækjum í meira mæli en hefðbundnir framtakssjóðir. Innherji 19.1.2024 13:53
Virkir sjóðstjórar lutu í lægra hald fyrir vísitölum í krefjandi aðstæðum Að baki er krefjandi ár fyrir stjórnendur hlutabréfasjóða í virkri stýringu. Slíkir sjóðir, fyrir utan einn, skiluðu lakari ávöxtun fyrir sjóðsfélaga sína í samanburði við Úrvalsvísitöluna. Kjarna má árið 2023 fyrir sjóðstjóra að landslagið hafi breyst nokkuð oft með fjölda stórra atburða og ýktum sveiflum á stöku hlutabréfum og markaðnum í heild. Innherji 17.1.2024 06:01
Spáir hækkun vaxta og segir samninga um hóflegar launahækkanir ekki nóg Það er ekki nóg að semja aðeins um hóflega launahækkanir í yfirstandandi kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði eigi að ná niður verðbólgunni heldur þarf sömuleiðis að fylgja með aðhald í opinberum fjármálum og peningastefnu Seðlabankans, að mati forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Hann er svartsýnn á að vextir gangi niður í bráð og spáir því að meginvextir Seðlabankans muni þess í stað hækka um tvær prósentur á árinu samhliða áframhaldandi aukningu í straumi ferðamanna til landsins. Innherji 15.1.2024 14:17
Viska hækkaði um 63 prósent á ári sem var rússíbanareið á rafmyntamörkuðum Rafmyntasjóðurinn Viska skilaði sjóðsfélögum sínum um 63 prósenta ávöxtun árinu 2023, sem var árið þegar rafmyntir urðu viðurkenndar sem „alvöru“ eignaflokkur, og má telja ósennilegt að nokkur annar íslenskur fjárfestingasjóður státi af viðlíka árangri, að sögn stjórnenda Visku en sjóðurinn hefur margfaldast að stærð frá stofnun sumarið 2022. Eftir samþykki bandaríska verðbréfaeftirlitsins í gær á Bitcoin kauphallarsjóðum er búist að lágmarki við tugmilljarða dala innflæði í slíka sjóði á allra næstu árum Innherji 11.1.2024 14:29