
Ólöglegt samráð Eimskips og Samskipa

Staðfesta umfangsmikil og alvarleg samráðsbrot Samskipa
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála staðfesti umfangsmikil og alvarleg samráðsbrot Samskipa í úrskurði sínum í dag. Þar er Samskipum gert að greiða 2,3 milljarða króna í ríkissjóð og 100 milljón króna sekt fyrir að brjóta gegn upplýsingaskyldu.

Stefnu Samskipa gegn Eimskipi vísað frá dómi
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði stefnu Samskipa á hendur Eimskipi frá í dag. Samskip stefndi Eimskipi vegna tjóns sem fyrirtækið taldi sig hafa orðið fyrir vegna sáttar Eimskips við Samkeppniseftirlitið.

Samskip fá áheyrn Hæstaréttar í samkeppnismálinu
Hæstiréttur hefur samþykkt beiðni Samskipa um áfrýjunarleyfi í máli þeirra á hendur Samkeppniseftirlitinu. Landsréttur taldi Samskip ekki geta skotið sátt sem Eimskip gerði við eftirlitið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Sáttin gerir það að verkum að Eimskip og Samskip mega ekki eiga viðskipti við sömu fyrirtæki í flutningsþjónustu.

Mannekla bindur hendur héraðssaksóknara í samráðsmáli
Embætti héraðssaksóknara hefur ekki mannafla til þess að halda úti rannsókn á ólöglegu samráði Eimskipa og Samskipa á sama tíma og möguleg brot nálgast það að fyrnast. Sex starfsmönnum embættisins var sagt upp í fyrra vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda.

Sátt Eimskipa við Samkeppniseftirlitið kom Samskipum ekki við
Samskip hafði ekki hagsmuna að gæta í sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirliti í samráðsmáli fyrirtækjanna tveggja. Landsréttur sneri við niðurstöðu héraðsdóms sem hafði fallist á kröfur Samskipa um að reyna að fá sáttinni hnekkt.

Krefur Eimskip og Samskip um þrjá milljarða króna í skaðabætur
Alcoa Fjaðaál hefur stefnt Eimskip og Samskip og krafið félögin um tæpan 3,1 milljarð króna í skaðabætur vegna tjóns félagsins vegna meints samráðs skipafélaganna á árunum 2008 til 2013. Mat Eimskips er að ekkert tilefni sé til málsóknar Alcoa Fjarðaáls þar sem skilyrði skaðbótaskyldu séu ekki uppfyllt.

Stefna Eimskip: Tjón Samskipa gæti hlaupið á milljörðum króna
Lögmaður Samskipa segir að tjón félagsins af meintum ólögmætum aðgerðum Eimskips í tengslum við sátt við Samkeppniseftirlitið gæti hlaupið á milljörðum króna. Samkeppniseftirlitið vísaði fimm hundruð sinnum í yfirlýsingar Eimskips í ákvörðun sinni um sekt Samskipa, þeirrar hæstu í sögu samkeppnismála.

Samskip í hart við Eimskip
Samskip hafa stefnt Eimskip til viðurkenningar skaðabótaskyldu án fjárhæðar vegna meintra ólögmætra og saknæmra athafna í tengslum við sátt sem Eimskip gerði við Samkeppniseftirlitið árið 2021.

Samkeppni í sjóflutningum – hvað gerist næst?
Ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli Samskipa síðastliðið haust og háar sektir, sem lagðar hafa verið á Samskip og Eimskip fyrir ólögmætt samráð, vöktu mikla athygli. Sama má segja um úttekt, sem Analytica vann fyrir Félag atvinnurekenda, VR og Neytendasamtökin um samfélagslegt tjón af samráðinu. Niðurstaðan var að það væri samtals 62 milljarðar króna á verðlagi síðasta árs.

Skoða að sækja bætur fyrir neytendur vegna samráðsins
Neytendasamtökin skoða leiðir til að sækja bætur vegna tjóns af völdum meints samráðs Eimskipa og Samskipa. Frummat á samfélagslegu tjóni samráðsins er metið á 62 milljarða.

„Þetta eru náttúrulega svakalegar tölur“
Tjón vegna meints samráðs skipafélaganna Eimskips og Samskipa er metið á 62 milljarða króna. Formaður Félags atvinnurekenda segir frummatið unnið til þess að búa til grundvöll fyrir þá sem íhuga skaðabótamál á hendur skipafélögunum.

Samráðið hafi kostað samfélagið 62 milljarða króna
Samkvæmt frummati sem unnið var fyrir Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR kostaði meint ólögmætt samráð stóru skipafélaganna Eimskips og Samskipa íslenskt samfélag tæplega 62 milljarða króna á árunum 2008 til 2013.

Samskip þurfa ekki að greiða sektina meðan málsmeðferð fer fram
Útflutningsfyrirtækið Samskip þarf ekki að greiða sekt upp á 4,2 milljarða fyrir ólöglegt samráð með fyrirtækinu Eimskipi meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála.

Brjóta verði upp fákeppnisaðstöðu skipafélaganna tveggja
Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR funduðu í dag með borgar- og hafnaryfirvöldum í Reykjavík til að ræða samkeppnisumhverfið í Sundahöfn, í framhaldi af ákvörðun Samkeppniseftirlitsins vegna samráðs stóru skipafélaganna tveggja.

Vilja Pálmar Óla úr stjórn Birtu og bauna á Samtök atvinnulífsins
Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands gerir verulegar athugasemdir við setu Pálmars Óla Magnússonar í stjórn Birtu lífeyrissjóðs, á meðan hann hefur réttarstöðu sakbornings og í ljósi birtingu ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins um brot Samskipa gegn banni við ólögmætu samráði.

Umræðu um alvarleg samkeppnisbrot snarlega stýrt í aðrar áttir
Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, er málshefjandi í sérstakri umræðu um samkeppniseftirlit á Alþingi en til andsvara er Lilja Dögg Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra.

Samskip krefja Eimskip um bætur
Samskip hafa falið Mörkinni lögmannsstofu að sækja bætur á hendur Eimskipi vegna þess sem félagið kallar ólögmætar og saknæmar athafnir félagsins gagnvart Samskipum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Sumar hinna háu sekta
Á örfáum mánuðum hafa margar af helstu eftirlitsstofnunum á sviði fjármála- og viðskiptalífs á Íslandi lagt á langhæstu sektir í sögu hverrar stofnunar fyrir sig.

Fjárlagafrumvarpið, ólögmætt samráð og hinseginleikinn
Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og hér á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni.

Samkeppnislagabrot skipafélaganna, bótaábyrgð og evrópska skaðabótatilskipunin
Það er ekki nóg að íslenskir ráðamenn fordæmi meint samkeppnislagabrot skipafélaganna, heldur þurfa þeir að sýna í verki að þeir taki hagsmuni neytanda og smærri fyrirtækja fram yfir hagsmuni stórfyrirtækjanna sem sífellt gerast brotleg við lög. Það verður helst gert með því eyða óvissu um réttarstöðu tjónþola í samkeppnislagabrotum og innleiða evrópsku skaðabótatilskipunina nr. 2014/104, að mati tveggja lögmanna.

Telur játningu Eimskipa vera taktíska ákvörðun
Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa, viðurkennir að játning Eimskipa í máli er varðar ólöglegt samráð fyrirtækjanna setji málið í einkennilega stöðu. Þrátt fyrir það telur hann játninguna vera taktíska ákvörðun fyrirtækisins, en segir Samskip ekki hafa viljað taka álíka ákvörðun.

Samskip, bandarískar forsetakosningar og samgöngusáttmáli
Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Hörður Felix Harðarson, sem hefur verið lögmaður Samskipa frá upphafi. Forsvarsmenn fyrirtækisins halda því fram fullum fetum að Samkeppniseftirlitið sé á villigötum í mörg þúsund blaðsíðna greinargerð um samkeppnisbrot fyrirtækisins.

Segir ásakanir um þaulskipulagða glæpi mannorðsmorð
Samskip eru sökuð um ólöglegt samráð í flutningaþjónustu á Norðurlandi í tíð stjórnarformanns lífeyrissjóðsina Gildis sem formaður VR sakar um „þaulskipulagða glæpi“. Lífeyrissjóðsstjórinn hætti störfum hjá Samskipum áður en alvarlegustu brotin sem Samkeppniseftirlitið sektaði fyrirtækið fyrir voru framin.

Skipafélagið Almenningur ehf.
Nú þegar Samkeppniseftirlitið ske hefur fjallað um eitt stærsta og mesta samráð í íslenskri sögu á milli Eimskipa og Samskipa undrast fólk yfir vinnubrögðunum, ásetningnum og útsjónarseminni.

Sannleikurinn sagna bestur, Björgvin
Það er afar einfalt að svara grein þinni Björgvin og alvarlegum ásökunum þínum í minn garð. Þú fullyrðir í grein þinni að hafa ekki undir nokkrum kringumstæðum átt þátt að þeim málum, né var þér kunnugt um þau.

Skiptir sannleikurinn Ragnar Þór einhverju máli?
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR fór mikinn á heimasíðu sinni þar sem hann ásakaði undirritaðan um sakhæft athæfi. Þar sagði hann undirritaðan hafa verið lykilstjórnanda hjá Samskipum á þeim tíma er meginþorri þeirra meintu brota sem Samkeppniseftirlitið hefur fjallað um í nýútkominni skýrslu sinni.

Örsaga af spillingu og skipulögðum glæpum á Íslandi
Hér fer örsaga af skipulagðri glæpastarfsemi og spillingu í íslensku samfélagi.

Skipafélögin rúin trausti og Innnes skoðar að sækja bætur
Ölgerðin ætlar að sækja bætur vegna samráðs Samskipa og Eimskipa. Fleiri félög kanna nú réttarstöðu sína og möguleika á skaðabótum. Forstjóri Innness segir skipafélögin tvö rúin trausti og sektarfjárhæð Samskipa senda skýr skilaboð.

Skoða að sækja bætur vegna samráðs skipafélaganna
Ölgerðin skoðar nú að sækja skaðabætur vegna samráðs skipafélagannaSamskipa og Eimskips. Forstjóri segir málið reiðarslag og að samráðið hafi valdið félaginu og neytendum verulegum skaða og stórfelldu fjárhagslegu tjóni.

Nokkur orð um sátt og sektir
Eimskip er markaðsráðandi aðili á íslenskum flutningamarkaði. Félagið hefur mikla yfirburði í flutningum til og frá Evrópu og í einokunarstöðu í beinum flutningum til og frá N-Ameríku.