

EM 2025 í körfubolta
EM karla í körfubolta, Eurobasket, fer fram í Kýpur, Finnlandi, Póllandi og Lettlandi dagana 27. ágúst til 14. september 2025. Íslenska landsliðið er á meðal þátttökuþjóða.

Gætt af Interpol og sagt að fela fána fyrir leikinn við Ísland
Fyrsti leikur Íslands á EM karla í körfubolta á morgun vekur sérstaka athygli vegna mótherja liðsins, Ísraels. Alþjóðalögreglan Interpol tekur þátt í að gæta öryggis leikmanna Ísraels sem ráðlagt hefur verið að leyna þjóðerni sínu utan vallar.
Fréttir í tímaröð

Tryggvi setti „að moka skít“ í annað sætið
Íslenski landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason er maður verka, bæði inn á vellinum og utan hans. Það sést líka vel á svörum hans í myndbandi.

Pólverjar bæta við sig Kana fyrir EM
Pólska landsliðið hefur fengið góðan liðstyrk fyrir komandi Evrópumót í körfubolta en hinn bandaríski Jordan Loyd mun leika með liðinu á mótinu.

Craig Pedersen um erfitt val á EM-hóp: „Frábært vandamál að glíma við“
Craig Pedersen er á leiðinni með íslenska körfuboltalandsliðið í þriðja sinn í úrslitakeppni Evrópumótsins og í dag tilkynnti kanadíski þjálfarinn um það hvaða tólf leikmenn það verða sem keppa fyrir Íslands hönd á Eurobasket í ár.

Forseti Íslands hvatti landsliðið til dáða
Forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, mætti á æfingu karlalandsliðsins í körfubolta í dag. Hún hvatti liðið til dáða fyrir komandi Evrópumót. Liðið heldur utan á fimmtudag.

Giannis loksins mættur en Grikkirnir neita að útskýra fjarveruna
Eftir að hafa misst af fyrstu þremur vikunum í undirbúningi gríska landsliðsins fyrir Evrópumótið í körfubolta er Giannis Antetokounmpo loksins mættur á æfingar. Gríska körfuknattleikssambandið neitar að útskýra hvers vegna hann hefur ekki tekið þátt hingað til.

Svona er hópur Íslands sem fer á EM
Craig Pedersen, landsliðsþjálfari karla í körfubolta, hefur opinberað hvaða tólf leikmenn fara fyrir Íslands hönd á Evrópumótið sem hefst í næstu viku. Almar Orri Atlason dettur út úr hópnum, sem hafði fyrir daginn í dag verið skorinn niður í 13 leikmenn.

Mögulegt áfall fyrir Slóvena í aðdraganda EM
Slóvenska stórstjarnan Luka Doncic fór meiddur af velli er Slóvenar mættu Lettum í æfingaleik fyrir komandi Evrópumót í körfubolta.

Fyrsti sigur á Svíum í 33 ár og feðgar í aðalhlutverki í báðum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann þriggja stiga sigur á Svíum á æfingamóti í Portúgal í gærkvöldi og það var búið að bíða eftir þessum sigri.

Eiginkonan líkir þjálfara Slóvena við Gosa
Slóvenska körfuboltalandsliðið verður með því íslenska í riðli á Evrópumótinu en sá riðill verður spilaður í Póllandi. Það eru ekki allir sáttir með liðsvalið hjá Slóvenum og ekki síst ein stærsta körfuboltafjölskylda þjóðarinnar. Mikil dramatík er í kringum valið á EM-hópnum.

Misstu Martin út en sneru leiknum og unnu Svía
Ísland vann Svíþjóð 73-70 í æsispennandi æfingaleik liðanna í undirbúningi fyrir Evrópumótið í körfubolta.

Jaka skilinn eftir og þrettán leikmenn berjast um hin tólf sætin
Craig Pedersen hefur skorið íslenska landsliðshópinn fyrir EuroBasket niður um einn leikmann. Jaka Brodnik fer ekki með í æfingaferðina til Portúgal. Þrettán leikmenn eru nú eftir en aðeins tólf þeirra munu fara á EuroBasket.

Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands
Meðan NBA stjörnur á borð við Luka Doncic, Nikola Jokic og Lauri Markkanen æfa og spila æfingaleiki með sínum landsliðum í undirbúningi fyrir EuroBasket hefur Giannis Antetokounmpo ekki tekið þátt í undirbúningi Grikklands, sem er talið vera vegna þess að hann er ótryggður hjá gríska körfuknattleikssambandinu.

Þjóðverjar unnu Doncic lausa Slóvena
Liðin sem leika á Evrópumeistaramótinu í körfuknattleik sem hefst í lok mánaðar eru á fullu í undirbúningi sínum. Þýskaland lagði Slóvena öðru sinni um helgina og Ísraelar lögðu Grikki af velli.

Pólland missir NBA stjörnu fyrir Eurobasket
Jeremy Sochan leikmaður San Antonio Spurs í NBA deildinni mun ekki leika með Póllandi á Eurobasket sem hefst 27. ágúst næstkomandi. Pólland eru gestgjafar Íslendinga þar á meðal og er þetta högg fyrir liðið.

„Þeir eiga allir skilið að fara í lokahópinn“
Hart er barist um sæti í landsliðshópi Íslands fyrir komandi Evrópumót karla í körfubolta sem hefst eftir þrjár vikur. Sigtryggur Arnar Björnsson er vongóður um sæti og ekki skemmdi stórleikur hans um síðustu helgi fyrir.

Þýskaland lagði Slóvena í undirbúningi fyrir Eurobasket
Liðin sem eru á leiðinni á Eurobasket sem hefst í lok ágústmánaðar eru á fullu að undirbúa sig fyrir móti. Andstæðingar Íslendinga í D riðli Eurobasket, Slóvenar, Frakkar og Belgar voru í eldlínunni í kvöld og gekk misjafnlega hjá þeim.

Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“
Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson kveðst hafa fengið vægt sjokk og síminn hafi logað þegar ranglega var greint frá því að hann hefði samið við Íslandsmeistara Stjörnunnar. Hann er á leið til Spánar í haust en öll hans einbeiting er á komandi Evrópumóti.

„Sýna að maður eigi það skilið“
Almar Orri Atlason, leikmaður Bradley-háskóla í Bandaríkjunum, er bjartsýnn þegar kemur að sæti í lokahóp íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í körfubolta. Hann ræddi við Val Pál Eiríksson um landsliðsæfingar síðustu daga.

„Númer eitt, tvö og þrjú að knúsa þau sem mest“
„Líkamlega hef ég sjaldan verið betri á þessum tíma árs,“ segir Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, um standið á sér. Martin hefur glímt við meiðsli undanfarin ár en er klár í slaginn fyrir EM og hefur haldið sér vel við í sumar.

Þrír verða heima meðan landsliðið fer til Ítalíu
14 leikmenn íslenska karlalandsliðsins í körfubolta fara með liðinu til Ítalíu um helgina að taka þátt í æfingamóti fyrir komandi Evrópumót. Þrír í 17 manna æfingahópi Íslands verða því eftir á Íslandi.

Skora á KKÍ að sniðganga Ísrael: „Íþróttahreyfingin ekki undanskilin ábyrgð“
Félagið Ísland-Palestína skorar á Körfuknattleikssamband Íslands að sniðganga landsleik Íslands við Ísrael á komandi Evrópumóti karla í körfubolta, EuroBasket. Liðin eigast við 28. ágúst næstkomandi.

„Erum að einblína á það sem er að gerast á vellinum“
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, segir það jákvætt að svo margir leikmenn séu nálægt því að komast í lokahópinn fyrir EM sem fram fer í Kýpur, Finnlandi, Póllandi og Lettlandi. Hann segist ekki hafa séð viðtalið sem Kristófer Acox fór í og hafði lítið um það að segja.

Mario fer ekki á EM – fimm dottnir úr hópi Íslands
Æfingahópur karlalandsliðsins í körfubolta hefur verið skorinn niður um fimm leikmenn frá þeim hópi sem opinberaður var í síðustu viku. 17 leikmenn eru eftir í hópnum.