Gunnar Ármannsson

Fréttamynd

Ég vil ekki kosningar um mögu­lega ESB um­sókn í haust

Fyrir þessa skoðun mína mega þeir sem vilja uppnefna mig sem part af skrýmsladeild, ég sé með fasískar eða kommúnískar skoðanir, ég sé sjálfskipaður sérfræðingur, ég sé einfeldningur, lýðskrumari, loddari, kverúlant eða Trumpisti. En það er ekki málefnalegt.

Skoðun
Fréttamynd

Inga Sæ­land og sjálf­stæðið

Ég á marga vini og kunningja sem spyrja nú: af hverju ekki að leyfa þjóðinni að ráða? Er hún ekki best til þess fallin? Ef meirihlutinn segir já, eigum við þá ekki að kíkja í pakkann? Ef okkur lýst ekki á innihaldið þá bara segjum við nei. Lýðræðisveisla! Eins og sumir kalla það. Þetta er afstaða sem horfir framhjá sögu okkar. Og lýsir um leið vantrú á getu okkar sjálfra til að stjórna okkar eigin málum.

Skoðun
Fréttamynd

Inga Sæ­land

Inga Sæland talar inn í hóp öryrkja, sem illu heilli er hópur sem fer ört vaxandi. En þeir kjósa hana þess vegna. Þannig nær hún inná þing. Talar inn í hóp sem hefur verið afskiptur í íslensku samfélagi og ekki nógu vel hugsað um. Þeir kjósa hana, eðlilega, og hún kemst á þing.

Skoðun
Fréttamynd

Er at­vinnu­lífið að mis­nota heil­brigðis­kerfið?

Í viðtali við formann Félags heimilislækna sem birtist á visir.is að kvöldi 8. janúar sl. kom m.a. eftirfarandi fram: „Það er í raun og veru misnotkun á opinberu heilbrigðiskerfi að atvinnulífið sé að nota opinbera heilbrigðiskerfið til að halda utan um fjarvistir hjá fyrirtæki sem er í einkaeigu.“

Skoðun
Fréttamynd

Mann­réttinda­glufur og sam­göngu­glufur

Við þurfum göng ( fyrir nokkur hundruð manns) , við þurfum samgöngubætur ( fyrir mjög marga, eiginlega alla á Íslandi, loka þarf samgönguglufum), við þurfum betra loftslag (fyrir alla í heiminum), við þurfum að vera góð við flóttamenn (alla í heiminum) og við þurfum betra heilbrigðiskerfi ( á Íslandi, fyrir þá sem búa á Íslandi og hætta að brjóta mannréttindi á sjúklingum á bráðamóttöku, loka þarf mannréttindaglufum).

Skoðun
Fréttamynd

Hug­mynd um að loka glufu - til­gangurinn helgar senni­lega meðalið

Enn einu sinni kveður framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar sér hljóðs og talar um glufu. Glufu sem þarf að loka. Fyrirsögn þessa tilskrifs er vísun í millifyrirsagnir hans í grein sem birtist á þessum vettvangi þann 1. desember 2025. Og það er sennilega rétt hjá honum að tilgangurinn helgar meðalið. Hamra nógu oft á því að verið sé að loka glufum.

Skoðun
Fréttamynd

Jafnlaunavottun - „Hverjir græða á jafnlaunavottun“

Tilvitnunin í fyrirsögn er úr ræðu Karls Gauta Hjaltasonar þingmanns, sem hann flutti þann 18. mars sl. á Alþingi þegar frumvarp Diljár Mistar Einarsdóttur um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og stjórnsýslu jafnréttismála var til umræðu

Skoðun
Fréttamynd

Um læknis­vott­orð til vinnu­veit­enda

Á síðustu dögum hefur verið töluverð umræða um svokölluð „vinnuveitendavottorð“. Þ.e. læknisvottorð sem eru ætluð til afhendingar til vinnuveitenda til að virkja rétt til greiðslu launa í veikindaforföllum.

Skoðun
Fréttamynd

Enn um mál­efni Þóru Tómas­dóttur á RUV

Hermt er að mikil ólga sé innan RUV vegna umfjöllunar Þóru Tómasdóttur í þættinum „Þetta helst“ á RUV um Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlækni. Sumum heimildaramönnum finnst sem hún hafi farið offari í umfjöllun sinni um plastbarkamálið og tilraunir hennar til að sverta mannorð Tómasar. Jafnvel svo að henni sé ekki sætt sem starfsmanni fjölmiðilsins.

Skoðun
Fréttamynd

Hve­nær drepur maður mann og hve­nær drepur maður ekki mann?

Þessi fleygu orð Jóns Hreggviðssonar úr Íslandsklukku Halldórs Kiljan Laxness flugu mér í hug eftir að hafa hlustað á þáttinn Þetta helst á Ruv.is frá 3. janúar sl. Útgangspunktur umfjöllunarinnar er sagður sá að fjalla um stöðu Tómasar Guðbjartssonar við LSH vegna „plastbarkamálsins“.

Skoðun
Fréttamynd

Gullmulningsvélar heilbrigðisstjórnvalda Möltu

Í Fréttablaðinu þann 19. ágúst 2016 sýnir Ögmundur Jónasson okkur inn í hugarheim sinn. Þar er oft áhugavert um að litast því Ögmundur hefur skoðanir á mörgum hlutum og getur lagt rökræðunni lið um aðskiljanlegustu málefni.

Skoðun
Fréttamynd

Með dauðann að leik­fangi

„Hundrað synjað um undanþágu“. Þessi fyrirsögn Fréttablaðsins þann 8. maí sl. fangaði augað. Í fréttinni mátti m.a. lesa eftirfarandi: „Tvö hundruð hafa fengið undanþágu fyrir myndgreiningu en hundrað veikum verið synjað af undanþágunefnd“.

Skoðun