Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Nei eða já? Af eða á?

Þrír mánuðir eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram. Miklar deilur voru um málið á þingi og búast má við að sumarið litist af umræðum um hvort Ísland gangi í sambandið eður ei. Til að aðstoða landsmenn við að komast að upplýstri ákvörðun hefur fyrirtækið Reon sett í loftið vefinn já eða nei punktur is.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslan um krónuna sýni að val­kostirnir séu tveir

Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Þrír mánuðir til stefnu

Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já. 

Innlent
Fréttamynd

Er ekki best að tala bara ís­lensku um ESB og mat­væla­verð?

Nú að loknum sveitarstjórnarkosningum hefur umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB tekið sig upp aftur og er matvælaverð algengt stef í orðræðu aðildarsinna síðustu daga. Ýmist fullyrða þeir að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í sambandið eða gefa það sterklega í skyn, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%.

Skoðun
Fréttamynd

Gervigreindargjöf til lýð­ræðisins

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur hleypt af stokkunum gervigreindarvef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst næstkomandi. Sölustjóri segir fólk ekki lengur hafa neina afsökun til að taka upplýsta og meðvitaða ákvörðun. Lagt er upp með að vefurinn sé hlutlaus.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Stattu vörð um fjall­konuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum

Miðflokksmenn hafa skipst á að koma í pontu í þingsal í dag til að ræða þingsályktunartillögu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ljóst þykir að meirihlutanum liggur á að koma málinu í gegnum þingið svo fyrirhuguð dagsetning atkvæðagreiðslu standist.

Innlent
Fréttamynd

„Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um er­lend á­hrif

„Það er augljóst að þetta kemur frá ákveðnum stöðum erlendis frá til þess að hafa áhrif á innlenda umfjöllun [um þjóðaratkvæðagreðislu um Evrópusambandið],“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um svokallaða „Viðreisnarbotta“.

Innlent
Fréttamynd

„Orð hennar og þessar upp­hrópanir ekki til sóma“

Búast má við kröftugum lokaspretti í umræðu um þingsályktunartillögu varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi en umræðan þarf að klárast í dag ef fyrirhuguð dagsetning á að halda. Þingkona Sjálfstæðisflokksins talar fyrir tveimur breytingartillögum og segir orðræðu utanríkisráðherra henni ekki til sóma. 

Innlent
Fréttamynd

Vilja fresta ESB-atkvæðagreiðslu þar til í októ­ber

Umræðum um þingsályktunartillöguna um þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst verður fram haldið á þingfundi í dag klukkan þrjú. Stjórnarandstaða leggur til að atkvæðagreiðslunni verði seinkað og að gerðar verði frekari breytingar á spurningunni. 

Innlent
Fréttamynd

Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð

Forseti Alþingis segir sátt virðast um það meðal þingflokksformanna að ljúka umræðu um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB á morgun. Útlit er því fyrir að atkvæðagreiðslan fari fram þann 29. ágúst.

Innlent
Fréttamynd

„Hvað hafa þau að fela?“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist vera „já, kannski“-manneskja hvað aðild Íslands að Evrópusambandinu varðar. Hún myndi aldrei tala fyrir samþykkt óásættanlegs samnings.

Innlent
Fréttamynd

Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Ís­lands

Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, vill að þjóðin fái að vita fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið hvaða samningsmarkmið Ísland ætli að leggja upp með í loftslags-, orku- og flugmálum. Hún segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugsamgöngum til og frá Íslandi og spurði ráðherra hver kostnaðurinn yrði ef Ísland næði ekki markmiðum um allt að 55 prósenta samdrátt í losun.

Innlent
Fréttamynd

„Er for­sætis­ráðherra á­nægð með hag­stjórnina?“

Sjálfstæðismenn mættu í vígahug í fyrirspurnartíma eftir hlé sem gert var á þingstörfum meðan sveitarstjórnarkosningarnar fóru fram, fullir sjálfstrausts eftir kosningaúrslitin. Þeir vildu þjarma að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og spurðu hana út í efnahagsstjórnina. Kristrún varðist fimlega.

Innlent
Fréttamynd

Aðildar­við­ræður gætu kostað tæpa tvo milljarða

Utanríkisráðuneytið telur að áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið myndu kosta tæpa 1,9 milljarða króna og taka um tvö ár. Verði viðræðurnar samþykktar í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu myndu eiginlegar viðræður hefjast fyrir lok árs.

Innlent
Fréttamynd

Ís­land og aðildar­viðræður við ESB: samnings­mark­mið og hags­munir

Gengi ESB að kröfum um forræði og yfirráð Íslands yfir auðlindum snerist málið ekki lengur um af hverju Ísland ætti ekki erindi í ESB nema að uppfylltum skilyrðum. Þess í stað kæmi að þeirri grundvallarspurningu af hverju Ísland ætti erindi í ESB; hvaða íslenskir hagsmunir kalli á aðild. Ein leið til að átta sig á því er að skoða af hverju fyrri umsóknarríki um aðild sóttust eftir að komast í ESB.

Umræðan
Fréttamynd

Ís­land 2.0

Nú eru sveitarstjórnarkosningar að baki og gera má ráð fyrir að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um að hefja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið taki hið pólitíska svið á næstunni.

Skoðun
Fréttamynd

Breyttu spurningunni í þjóðar­at­kvæða­greiðslunni

Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli.

Innlent
Fréttamynd

Ó­væntur ríkis­stjórnar­fundur í dag

Nokkrir ráðherrar úr ríkisstjórninni komu saman á fund í dag, sunnudag, til þess að samþykkja afléttingu á trúnaði yfir gögnum sem utanríkismálanefnd hafði óskað eftir í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013.

Innlent
Fréttamynd

Bíður þetta böl lands og þjóðar?

Síðastliðinn laugardag stukku sex breskir fallhlífahermenn úr flugvél yfir Suður-Atlantshafinu. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur var bundinn við einn þeirra, svæfingarlæknir við annan.

Lífið