Ferðaþjónusta

Fréttamynd

Engin við­varandi markaðs­setning frá 2023

Viðvarandi markaðssetning stjórnvalda í ferðaþjónustu hefur ekki verið til staðar frá árinu 2023 og fjárframlög minnkuð, segir fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu. Setja þurfi í samhengi hvernig ferðaþjónusta hér á landi hefur breyst á síðustu árum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Noregur er bara betri á­fanga­staður!

Flug er ein merkasta uppgötvun 20. aldar og hefur haft ótrúleg áhrif á hagkerfi og velsæld um allan heim. Rekstur flugfélaga og leiðarval hefur orðið sín eigin grein sem hefur mikil áhrif á viðskipti og framleiðslu í heiminum.

Skoðun
Fréttamynd

Máttu reka leið­sögu­mann sem ók vinnubíl próf­laus

Atvinnurekandi í ferðaþjónustu, sem sagði upp starfsmanni eftir að hann ók bíl fyrirtækisins sviptur ökuréttindum tvívegis, þarf ekki að greiða starfsmanninum skaðabætur vegna uppsagnarinnar. Ekki var fallist á að riftun á ráðningarsamningi án undangenginnar samningsbundinnar áminningar vegna brotanna hafi verið ólögmæt.

Innlent
Fréttamynd

Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið

Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir

Sveitarstjóri Grýtubakkahrepps segist engar skoðanir hafa á nýjum eiganda að hundrað prósenta hluta í fimm stjörnu lúxushóteli sem er í uppbyggingu á Grenivík. Sá hafi áður átt hlut í verkefninu, engin eðlisbreyting hafi átt sér stað og telur sveitarstjórinn að bjartir tímar séu framundan með uppbyggingunni.

Innlent
Fréttamynd

Vinkonuferð til Ís­lands tók ó­vænta stefnu

Avery Francis fór í stelpuferð til Íslands, eftir ár sem hún lýsir sem því versta í sínu lífi. Skipbrot í starfi, kulnun og áföll í einkalífi höfðu tekið sinn toll og hún hafði verið einhleyp í sex ár. Hún var ekki að leita að sambandi. Síðasta kvöldið í ferðinni kynntist hún íslenskum manni í miðbæ Reykjavíkur og þar kviknaði eitthvað óvænt. Þau hittust aftur ári síðar, og það fyrir einskæra tilviljun. Nú eru þau hjón og Avery býr hér og skipuleggur kvennaferðir til Íslands, sem hún kallar besta stað í heimi.

Lífið
Fréttamynd

Vís­bendingar um gerviverktöku í geiranum

Vísbendingar eru um gerviverktöku meðal leiðsögumanna og hópbifreiðastjóra samkvæmt vinnustaðaeftirliti ASÍ. Þeir sem starfi sem slíkir séu með skerta réttarstöðu og tapi á grundvallarréttindum. Tugir ferðaþjónustufyrirtækja voru ekki skráð á fyrirtækjaskrá Skattsins.

Innlent
Fréttamynd

Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifs­stöðvar

Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar.

Innlent
Fréttamynd

„Þarf maður að fara að finna ein­hverja nýja fjöru?“

Eitt mesta landrof í manna minnum hefur orðið í Reynisfjöru í Mýrdal. Landeigandi segir óvíst hvort ásýndin sé breytt til framtíðar. Gjörbreytt landslag blasir nú þar við ferðamönnum en í stað svörtu fjörunnar sem hefur dregið marga víða að blasa nú við steinar úti um allt. Þá hefur sjórinn náð að grafa sig inn í fjöruna og myndað nokkurra metra háan vegg.

Innlent
Fréttamynd

„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“

Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka.

Innlent
Fréttamynd

Féll í Jökuls­ár­lón

Maður féll í Jökulsárlón og er mikill viðbúnaður á svæðinu. Vísi barst ábending frá leiðsögumanni um að viðbragðsaðilar væru á vettvangi við Jökulsárlón vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Alan Carr á Ís­landi

Breski grínistinn og sjónvarpsmaðurinn Alan Carr er staddur á Íslandi og hefur ferðast víða um landið undanfarna daga.

Lífið
Fréttamynd

Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum

Samgöngustofa hefur fengið tvö hundruð ábendingar vegna leigubílaaksturs frá því ný lög tóku gildi fyrir tæpum þremur árum. Formaður tveggja félaga bifreiðastjóra segir ófremdarástand hafa ríkt á markaðnum síðan og kvartanirnar margfalt fleiri. Hann fagnar drögum að nýrri reglugerð.

Innlent
Fréttamynd

Svarar gagn­rýni vegna um­deildra gistihýsa í Skafta­felli

Uppbygging Arctic Adventures á þrettán gistihýsum í Skaftafelli er í fullu samræmi við lög og reglur auk þess sem húsin í núverandi mynd endurspegla ekki endanlega ásýnd þeirra þar sem þau eru enn á byggingarstigi. Þá ku verkefnið vera í fullu samræmi við gildandi skipulag sveitarfélagsins og þau leyfi sem fyrir liggja vegna verkefnisins. Þetta segir forstjóri Arctic Adventures sem svarar gagnrýni sem fram hefur komið vegna uppbyggingar húsanna, en lögð hefur verið fram stjórnsýslukæra vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Drauma­ferðin gæti verið nær en þú heldur

Úrval Útsýn býður upp á fjölmargar spennandi ævintýraferðir í vetur og í vor. Meðal þeirra eru ferðir til Óman og Dubai í febrúar, til Japans í mars og til Egyptalands í maí. Allar þrjár ferðirnar hafa fengið góðar viðtökur meðal landsmanna og því þurfa áhugasamir að bregðast skjótt við til að tryggja sér pláss.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Vega­gerðin bæti hring­veginn eftir að grjót banaði ferða­manni

Rannsóknarnefnd samgönguslysa vill að Vegagerðin vinni þegar í stað að úrbótum á hringveginum við Steinafjall á Suðurlandi eftir að erlend ferðakona lést þegar stærðarinnar grjót féll á bíl hennar. Líkur á slíkum slysum eru sagðar hafa aukist vegna þyngri umferðar um veginn.

Innlent
Fréttamynd

Verkútboð í vega­gerð aug­lýst eftir langt hlé

Vegagerðin hefur boðið út lagningu bundins slitlags á 7,4 kílómetra kafla Einholtsvegar í Bláskógabyggð í uppsveitum Árnessýslu. Þetta er fyrsta framkvæmdaútboð sem auglýst er í vegagerð frá því í júlí síðastliðið sumar, ef frá er talið lítið útboð í gerð hringtorgs í Garðabæ í september.

Innlent
Fréttamynd

Hverju ertu til í að fórna?

Okkur Íslendingum finnst gaman að lifa og njóta. Við viljum fara út að borða með vinahópnum, skjótast í rómantíska helgarferð innanlands með makanum, fara til Tenerife þegar hentar með stórfjölskyldunni, skella okkur í afþreyingarferð á árshátíðardegi vinnunnar og svo mætti lengi telja. Hvernig má það vera að á fámennri eyju lengst norður í Ballarhafi megi finna nánast endalausa möguleika til að njóta?

Skoðun
Fréttamynd

Sam­staða í ferða­þjónustu aldrei mikil­vægari

Öflugt markaðsstarf er lykilþáttur í því að stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar, ferðaþjónusta, geti haldið áfram að vaxa og dafna. Í samkeppni við önnur lönd og önnur svæði á Norðurslóðum er mikilvægt að halda því á lofti sem gerir Ísland að einstökum áfangastað.

Skoðun