EM 2017 í Hollandi

Tækifærin verða í boði á Algarve – og engar afsakanir
Freyr Alexandersson stillir upp ungu byrjunarliði í fyrsta leik íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á Algarve-mótinu á móti Noregi í dag. Dyr eru opnar í byrjunarliðið og nú er leikmanna að grípa gæsina.

Snjórinn á sunnudaginn fór illa með stelpurnar okkar
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið til Algarve í Portúgal eftir miklu lengra ferðalag en KSÍ var búið að skipuleggja. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Knattspyrnusambands Íslands.

Sigurður Ragnar reyndi að fá íslenskar landsliðskonur til Kína | „Besta peningatilboðið“
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta og núverandi þjálfari kínverska liðsins Jiangsu Suning, hafði áhuga á því að fá að minnsta kosti tvær íslenskar landsliðskonur til Kína.

Vil fá ákveðin svör á Algarve
Undirbúningur kvennalandsliðsins fyrir EM næsta sumar hefst af krafti um næstu mánaðamót er liðið tekur þátt í Algarve-mótinu. Þjálfarinn fer ekki fram á gull í ár og mun prófa sig áfram með nýtt leikkerfi.

Dagný og Margrét Lára báðar með á Algarve | 23 manna hópur klár
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, valdi í dag þá 23 leikmenn sem munu taka þátt í Algarve-bikarnum í næsta mánuði.

Íslensku fótboltalandsliðin á fámennum lista meðal milljónaþjóða
Íslensku karla- og kvennalandsliðin í fótbolta eru bæði í 20. sæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins. Þau eru á meðal átta margra milljóna manna þjóða sem eru með bæði landsliðin á topp 20 í heiminum.

Dagný meidd og tæp fyrir Algarve: „Árið 2017 ekki byrjað eins og ég vildi“
Dagný Brynjarsdóttir er í kapphlaupi við tímann ef hún ætlar með á Algarve-mótið.

Stelpurnar mæta gestgjöfum EM í apríl
Íslenska kvennalandsliðið mætir Hollandi í vináttuleik í apríl.

Strákarnir búnir að ná stelpunum í fyrsta sinn í sögu FIFA-listans
Íslenska karlalandsliðið mun hækka sig um eitt sæti á næsta styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins og um leið kemst Ísland í hóp tuttugu bestu knattspyrnulandsliða heims.

Hólmfríður ristarbrotin og EM í hættu: „Þetta er mikill skellur“
Landsliðskonan fann smell á æfingu á laugardaginn og fer í aðgerð á fimmtudaginn þar sem þarf að skrúfa í ristina.

Barnamiðarnir uppseldir á leiki Íslands á EM
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er að fara að keppa á EM í Hollandi næsta sumar og það er gríðarlega áhugi á leikjum íslensku stelpnanna og ljóst að margir Íslendingar verða í stúkunni á leikjum liðsins í riðlakeppninni.

Tryggðu þér miða á leiki stelpnanna á EM í Hollandi
Miðasala á leiki íslenska kvennalandsliðsins á EM 2017 hefst í hádeginu en miðarnir eru á flottu verði.

María Þóris komin aftur í norska landsliðið í fótbolta
Hin norsk-íslenska María Þórisdóttir er í nýjasta landsliðshópi norska kvennalandsliðsins í fótbolta en nýr landsliðsþjálfari hefur valið sinn fyrsta hóp.

Sara Björk á meðal 50 bestu fótboltakvenna heims
Íslenska landsliðskonan hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri en þessi 26 ára gamli leikmaður er á leið á sitt þriðja stórmót.

Maríu Þórisdóttur bauðst að spila fyrir Ísland
María Þórisdóttir ætlar að vinna sér sæti í norska fótboltalandsliðinu á nýjan leik.

Þáttur um Kínaævintýri stelpnanna okkar á Stöð 2 Sport í dag
Farið verður yfir Kínaferð íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta í sérstökum þætti á Stöð 2 Sport HD í dag, aðfangadag.

Íslensku stelpurnar enda árið í 20. sæti styrkleikalistans
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er í 20. sæti á síðasta styrkleikalista ársins hjá FIFA.

Freyr velur æfingahóp
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið 30 leikmenn fyrir úrtaksæfingar í næsta mánuði.

Vildi gera stærri og meiri kröfur til mín
Sara Björk Gunnarsdóttir hefur átt annasamt ár 2016. Auk afreka hennar með landsliðinu tók hún risastórt skref þegar hún samdi við þýska stórliðið Wolfsburg. Hún segist hafa breyst sem leikmaður með aldrinum og meiri þroska. Sara ætlar sér stóra sigra á nýju ári.

Freyr: Við þurfum fleiri verkefni fyrir U23 ára liðið
Freyr Alexandersson mun sjá um U23 ára lið Íslands samhliða því að stýra A-landsliðinu.

Freyr fékk mjög gott tilboð frá Kína: „Peningar eru ekki allt“
Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna, hefði getað farið að telja seðla í Kína en verður í staðinn áfram með stelpurnar okkar.

Freyr skrifar undir nýjan samning
Þjálfari kvennalandsliðsins stýrir liðinu áfram eftir EM í Hollandi á næsta ári.

Samfélagsmiðlaraunir Ólafíu verða stelpunum okkar víti til varnaðar
Freyr Alexandersson undirbýr kvennalandsliðið fyrir EM jafnt innan sem utan vallar.

Hin fimmtán ára gamla Sveindís Jane í æfingahóp Freys
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, hefur valið hóp til úrtaksæfinga helgina 25. til 27. nóvember.

Við Íslendingar þekkjum það vel að vinna bleika Skota | Eru álög á búningnum?
England og Skotland mætast í kvöld á Wembley í undankeppni HM 2018 en mikil spenna er í Bretlandi fyrir viðureign nágrannanna enda telja Skotar sig sjaldan hafa átt jafn miklu möguleika á móti stóra bróður.

Verður austurrísk dramatík hjá landsliði Íslands annað sumarið í röð?
Ísland á annað sumarið í röð lið í úrslitakeppni Evrópukeppninnar. Í fyrra voru það strákarnir okkar sem unnu hug og hjörtu heimsins á EM í Frakklandi og næsta sumar fá stelpurnar tækifæri til að sýna úr hverju þær eru gerðar á EM kvenna í Hollandi.

Alpa-EM hjá stelpunum okkar
Íslenska kvennalandsliðið verður í C-riðli á Evrópumótinu í Hollandi næsta sumar og fyrsti leikur liðsins verður á móti Frakklandi alveg eins og á fyrsta Evrópumóti stelpnanna 2009.

Myndavélin á landsliðsstelpunum þegar dregið var í riðla á EM | Myndband
Myndatökumaður Stöðvar tvö fékk að fylgjast með viðbrögðum landsliðsstelpnanna Margrétar Láru Viðarsdóttur og Hallberu Guðnýju Gísladóttur þegar dregið var í riðli fyrir EM kvenna í Hollandi sem fer fram næsta sumar.

Freyr: Okkar riðill er einn sá sterkasti á mótinu
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, er ánægður með riðill Íslands á Evrópumóti kvenna í fótbolta en úrslitakeppnin fer fram í Hollandi næsta sumar.

Alpariðill hjá íslensku stelpunum á EM í Hollandi
Dregið verður til riðlakeppni Evrópumóts kvenna í fótbolta klukkan 16.30 en mótið fer fram í Hollandi á næsta ári.