Menning

Vill miðla persónulegum tilfinningum
Síðastliðin ár hefur danshöfundurinn Sigga Soffía fært Íslendingum stór verk á borð við flugeldasýningar á Menningarnótt og opnunarsviðsverk Listahátíðar Reykjavíkur, Svartar Fjaðrir, sem var á dagskrá í Þjóðleikhúsinu.

Ný bók frá Tolkien á leiðinni
Bókin heitir Beren og Lúthien og er unnin af syni Tolkien upp úr gömlum ritum hans.

Sagan segist vel á þennan máta
Ballettinn Rómeó og Júlía eftir okkar heimsþekkta dansara og danshöfund Helga Tómasson mun birtast á hvíta tjaldinu í Bíói Paradís í kvöld og annað kvöld.

Ljóðin kyrra hugann og gefa svigrúm
Þorsteinn frá Hamri sendi frá sér nýja ljóðabók fyrir skömmu. Hann á að baki einkar glæstan feril allt frá því að fyrsta ljóðabókin kom út árið 1958.

Þótti skrítin grein í byrjun
Kynjafræði hefur verið kennslugrein við Háskóla Íslands í 20 ár. Haldið verður upp á það í kvöld, 20. október, með afmælisfagnaði sem hefst klukkan 20 í Ingjaldsstofu.

Johnny Rotten kemur fram á Iceland Airwaves
Enski tónlistarmaðurinn John Lydon, áður Johnny Rotten úr pönksveitinni Sex Pistols, opnar íslenska Pönksafnið og kemur fram á Airwords, bókmenntadagskrá Iceland Airwaves.

Flakkarar og sérvitringar í galleríi i8
Drauma-Jói og Davíð fróði, Ástar-Brandur og Jóhann beri eru meðal kynlegra kvista í verki Birgis heitins Andréssonar Annars vegar fólk sem sýnt er þessa dagana í Galleríi i8.

Gítartónar Kristins innan um verk Valtýs
Gítarleikarinn Kristinn Árnason heldur tónleika í Listasafni Íslands laugardaginn 22. október. Þeir hefjast klukkan 17.

Raddir úr öllum áttum
Í tilefni af fimm ára afmæli sínu efnir Reykjavík Bókmenntaborg til málþings um gildi orðlistar í samfélaginu. Þingið er í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun. Allir eru velkomnir,

Friður í uppnámi
Flest Nóbelsverðlaunanna eru veitt af sérstakri akademíu í Stokkhólmi. Friðarverðlaun Nóbels eru hins vegar á vegum norska stórþingsins. Þau verðlaun hafa í gegnum tíðina vakið hvað harðastar deilur. Ein ástæðan er sú að mörgum þykir dómnefndin teygja sig ansi langt í útnefningum sínum og fara þar á svig við stofnskrána sem setur mjög stíf skilyrði um að þeir einir komi til greina sem verðlaunahafar sem beinlínis hafi unnið að afvopnun eða stuðlað að friði í deilum ríkja eða þjóðernishópa.

Húmor og samskipti kynjanna
Ítalska ljóðabókin eftir Hugo Wolf er hátt fjall að klífa í heimi ljóðasöngsins og því fáir sem takast á við það erfiða verk.

Það er margt sem verður aldrei mælt með reglustiku
Sigtryggur Bjarni Baldursson opnar sýningu í Hverfisgalleríi í dag. Viðfangsefnið sækir hann í skuggaveröld mýrlendisins sem er mikilvægara en nokkru sinni fyrr.

Magnaðar myndi úr björgunarsveitarstarfi
Sýning SigÓSig fyrir utan Hörpuna var opnuð í dag.

„Akademían ákveðið að ganga plebbaskapnum á hönd“
Sérfræðingar segja Bob Dylan ýmist sæmilegt skáld og höfund kjánalegra texta eða tónlistarmann á pari við það besta. Dylan fékk Bókmenntaverðlaun Nóbels í dag.

Ég er í senn bæði bílstjóri og farþegi
Hljómsveitarstjórinn Benjamin Levy vinnur nú hörðum höndum að uppfærslu Íslensku óperunnar á Évgení Onegin og honum finnst gott að vinna í íslenskri samkennd og fjölskyldustemningu.

Tónleikar í háskólakapellunni í hádeginu í dag
Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari og Grímur Helgason klarínettuleikari flytja verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson, Elínu Gunnlaugsdóttur, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og Jean Rivier á háskólatónleikum í dag.

Engin gleðimynd en áhrifarík
Heimildarmyndin Brotið verður frumsýnd sunnan heiða í Bíói Paradís og er á dagskrá þar fram yfir helgi. Þar er lýst mannskaðaveðri í apríl árið 1963 og áhrifum þess á Dalvík þar sem þrettán börn misstu feður sína í hafið.

Yndislegt að dusta rykið af svona snilldarverki
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Ourania Menelaou píanóleikari flytja í kvöld verk í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar sem heyrðist í fyrsta sinn á Íslandi vestur á Ísafirði síðastliðið sunnudagskvöld.

Kaupsýslumaður í forsetaslag
Komandi kosningar kunna að virðast einstæðar. Þar takast á annars vegar reyndur Demókrati, Hillary Clinton, með langan stjórnmálaferil en hins vegar athafnamaðurinn Donald Trump sem aldrei hefur gegnt opinberu embætti og er nýgenginn til liðs við Repúblikana eftir að hafa áður stutt Demókrataflokkinn. Þegar nánar er að gáð er þessi staða ekki fordæmalaus og minnir hún um margt á aðrar og ekki síður afdrifaríkar kosningar. Þær voru árið 1940.


Grípum í lygar
Eyrún Ósk Jónsdóttir hlaut í gær Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2016 fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa.

Þetta fólk er eins konar sorphaugur angistar okkar
Myndlistarmaðurinn Birgir Snæbjörn Birgisson opnar í dag sýningu í Sverrissal Hafnarborgar undir yfirskriftinni Von. Verkið samanstendur af portrettmyndum af þingheimi kjörtímabilsins sem er að líða.

Eyrún Ósk hlýtur Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
Eyrún Ósk Jónsdóttir hlaut í dag Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrir árið 2016 fyrir ljóðahandritið Góðfúslegt leyfi til sígarettukaupa en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri veitti henni verðlaunin í dag sem nema 700 þúsund krónum. Fyrstu eintökin af bókinni komu um leið úr prentun í útgáfu Bjarts.

Þrjár bækur um Melrakkasléttu
Sléttungurinn Níels Árni Lund hefur gefið út ritverkið Sléttungu, - safn til sögu Melrakkasléttu og Raufarhafnar.

Þeir eru í læstri hliðarlegu feðraveldisins
Annað kvöld verður frumsýnd stórsýning Hannesar og Smára á Litla sviði Borgarleikhússins. Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri þekkir þá kappa orðið flestum betur.

Úr drullunni verður fegurðin til
Tolli hefur löngum verið ötull við að færa listina til fólksins. Í dag opnar hann í Kringlunni og ætlar að bjóða fólki að hugleiða með sér í hádeginu.

Þreytir frumraun sína á sviði Borgarleikhússins
Davíð Þór Katrínarson leikari þreytir frumraun sína á sviði Borgarleikhússins í sýningunni Ræman eftir Annie Baker. Davíð Þór útskrifaðist frá Stella Adler Academy of Acting & Theatre í Los Angeles síðasta haust og segir námið hafa verið krefjandi og skemmtilegt.

Sýningin Iceland frumsýnd í Los Angeles
Leikkonan Ásdís Þula Þorláksdóttir útskrifaðist nýlega frá New York Film Academy í Los Angeles, hún tekur þátt í uppsetningu á verkinu Iceland sem frumsýnt verður á föstudaginn í Los Angeles.

Staldrað við í ljóðinu
Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir hefur skrifað alls kyns texta frá því hún var barn. Á morgun kemur út hennar fyrsta ljóðabók, Skýjafar. Ljóðin í henni mynda nokkurs konar ferðalag en skáldið vill að hver og einn túlki ljóðin á sinn hátt.

Við ætlum að skapa nýja gullöld íslenskra bókmennta
Valgerður Þóroddsdóttir er ungt skáld sem leiddist út í útgáfustarfsemi af hreinni nauðsyn. Hún stendur nú frammi fyrir því að taka þátt í jólabókaflóðinu í fyrsta sinn, þrátt fyrir að hafa þegar umtalsverða reynslu af útgáfu.